Vestfirska fréttablaðið - 22.03.1984, Blaðsíða 1
12. tbl. 10. árg.
vestfirska
22. mars 1984
fRETTABLAÐIS
FLUGLEIÐIR
ISAFJARÐARFLUGVELLI
SÍMI 3000 OG 3400
FLUGLEIDIR
Vorum að taka upp:
Boli — Pils — Buxur
Samfestinga fyrir dömur
og herra o.fl. o.fl.
Verslunin tJmto ísafirði sími 3103
Vatneyrí hf. á Patreksfírdi:
Hyggst hefja rækjuviimslu í sumar
— hefur keypt fíystihús Skjaldar
„Við erum að gera okkur
vonir um að rækjuvinnsluleyfi
fáist allra næstu daga og þá
verði hægt að taka ákvörðun
um tækjakaup, þannig að inn-
an tveggja, þriggja mánaða
verði hægt að hefja vinnslu.”
Þetta sagði Bolli Ólafsson,
stjórnarmaður í Vatneyri h.f. á
Patreksfirði. en fyrirtækið á-
formar að hefja rækjuvinnslu á
komandi sumri.
„Við stefnum á djúprækjuna
og ætlum að gera ráð fyrir því að
það fáist veiðileyfi í samvinnu
við Grænlendinga hérna á
Dohrnbanka sem er alveg við
bæjardyrnar hjá okkur. Við höf-
um hlerað að góðar vonir séu um
það, jafnvel á næsta ári, þegar
Grænlendingar komast út úr
Efnahagsbandalaginu. Til upp-
fyllingar höfum vi hugsað okkur
að vinna Rússarækju."
Vatneyri h.f. var stofnað í okt-
óber í fyrra og eru hluthafar
ýmsir iðnaðarmenn, útgerðar-
menn, sjómenn og fleiri. Fyrir-
tækið hefur keypt af Byggðasjóði
frystihús Skjaldar og er búið að
standsetja vinnslusalinn. Þá er
verið að Ijúka við endurbætur á
frystitækjasal. Síðan verður
frystiklefinn tekinn í gegn í vor.
Bolli Óiafsson sagði að upp-
haflega hefði rækjuvinnslan ver-
ið ht asuð sem framtíðarverkefni.
en fy st kvótinn hefði reynst jafn
lítill og raun ber vitni telji þeir
ekki grundvöll fyrir að hefja fisk-
vinnslu í sumarbyrjun eins og
áætlað var. Blaðinu hefði því
verið snúið við og rækjan sett á
oddinn.
Það kom fram hjá Bolla að
rækjuvinnsla var síðast stunduð
á Patreksfirði fyrir 30 — 40 ár-
um. Þó hefur einn aðili á staðn-
um rækjuvinnsluleyfi, en hefur
ekki nýtt það.
5—6 bátar, 10 — 15 tonn
hver, munu leggja upp hjá fyrir-
tækinu. Einnig einn 200 tonna
bátur, Jón Þórðarson, en hann
stundaði einmitt rækjuveiðar í
fyrrasumar og lagði þá upp á
Isafirði. Þeir Patreksfirðingar
vilja síður missa hann útúr bæn-
um aftur og standa nú yfir við-
ræður um að Vatneyri kaupi bát-
inn.
Á Patreksfirði gera menn sér
vonir um að hið nýja fyrirtæki
fylli upp í tómið sem varð á
vinnumarkaðnum eftir að
Skjöldur safnaðist á vit feðra
sinna.
Flugstöðvamar á Þing-
eyrí og Patreksfírði:
Útboð í
innréttingar
opnuð
Sem kunnugt er standa nú
fokheldar flugstöðvar á Þing-
eyri og Patreksfirði. Nú hefur
verið auglýst útboð á innrétt-
ingum f þessar stöðvar og
verða þau opnuð í Reykjavík
miðvikudaginn 28. mars. Mið-
að er við að vinna við stöðvarn-
ar hefjist síðan um mánaða-
mótin aprfl — maí og Ijúki fyrir
haustið.
Flugstöðvar þessar eru byggðar
eftir sömu teikningu og eru ná-
kvæmlega jafn langt á veg komn-
ar. Stærð þeirra er rúmir 200
fermetrar og með tilkomu þeirra
batna aðstæður á flugvöllunum
mjög. Sem dæmi má nefna að á
Þingeyri hefur flugstöð verið til
húsa í stýrishúsi og skúr sem
upphaflega var á ísafjarðarflug-
velli.
IÞROTTAMAÐ UR ARSINS
í hófí á Hótel ísaGrði í gær var Einar Ólafsson, skíðagöngumaður sæmdur nafnbótinni
íþróttamaður ársins 1983 á ísafírði. Ólafur Helgi Ólafsson, form. ÍBÍ, aíhenti einnig viður-
kenningarskjöl þeim íþróttamönnum sem unnið höfðu íslandsmeistaratitil, sett íslandsmet,
keppt með landsliði eða farið á Ólympíuleika. Þeir sem hlutu þessa viðurkenningu voru,
auk Einars, f.v.: Stella Hjaltadóttir, Ingólfur Amarson, Martha Jörundsdóttir, Atli Einars-
son og GuðmumþtL Jóhannsson. A mvndina vantar Guðmund Magnússon.
