Bændablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 17
17Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
2
Áhugaverð heimildarmynd á RIFF-hátíðinni um eftirstríðsárin:
Tæplega 240 þýskar konur réðu sig
til vinnu á íslenskum bændabýlum
Tæplega 240 þýskar konur
fluttu til Íslands skömmu eftir
að Þjóðverjar töpuðu stríðinu
í seinni heimsstyrjöldinni.
Heimildarmynd um þessar
konur verður sýnd á kvik mynda-
hátíðinni Riff sem haldin verður
25. september til 5. október
næstkomandi. Myndin ber heitið
Eisheimat eða Home in the Ice og
er á þýsku en verður sýnd með
enskum texta.
Bakgrunnur myndarinnar er
Þýskaland eftir stríð, árið 1949.
Landið var í rúst án nokkurrar
vonar fyrir ungar konur, í landi
án karlmanna. Þá stóð þáverandi
Búnaðarfélag Íslands og forveri
Bændasamtaka Íslands að
auglýsingum í dagblöðum Norður-
Þýskalands á eftirfarandi hátt:
„Óskað eftir kvenkyns starfsfólki
á bóndabæ.“
Í kjölfarið fengu 238 þýskar
konur að fara til hinnar ókunnu
eyju í norðri og Íslendingar
upplifðu fyrstu fjöldaflutninga
fólks til landsins. Allar höfðu
þýsku konurnar sérstakar ástæður
fyrir brottflutningum frá rústum
Þýskalands og norður í haf. Myndin
segir sögu sex hugrakkra kvenna
sem líta á níræðisaldri yfir farinn
veg. Þetta er síðasta afturhvarf þeirra
til gamalla þurftartíma þar sem þær
þurftu að yfirgefa heimalandið og
hefja nýtt líf á heimili á ókunnugum
stað. Konurnar í myndinni hafa
fundið jafnvægi til að gera upp
gamla tíma og horfa á þá með
væntumþykju, opnum hug og
fyrirgefningu í hjarta.
Myndin er 90 mínútur að lengd
og handritshöfundur og leikstjóri er
Heike Fink. Framleiðandi er Juliane
Thevissen og meðframleiðendur
eru Birgit Guðjónsdóttir og Marcel
Reategui. Klippingu annaðist Galip
Iyitanir, hljóð: Arnar Ólafsson,
tónlist: Julia Klomfass og dreifing:
Thevissen Filmproduktion.
Sýnishorn úr myndinni má finna,
reyndar ótextað, á vefslóðinni:
http://vimeo.com/87575133
Bílabúð Benna
Vagnhöfða 23
110 Reykjavík
Sími: 590 2000
Dekkin
í verkin
Traktorinn, fjórhjólið, jeppinn og mótorhjólið
Upplýsingar á benni.is
Erum með dekk í öllum
verðflokkum. Góð ráð og
tilboð veita sölumenn
okkar í síma 590 2045
Umboðsmenn
um land allt
Gæðadekk fyrir íslenskan landbúnað
Fyrir jeppann, fjórhjólið og mótorhjólið
Ráðstöfun fjár
vegna ullarnýtingar
Samkvæmt 3. gr. verklagsreglna um ráðstöfun fjár
vegna ullarnýtingar auglýsa Bændasamtök Íslands
eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar.
Umsóknarfrestur er til 25. september næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Elías Blöndal Guðjónsson,
elias@bondi.is.
Bændasamtök Íslands,
Bændahöllinni við Hagatorg,
107 Reykjavík