Vestfirska fréttablaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 6
vestfirska
vsstfirska
rRETTABLAuID
[
FRETTABLADID
hefur
heyrt
AÐ næst á dagskrá hjá
Litla leikklúbbnum sé Kjart-
anskvöld, blönduö dagskrá
unnin uppúr verkum Kjart-
ans Ragnarssonar, leikrita-
skálds. Tekin veröa atriöi
úr flestum leikritum Kjart-
ans, s.s Saumastofunni,
Týndu teskeiöinni, Skiln-
aði, Peysufataeginum, Jóa
og fleirum. María Maríus-
dóttir mun leikstýra og
velja efni ásamt fleiri meö-
limum LL. Stefnt er aö
frumsýningu um miöjan
maí...
AÐ fólk á nokkrum bæjum
viö norðanvert Djúp heyri
vel í Rás 2 án allra auka-
loftneta. Skyldi þaö eiga
einhvern þátt í að nytin
minnkaði í kúnum í vetur?
AÐ maður nokkur á Flateyri
vilji nota fjárlagagatiö
fræga til að búa til jarð-
göng yfir á ísafjörð...
Kabarett á Suðureyri
(sfirðingar eru ekki einir um
kabaretthald á Vestfjörðum. Á
sunnudaginn hyggjast Súgfirð-
ingar frumsýna fjölskyldukaba-
rett í félagsheimili staðarins.
Hann verður síðan fluttur Þing-
eyringum laugardaginn 5. maí.
A kabarettinum verður ýmis-
legt til skemmtunar, kórsöngur,
tvöfaldur kvartett treður upp,
fluttur verður tvísöngur við gítar-
undirleik, einnig frumsamið lag
um Súgandafjörð. Þá verða gam-
anvísur og gamanþættir á boð-
stólum, samleikur á fiðlu og har-
monikku, og Boy George kemur
fram.
Aðaldriffjöðurin í þessu kabar-
etthaldi hefur verið Einar Logi
Einarson, skólastjóri tónskólans,
en ágóða af sýningum, ef einhver
verður, fer til kaupa á orgeli fyrir
kirkjuna.
Ogeðslegt fugladráp á Oshlíð:
Kom að hálfdauðum
múkkum á Óshlíð
— fuglinn friðaður á þessum árstíma
Magnús Hansson f Bolung-
arvík hafði samband við blaðið
og sagði frá Ijótum aðferðum
við fugladráp á Óshlíðinni nú á
dögunum. Sagðist hann hafa
komið að tveimur múkkum á
götunni í gærmorgun. Hefði
annar verið skotinn í gegnum
hálsinn, en af hinum hefði ver-
ið skotinn annar vængurinn og
var hann hálfdauður þegar að
var komið. „Það er lítilmann-
legt hvernig menn virðast geta
komið fram við skynlausar
skepnur,“ sagði Magnús og
sagði þetta ekki vera í fyrsta
íbúð óskast
Óskum eftir að taka á leigu fjögurra herbergja
íbúð. Hugsanleg leiguskipti á 4—5 herbergja íbúð í
Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma 4160.
Ibúðarhúsnæði
Viljum taka 3ja — 4ra herbergja íbúð á
leigu fyrir starfsmann.
VÉLSMIÐJAN ÞÓR HF.
ÍSAFIRÐI — SÍMI 3711
DANSLEIKUR
í Góðtemplarahúsinu
mánudagskvöld 30. apríl kl. 23:00 — 3:00
Borðapantanir frá kl. 22:30
Fagnið 1. maí í Gúttó
Alltaf sama fjörið
Ásgeir — Margrét — Dúddi — Palli
o
1 H A pLEGGUR \ OG SKEL J fataverslun barnanna
Nýjar vörur í hverri viku.
Buxur — Vesti — Jakkar —
Samfestingar — Strigaskór.
Mikið úrval af ungbarnafatnaði.
