Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 10

Vestfirska fréttablaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 10
LJOSRITUM meðan beðið er. Pappísstærð A-4 (21x30 cm) verð kr. 5,00 á örk A-3 (30x42 cm) verð kr. 6,00 á örk Einnig er hægt að minnka og stækka, hægt að Ijósrita á glærur og löggiltan skjalapappír. Bókaverzlun natsiáttur er veittur frá Jónasar Tómassonar ofangreindu verði. ísafirði - Sími 3123 hjl vestfirska FRETTABLASIS ERNIR V Símar 3698 og 389 V ISAFIROI BÍLALEIGA t vestfirska 3 hefur heyrt Að áberandi kurr sé nú í Súgfirðingum. Rekstur Fiskiðjunnar Freyju hefur gengið brösuglega um skeið og þar sem ekki er um auðugan garð að gresja í atvinnumálum plássins þegar henni sleppir hefur það haft áhrif á allt mannlíf í þorpinu. S.l. tvö ár hafa um 60 manns flust burt og um 40 til við- bótar hugsa sér nú til hreyfings, margir hverjir gamlir Súgfirðingar. Nú er svo komið að mörg hús standa tóm eða hálftóm á staðnum og einbýlishús eru nánast á útsölu og selj- ast þó ekki. Telja sumir að þessi sölutregða kunni að stemma stigu við enn frek- ari mannflótta. Heimildir blaðsins herma að tvær meginástæður liggi að baki óróa Súgfirðinga: mikil ein- angrun og umdeildur rekst- ur Freyju síðan Sambandið tók við. Þar hafa verið tíð verkstjóraskipti, erjur og uppsagnir, en uppsögn þýðir nánast brottvísun úr þorpinu, því ekki er í mörg önnur hús að venda. En til að sanna fyrir umheiminum að þeir væru ekki dauðir úr öllum æðum héldu Súgfirö- ingar mikinn kabarett ný- verið og hlaut hann góðar undirtektir... Að á sunnudaginn hafi ver- iö haldinn fundur í bygg- ingarnefnd nýs íþrótta- húss, þar sem Vilhjálmur Hjálmarsson lagði fram hugmyndir að hönnun og útliti hússins. Um þrjár að- altillögur er að ræða og gera þær allar ráð fyrir að byggð verði íþróttamið- stöð, þ.e. bæði sundlaug og íþróttahús með sameig- inlegri baðaðstöðu. Þessar hugmyndir verða nú kynnt- ar íþróttaforystunni en stefnt er að því að Ijúka hönnun í ár og hefja fram- kvæmdir á því næsta... Rækjuúrgangur til vandræða - veldur mengun og elur vargfugl sem skapar slysahættu við flugvöllinn ,lá án halH haA moni cpnin \/irtict frfim til hpcc^ hítÍM hnft v;pri hó lióct hvaÓa hættir vinncl- „Já, ég held það megi segja að úrgangur frá rækjuverk- smiðjunum sé orðinn vanda- mál, sérstaklega vegna þeirrar aukningar sem er að verða á rækjuúrgangi," sagði Jón Jó- hannesson hjá Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins þegar Vf leitaði álits hans varðandi þetta mál. „Þessi úrgangur er hér á versta stað í bænum og elur máf og aðra fugla, sem er vara- samt gagnvart flugvellinum. Og ef úrgangurinn er ekki grafinn jafnóðum myndast ammoníak- stækja sem gæti spillt góðum sumardegi." Jón sagði ennfremur að sjórinn virtist fram til þessa hafa haft undan að hrjóta rækuskelina nið- ur. Núna hefði vinnslan hins vegar þrefaldast og stór hluti hennar færi fram yfir heitustu mánuði ársins. en þá ganga hin óæskilegu efnaskipti hraðast. Hvað lausnir vandamálsins varðar sagði Jón skammtímalausn væri að losna við úrganginn þann- ig að hann yrði ekki til óþrifnaðar. Langtímalausn væri aftur á móti að nýta skelina, því í henni væru hugsanlega verðmæti. Þannig mætti nýta rauða litarefnið í henni, eggjahvítuefnið og kítin, sem er burðarefnið í skelinni. Ekki væri þó Ijóst hvaða þættir vinnsl- unnarværu arðbærir. Vf sneri sér til Harðar Guð- mundssonar flugmanns, og leitaði álits hans á þessu vandamáli. Hann sagði óvenju mikið um fugl við flugvöllinn og benti það til þess að hann hefði æti einhvers staðar nálægt. „Hann dregur drullu og slóg uppá brautina og liggur á þessu. Þetta skapar stór- hættu fyrir vélarnar og dæmi eru um það í vetur að 18—20 stykki hafi farið í vél hérna.