Vestfirska fréttablaðið - 11.06.1980, Qupperneq 1
12. tbl. 6. árg.
vestíirska
11. júni'1980
FRETTABLADIS
Farþega- og vöruafgreiósla á ísafjarðarflugvelli: Símar 3000 - 3400 -
3410. Söluskrifstofa í Hafnarstræti: Símar 3457 - 3557.
FLUGLEIDIR
ALLAR SPLUNKUNÝJAR!
Eric Clapton
Elton John
Grateful Death
Madness
Clash
Sky II
Emylou Harris
Andrew Gold
Graham Parker
Alice Cooper
Alan Price
Billy Joel
Beach Boys
Áhöfnin á
Halastjörnunni
Tívolí
(lítil plata)
Joe Pass, Neil Henning o.fl.
Verslunin
ísafirði sími 3103
tveir á ferð við eggjatökuna að
þessu sinni og fóru á handvaði
í Hælavíkurbjarg, en í Horn-
bjarg fóru þeir neðan úr fjör-
unni. Væntanlega verða fleiri
svartfuglsegg á boðstólum í
næstu viku, því þeir félagarnir
ætla aftur í eggjatökuleiðangur
um helgina.
en þesskonar hármyndir þykja
dæmigerðar fyrir Vestfirði. Auk
þess voru sýnd steinasöfn, jurtalit-
irnir sem nú njóta mikilla vin-
sælda og jurtir þær ýmsar, sem
litirnir eru unnir úr. Þá var einnig
á sýningunni útsaumur og flos
eftir karla og konur.
Á föstudagskvöld flutti Guðrún
Vigfúsdóttir erindi um íslenskan
handvefnað í kaffiboði Sam-
bandsins í Húsmæðraskólanum
og sýndur var ýmiskonar fatnaður
frá Vefstofu Guðrúnar.
Á sunnudag afhjúpaði Þorbjörg
Bjarnadóttir, skólastjóri, fyrir
hönd Sambands vestfirskra
kvenna minnisvarða að Kambs-
nesi til heiðurs vestfirskum land-
námskonum. Hugmyndina að
þessum minnisvarða átti Svava
Thoroddsen og gerði hún grein
fyrir tildrögum hans og aðdrag-
anda. Hólmfríður Valdimarsdótt-
ir auglýsingateiknari útfærði hug-
myndina. Minnisvarðinn sýnir
þrjár konur, sem halda á fána,
táknmynd frelsisins. Fyrr um dag-
inn höfðu konurnar gengið í
skrúðgöngu til messu í ísafjarðar-
kirkju og síðan þegið hádegisverð
í boði bæjarstjórnar Bolungarvík-
ur. Eftir athöfnina í Kambsnesi
var öllum hópnum ásamt að-
komukonum boðið í kaffi í Hús-
mæðraskólanum af kvenfélögun-
um Hlíf, Ósk og Hvöt.
Til þessa glæsilega afmælis-
fundar Sambands vestfirskra
Á mánudaginn buðust ísfirð-
ingum svartfuglsegg í soðið og
seldust þessar eftirsóttu kræs-
ingar upp á stuttum tíma. Egg-
in tíndu þeir Tryggvi Guð-
mundsson og Kjartan Sig-
mundsson í Hornbjargi og
Hælavíkurbjargi. Alls náðu þeir
félagar í 4000 egg. Þeir voru
S.V.K.
Á þessari glæsilegu sýningu
mátti líta handavinnu og hand-
vefnað hverskonar, handprjón og
útprjón, skeljavinnu ýmiskonar,
skartgripi unna af vestfirskum
konum, málverk, muni úr steini
og myndir unnar úr mannshári.
Grasvöllur í notkun í jiílí
íþróttanefnd vinnur nú
markvisst að uppbyggingu í-
þróttaaðstöðu hér á [safirði.
Núna eru á Torfnessvæðinu
tveir vellir í byggingu, malar-
völlur, sem er áformað að verði
fullbúinn í sumar, og grasvöll-
ur sem verður ef vel viðrar
tekinn í notkun um eða eftir
miðjan júlí. Þessar upplýsingar
komu fram í viðtali Vestfirska
við Björn Helgason íþróttafull-
trúa bæjarins. Björn sagði að
innan tíðar yrði byrjað að reisa
svonefnt íþróttarvallahús á
Torfnesi. Tvö tilboð hafa borist
í húsið, en í tilboðsgögnum er
ráð fyrir því gert að húsið eigi
að vera fokhelt 1. október n.k. f
því verður öll nauðsynleg að-
staða, svo sem búningsklefar
og böð, geymsla fyrir verkfæri
o.fl. Á efri hæð verður aðstaða
til félagsstarfsemi, herbergi
fyrir vallarstjóra og aðstaða til
veitingasölu.
