Vestfirska fréttablaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 2
vestlirska I
rftETTABLADID
\ restfirska n
1 FRETTABLAÐIÐ 1
Vikublad, kemur út á fimmtudögum kl. 18:00 — Skrifstofa
Hafnarstræti 14, sími 4011 — Opin virka daga frá kl. 10:00 —
12:00 og 13:00 — 17:00 — Blaðamaður Rúnar Helgi
Vignisson, sími 3325 — Útgefandi og ábyrgðarmaður Árni
Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100 — Verð í
lausasölu kr. 22,00 — Auglýsingaverð kr. 110,00 dcm. —
Smáauglýsingar kr. 210,00 — Áskriftarverö er
lausasöluverð, reiknað hálfsárslega eftirá — Prentun:
Prentstofan ísrún hf. sími 3223.
Jóhannes Jakobsson:
HORN STRAND AÞANKAR
Skerandi óp fæðandi kon-
unnar gerði þögn hinna enn
átakanlegri. Myndavélin tók
stikkprufur og sýndi sömu
neyðina í hverju skoti með
óverulegum blæbrigðum: ör-
magna, afmyndað fólk, hár-
laust og brennt, gamalt fyrir
aldur fram, og úr sljóum aug-
um þess skein vonleysið, um-
komuleysið og skilningsleys-
ÍJTÍ
BLÁINN
í dag skrífar
Rúnar Helgi
ið. Af hverju þurfti þetta að
gerast? — Tár stalst yfir
hvarma, eitt tár.
Unga konan hélt áfram að
æpa barnið úr kviðnum við
þessar óviðeigandi aðstæður.
Loks rataði linsan á hana, út-
glennta í magnvana kösinni.
Svo heyrðist barnsgrátur,
venjulegur barnsgrátur, án
þess að nokkrum stykki bros á
vör.
Aumingja barnið að fæöast
í engan heim.
Móðirin rekur upp vitfirrtan
hlátur yfir fáránleik fæðingar-
innar og skömmu síðar er
myndin búin með þeim eftir-
mála að þetta sé nú bara
vasaútgáfa af því sem senni-
lega mundi gerast í kjarnorku-
stríði. Myndinni sé ætlað að
vera þjóðum heimsins víti til
varnaðar.
BAHÁ I TRÚIN
Upplýsingar um Bahá'i trúna
eru sendar skrlflega, ef óskað
er. Utanáskrift: Pósthólf 172,
Isafirði. Opið hús að Sund-
stræti 14, sími 4071 öll
fimmtudagskvöld frá kl. 21:00
til 23:00.
AAFUNDIR
Kl. 21:00 á þriðjudagskvöld-
um og kl. 11:00 á sunnu-
dögum að Aðalstræti 42,
Hæstakaupstaðarhúsinu.
Sími3411.
AA DEILDIN
BARNAPÖSSUN
Er einhver stelpa sem vill
passa mig eftfr hádegi í sum-
ar. Ég heiti Anita er eins árs
og á heima í Holtahverfinu.
Ef svo er hringið þá í síma
4337.
En vill nokkur þjóð kjarn-
orkustríð? Vill nokkur ala barn
sitt í engan heim? Enginn hef-
ur heyrst játa því. Hvernig í
ósköpunum stendur þá á öll-
um þessum bombum?
Skilningsleysi mitt er mikið.
Mér er fyrirmunað að skilja af
hverju það þarf að vera sem
enginn vill að sé.
Og ég er ekki einn um það.
