Vestfirska fréttablaðið - 29.03.1984, Side 1
Sérstaklega míkíð úrval
vefhaðar- og hannyrðavöru,
einnig ný og fjölbreytt snið.
KOMIÐ, SJÁIÐ, SANNFÆRIST
gím 7JÖÚ. f//5 &/ untja’iOík
Knattspyman á ísafirði:
Unglinga-
starfið
að heíjast
Góð aðsókn að kabarettínum
— vonast til aó framkvæmdir við nýjan tónlistarskóla hefjist í vor
Það styttist í vorið og sumar-
ið og öll þau veisluhöld tilver-
unnar. Og þegar fer að nálgast
þennan árstíma vaknar ýmis
starfsemi úr dvala. Dæmi um
það er knattspyrnuæfingar
unglinga. Æfingar fyrir fjórða
og fimmta flokk hefjast 2. apríl
næstkomandi og hefur Björn
Helgason verið ráðinn þjálfari,
en honum tii aðstoðar verða
Guðmundur Níelsson og Kon-
ráð Einarsson. Þeim krökkum
á aldrinum 10 — 14 ára sem
hafa áhuga á að æfa fótbolta er
bent á að innrita sig hjá Sig-
urði Sigurðssyni í Blómabúð-
inni frá 3—6 á morgun.
Jóhann Torfason mun taka að
sér þjálfun sjötta flokks, en það
eru krakkar undir 10 ára aldri
sem þann flokk fylla.
Af meistaraflokksmálum er
það tíðinda að Martin Wilkinson
mun koma til landsins á tímabih
inu 1. — 10. apríl og taka til við
þjálfun. Er óvíst hvort hann kem-
ur til með að hafa aðsetur í
Reykjavík eða á ísafirði, en
meistaraflokkur hefur sem kunn-
ugt er átt við landfræðilegt
vandamál að stríða. Jón Oddsson
hefur í vetur séð um æfingar
sunnanmanna, en Bjarni Jó-
hannsson hefur meðhöndlað
„heimamenn."
Um 500 manns hafa nú séð
kabarettinn í Hnífsdal. Verður
ekki annað séð en bæjarbúar
kunni vel að meta svona fram-
tak og vilji þar með styrkja
húsbyggingarsjóð tónlistar-
skólans. Vegna hinnar góðu
aðsóknar verður efnt til auka-
sýningar fimmtudaginn 5. apríl.
Menn eru nú farnir að sjá hilla
undir tónlistarskólahús á ísafirði.
Arkitektar eru að teikna það
og vonast er til að hægt verði að
hefja framkvæmdií strax í vor.
Hingað til hefur kennsla í þessum
tæplega tvö hundruð nemenda
skóla farið fram á 12 — 15 stöð-
um í bænum og er ólíklegt að
kennarar endist miklu lengur við
að kenna við slíkar aðstæður.
Heimili skólastjórans. Ragnars H.
Ragnars, og konu hans Sigríðar,
hefur sem kunnugt er verið undir-
lagt jafnt helga daga sem virka
vegna skólahaldsins.
Það er löngu viðurkennt að
tónlistin hefur þroskandi áhrif á
börn og unglinga og er því skól-
inn ein af undirstöðum menntun-
ar og heilbrigt veganesti til full-
orðinsáranna. Þeir sem vilja
leggja málinu lið geta sent pen-
inga inn á ávísanareikning nr.
21550 í útibúi Landsbanka ís-
lands á Isafirði, á nafn Byggingar-
sjóðs Tónlistarskóla ísafjarðar,
Pósthólf 149. ísafirði.
Bolungarvík:
Rúta fór útaf við vitann grýttri fjörunni
Á laugardaginn fór rúta útaf
við vitann á Óshlíð. Hafnaði
hún í fjörunni og gereyðilagð-
ist. Tíu manns voru í henni og
sluppu allir lífs nema einn.
Hann var dauður þegar að var
kOMllð.
Það var laust fyrir klukkan
hálf-eitt á laugardaginn sem boð
um slysið bárust til lögreglunnar í
Bolungarvík um að stórslys hefði
orðið við vitann. Björgunarsveitin
Ernir var þá þegar kölluð út og
fór allur tiltækur mannskapur. 20
menn, til björgunar. Að sögn
þeirra var aðkoman ljót og allir
farþegarnir lífshættulega slasaðir
nema einn sem einungis hafði
hruflast. Aftur á móti hafði hann
truflast á geði og gerði mönnum
erfitt fyrir. Þeim björgunarsveit-
armönnum tókst þó, þrátt fyrir
erfiðar aðstæður í grýttri fjörunni,
að koma mönnunum öllum í
sjúkraskýlið. Hinum slösuðu líður
nú eftir atvikum vel. enda búið að
hreinsa af þeim sárin og tómat-
sósuna. Hinn dauði er meira að
segja vaknaður til lífsins á ný.
