Vestfirska fréttablaðið - 17.05.1984, Síða 1
19.tbl. 10.árg.
vestfirska
17. maí 1984
FRETTABLASID
FLUGLEIÐIR
ÍSAFJARÐARFL UG VELLI
SÍM, 3000 OG 3400 FLyGL£/£)//?
Tókum upp
fullt aí nýjum
vörum í dag.
Opið laugardag
kl. 10:00 —12:00
Verslunin
Gpliá
ísafiröi sími 3103
Litli leikklúbburinn
framsýnir:
KJARTANS-
KVÖLD
f kvöld er fyrsta Kjartans-
kvöld Litla leikklúbbsins í Fé-
lagsheimilinu Hnífsdal. Þessi
kvöld eru tileinkuð Kjartani
Ragnarssvni, leikritahöfundi,
enda er dagskrá þeirra unnin
uppúr verkum hans. Lesið verður
úr sex verkum Kjartans, ásamt
Ofvitanum, sem er leikgerð hans
á sögu Þórbergs Þórðarsonar.
Aukþess verður sungið úr Saum-
astofunni.
Það er sjálfsagt óþarfi að
kynna Kjartan, flestir hafa séð
Aðalfundi Hótels ísafjarðar hf. lokið:
Gestur Halldórsson kjör-
inn stjórnarformaður
Aðalfundi Hótels ísafjarðar
hf. fyrir árið 1982 lauk á
sunnudaginn. Þar var kosin
ný stjórn og valdi hún Gest
Halldórsson, forstjóra Vél-
smiðjunnar Þór, sem for-
mann. Aðrir í stjórn eru Kon-
ráð Jakobsson, Guðniundur
Marinósson, Kristján Jónas-
son og Tryggvi Guðmunds-
son. Allir eru þeir nýir í stjórn,
en Konráð sat áður í vara-
stjórn.
Gestur Halldórsson sagði í
samtaii við Vf að mái hótelsins
væru nú að skýrast og væri hann
bjartsýnn á að lausn finndist
innan tíðar. ..Númer eitt er að
halda áfram þar sem frá var
horfið og koma skuldamálum
hótelsins í höfn. Við reynum
hvað við getum og ef það geng-
ur ekki, þá skilum við þessu af
okkur."
— Hvenær býstu við að lausn
liggi fyrir?
„Við í stjórninni yrðum ekki
ánægðir með annað en að lausn
lægi fyrir innan mánaðar."
Enn á eftir að halda aðalfund
fyrir árið 1983 og sagði Gestur
að búast mætti við honum í
haust.
4 t 1
eitthvert verka hans. María
Maríusdóttir, sem hefur umsjón
með kvöldinu, sagði hann gíf-
urlega hugmyndaríkan leik-
húsmann. „Hann kemur auga á
ýmislegt í daglega lífinu og
stingur á ýmsum kýlum, en
kreistir þó ekki út fyrr en í Jóa,“
sagði María.
Það eru sjö félagar úr LL sem
ætla að lesa uppúr verkum
Kjartans í kvöld. Dagskráin
hefst kl. 21:00 og verða kaffi-
veitingar á boðstólum í hléi.
Önnur sýning verður síðan á
sunnudaginn á sama tíma. Þá er
fyrirhugað að heimsækja ná-
grannabyggðirnar í júní.
Þau drogu ekki af se krakkarnir ur
sunddeild Vestra við að dreifa
félagsskítnum svonefnaa á grasbala
bæjarbúa um síðustu helgi. Höfðu
þau meira en nóg aö gera og er enn
langur biðlisti hjá þeim, því margir
vilja félagsskít. Ágóðinn af starfi
krakkana rennur í sjóð sem notaður
verður tii að fjármagna Danmerkur-
ferð á næsta ári.
Tónlistarskólinn:
Þrennir vor-
tónleikar
Tónlistarskólinn á ísafirði
heldur þrenna vortónleika í
næstu viku, á þriðjudag og mið-
vikudag kl. 20:30 og á laugar-
dag, 26. maí, kl. 17:00. Hvern
dag er mismunandi efnisskrá.
Á tónleikunum koma um 130
nemendiir fram með einleik á
ýmis hljóðfæri. Þá eru sam-
leikshópar yngri og eldri nem-
enda og má þar nefna fiðlusveit
eldri nemenda og undirbún-
ingssveit blásara, svo og lúðra-
sveit tónlistarskólans. Hóparnir
leika undir stjórn kennara
sinna.
Allur ágóði af tónleikunum
rennur í hljóðfærasjóð tónlist-
arskólans. I vetur hefur verið
keypt mikið af hljóðfærum fyrir
lúðrasveitina, þannig að sjóður
þessi er orðinn ansi grannur.
Þeir sem mæta munu því leggja
góðu málefni lið, hvernig sem á
það er litið.