Ósjálfrátt fyllist maður reiði,
heilagri reiði yfir því hvernig
veröldin er í hendur okkar
unga fólksins búin. En þessi
reiði fær enga útrás, því þaö
er ómögulegt að finna söku-
dólg. Ekki getur maður stillt
foreldrum sínum upp við vegg
og gert þá að píslarvottum
heillar kynslóðar: það var ykk-
ar kynslóð sem fyllti heiminn af
bombum, svei! — En mamma
og pabbi hafa bara aldrei
komiö nálægt því að smíða
sprengjur og eru á móti þeim
einsog allir aðrir. Hver stóð þá
eiginlega fyrir þessu? Og tii
hvers? Enginn er svo heimsk-
ur að ætla að nota þessi
morötól, það væri að fyrirfara
sér og sinni þjóð. Til hvers þá
að smíða helsprengjur sem
ekki á að nota, því okkur er jú
sagt að ekki eigi að nota þær?
Til hvers í ósköpunum??
Til að varðveita friðinn
segja þeir.
Vart hafa þeir sleppt oröinu
þegar fregnir berast af styrj-
öldum utanúr heimi. Saklausir
borgarar liggja í ná sínum
einsog hráviði. Barn grætur í
rústum. Þessu getum við
fylgst með í sjónvarpinu, en
helstríð mundum við ekki sjá á
skjánum nema uppdiktað.
Þó „Daginn eftir'‘ hafi verið
ósköp sakleysisleg mynd þá
var samt gott að koma útá
tröppur Alþýðuhússins og sjá
að heimurinn var ennþá til, að
Ijósin spegluðust í lygnum
Pollinum og vor var í lofti. Enn
er tími til stefnu, enn er mögu-
leiki. En hvernig? Hvernig á að
koma því í kring sem allir vilja?
Ég fórna höndum.
TIL SÖLU
Svifdreki til sölu, tilvalinn fyrir
byrjendur Finefly. Kennsla
innifalin.
Upplýsingar í síma 3598.
ATHUGIÐ
Að gefu tilefni er óviðkom-
andi stranglega bönnuð öll
selveiði í landareign Reykja-
fjarðar og Þaralátusfirði í
Grunnavíkurhr. N—ísafjarð-
arsýslu.
Landeigendur
TIL SÖLU
10 mánaða Electrolux—ís-
skápur.
Upplýsingar í síma 4248.
(BÚÐARHÚSNÆÐI
Öska eftir að taka 3ja til 4ra
herbergja íbúð á leigu á ísa-
firði. Get boðið 2ja herbergja
íbúð í Reykjavík í leiguskipt-
um.Upplýsingar í síma 4268
eftirkl. 19:00.
Nú þegar félög og skrifstofur
eru í óða önn að ganga frá
ferðaáætlun sumarsins, er ekki
úr vegi að hugleiða öryggismál
ferðamanna sem leggja leið sína
um Hornstrandir. Eins og flestir
vita er þar aöeins hægt að ferð-
ast fótgangandi á landi.
Þar eru allar ár óbrúaöar frá
Ófeigsfirði og vestur að ísafjarð-
ardjúpi. Þessar ár eins og marg-
ar aðrar geta orðið með öllu
ófærar á einni nóttu, ef svo hátt-
ar veöráttu. Þær vatnsmestu á
austanveröum ströndum eru Ey-
vindarfjarðará, Meyjará, Bjarna-
fjarðará og Reykjafjarðarós, þær
tvær síðastnefndu jökulár. Það
hefur nokkrum sinnum hent aö
fólk hefur snúiö við í Reykjafirði
vegna vatnsflaumsins í tjeðum
ám, aö ráði kunnugra. Einn hóp-
ur ferðamanna kom norður á
Strandir 1982 frá Ófeigsfiröi, og
útbjó fleka úr rekaviði og tókst
að ferja fólkið, 8 manns, áfalla-
laust yftr-Eyvindarfjarðará. Ekki
vil ég ráðleggja að treysta á
slíkt. Svo verður að geta þess að
frá Dröngum var fólkið flutt
framhjá Meyjará og Bjarnafjarð-
ará. Við í Reykjafirði fréttum af
ferðum hópsins og bóndinn í
Öfeigsfiröi hafði af því áhyggjur
hvernig úr rættist hjá fólkinu.
