Bændablaðið - 11.09.2014, Side 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Dongfeng DF-304-G2 Changchai-dísildráttarvél frá Kína:
Margur er knár þótt hann
sé næstum agnarsmár
Fyrir nokkru hafði samband við
mig fyrrum sveitungi minn og
spurði hvort ég hefði prófað eða
séð litla dráttarvél sem auglýst
var í Bændablaðinu. Ekki hafði ég
prófað vélina, en fyrir skemmstu
bauðst mér að prófa þessa litlu
dráttarvél við aðstæður sem ég
fyrirfram hélt að væri henni
ofraun.
30 hestöfl og ekki nema 2,2 tonn
Prófunin fór fram í gamalli
motocrossbraut við Bláfjallaveg
sem fólst í að draga heimatilbúinn
hefil eftir lítilli æfingabraut,
braut sem nokkrir menn sem
eru fimmtugir og eldri nota við
æfingar á torfæruhjólum. Yfirleitt
hafa þessir menn notað stóra jeppa
til að draga hefilinn. Dongfeng
kom verulega á óvart þar sem
hestöflin eru ekki nema 30 og
þyngdin ekki nema 2,2 tonn með
moksturstækjum. Þegar ég lagði af
stað bjóst ég ekki við að svona lítil
dráttarvél mundi ráða við að draga
hefilinn. Mér til mikillar furðu hafði
Dongfeng lítið fyrir því að draga
hefilinn, en það eina sem ég þurfti
að passa mig á var hliðarhalli þar
sem vélin er mjó og völt.
Hitnaði ekki einu sinni við
erfiðið
Að hefla þennan hring var ekkert
mál þó svo að vissulega hafi vélin
verið að erfiða í bröttustu hólunum,
en alltaf kraflaði fjórhjóladrifið
vélinni áfram. Alltaf var ég að bíða
eftir að vélin myndi festa sig eða
hitna um of. Reyndin var sú að hiti
vélarinnar var aldrei yfir 70 gráður,
en það eina sem ég hefði mátt gera
var að hafa heyrnarhlífar eða tappa
í eyrun því að í sumum brekkunum
var snúningurinn mikill og hávaði
nokkur.
Eftir heflun mokaði ég nokkrum
skóflum yfir klöpp sem í brautinni
er og að moka með vélinni er bæði
auðvelt og er hún lipur til moksturs.
Svona rétt til að prófa þá setti
ég skófluna á kaf í malarbing
vitandi að ekki færi skóflan upp
og þá fóru bara afturhjólin á loft.
En samkvæmt upplýsingum frá
innflytjanda vélarinnar byrjar hún
að lyftast upp að aftan við u.þ.b.
800 kg þunga.
Mín skoðun er að Dongfeng
geti ráðið við megnið af þeim
verkefnum sem meðalbóndi þarf að
fást við, henti vel til snjómoksturs
á gangstéttum og fyrir smærri
verktaka s.s. garðyrkju og fleira.
Helstu upplýsingar um Dongfeng:
DF-304-G2 Changchai dísilvél,
3ja strokka og 30 hestöfl við 2.400
snúninga á mínútu (sn/mín). Meðal
eldsneytiseyðsla 2–3 lítrar/klst.
Hátt og lágt drif með vendigír sem
gefur 8 gíra áfram og 8 afturábak.
Hámarkshraði 35 km/klst. Drif á
öllum hjólum með driflæsingu.
Kínverskur einfaldleiki, flautan,
ljósaro nn og stefnuljós í sama
takkanum.
Rúmir 1 0 cm með veltibogann niðri.
Mjög gott aðgengi er að vél til viðhalds, s.s. að bæta á olíu, glussa, vatni
og að skipta um síur.
30 cm er undir lægsta punkt.Ekki þolir vélin mikinn hliðarhalla.
Þyngd vélar með
moksturstækjum:
2.200 kg
Hámarks lyftigeta
moksturstækja og
þrítengibeislis:
800 kg
Breidd skóflu: 152 cm
Breidd traktors:
145 cm (hægt
að auka upp í
155 cm)
Allir boddýhlutir s.s. húdd, mælaborð og
bretti eru gerð úr glassfíber. Fullkominn
ljósabúnaður s.s. há og lág ljós,
parkljós, stefnuljós, neyðarljós (hazard),
bremsuljós og vinnuljós að aftan. Öflugur
dráttarkrókur.
Traktorinn er auðveldur í viðhaldi og hefur
engan tölvubúnað, 2ja ára ábyrgð.
Hægt að fá úrval fylgihluta, s.s. rúllugreip,
gröfuarm, herfi, tætara, plóg, staurabor,
ýtublað, hús með miðstöð o.fl. Evrópulager
er staðsettur í Þýskalandi, www.dongfeng-
europe.com Söluaðili Mögnun ehf. Sími
562-8000.
Vökvaúttak að aftan, t.d. fyrir sturtuvagn
Aflúttak 540 og 1000 sn/mín.
Hjólbarðar aftan 11,2x24" framan
6,50x16".
Aflúttak 540 og 1000 sn/mín.
Vökvastýri, beygjuradíus 2,4 metrar.
Niðurfellanlegur veltibogi,
þá er hæðin 185 cm
Moksturstækin eru tvívirk. Lyftihæð 2,7 m.,
vökvaþrýstingur 160 bar, flæði 25 l/mín.
Verð með tækjum kr. 1.950 þúsund + vsk.
Án tækja 1.550 þúsund án vsk.
Helstu mál og upplýsingar