TVEIR FASTIR STARFSMENN
Björn sagði, að á þessu ári yrði
sennilega ekki unnið að byggingu
áhorfendasvæðis né hlaupabrauta
eða að snyrtingu og uppfyllingu á
svæðinu. Bíða þau verkefni næsta
árs.
Nú hafa verið í byggingu tveir
sparkvellir við sjúkrahúsið (nýja)
og við Orkubúið og sparkvöllur-
inn við Hjallaveg hefur verið lag-
færður. Tveir starfsmenn hafa
verið ráðnir að íþróttavöllunum í
sumar, þeir Friðjón Einarsson og
Jón Björnsson.
Sex sparkvellir eru því í notkun
nú sem stendur eða verið að
vinna að þeim. Á fjárhagsáætlun
eru 70 millj. kr. með ríkisframlög-
um til þessara valla og grasvallar-
ins.
ENDURNÝJUNÁ
SKÍÐASVÆÐINU
Þá sagði Björn Helgason, að
unnið væri að uppbyggingu á
skíðasvæði ísfirðinga og verða
tveir fastir starfsmenn þar i allt
sumar. Þetta starf hefur áður ver-
ið unnið allt í sjálfboðavinnu og
ekki hafist handa fyrr en skíða-
tíminn var í þann veginn að hefj-
ast. Öll tæki verða lagfærð, máluð
eða endurnýjuð á svæðinu, björg
sprengd burt og landið lagað á
annan hátt.
SUNDNÁMSKEIÐ OG
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Almennt sundnámskeið á veg-
um sundhallarinnar hefur farið
vel af stað, en það hefur ekki
verið haldið undanfarin ár. 48
börn eru á námskeiðinu á aldrin-
um 6-8 ára. Þá er fyrirhugað að
halda frjálsíþróttanámskeið í
sumar, en það lá niðri í fyrra
vegna aðstöðuleysis. Námskeiðið
verður að þessu sinni haldið í
endaðan júlí og er þess vænst að
nýi grasvöllurinn geti skapað
þátttakendum aðstöðu til ýmis-
konar leikja. Kennarar á þessu
námskeiði eru Rannveig Pálsdótt-
ir og Guðríður Sigurðardóttir.
Það verður nánar auglýst síðar.
Frá aðalfundi
Fulltrúar á aðalfundlnum á tröppum Húsmæðraskólans ósk
Aðalfundur Sambands vest-
firskra kvenna hófst í Hús-
mæðraskólanum á Isafirði og
jafnframt hálfrar aldar afmælis-
fundur Sambandsins. í tengsl-
um við fundinn var opnuð í
húsakynnum Gagnfræðaskól-
ans einhver merkasta heim-
ildasýning um vestfirska al-
þýðulist, sem hér hefur verið
haldin. Þátttakendur voru fé-
lagar í öllum aðlldarfélögum
Sambandsins á Vestfjörðum.
Vinnuveitendafélag Vestfjarða
Motmæla helgarvinnu
banninu harðlega
Vinnuveitendafélag Vest-
fjarða hefur í bréfi til Verka-
lýðsfélagsins Baldurs mótmælt
harðlega helgarvinnubanni því
sem Baldur setti á allar fisk-
vinnslustöðvar og upp- og út-
skipun á fiski. Telur Vinnuveit-
endafélagið að Baldur sé að
taka sér vald yfir verkafólki,
sem verkalýðsfélagið hefur
ekki samkvæmt gildandi
samningum. f samningunum er
kveðið á um að ekki sé hægt
að banna vinnu nema eftir kl.
20.00. Virðist samkvæmt
þessu sem verkafólk sé ekki
bundið af banni verkalýðsfé-
lagsins við helgarvinnu.
í bréfi vinnuveitenda til Verka-
lýðsfélagsins Baldurs er skírskot-
að til helgarvinnubannsins, sem
samþykkt var með 56 atkv. gegn
41 á fundi ísfirsks verkafólks fyrir
tveimur vikum. Sjö sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna. Bannið gildir
frá l. júní til 31. ágúst. Mótmæla
vinnuveitendur harðlega þessum
vinnutakmörkunum og telja, að
samkvæmt núgildandi kjara-
samningi geti félagið svo gilt sé
ekki sett einhliða á slíkt bann á
neinum degi, hvorki virkum né
helgum, nema eftir kl. 20.00.
Þess má geta, að þrátt fyrir
bannið hefur verið unnið í flest-
um rækjuverksmiðjum á Isafirði
síðustu tvær helgar og hafa feng-
ist til þess undanþágur frá Baldri.
Viggó Norðkvist, verkstjóri tjáði
Vestfirska fréttablaðinu, að fyrir-
hugaðar væru viðræður um und-
anþágur frá helgarvinnubanninu.
Sagði Viggó að það hefði mjög
mikla erfiðleika í för með sér
fyrir rækjustöðvarnar, ef vinna
væri bönnuð á laugardögum, og
því hefðu rækjuverksmiðjurnar
eindregið sóst eftir undanþágu frá
banninu.
etj-