Höfðum við bát til taks og fórum
til móts við hópinn þegar til hans
sást og ferjuðum tiann framhjá
Reykjafjarðarós, sem var í svo
miklum vexti þessa daga að ég
minnist ekki að hafa séð hann
meiri. Nú voru þessir júlídagar
sem hér um ræðir bestu og blíð-
ustu dagar þess sumars. Hlý
suðvestanátt, nokkuð hvöss
stundum og sól skein nótt sem
dag. Einhverjum kann að finnast
að svona lagaö geti ekki staðist,
en það er satt samt. Viðbrögð
náttúrunnar eru stundum tor-
skilin, en þessir miklu vatnavext-
ir í ánum eiga sér eðlilegar for-
sendur. Það er mín reynsla af
íslenskum ferðamönnum nú til
dags aö þeir eru mjög óglöggir
að velja sér vöð á ár, vaða helst
þar sem styst er yfir.
Húsnæöismál ferðamanna á
Hornströndum þarf líka að taka
til umfjöllunar og úrbóta. Til er
ætlast að fólk búi í tjöldum og er
það gott svo langt sem það nær.
Skýli SVFI eru aðeins heimili í
neyðartilvikum eins og það er
orðað í tilkynningum. Nú er
þetta teygjanlegt hugtak, telst
það neyðartilvik þegar fólk kem-
ur í náttstað holdvott en hresst
og heilbrigt? Ég veit af reynslu
að fólk færi í skýli SVFÍ ef til
staðar væri, þótt ástandið væri
ekki svo vont sem hér er nefnt.
Þetta leiðir til misnotkunar, of
mikils álags á skýlin.
Leyfi ég mér birta hér orðrétt
nokkrar línur úr skýrslu minni til
Náttúruverndarráðs 1982. ,,Ég
var að tala um skýlið í Furufirði
og er best að Ijúka því, 12. ágúst
kom ég þar síðast, þá er stödd
þar ensk fjölskylda, doktor með
konu og 4 dætur, giska á aldur
10—20 ára. Þrjár þær yngstu
sátu í hnipri á gólfinu í svefn-
pokum upp að höndum. Þaö rétt
sást lífsmark í eldavélinni, sem
er í mesta óstandi, ekki hægt að
loka eldhólfi og gat á hnéröri úti,
en hefur verið vafið í álpappír,
umbúðum af matvælum. Eldivið-
ur var nægur inni en rennandi
blautur og sviðnaði því í eld-
stæðinu. Húsið fullt af raka,
þungu lofti og óvistlegt á allan
máta."
Þeir sem hafa eftirlit með skýl-
Frá sundlauginni í Reykjafirði
unum kenna ferðamönnum um
slæma umgengni og mætti hún
að vísu vera betri. En mér virðist
stundum gæta nokkurrar óvildar
í garð ferðamanna hjá eftirlits-
mönnum skýlanna og því er
stundum trassað að gera við
það sem mætti kalla eðlilegt slit.
Eldstórnar endast mjög illa í
þessum köldu húsum.
Ljóst er að aldrei ætti að
beina fleiru fólki vísvitandi á
einn stað á Hornströndum, en
svo að hægt sé að koma því í
húsaskjól þegar slagveður
geisa. Ég hef fyrir satt að oft á
undanförnum sumrum hafi verið
60—70 samankomið í Hornvík.
9. ágúst 1982 varð 35 manna
hópur aö flýja tjöld sín undan
óveðri, í skýli SVFÍ í Höfn í Horn-
vík og þótti þá þröngt á þingi.
Fólk getur ekki sest í bíl sinn og
ekið heim þegar illa viðrar á
Hornströndum. Það verður að
sitja þar sem það er statt, unz
veðrinu slotar. Það hefur verið
hljótt um þetta friðland á Alþingi
síðan lög um það voru sett og
ákveðið var að beina aukinni
umferð á það svæði m.a. til að
létta á ofsetnum stöðum á há-
lendinu og sunnanlands.
