Vestfirska fréttablaðið - 11.06.1980, Qupperneq 7
vestíirska
rRETTABLADIÐ
Guðlaugur Þorvaldsson í viðtali við Vestfirska:
„Myndi reyna að velja almennan mann-
kostamann”
Hvernig fara fundir forseta-
frambjóðendanna á vinnustöð-
um landsmanna fram? Eru þeir
„skotnir í kaf“ af íslenskum
verkalýð og spurðir í þaula um
afstöðu sína til þjóðmálanna
og almenn viðhorf? Til að fá
einhver svör við þessum
brennandi spurningum, fór
fréttamaður Vestfirska á tvo
vinnustaði með Guðlaugi Þor-
valdssyni, er hann hafði við-
dvöl hér á ísafirði í síðustu viku
á yfirreið sinni um Vestfirði.
Ekki verður sagt að fundirnir
hafi verið átakamiklir eða ýkja
fjörugir. Guðlaugur ræddi
hispurslaust um sjálfan sig og
þjóðfélagsleg viðhorf sín og
þeir sem fórnuðu „pásunni“
sinni til að hlusta í stað þess
að njóta veðurblíðunnar, hlust-
uðu kurteislega, klöppuðu vel
fyrir ræðunni, en spurðu einsk-
is.
Síðar um daginn bárust fregnir
af opnu húsi hjá gamla fólkinu í
Uppsölum og þangað skunduðu
menn ótrauðir. Á leiðinni fræddi
Guðlaugur íréttamann Vestfirska
um ferðaáætlun sína þessa dag-
ana. Það er greinilega ekki heigl-
um hent að fara í forsetaframboð.
f dag er Guðlaugur á ísafirði, á
morgun verður hann í Vest-
mannaeyjum og hinn daginn á
Blönduósi, Siglufirði og jafnvel
Húsavík. Vegna veikinda sinna
byrjaði Guðlaugur seinna en hin-
ir frambjóðendurnir og því er
yfirferðin öllu ..hektískari" en hjá
hinum.
Gamla fólkið tók vel á móti
Guðlaugi og allir fengu kaffi.
Valdimar Örnólfsson, sem var í
fylgdarliði frambjóðandans,
stjórnaði fjöldasöng. Allir stóðu
upp og sungu: Ó, fögur er vor
fósturjörð, og fleiri söngva, sem
snerta viðkvæma strengi í brjóst-
unum. Síðan talaði Guðlaugur
um trúarskoðanir sínar. Til að
lýsa þeim vitnaði hann í þjóð-
skáldið, sem orti um „Guð í al-
heimsgeimi, Guð í sjálfum þér.“
Ekki er víst að lúterskum guð-
fræðingum hefði fundist þetta
kórrétt lúterska. Hvað um það var
einlægni og hispursleysi Guð-
laugs á við margar predikanir.
Gamla fólkið hlustaði og ein
kona sagði stundarhátt: „Þennan
mann ætla ég að kjósa.“ Gömlu
mennirnir létu sér hinsvegar fátt
um finnast og spurðu hvort hann
vildi koma í lomber.
Um síðir tókst fréttamanni að
króa Guðlaug af og bað um við-
tal, sem hann tók ljúfmannlega.
SÁTTASTARF FORSETANS
—Hvernig leggst sá möguleiki í
þig að verða forseti fslands með
26% atkvæða á bak við þig?
—Það er vitaskuld leiðinlegra
að hugsa til þess, segir Guðlaug-
ur. Ég er þó þeirrar skoðunar að
þegar úrslitin liggja fyrir munum
við frambjóðendurnir standa heil-
ir og óskiptir á bak við þann sem
sigrar kosningarnar. Það liggur
a.m.k. alveg fyrir af minni hendi.
—Sagt er að forsetinn eigi að
vera maður sátta. Nú logar ís-
lenska þjóðfélagið oft af sundr-
ung og úlfúð undir niðri. Fráfar-
andi forseti er maður sátta, en
þetta hefur ekki breyst í hans tíð.
Breytist þetta í þinni tíð?
—Ég vil nú engu spá, en ég
mun að sjálfsögðu gera allt sem
ég get óbeint til að stuðla að
sáttum í þjóðfélaginu, ef ég verð
kjörinn. Ég geri mér grein fyrir
því að forsetinn er í sjálfu sér ekki
virkur sáttasemjari. Ég tel að
hann geti væði með ræðum sín-
um og framgöngu allri verkað
óbeint sem sáttasemjari. Ég vil þó
engu spá um hvernig mér tækist
til. ef mér yrði falið þetta em-
bætti. Allavega mundi ég leggja
mig fram um það.
