Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 19

Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 ekki slátrað fyrr en um fimm ára aldur. Aðrir hrútar sem notaðir eru til að halda stofninum við fá að lifa allt þar til þeir drepast úr elli. „Þá eru þeir kannski 14 til 15 ára gamlir. Þá fær náttúran einfaldlega að sjá um hræið. Venjulega tekur sjórinn þau eða hræin verða að fæðu fyrir urmul sjófugla sem eru á eyjunni auk refs,“ segir Sinclair. Vandinn í nútímasamfélagi Hann segir að líklega falli hvorki þetta, né dráp lambanna við fæðingu, undir ströngustu dýra- og náttúruverndarsjónarmið í dag. Þetta tilheyri þó hefðinni og svona hafi þetta verið alla tíð. „Þetta er vandi okkar í nútímasamfélagi sem við erum vel meðvituð um, en erum ekki með á hreinu hvernig við eigum að bregðast við.“ Hann segir að samkvæmt breskum lögum eigi að grafa hræin og gera grein fyrir hvar þau séu niðurkomin. „Það er svolítið snúið fyrir okkur að gera grein fyrir þessu. Svo við bendum bara á Norðursjóinn. Hingað til hefur það svar dugað. Selir, máfar og að einhverju leyti refir eru líka vandamál fyrir okkur, ekki síður en sjórinn sem tekur alltaf einhverjar kindur. Svartbakurinn (black backs) eins og við köllum hann, er til mikilli vandræða. Þeir ráðast á lömbin og drepa þau og einnig ræðst fuglinn á fullorðið fé og kroppar úr því augun. Við verðum því að fara út í dagrenningu, eða um klukkan fimm á morgnana, og vakta féð á vorin svo máfurinn fari ekki í féð. Það eru líka stórir refir á eyjunni sem sækja í lömbin ef tækifæri gefst. Refirnir eru þó ekki mjög margir.“ Stundum getur verið vindasamt Verðurfarið er eins og við má búast á láglendri eyju í miðjum Norðursjó. Þar getur orðið ansi hvasst, en húsin, sem flest eru hlaðin að hluta úr grjóti og með þykka veggi, standast slíkt ágætlega. „Við förum þó ekki út fyrir dyr ef vindurinn fer yfir 80 mílur á klukkustund (um 146 km) – nema vera með eitthvað þungt í höndunum,“ segir Sinclair. Hann nefnir þó að stundum verði rokið jafnvel mun meira. Eitt sinn hafi orðið tilfinnanlegt tjón í slíku veðri þegar hænsnahús fuku á haf út með öllu sem í þeim var. Vonast til að tölvutæknin snúi byggðaþróuninni við Sinclair segir að líkt og í dreifðum byggðum á Íslandi þá eigi byggðin á Norður-Ronaldseyju undir högg að sækja. Unga fólkið fari yfirleitt í burtu til náms og komi þá ekki aftur. Hann segist þó vonast til að tölvutæknin geti snúið dæminu við þótt líkurnar séu ekki miklar. Nú sé ekki lengur þörf á að vera inni í borgunum til að stunda margvíslega vinnu eins og verkfræðistörf, því slíkt sé eins hægt að stunda frá afskekktum byggðum. Þar sé lífið líka að mörgu leyti einfaldara og heilbrigðara en í stórborgunum. /HKr. Veðurfarið á eyjunni getur verið ansi harðneskjulegt, ekki síður en á Íslandi. Fjárbændur á Norður-Ronaldseyju eiga hver sitt mark líkt og íslenskir bændur. Ullin er eyjarskeggjum mikilvæg og er hún öll unnin í lítilli spunaverksmiðju sem stjórnað er af systur Sinclairs. REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 www.VBL.is REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is Heimavinnsla landbúnaðarafurða Kaffikvörn Hakkavélar Jógúrtvélar Þurrkofnar Eplaskrælari Hamborgarapressa Korn- og hveitimyllur Vakúm - Pökkunarvélar Bjúgnapressur Suðupottar Áleggshnífur Skilvindur Smjörstrokkar Kjötkrókar Hnífar í úrvali Brynjur Nú eru öll heimavinnslutækin komin í hús og allt klárt fyrir sláturtíð Borgartún 36 • 105 Reykjavík 588 9747 • www.vdo.is Kymco MXU 700 loksins komið Götuskráð tveggja manna öflugt fjórhjól. Fullkomið í vinnu, veiði eða leik.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.