Ég lít svo á að tímabært sé að
háttvirt Alþingi og þeir sem
skipuleggja ferðir á Hornstrand-
ir, fari nú að huga að öryggis-
málum ferðalanga um þennan
landshluta. Með vaxandi um-
ferö, skapast aukin hætta á slys-
um. Að fara að undirbúa að
setja göngubrýr á vatnsmestu
árnar nú þegar og vinna að því
verkefni áfram.
Beita sér fyrir byggingu ferða-
mannaskála á aðalánigastöðum
ferðafólks í þessu stórbrotna,
hálenda og svipmikla land-
svæði. í þeirri góðu trú eru þess-
ar hugleiðingar fram settar.
SUNDLAUGIN ( REYKJAFIRÐI
Sundlaugin í Reykjafirði var
byggð á árunum 1937—1938 og
vígð 2. júlí það ár. Það var eins
með þetta fyrirtæki og svo mörg
önnur á þessum tíma, sem ung-
mennafélögin og einstaklingar
beittu sér fyrir, voru af vanefnum
reist. í stuttu máli af áhuganum
einum. Laugin er 8 x 20m og
mesta dýpi er 1,70m. Á síðast-
liðnu ári voru 45 ár liðin síðan
hún var tekin í notkun. Má und-
ur kalla að hún skuli enn halda
vatni, að vísu hafa heimamenn
lagt á sig nokkra fyrirhöfn ár
hvert til að svo mætti vera. Nú
verður ekki lengur komist hjá því
að hefja endurbætur sem duga
til frambúðar.
Það er andleg og líkamleg
hressing þreyttum ferðamanni
að komast í heitt bað. Kannski
má segja að þetta sé „perla í
eyðimörkinni" eða þannig hefur
mér komið fyrir sjónir viðbrögð
og undrun ferðafólks þegar því
hefur gefist kostur á að njóta
þessarar heilsulindar á svo af-
skekktum stað.
En endurbætur kosta peninga
og það vefst fyrir manni hvernig
þeirra skal aflað. Vil ég hér
beina þeirri ósk til stofnana og
félaga sem um ferðamál fjalla að
gefa góð ráð og leggja okkur lið.
Mætti þar nefna Ferðamálaráð,
ferðafélögin og ferðaskrifstofur
sem skipuleggja ferðir um Horn-
strandir. Þá má ekki gleyma því
ráöuneyti sem þessi mál heyra
undir og mættu vestfirsku þing-
mennirnir koma þar til liðs.
Viö eigendur Reykjafjarðar
höfum á síðustu árum mælst til
þess við ferðafólk sem af fúsum
og frjálsum vilja hefur haft orð á
því að greiða fyrir tjaldstæði,
bað og aðra aðstoð, að það meti
það sjálft og greiði þá hver eftir
efnum og ástæðum, og hefur
það runnið í sundlaugarsjóð.
Hafa nokkrir hópar og einstakl-
ingar gert það mjög myndar-
lega, þótt ekki séu nöfn tilgreind
þá eru þau geymd og kærar
þakkir til ykkar allra.
Ég hef verið félagi í Ferðafé-
lagi íslands frá 1936 og get ekki
stillt mig um að minna þá á að
þeirra hópar hafa notiö góðra
stunda í sundlauginni og annar-
ar fyrirgreiðslu í Reykjafirði en
aldrei látið neitt af hendi rakna
svo ég minnist, taki sig nú á og
leggi okkur liö. Þá vil ég senda
öllum nemendum mínum frá
sundnámskeiðum í Reykjafirði
kærar kveðjur og vænt þætti
mér um ef þeir sæju sér fært aö
minnast liðinna daga í Reykja-
firði við sund og leik, með því aö
styrkja endurbætur á sundlaug-
inni okkar.
Smáauglýsingar