Frambjóðendurnir hafa allir
margt til brunns að bera. Um
hvað stendur þá valið? Er kosið
um mannkosti frambjóðendanna
eða eitthvað annað?
verður hver að svara fyrir sjálfan
sig. Sennilega er það vegna þess
að þessar kosningar snúast fyrst
og fremst um einstaklinga, en
ekki málefni. Andstaða og sam-
staða verður skýrari, þegar menn
ræða um málaflokka, en mat á
einstaklingum er meira tilfinn-
ingalegs eðlis. Mikill fjöldi kjó-
senda þekkir frambjóðendurna
og á af skiljanlegum ástæðum
kannske erfitt með að gera upp
hug sinn í þessu samfélagi okkar.
Guðlaugur Þorvaldsson og Kristín, kona hans.
—Það er mjög erfitt að svara
þessari spurningu. Kannske er
þetta frekar tilfinnanlegs eðlis og
hvað ræður tilfinningum einstak-
linganna? Það er svo margt. Það
getur verið að menn finni ein-
hverskonar samstöðu með fram-
bjóðandanum, t.d. á sviði stjórn-
mála, trúmála, almennra viðhorfs
í menningarmálum eða atvinnu-
málum ellegar eigi eitthvert nán-
ara sálusamfélag við hann en
aðra menn. Ég treysti mér ekki til
að alhæfa neitt um þetta. en ég
held að fyrir bragðið verði úrslit
þessara kosninga þeim mun óviss-
ari.
—Ef þú ættir sjálfur að kjósa
forseta, hvað mundir þú láta ráða '
afstöðu þinni?
—Ég mundi reyna að velja al-
mennan mannkostamann. sem
gæti sameinað þjóðina. Jafnframt
legg ég áherslu á að viðkomandi
hefði töluvert víðtæka reynslu. Ég
legg ekki mikla dáherslu á djúpa
sérfræðiþekkingu á einhverjum
sérstökum sviðum, heldur miklu
fremur alhliða þekkingu á þjóð-
lífinu. Forsetinn þarf að spanna
mjög vítt svið og hann verður því
að þekkja til á mjög mörgum
sviðum.
FORSETASTARF ER TVEGGJA
MANNA STARF
—Er það nauðsynlegt fyrir í-
mynd þessa embættis að þínu
mati að forsetinn sé kvæntur?
—Nei, ég tel að það sé ekki
nauðsynlegt. Hins vegar verð ég
að segja það fyrir sjálfan mig, að
ég gæti ekki hugsað mér að búa
einn á Bessastöðum. Ég vildi hafa
konu mér við hlið. Þetta er mín
persónulega skoðun, forsetastarf-
ið er tveggja manna starf.
—í skoðanakönnunnum hefur
komið fram að stór hluti kjósenda
hefur ekki tekið afstöðu til ykkar
frambjóðendanna. Hverer ástæð-
an að þínu mati?
—Ég veit það nú ekki. Því
sem er svo lítið.
—Væri akkur i því fyrir forseta
Islands að hafa verið stjórnmála-
maður?
—Það tel ég ekki vera. Auðvit-
að spillir það alls ekki að hafa
almenna stjórnmálareynslu. Þó
get ég hugsað mér að þau tilvik
komi fyrir, þegar það getur orðið
honum fjötur um fót. Og ef ég
væri að því spurður hvort væri
betra að hafa aldrei komið nálægt
stjórnmálum eða hafa verið í
stjórnmálum. þá held ég að það
sé betra að hafa ekki komið ná-
lægt þeim. Annars hafa flestir
menn nasasjón af pólitík, þótt
þeir hafi ekki verið virkir í henni.
ÞRENNSKONAR VEGANESTI
—Telur þú að þín akademíska
reynsla hafi búið þig undir þetta
embætti?
—Já hiklaust. Þau ár sem ég
var rektor háskólans eiga sérstak-
lega að geta orðið mér gott vega-
nesti. Það er þrennt, sem ætti að
geta orðið mér veganesti. í fyrsta
lagi tel ég að bakgrunnur minn í
uppvextinum gefi mér töluverða
innsýn í íslenskt þjóðfélag. Þótt
það hafi mikið breyst hef ég aldr-
ei slitnað algjörlega frá því. í öðru
lagi gaf skólaganga mín mér
breiða yfirsýn yfir samfélagið og í
þriðja lagi tel ég mig ekki hafa
einhæga starfsreynslu. Ég hef
annarsvegar fengið tækifæri til að
kynnast stjórnsýslunni og stjórn-
kerfinu vel og hinsvegar hef ég í
Háskólanum umgengist nemend-
ur og kennara með mjög ólíkar
pólitískar skoðanir og hugmyndir.
