Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 4

Vestfirska fréttablaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 4
ísafjarðarkaopstaðar Viðtalstímar Föstudaginn 27. apríl verða bæjarfulltrú- arnir Kristján Jónasson og Árni Sigurðsson til viðtals við bæjarbúa á bæjarskrifstofun- um að Austurvegi 2, frá kl. 17:00 — 19:00. BÆJARSTJÓRINN Á ÍSAFIRÐI BÆJARFÓGETINN Á ÍSAFIROI SÝSLUMAÐURINN í ÍSAFJARÐARSÝSLU Lausar stöður Við embætti bæjarfógetans á ísafirði og sýslumannsins í ísafjarðarsýslu eru lausar til umsóknar þrjár stöður lögregluþjóna til afleysinga frá 1. júní til 15. september 1984. Þá eru lausar til umsóknar tvær stöður héraðslögreglumanna í Flateyrarhreppi. Umsóknum skal skila til skrifstofu minnar eigi síðar en 15. maí 1984 á eyðublöðum, er fást á öllum lögreglustöðvum. 24. apríl 1984 Bæjarfógetinn á ísafirði Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu Pétur Kr. Hafstein. Póstur og sími Laus staða 50% starf póstafgreiðslumanns er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 10. maí. Upplýsingar veitir stöðvarstjóri. PÓSTUR OG SÍMI, ÍSAFIRÐI SANDFELL HF PÓSTHÓLF 111 - 400 ÍSAFJÖRÐUR Tilkynning til hluthafa Sandfells hf. Ný jöfnunarhlutabréf hafa verið gefin út í samræmi við samþykkt síðasta aðalfundar félagsins. Verða þau afhent hluthöfum á skrifstofu félagsins gegn framvísun eldri hlutabréfa. Arður verður greiddur fyrir árið 1982 gegn framvísun arðmiða. STJÓRN SANDFELLS HF. vestfirslta I FRETTABLACID „i Vín er tónlistarkennsla mikil nákvæmnisvinna. Þar er mikilvægt” allt undir smásjá og hvert einasta smáatriði er Fyrir nokkrum árum birt- ust hér í Vf teikningar sem vörpuðu skoplegu ljósi á líf- ið og tilveruna. Sumar þess- ara teikninga komu alla leið frá Vín, þeirri háborg menn- ingar og lista, til að birtast í blaðinu okkar. Það var Salbjörg Sveins- dóttir sem teiknaði þessar myndir. Hún er nú komin í heimsókn í heiða daiinn, þ.e.a.s. Hnífsdalinn, en und- anfarin ár hefur hún meðal annars numið við Tónlistar- skóla Vínarborgar. Þar áður var hún í Tónlistarskóla Reykjavíkur og þar áður hjá Ragnari okkar H. Við sótt- um Salbjörgu heim áður en hún hélt á vit heimsmenn- ingarinnar aftur. „Ég er búin að vera tæp fimm ár í Vín, e'n hef verið mikið á flandri um löndin í kring, Ungverjaland, Júgóslavíu, Tékkóslóvakíu og fleiri lönd. Það er svo auðvelt að ferðast þegar maður er þama úti. Mér líkar mjög vel í Vín af mörgum ástæðum en sér- staklega af því að þar er mjög mikið um að vera í tónlistarlífinu. Það er mjög sjokkerandi að koma frá íslandi og fara í tónlistarnám í Vín. Hér heima var maður kannski sæmilegur hljóðfæraleikari, en þegar maður kemur til Vínar þá veit maður smæð sína því þangað safnast toppfólk hvaðanæva úr heiminum. Mér virðast Austurríkismenn vera margfalt námkvæmari en íslendingar. Þeir halda uppi miklu meiri aga í skólunum og gengur það jafnvel alltof langt. Kennarar eru alveg einráðir í kennslunni. Á Islandi er það aftur á móti öfugt, því þar vaða nem- endur uppi. I Vín er tónlistarkennsla mikil nákvæmnisvinna. Þar er allt undir smásjá og hvert einasta smáatriði er mikil- vægt. En það kemur sér vel þegar farið er að spila á tónleikum að hafa unnið undir slíkri smásjá — það kemur aðeins betur í veg fyrir taugaóstyrk að vita að maður hefur nokkurn veg- inn hreina samvisku gagn- vart tónverkinu sem á að spila. Það sem ég kæmi til með að sakna mest frá Vín eru kunningjarnir sem ég hef eignast þar á þessum árum. Og það eru ekki aðal- lega Austurríkismenn, það er fólk frá mörgum þjóð- löndum, því að í Austurríki er nefnilega stórt alþjóðlegt samfélag Bahá‘ia. Þarna kynnist maður líka af eigin raun ýmsu sem aðeins heyr- ist í fréttum uppi á íslandi. Heimurinn minnkar eigin- lega. Það er líka orðið svo stutt að fara frá Hnífsdal til Vínarborgar. I fyrsta skipti sem ég fór var þetta einsog að fara á heimsenda. Það er til marks um framfarirnar á þessu tímabili að fyrsta vet- urinn minn úti var erfitt að ná símasambandi heim, en núna tekur maður bara upp tólið.“ Salbjörg sagði að í Aust- urríki byggju nú um 20 ís- lendingar. Sumir væru giftir Austurríkismönnum, en meirihlutinn væri við nám og flestir við tónlistamám, aðallega söngnám. Islend- ingamir þar eru vanir að koma saman og halda þorrablót á vetuma að gömlum sið, auk þess sem þeir hittast reglulega á einu kaffihúsi í Vínarborg til að spjalla saman á móðurmál- inu. Salbjörg hefur ásamt öðrum haldið nokkra tónleika í Vín og nágrenni undanfarin tvö ár, t.d. í til- efni af mannré*ttindadegi Sameinuðu þjóðanna o.fl. slíku. Einkum hefur hún leikið með sænskri stúlku, Borit Carlsson að nafni, en hún spilar á selló. Þegar Salbjörg er þarna á æflngu með Borl

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.