Vestfirska fréttablaðið - 02.03.1978, Síða 4
4
O — Iðnskólinn á ísafirði
þ.e. hvort hann hafi aðstöðu
- verkstæði, verkefni og efni.
Verði af samningi, þá sendir
iðnfulltrúi staðfestingu á því
til iðnfræðsluráðs. Þetta er
meginverksvið iðfulltrúans,
auk eftirlits og skýrslugerða.
Það þyrfti að sinna þessu
starfi miklu betur en gert er.
Það þyrfti t.d. að fara oftar
á verkstæði og fylgjast með
því hvort þau uppfylltu þær
kröfur, sem gerðar eru til
þeirra \'arðandi iðnnámið.Eg
er búinn að vera í þessu í 20
ár og tel að yngri menn
ættu að taka við. En þegar
leitað er til yngri manna, þá
spyrja þeir eðlilega hver
launin séu fyrir þetta starf.
Þegar þeir heyra það, þá
þakka þeir gott boð. (Laun-
in fyrir febrúar 1978 voru
9.925.-). Ég hef ekki sóst
eftir þessum krónum og hef
lagt sjálfur út fyrir síma-
kostnaði og póstgjöldum.
Þetta sýnir e.t.v. hvaða aug-
um ráðamenn líta iðn-
fræðslu almennt, að ætla
iðnfulltrúa ein daglaun á
mánuði fyrir sín störf.“
,,En hvað með nemenda-
fjöldann. Hefur iðnnemum
fjölgað, þrátt fyrir deyfð
hins opinbera?“
,,Nei, það er takmarkaður
nemendafjöldi sem kemst
að. Það eru 50-60 náms-
samningar gangandi um ár-
ið. Margir komast aðeins í
1. og 2. áfanga, en ekki
lengra, því þeir verða að
vera komnir á samning til
að geta tekið próf.
Flestar þær iðngreinar
sem hér er að finna, eru
undirstaðan í atvinnulífi
bæjarins. En nú hin síðari
ár hefur orðið að sækja
vinnuflokka í aðra lands-
hluta, sem fara með hundr-
uð milljóna útúr byggðar-
laginu. Það eitt segir mikið
til um, hve gífurlega skort-
ir hér á.
Mér hefur fundist að
ráðamenn líti á iðnnám sem
annars flokks menntun. Það
heyrast í þeim amahljóð,
þegar borga þarf fyrir bætta
aðstöðu Iðnskólans. En þess
ber að geta, að aðstaðan
hefur farið batnandi, þó enn
vanti mikið upp á.“
,,Hvað ákvarðar fjölda
nema, sem hægt er að koma
að á verkstæði?“
,,Fjöldi nema fer eftir því
hve margir vinna hjá meist-
ara. Það er heimilt að taka
1 nema á hverja 1-2 lærða
starfsmenn; 2 nema á hverja
3-4 starfsmenn; 3 nema á
hverja 5-6 starfsmenn o.sv.
frv.
,,Nú hefur verið rætt um
að taka upp annað fyrir-
komulag hvað verklega
kennslu iðnnema snertir.
Hvað finnst þér um þær
tillögur?“
,JÚ, það hefur verið rætt
um að skólinn gerði beint
samkomulag við iðnmeist-
ara eða fyrirtæki. Það eru
hins vegar ýmis vandamál
við verklega kennslu á
vinnustöðum vegna ákvæð-
isvinnufyrirkomulagsins.
Vanir menn í ákvæðisvinnu
vilja ekki lærlinga. Það er
því erfitt að koma nemum
inn í vinnuflokka. Þeir fáu
sem komast að, fá ekki þá
kennslu eða verkþjálfun sem
æskileg getur talist. Þeir eru
e.t.v. settir í uppslátt ein-
göngu, en verkstæðisþjálfun
GAL-ofninn
Panelofn í sérflokki hvað
GÆÐI — VERÐ OG ÚTLIT
HF- OFNASMIPJAN
Háteigsveg 7 — Sími 2-12-20
verður hverfandi lítil.
Smíðafyrirtæki vilja leggja
allt of mikla áherslu á að
koma upp húsaskrokkum,
en minni áhersla er lögð á
það sem inn í þá á að
koma.“
„Telur þú að grundvöllur
sé fyrir verkstæði, sem sér-
hæfði sig í innréttingum?“
„Alveg tvímælalaust.“
„Nú má reikna með að
samningar beint við fyrir-
tæki eða meistara hafi í för
með sér kostnaðarútgjöld
fyrir bæjarfélagið. Telur þú
að bæjarfélagið sé reiðubúið
til þess?“
„Ég hef bent á það í við-
ræðum við framkvæmda-
stjóra iðnfræðsluráðs og
fleiri, að hið opinbera sé oft
með framkvæmdir sem iðn-
aðarmönnum er ætlað að
inna af hendi. Ég teldi eðli-
legt að þessi „kennslufyrir-
tæki“ yrðu látin fá a.m.k.
hluta af þeirri vinnu og
þannig yrði komið til móts
við þau. En þá kemur enn
Reglubundnar
ferðir alla mánudaga
frá Reykjavík til ísafjarðar og Akureyrar
Viðkoma á aukahöfnum eftir þörfum. Vörumót-
taka á föstudögum. í A-skála
H.F. Eimskipafélag íslands
Baldwin
HLJÓÐFÆRI
SKEMMTARINN
er hljóðfærið, sem alllr geta spilað á.
Heil hljómsveit í einu hljómborði.
EINNIG TVEGGJA
BORÐA ORGEL
með innbyggðum skemmtara.
Þessi þekktu hljóðfæri er hægt að útvega með stuttum fyrirvara.
Kynningarbæklingar og sýnishorn af skemmtara á staðnum.
UMBOÐ FYRIR VESTFIRÐI:
VERZLUN BJARNA EIRlKSSONAR
BOLUNGARVIK — SÍML7302
Baldwin
HLJÓÐFÆRI