Ég þurfti oft að taka á málum
sem voru svipaðs eðlis og er í
þjóðfélaginu. Síðast en ekki síst
hef ég talsvert mikla reynslu af
þátttöku í erlendum ráðstefnum
og móttöku erlendra gesta.
—Er eftirsóknarvert að vera
forseti á tímum eins og þeim sem
við lifum á?
—Það er áhugavert að takast á
við verkefni eins og þetta, en
hvað tímana snertir er það í sjálfu
sér ekki eftirsóknarvert að vera
forseti í nokkru landi. En einhver
verður að gegna því embætti og
þegar ég er spurður hversvegna ég
sé þá að gefa kost á mér, þá svara
ég samviskunni samkvæmt; eftir
að mjög margir höfðu leitað til
mín vítt og breitt úr þjóðfélaginu,
m.a. ábyrgir framámenn úr öllum
flokkum, þá taldi ég málið komið
á það stig að það væri skylda mín
að gera það. Og ég er við því
búinn að taka hvoru sem er, að
vera kjörinn með þeirri ábyrgð,
sem því fylgir, eða falla í þessum
kosningum og vera þá viðbúinn
að halda áfram að lifa lífinu og
styðja vel við bakið á þeim, sem
verður kosinn.
etj,-
FASTEIGNA
VIDSKIPTI
Hjallavegur 15,130 ferm.
einbýlishús úr timbri.
Steyptur kjallari, ca. 90
ferm. með 2ja herb. íbúð
og bílageymslu. Afhending
í sumar, eftir samkomulagi.
Fitjateigur 3, grunnur að
einbýlishúsi ásamt sökklum
fyrir bílskúr. Efni fylgir.
Stórholt 11,3ja herb. ca.
75 ferm. íbúð í nýju fjöl-
býlishúsi. Afhending eftir
samkomulagi.
Hlíðarvegur 7, 3ja herb. ca.
70 ferm. íbúð í góðu standi.
Afhending eftir samkomu-
lagi.
Traðaland 11, Bolungarvík,
einbýlishús úr steyptum
einingum, ásamt bíl-
geymslu. Laust í síðasta
lagi í september n.k.
Aðalstræti 32, 4 herb. ca.
80. ferm. íbúð í fjórbýlis-
húsi. Laus 1. júní n.k.
Strandgata 19a, 5 herb
gamalt einbýlishús á 2
hæðum. Afhending eftir
samkomulagi.
Sundstræti 14, 4ra herb.
ca. 85 ferm. íbúð á 2. hæð,
norðurenda. Afhending
með skömmum fyrirvara.
Fitjateigur 2, nýtt 144 ferm.
einbýlishús úr timbri
(Siglufjarðarhús) Selst í
núverandi ástandi eða full-
frágengið ef óskað er.
Laust til afnota strax.
Hjallavegur 8, neðri hæð, 4
herb. 135 ferm. íbúð með
sérinngangi. Laus 1. maí
n.k.
Vitastígur 17, Bolungarvík,
4 herb. íbúð á efri hæð í
tveggja hæða fjölbýlishúsi.
Laus til afnota 1. ágúst n.k.
Urðarvegur 56, grunnur að
raðhúsi. Komnir eru sökkl-
ar, milliveggur og plata að
hluta.
Tryggvi
Guðmundsson,
LÖGFRÆÐINGUR
Hafnarstræti 1, sími 3940
isafirði
ALLSKONAR PLÖTUR
FJÖLBREYTT ÚRVAL
SPÓNAPLÖTUR:
10 — 12 — 16 — 19 mm.
VATNSHELDAR
SPÓNAPLÖTUR:
12 — 16 mm.
VATNSHELDUR
BIRKIKROSSVIÐUR:
4 — 6 — 9 — 12 — 15 mm.
WISOFORM
(BRÚNN SJÓKROSSVIÐUR):
6 mm.
PLASTHÚÐAÐAR
SPÓNAPLÖTUR:
16 mm. hvítar
16 mm. palesander
19 mm. eik
19 mm. antik eik
Smíöaviöur
2”x7” og 2”x8” úrvals smíðafura
Harðviður:
Oregon pine, Ramin
Abakki, Beiki
T résmíöaverkstæöi
Daníels Kristjánssonar