“ Hörður sagðist einmitt hafa ver- ið að lesa grein í ensku blaði um hættuna sem flugvélum stafaði af fugli. Þar var fuglun um líkt við fjaðra—eldflaugar (feathered missiles) og lýsirþað hættunni vel. Ekki nóg með það, heldur eru dæmi um að fuglinn hafi dregið línukróka uppá braut og lá við stórslysi í vetur þegar sprakk á hjólbarða vélar frá Sverri Þór- oddssyni af þeirra völdum. „Þetta er hreinasta plága hér í firðinum og nauðsynlegt að gera eitthvað til að stemma stigu við þessu," sagði Hörður Guðmunds- son, flugmaður. Þess má geta að Tækniþjónusta Vestfjarða hefur verið falið að gera úttekt á því hvernig vænleg- ast sé að losna við rækjuúrgang. Guðmundur Þórarinsson í herbergi sínu. Nú er sumarið komið á al- manak Þjóðvinafélagsins og sjálfsagt önnur dagatöl líka, og vertíð lokið hjá línubátum. Nokkrir hundsa þó dagatölin og halda áfram veiðum hvað sem tautar og raular. Aðrir sleikja hafnarbakkana að loknu erfiðu úthaldi og enn aðrir tróna ber- rassaðir í slipp. Svo er nú það. Rækjuveiðunum í Arnarfirði lauk á þriðjudagskvöld og hafði þá næstum tekist að veiða uppí kvótann. Rækjan hafði smækk- að töluvert áður en lauk að sögn Bílddælinga. Rauðbæ- inga, þ.e. ísfirðinga, skortir nú meira rauðagull og hafa á- kveðnir aðilar verið að þreifa fyrir sér um leigu á ákveðnum togara BÚR, nánar tiltekið þess- um með rithöfundarnafninu, til að fylla uppí rækjugatið. BESSI landaði á föstudag í sfð- ustu viku tæpum 150 tonnum, uppistaðan grálúða. GUÐBJARTUR landaði sama dag 70 tonnum af grálúðu og karfa. POLLINN HF Isafiröi , Sími3792 FERMINGARGJAFIR ÚRVALIÐ HEFUR SJALDAN VERIÐ MEIRA Sinclair-tölvur 100 gerðir forrita Bit-90 tölvur BBC-tölvur Tölvuspil Vasadiskó Ferðatæki Marantz hljóm- flutningstæki Vasareiknivélar Útv.vekjarar Hárkrumpur Hár-krulluburstar Sólarlampar Rakvélar Borvélasett Skrifborðsljós Hljómplötur Quarts-vekjarar og margt fleira SJÓN ER SÖGU RÍKARI PÁLL PÁLSSON landaði 204 tonnum á laugardaginn og var helmingurinn þorskur en restin grálúða. ELlN ÞORBJARNARDÓTTIR kom með 150 tonn af grálúðu og karfa á þriðjudag. GYLLIR var væntanlegur í dag með eitthvað á annað hundrað tonn af grálúðu og karfa. FRAMNES I. landaði á þriðju- dag 171 tonni af grálúðu. SLÉTTANES var væntanlegt í gær með rúm hundrað tonn. SÖLVI BJARNASON skilaði 170 tonnum á land á föstudag, meiriparturinn grálúða. TÁLKNFIRÐINGUR kom með 160 tonn á laugardag, en fékk ekki löndun fyrr en í gær. SIGUREY landaði 134 tonnum af grálúðu og karfa á þriðjudag í síðustu viku. BJARNI BRNEDIKTSSON land- aði 20 tonnum af rækju á Bíldu- dal á föstudaginn. HAFÞÓR landaði 33 tonnum á föstudaginn. Bræðra- tunga vígð Bræðratunga, þjálfunar- og þjónustumiðstöö fyrir fatlaða á Vestfjörðum, var vígð við hátíð- lega athöfn á laugardaginn. Fjöldi manns var viðstaddur at- höfnina, þ.á.m. Alexander Stefánsson, félagsmálaráð- herra, og lýsti hann stöðina formlega opna. 1 ræðu sinni sagði Alexander m.a. að nú væru þáttaskil í mál- efnum fatlaðra á íslandi. Væri það einkum að þakka nýjum viðhorf- um almennings, menntuðu fólki og öflugum samtökum fatlaðra. Þá kvað hann hin nýju lög um mál- efni fatlaðra sem gengu í gildi um síðustu áramót hafa markað tíma- mót, nú væri í fyrsta skipti komið til móts við fatlaða á öllu landinu. án tillits til þess hver fötlunin væri. Margir tóku til máls við vígsl- una og margar gjafir bárust. Var sérstaklega til þess tekið hve gjaf- mildir Vestfirðingar væru. Þrír vistmenn bjuggu í húsinu þegar það var vígt og heilsuðu þeir gestum hlýlega við inngang- inn. Við fengum að líta inn í herbergi þeirra. Guðmundar Þór- arinssonar (mynd). Hann sagðist vera með bróður sinum. Hjalta, í herbergi og væru þeir úr Bolung- arvík, en hefðu komið að sunnan til að dveljast í Bræðratungu. Guðmundur sagðist vera mjög ánægður með herbergið og Bræðratungu, sér líkaði vel þar. Hann sagðist hafa komið rétt eftir páska til dvalar í Bræðratungu. Við óskum honum og öðrum heimilismeðlimum alls góðs í framtíðinni. BILALEIGA Nesvegi 5 — Súðavík — 94-6972-6932 Grensásvegi 77 — Keykjavík — 91-37688 Sendum bflinn Opið allan sólarhrínginn

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.