Bændablaðið - 11.09.2014, Side 17

Bændablaðið - 11.09.2014, Side 17
17Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 SK ES SU H O R N 2 01 2 Áhugaverð heimildarmynd á RIFF-hátíðinni um eftirstríðsárin: Tæplega 240 þýskar konur réðu sig til vinnu á íslenskum bændabýlum Tæplega 240 þýskar konur fluttu til Íslands skömmu eftir að Þjóðverjar töpuðu stríðinu í seinni heimsstyrjöldinni. Heimildarmynd um þessar konur verður sýnd á kvik mynda- hátíðinni Riff sem haldin verður 25. september til 5. október næstkomandi. Myndin ber heitið Eisheimat eða Home in the Ice og er á þýsku en verður sýnd með enskum texta. Bakgrunnur myndarinnar er Þýskaland eftir stríð, árið 1949. Landið var í rúst án nokkurrar vonar fyrir ungar konur, í landi án karlmanna. Þá stóð þáverandi Búnaðarfélag Íslands og forveri Bændasamtaka Íslands að auglýsingum í dagblöðum Norður- Þýskalands á eftirfarandi hátt: „Óskað eftir kvenkyns starfsfólki á bóndabæ.“ Í kjölfarið fengu 238 þýskar konur að fara til hinnar ókunnu eyju í norðri og Íslendingar upplifðu fyrstu fjöldaflutninga fólks til landsins. Allar höfðu þýsku konurnar sérstakar ástæður fyrir brottflutningum frá rústum Þýskalands og norður í haf. Myndin segir sögu sex hugrakkra kvenna sem líta á níræðisaldri yfir farinn veg. Þetta er síðasta afturhvarf þeirra til gamalla þurftartíma þar sem þær þurftu að yfirgefa heimalandið og hefja nýtt líf á heimili á ókunnugum stað. Konurnar í myndinni hafa fundið jafnvægi til að gera upp gamla tíma og horfa á þá með væntumþykju, opnum hug og fyrirgefningu í hjarta. Myndin er 90 mínútur að lengd og handritshöfundur og leikstjóri er Heike Fink. Framleiðandi er Juliane Thevissen og meðframleiðendur eru Birgit Guðjónsdóttir og Marcel Reategui. Klippingu annaðist Galip Iyitanir, hljóð: Arnar Ólafsson, tónlist: Julia Klomfass og dreifing: Thevissen Filmproduktion. Sýnishorn úr myndinni má finna, reyndar ótextað, á vefslóðinni: http://vimeo.com/87575133 Bílabúð Benna Vagnhöfða 23 110 Reykjavík Sími: 590 2000 Dekkin í verkin Traktorinn, fjórhjólið, jeppinn og mótorhjólið Upplýsingar á benni.is Erum með dekk í öllum verðflokkum. Góð ráð og tilboð veita sölumenn okkar í síma 590 2045 Umboðsmenn um land allt Gæðadekk fyrir íslenskan landbúnað Fyrir jeppann, fjórhjólið og mótorhjólið Ráðstöfun fjár vegna ullarnýtingar Samkvæmt 3. gr. verklagsreglna um ráðstöfun fjár vegna ullarnýtingar auglýsa Bændasamtök Íslands eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar. Umsóknarfrestur er til 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Elías Blöndal Guðjónsson, elias@bondi.is. Bændasamtök Íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.