Leggur og skel
Ljóninu, Skeiði
Sími4070
E
o
(ö
ö)
D>
3
o
Hljóðfæraversliin
á Patreksfírði
skipti sem hann kæmi að fugl-
um í svona ásigkomuiagi.
„Það er allt annað en skemmti-
legt þegar ferðafólk er að koma
á sumrin að sjá þetta liggjandi
eins og hráviði útum alla hlfð,”
sagði Magnús.
Þess má geta í þessu sambandi
að múkki er friðaður frá 31. mars
til 1. september ásamt fuglum
eins og lóm, súlu, stokkönd,
skúm, hvítmáf, bjartmáf, hettu-
máf og ritu. Það er því ljóst að
athæfi viðkomandi byssubófa á
Óshlíðinni varðar við lög. Það eru
einungis kjói, svartbakur, sílamáf-
ur. silfurmáfur, og hrafn sem
veiða má allt árið.
Þeim tilmælum er hér með
beint til byssueigenda að fara að
lögum við fugladráp og láta af
öllum óþverrahætti.
Gláma, því rammvestfirska
nafni, heitir ný versiun á Pat-
reksfirði. Þetta er hljóðfæra-
verslun og er hún til húsa að
Stekkum 19. Eigendurnir eru
tveir, Hilmar Árnason og Eivind
Solbakk. Sá síðarnefndi er
jafnframt tónlistarkennari á
staðnum og hefur háskólapróf
í hljómsveitarstjórnun. Þetta er
annar vetur Eivinds á Patreks-
firði, en hann er norskur.
Að sögn Hilmars Árnasonar
hefur verslunin alls konar hljóð-
færi á boðstólum auk fylgihluta.
Þeir flytja inn sjálfir og selja bæði
í heildsölu og smásölu. Þannig
hafa þeir einkaumboð fyrir
Eminent orgel á íslandi og hafa
hug á að dreifa þeim í aðrar
hljóðfæraverslanir.
Hilmar sagði að þó markaður-
inn væri takmarkaður hefði selst
ótrúlega mikið af hljóðfærum síð-
SÓLBAÐSSTOFA
AUSTURVEGI 13
SÍMI3026
OPIÐ FRÁ
7:00 TIL 23:00
ÞÆGINDI
HREINLÆTI
GÓÐ ÞJÓNUSTA
an verslunin var opnuð. Verslun-
in er einungis opin á föstudögum
og laugardögum.
Þess má geta að á Patreksfirði
er nú komin vísir að lúðrasveit og
skipa hana 30 manns, mest börn.
Skíðamót Islands:
Isfirð-
ingar
hlutu
flest
verðlaun
• fsfirðingar hlutu flest
verðlaun á skíðalandsmót-
inu sem fram fór á Akureyri
um páskana, hlutu alls 18
verðlaun, 6 gull, 7 silfurog
5 brons. Verður þetta að
teljast dágóð frammistaða.
Guðmundur Jóhanns-
son vann 3 gull. Hann sigr-
aði með yfirburðum í stór-
svigi, var í sigursveit ísfirð-
inga í flokkasvigi og vann
alpatvíkeppnina.
Stella Hjaltadóttir vann
svo hin gullin þrjú með því
að sigra í 3,5 km og 5 km
göngu 16—18 ára og þessi
árangur færði henni að
sjálfsögðu sigur í göngu-
tvíkeppninni. Stórglæsi-
legt hjá Stellu.
6,5 m.
Húsnæði til leigu
Þetta húsnæði, sem er á neðri
hæð í Ljóninu á Skeiði, er til leigu.
Hentar vel fyrir verslun, sjoppu,
veitingastað, skemmtistað eða fyrir
léttan iðnað.
Einnig er laus einn verslunarbás á
efri hæð.
Allar nánari upplýsingar gefur
Heiðar Sigurðsson á staðnum eða
í síma 3441 á kvöldin og 4211 á
daginn.
Húsnæðið er laust nú þegar.
Ljóniö s.f. Skeiöi.
10,0 m.
X
c
= ca. 280 fermetrar.
E
o
of
16,5 m.
Gluggar