Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 15

Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 Bændablaðið kemur næst út 25. september Teiknistofa bænda Við höfum um árabil hannað landbúnaðarbyggingar af öllum stærðum og gerðum, bæði nýbyggingar og breytingar. Við hönnum einnig íbúðarhús, gerum kostnaðar áætlanir og deiliskipuleggjum svæði undir frístundabyggðir. Einnig leiðbeinum við bændum varðandi vatnsveitur. Til að fá nánari upplýsingar, endilega sendið okkur póst á netfangið tso@ simnet.is eða hafið samband í síma 553-3700 og 899-7864, Sæmundur eða Atli. reglugerðarinnar um vistvæna vottun. Hún skiptir okkur töluvert miklu máli, enda notum við merki hennar á okkar umbúðir. Hún er mikilvæg til aðgreiningar frá eggjum úr búrhænum, þar sem kannski fjórar til fimm hænur eru á járnagrind á litlum búrfleti. Við slíkar aðstæður hefur ein hæna oft ekki meira svæði en sem nemur stærð eins A4 blaðs. Þetta búraeldi hefur verið víkjandi í Evrópu á undanförnum árum. Líffræðilega séð eru brúneggin sömu gerðar og hvítu eggin, en við sáum þetta markaðstækifæri að auðkenna okkar vistvænu vöru með brúnum eggjum – eins og tíðkast víða í Evrópu. Þessi stofn okkar – þar sem hænurnar eru brúnleitar – verpir brúnum eggjum. Í raun má merkja lit eggjanna eftir lit eyrnasnepla fuglanna. Hænur með hvíta eyrnasnepla gefa af sér hvít egg, hænur með rauða snepla gefa brún egg. Fyrir utan það að hænurnar ganga frjálsar í okkar húsum felst sérstaða okkar einnig í því að við látum blanda sérstaklega fyrir okkur fóður fyrir fuglinn. Við teljum að það skili okkur bæði betri og frísklegri eggjum. Fóðrið er blandað í fullkomnustu fóðurverksmiðju í Danmörku og sérstaðan í þeirri blöndu er meðal annars sú að við höfum notað dálítið af repju í hana – og hærra hlutfall af hveiti er í blöndunni en tíðkast hefur hér, þar sem hlutfallið af maís hefur aftur á móti verið hærra. Þá eru nokkur atriði til viðbótar sem gera fóðrið betra, sem við gefum ekki upp. Við reynum að vera með níu til tíu fugla á fermetra. Í drögum að nýrri reglugerð um aðbúnað varpfugla í vistvænni ræktun er talað um níu fugla á fermetra að hámarki,“ segir Kristinn. Nýja reglugerðin og vistvæna vottunin Að sögn Kristins er dagur í lífi varphænu mjög svipaður frá degi til dags – eins og vænta má. „Þegar þær vakna á morgnana fá þær sér að borða og fara svo að huga að varpi. Þær verpa mest fyrri part dags. Síðan eftir hádegi, þegar þær eru farnar úr hreiðri, er blandað geði við aðrar hænur, sinna þörfum sínum og svo fara þær í svokallað rykbað. Þá þyrla þær ryki og undirburðinum yfir sig og hrista sig síðan vel. Þetta er mikilvægur hluti af þeirra lífsháttum. Þær eru mikið á ferðinni og njóta þess að fara um húsið. Þær byrja að verpa svona 18–20 mánaða gamlar. Við erum með stofnrækt, sem fyrr segir, og svo ölum við ungana upp á gólfi í varphænustærð. Þá fara þær í varphúsin og verpa í u.þ.b. 12–16 mánuði. Að svo búnu er þeim slátrað og höfum við reynt að nýta allt kjöt sem til fellur. Við höfum slátrað þeim hjá Ísfugli og selt sem vistvænar unghænur. Það er fugl sem er ekki eldaður eins og venjulegur kjúklingur, hann þarf mun meiri eldun og er til að mynda vinsæll í austurlenska matargerð.“ Möguleikar á Stafholtveggjum fyrir útivist Kristinn segir að þeir hafi verið búnir að leita sér að húsnæði um tíma til að geta aukið framleiðsluna og bætt við aðstöðu til uppeldis á hænuungum, þegar þeir fréttu af því að jörðin Stafholtsveggir 2 væri til sölu, en þar var áður hrossaræktarbú og svínabú þar á undan. „Við höfum smátt og smátt verið að brjóta niður veggi og koma húsum í stand. Við erum núna búnir að taka um helming af húsakosti í notkun,“ segir Kristinn sem reiknar með að um þriðjungur heildarframleiðslunnar muni fara þar fram þegar allt verður tilbúið. „Við sjáum einnig fyrir okkur framtíðartækifæri á Stafholtsveggjum 2 til að vera með útivist fyrir fuglana. Við gerum okkur grein fyrir því að það er æskilegt að sá möguleiki sé fyrir hendi, enda kemur það fram í reglugerð um vistvæna framleiðslu. Þar sem við höfum verið með okkar framleiðslu, að Teigi í Mosfellsbæ, hefur hins vegar verið örðugt að koma því við. Inn í það spilaði til dæmis tveggja ára bann við útivist alifugla vegna hættu sem var talin á fuglaflensusmiti. Í tengslum við þessa útivistarmöguleika sem við sjáum nú fyrir okkur hefur vaknað áhugi á því að skoða framleiðslu á lífrænt vottaðri eggjaframleiðslu. Það liggur fyrir að það vantar framleiðslu á slíkri vöru á Íslandi. Það þarf hins vegar talsverðan undirbúning fyrir slíkt, því stofninn sem gefur af sér hænuungana þarf einnig að vera lífrænt vottaður,“ segir Kristinn Gylfi. /smh Lagersala Líflands Opnunartími Virka daga: 13 – 18 Laugardaga: 10 – 16 Staðsetning Brúarvogi 1-3 Gengið inn að neðanverðu Fatnaður, gæludýra- vörur og fullt af öðrum flottum vörum! Frábært verð! Framleiðsla úr heimabyggð. Brúneggin frá Stafholtsveggjum eru auðkennd með sérstökum miða. Langt er síðan slík eggjaframleiðsla var stunduð síðast í Borgar rði. Varmadælur sem eru framleiddar og prófaðar fyrir norðlægar slóðir SEER 8,6 og SCOP 4,6 hefur prófað

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.