Vestfirska fréttablaðið - 26.04.1984, Side 5
vestfirska
1
FRETTABLADID
Það eru gífurleg
viðbrigði að koma aftur til
íslands. Ég var til dæmis
fyrir stuttu í Jugóslavíu og
þá var þar farið að vora og
gróðurinn að byrja að
blómstra. Síðan kem ég allt
í einu hingað í miðjan vetur
— og það eru viðbrigði.
Eiginlega missi ég þá allt
skyn á árstíðir. Samt finnst
mér alveg sérstaklega gam-
an að koma hingað á vet-
uma. Það er svo mikil upp-
lifun þegar allt er á kafi í
snjó, stormur og læti og allt
einangrað. Það er virkilega
hressandi — í smátíma að
minnsta kosti.
En það er nauðsynlegt
fyrir hverja manneskju að
hleypa heimdraganum og
sjá að Hnífsdalur er ekki
miðpunktur tilverunnar.“
t og persneskri stúlku
í
þær voru að spila á tónleik-
um í tilefni nýársdags
Bahá‘ia í síðasta mánuði
mættu útvarpsmenn á stað-
inn og tóku upp tónleikana.
„Þetta kom okkur óskap-
lega á óvart og ég hrökk nú
eiginlega bara í kút þegar
það kom þarna maður og
fór að taka upp hljóðnema
og aðrar græjur án þess að
spyrja um leyfi. Ég sendi
honum bara hornauga. Við
spiluðum svo þarna án þess
að gera veður útaf þessu, en
eftir það hafði hann viðtöl
við okkur. Mig spurði hann
aðallega um kuldann á ís-
landi og hvemig væri að
búa þar. Síðan kom obbinn
„Það er nauðsynlegt fyrir hverja manneskju að hleypa helmdrag-
anum og sjá að Hnsdalur er ekki miðpunktur tilverunnar”
að fólkið fær eitthvað ann-
að að hugsa um en bara
fingrasetningu og pedala.
Mig langar líka að kenna.
Á vissan hátt hef ég fengið
ágætis skólun í kennslu-
fræði og finnst hún mjög
athyglisverð, sérstaklega
byijendakennsla. Frá mín-
um trúarbrögðum hef ég
líka þá skoðun að maður
eigi að reyna aö meðhöndia
hvern og einn á jákvæðan
og uppbyggilegan hátt. Og
ekki gagnrýna. Krakkar
gefa miklu meira ef þeir fá
stuðning og uppörvun. Auk
þess finnst mér tónlist vera
svo mikilvægt atriði í sam-
bandi við þroska hvers ein-
staklings að enginn ætti að
fara á mis við tónlistar-
kennnslu.
í Vín er byrjað á því að
láta krakkana gefa eitthvað
af sjálfum sér. Láta þá
prófa sig áfram eftir eyranu
fyrst. Ef þau fá þannig að
kynnast hljóðfærinu fyrst
verða þau ekki eins hrædd
við það.
af þessu í útvarpinu þremur
dögum seinna, ásamt því
sem þar voru kynntar í stór-
um dráttum helstu megin-
kenningar Bahá‘í trúar-
bragðanna.
Ég mundi hafa
áhuga á að spila hér með
öðrum eins og ég hef gert í
vetur. Við höfum haft
ákveðið form á þessu, haft
einhvern efnisþráð sem við
höfum síðan túlkað með
tónlist og upplestri. Ég er
sannfærð um að þannig er
hægt að ná betur til fólks-
ins. Þarna erum við með
ákveðinn boðskap, þannig
5
Verður stofnuð Málfreyju-
deild í Bolungarvík?
Næstkomandi laugardag 28.
apríl heldur málfreyjudeildin
Sunna, ísafiröi, kynningarfund
á starfi málfreyja í Verkalýðs-
húsinu, Bolungarvík, sem leiðir
vonandi til stofnunar deildar
þar. Málfreyjudeildin Sunna,
ísafirði, var stofnuð síðastliðið
vor eftir kynningarfund mál-
freyja úr Reykjavík. Deildin var
strax fullskipuð 30 konum og
hefur haldið uppi líflegu og
uppbyggjandi starfi í vetur.
Hvað eru Málfreyjur?