Dagheimilið við Eyrargötu:
Allir verkþættir boðn-
ir út á næstunni
biðlistar tiltölulega stuttir
Hálfkarað dagheimilið við boð fram í þessum mánuði eða
Eyrargötu á Isafirði hefur nú í
nokkur ár staðið sem vitnis-
burður um fjárvana bæjarfé-
lag. Á þessu ári er fyrirhuguð
breyting á þessu — meining-
in er nefnilega að Ijúka við
dagheimilið.
f fjárhagsáætlun er áætlað að
verja 2.2 milljónum til fram-
kvæmda við dagheimilið. Sam-
kvæmt upphaflegri áætlun var
gert ráð fyrir að hægt yrði að
taka þriðjung heimilisins í
notkun á þessu ári. Þeirri áætlun
hefur nú verið breytt. þannig að
allir verkþættir sem eftir eru
verða boðnir út í einu lagi og
miðað við að vinna hefjist í
október og Ijúki um mitt næsta
ár. Tæknideild hefur verið falið
að útbúa útboðsgögn og fer út-
þeim næsta.
Svo unnt sé að hefja starf-
rækslu heimilisins er nauðsyn-
legt að ganga frá lóðinni. Hefur
því verið afráðið að bjóða strax
út vinnu við lóðina og er stefnt
að því að hún verði svotil full-
kláruð í sumar. að undanskildu
því að kaupa á hana leiktæki.
I húsinu við Eyrargötu verður
bæði dagvistun og leikskóli. en
ekki hefur enn verið afráðið
hvort önnur deildin verður klár-
uð fyrst eða hvort allt verður
unnið jafnhliða.
Elín Huld Halldórsdóttir,
önnur forstöðukona leikskólans
á Isafirði, tjáði blaðinu að bið
eftir plássi hefði styst undanfar-
ið og væri tiltölulega stutt bið
miðað við það sem oft hefði
nuna
verið. Þannig væri nú í mesta
lagi hálf árs bið eftir plássi fyrir
hádegi. en hefði verið allt uppí
eitt og hálft ár. Þá væru þær
núna að taka inn börn eftir
hádegi sem beðið hefðu í eitt ár.
Á bið lista fyrir hádegi eru nú
17 börn og eftir hádegi 25 börn,
en Elín sagði algengt að alls
væru um 70 börn á biðlista. Hún
sagði biðlistana yfir leitt lengj-
ast á haustin.
Aðspurð sagði Elín að gamla
leikskólanum yrði ekki lokað
þegar nýja heimilið yrði tekið í
notkun, það yrði fyrirsjánlega
full þörf fyrir hann. Gamli leik-
skólinn rúmar 40 börn í einu. í
tveimur deildum, eða 80 börn
yfir daginn.
Bolungarvík:
Vordagar
halda áfram
— þótt svalir séu
Þeir hafa verið frekar svalir
Vordagarnir í Bolungarvík. Það
hefur þó ekki varnað Bolvíking-
um þess að svífa um í menning-
arvímu, eins og einn ágætur
maður komst að orði. Þar hefur
allt farið fram samkvæmt áætl-
un og gerir það áfram nema
flugmannaverkfall eða eitthvert
álíka stórslys setji strik í reikn-
inginn.
í kvöld verður önnur sýning á
fjöldskylduleikritinu Finnur karl-
inn, seppi og kisa. Á morgun verð-
ur síðari djasskvöld. Þar mun
áheyrendum gefast kostur á að
sitja við dúkuð borð og kertaljós
og þiggja góðar veitingar, ailt fyrir
200 krónur. Þeir sem einungis vilja
hlusta geta setið á svölunum fyrir
100 kr.
Á laugardaginn verður íþrótta-
miðstöðin Árbær síðan vígð með
lúðrablæstri og öðrum skemmti-
legheitum. Um kvöldið verður
skemmtun og mun þar hópur úr
Skólahljómsveit Mosfellssveitar
verða með leyninúmer. Vordagar
verða loks dansaðir út við undir-
leik hljómsveitarinnar Kan.
Því er svo við að bæta að skóla-
hljómsveitin mun halda tónleika í
Alþýðuhúsinu á Isafirði á sunnu-
daginn kl. 14:00. Þar mun Lúðra-
sveit Tónlistarskólans leika með
henni nokkur lög.
Stjómsýsluhúsið:
Framkvæmdir
hefjist
ímars 1985
„Það er alveg Ijóst eins og
staðan er í dag að ekki verður
byrjað á byggingarframkvæmd-
um í sumar,“ sagði Haraldur L.
Haraldsson, bæjarstjóri á fsa-
firði, þegar við spurðum hann
hvað stjómsýsiuhúsinu fræga
liði. „Það var ekki talið fram-
kvæmanlegt að byrja á aðal-
byggingunni í sumar vegna þess
að hönnunarvinna yrði ekki
komin nógu langt á veg.“
Haraldur sagði að komið
hefði ósk frá ÁTVR um að
reynt yrði að flýta þeirra hluta
og hefði verið orðið við henni.
Þeir hefðu síðan ákveðið að
byggja með Guðmundi Þórðar-
syni, þannig að ekkert verður úr
framkvæmdum við kálfinn í
sumar. „Þetta á hins vegar ekki
að seinka framkvæmdum
neitt,“ sagði Haraldur. „Það
verður byrjað á öllu jafnt og
reynt að ljúka öllu samhliða."
Nú mun fyrirhugað að hefja
framkvæmdir í mars á næsta
ári. Stefnt er að því að bygg-
inganefndarteikningar verði til-
búnar nú fyrir Hvítasunnu