„I stórum dráttum erum við
mjög sáttir." sagí i Jón Guðbjarts-
son, formaður ~ björgunarsveit-
arinnar þegar við spurðum
hvort þeir væru ánægðir með æf-
inguna. „Það gekk eiginlega allt
upp. nema smávægileg atriði sem
voru frekar til að brosa að. —
þeim sem átti að vera dauður
gekk illa að vera dauður. hann
fannst anda og var þá einungis
úrskurðaður stórslasaður. En
hvað varðar búnað. útkallskerfi.
talstöðvarkerfi og heildarstjórnun
tókst æfingin mjög vel. Hins veg-
ar kom í ljós að ekki var til nóg af
teppum til að halda yl á svona
stórum hóp og er þegar búið að
panta fieiri. Það kom líka í ljós að
við þurfum fleiri neyðartalstöðv-
ar. við vorum með nógu margar i
þetta en það var líka allt sem til er
í bænum. Því verður kippt í lið-
inn.
Við erum alltaf hræddir við
stórslys á Óshlíð og þessi æfing
var m.a. haldin til að athuga hvað
við þurfum á staðinn af búnaði í
fyrstu lotu."
Jón sagði að þessi æfing kæmi í
framhaldi af námskeiði í hjálp í
viðlögum. væri nokkurs konar
lokapróf. Björgunarsveitin hefur
verið með æfingar í hverjum
mánuði í vetur. Þannig æfðu þeir
í janúar björgun úr snjóflóði. í
febrúar var það fjallamennska. í
apríl verður flugslys á fjöllum og í
maí sjóbjörgun á Óshlíð.
Þeir Bolvíkingar ætla því ekki
að fljóta sofandi að feigðarósi.
Hann var lífshættulega slasaður
Blaðið í dag er tileinkað málefnum þroskaheftra
r
i
Frá hrútasýningunni.
Stuttfótur var dálítið þver
og ætlaði ekki að fást á
vigtina. Hann reyndist svo
ekki vera hrútur og var
vísað úr keppninni.
Óshlíð:
Frainkvæmdum
haldið áfram
í sumar
— reiknað með fyrstu
vegþekjunni 1986
í sumar verður haldið áfram
endurbótum á Óshlíðarvegi og
er áætlað verja til þess 12,6
milljónum króna, en s.l. tvö
sumur hefur verið unnið fyrir
12.1 milljón alls á núgildandi
verðlagi. Ekki hefur verið á-
kveðið enn hvort verkið verður
boðið út.
Samkvæmt heildarkostnað-
aráætlun við Óshlíð, sem lögð
var fram í nóvember 1981, á að
verja 223 milljónum króna á
núgildandi verðlagi til endur-
bóta á veginum. Þar af fer um
helmingur í vegþekjur. Fram-
kvæmdir við veginn eru því enn
skammt á veg komnar. Gísli
Eiríksson, umdæmisverkfræö-
ingur hjá Vegagerðinni, sagði
að útlit væri fyrir að hafist yrði
handa við fyrstu yfirbygginguna
1986, en þá væru 27 milljónir
ætlaðar í framkvæmdir við Ós-
hlíðarveg. Óshlíð er inni í fram-
kvæmdaáætlun við Ó-vegina
þrjá, Ólafsvíkurenni, Óshlíö og
Ólafsfjarðarmúla, og sam-
kvæmt henni átti að byrja á
Enninu, en taka síðan Óshlíð-
ina. Nú lýkur framkvæmdum að
mestu við Ennið í ár og taldi
Gísli það hugsanlegt að fjár-
framlög til Óshlíðar hækkuðu
strax næsta ár, og yrði þá hægt
að setja meiri kraft í fram-
kvæmdir.
Sérstæð sýning
á Bókasafninu
Á Bókasafni ísafjarðar
stendur nú yfir athyglisverö
sýning. Er það sýning á
verkum Sigurlaugar Jó-
hannesdóttur, en þau eru
öll unnin úr hrosshárum.
Sigurlaug er fædd 1945
og stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla (s-
lands 1965 — 67 og
Institudo Allende, San
Miguel de Allende Old
Mexico 1972 — 73. Hún
hefur haldið margar sýn-
ingar og átti t.d. verk á
sýningunni Scandinavia
Today. Sigurlaug hefur
verið stundakennari við
Myndlista- og handíða-
skóla íslands frá 1975.
Alls eru 12 verk á sýn-
ingunni á Bókasafninu og
verður hún opin eitthvaö
fram yfir helgi.