Málfreyjudeild er hluti af alþjóð-
legum félagssamtökum kvenna
sem nefnast Alþjóðasamtök
málfreyja (á ensku International
toastmistress). Grunnein.ingar
samtakanna eru málfreyjudeild-
ir og dreifast þær um allan
heim. Upphaf samtakanna á
rætur sínar að rekja til Banda-
ríkjanna og stofnandi þeirra var
Ernestine White. Voru samtökin
formlega stofnuð í október
1938 og stefna þeirra er: að efla
frjálsar og eðlilegar umræður
sem skulu vera hlutlausar í öll-
um stjórnmálum, félagsmálum,
fjármálum, kynþáttamálum og
trúmálum. Markmið samtak-
anna er einnig forusta og þátt-
taka í ábyrgu þjóðfélagsstarfi,
með tjáningu í formi ræðu og
ritlistar. Fyrsta deildin var stofn-
uð hér á landi árið 1976 en nú
eru þær orðnar 16.
Við í málfreyjudeildinni
Sunnu hvetjum Bolvískar konur
til að koma og kynna sér hvað
málfreyjustarfið hefur uppá að
bjóða. Okkur Sunnu konum til
halds og trausts verður Erla
Guðmundsdóttir formaður út-
breiðslunefndar 1. ráðs mál-
freyja á íslandi. Sjáumst allar í
Verkalýðshúsinu laugardaginn
28. apríl kl. 2.
Frá Sunnu
Knattspymulið ÍBÍ:
Dvöldu í æfingabúðum hjá
Lokeren um páskana
Á mánudaginn komu leik-
menn ÍBl úr viku æfinga- og
keppnisferð til Belgíu. Dvöldu
þeir í æfingabúðum hjá hinu
góðkunna liði Lokeren. Þá
voru leiknir tveir æfingaleikir
og unnust þeir báðir. Björn
Helgason, fararstjóri, tjáði
blaðinu að ferðin hefði heppn-
ast mjög vel að öllu leyti og
verið mikill ávinningur fyrir lið-
ið.
Kapparnir héldu utan mánu-
daginn 16. apríl og hófu æfingar
strax á þriðjudagsmorgni. Urðu
þeir að sæta sama aga og skipu-
lagi og atvinnumenn og sagði
Björn strákana hafa fengið orð
fyrir góða framkomu. Á þriðju-
deginum voru teknar tvær æfing-
ar þar af önnur úthaldsæfing úti í
skógi.
Á miðvikudeginum var farið í
skoðunarferð um Lokeren og
heilsað uppá leikmenn Lokeren-
liðsins. Um kvöldið kepptu þeir
síðan við Lokeren SW sem er lið
hálfatvinnumanna og áhuga-
manna. Sá leikur vannst með einu
marki gegn engu og skoraði
Kristinn Kristjánsson markið.
Fimmtudagurinn var helgaður
æfingum og farið um miðjan dag-
inn til Brussel, en þangað er stutt
ferð frá Lokeren.
Á föstudeginum var ekið til
Gent, sem er um 80 þúsund
manna borg, og leikið gegn vara-
liði RC Gent. en í því eru 4—5
atvinnumenn. Leikurinn var mjög
spennandi. Gent skoraði fyrst, en
Ragnar Rögnvaldsson, sem er nýr
í ísafjarðarliðinu, jafnaði með
glæsilegu marki beint úr horn-
spyrnu. Belgarnir komust síðan
yfir aftur, en Kristinn Kristjáns-
son jafnaði, 2—2. Sigurmark Is-
firðinganna skoraði Guðmundur
Magnússon síðan eftir skyndiupp-
hlaup og var það hið fallegasta
mark.
Á laugardeginum héldu strák-
arnir til Antwerpen og horfðu þar
á hið fræga Anderlecht leika gegn
Luik. Og á sunnudeginum sáu
þeir I. Brugge leika gegn Lokeren
í Brugge.
Björn Helgason lét mjög vel af
móttökunum ytra og aðbúnaði
öllum. Æfingaaðstaða Lokeren er
skínandi, þeir hafa fimm velli
fyrir utan aðalvöllinn og auk þess
skógarsvæði þar sem lagðar hafa
verið hlaupabrautir. Mikil veður-
blíða var meðan á ferðinni stóð,
sól og 25—27 stiga hiti.
Björn gat þess að rætt hefði
verið um áframhaldandi samstarf
milli liðanna og þá jafnvel í formi
unglingaheimsókna.
Alls fóru 16 leikmenn til Belgíu
auk þriggja fararstjóra. Ferðina
skipulagði Kristján Bernburg í
samvinnu við Pétur Ágústsson hjá
Flugleiðum og fylgdi sá fyrr-
nefndi liðinu allan tímann og
reyndist mjög vel að sögn Björns.
Þjálfari liðsins var Van Goethem.
aðstoðarþjálfari Lokeren, en
Kristján Bernburg var aðstoðar-
þjálfari.
Þessi mynd vartekin f ferðinni