Bikarmót í
Alpagreinum:
Daníel Hilm-
arsson og
Nanna Leifs-
dóttir unnu
tvöfalt
Bikarmót f alpagreinum fór
fram á Seljalandsdal um síð-
ustu helgi. Veður og færi var
hið ákjósanlegasta á laugar-
deginum, en öllu lakara á
sunnudeginum.
Allt sterkasta skíðafólk
landsins var mætt til keppni og
var búist við harðri og spenn-
andi keppni. í karlaflokki
reyndist Daníel Hilmarsson þó
vera í nokkrum sérflokki, vann
keppinauta sfna með miklum
mun í báðum greinum. í stór-
sviginu var hins vegar hörð
keppni um 2. — 4. sæti. Úrslit-
in:
STÓRSVIG KARLA
1. Daníel Hilmarsson, D 105,95
2. Guðm. Jóhannss. I 107,15
3. Atli Einarsson, í 107,66
STÓRSVIG KVENNA
1. Nanna Leifsdóttir, A 94,04
2. Signý Viðarsdóttir, A 94,34
3. Anna Malmquist.A 96,15
SVIG KARLA
1. Daníel Hilmarsson, D 94,71
2. Árni Þór Árnason, R 96,16
3. Ólafur Harðarson, A 98,18
SVIG KVENNA
1. Nanna Leifsdóttir, A 97,58
2. Hrefna Magnúsdóttir, A 98.66
3. Sigrún Grímsdóttir, I 108,72
Karlabrautirnar lagði Haf-
steinn Sigurðsson en kvenna-
brautirnar lagði Ásgeir Magnús-
son.
Við byggjum Tónlistarskóla:
Kabarett frumsýnd-
ur í kvöld
Ahugafólk um byggingu tón-
listarskóla á ísafirði, verður
með kabarettsýningar f Félags-
heimilinu f Hnífsdal n.k.
fimmtudags- og föstudags-
kvöld kl. 20.30.
Kabarrettinn verður í svipuð-
um dúr og á s.l. ári, en þá var
kabarett sýndur fimm sinnum
nánast alltaf fyrir fullu húsi.
Gestir munu allir sitja við
dekkuð borð og verða kaffi og
kökur borin fram í hléinu og er
það innifalið í aðgöngumiðan-
um.
Meðal þeirra sem koma
fram, eru Ólafur Kristjánsson
úr Bolungarvík, sem verður
kabarettstjóri, auk þess, sem
hann leikur á píanó við nokkur
tækifæri, Jónas Tómasson
tónskáld, sem er aðal driffjöðr-
in í fjölda atriða og Sigríður
Ragnarsdóttir kona hans, Lára
Helgadóttir og Einar Valur
dansa Jitterbug upp á gamla
mátann, hjónin Maria Kyriacou
og Ralph Hall tónlistarkennar-
ar leika, og Steinþór Þráinsson
og Soffía Guðmundsdóttir
syngja. Þá syngja Rósariddar-
arnir og litla sinfóníuhljóm-
sveitin leikur undir stjórn stóra
Framhald á bls. 3
| Júlíus farinn til breyt- j
j inga í Noregi j
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
L
— seldi 215 tonn af karfa í Bremerhaven í gær
Togarinn Júlíus Geir-
mundsson frá ísafirði mun
ekki dýfa trolli í sjó næstu tvo
mánuðina. Ástæðan er sú að
fyrirhugaðar eru umfangs-
miktar breytingar á skipinu,
einsog við sögðum frá f jan-
úar, og mun þeim ekki verða
lokið fyrr en um mánaðamót-
in maí — júní.
Hér er m.a. um að ræða
breytingar á snúningshraða vél-
arinnar, hann verður minnkaður
úr 375 snúningum í 150 — 160
snúninga. Jafnframt verður
skrúfan stækkuð mikið og fæst
þannig aukinn togkraftur.
Breytingarnar verða gerðar í
Volda í Noregi og á skipið að
vera mætt á sunnudaginn.
Reiknað var með að það seldi í
gær um 215 tonn af karfa í
Bremerhaven, en verð á karfa er
þrefalt hærra þar en hér.
Að sögn Kristjáns Jóhanns-
sonar hjá Gunnvör er óvíst
hvort þetta stopp skipsins hefur
meiri áhrif á vinnu hjá íshúsfé-
lagi ísfirðinga, þar sem það
leggur upp. en ella hefði orðið
vegna kvótaskiptingarinnar.
Hann benti líka á að togarar
hefðu áður verið frá án þess að
það bitnaði illa á frystihúsinu.
J