Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 3

Vestfirska fréttablaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 3
vestfirska FRETTABLADID Vil að þau séu metin sem leikarar - segir Magnús J. Magnússon, leikstjóri og annar höfundur verksins Að sýningu lokinni röbbuðum við stuttlega við leikstjórann og annan höfund verksins, Magnús J. Magnússon (hann er ísfirð- ingur), og spurðum hann fyrst hve langan tíma hefði tekið að æfa verkið. Magnús kvað æfingar hafa hafist í febrúar og þær aðallega farið fram um helgar. Magnús hefur áður fengist við uppfærslu leikrita fyrir „venjulegt fólk“ og við spurð- um hann hver væri munurinn á vinna með því og hinum van- gefnu. „Erfiðasti hluturinn í byrjun er að tileinka þeim ögun. Þegar búið er að yfirstíga þann hjalla taka þau á móti leiðsögn og at- 1111 íiii iiii jj| iii iii | ÍÍi Hii Við bjóðum þérað versla ódýrt Tekið er við pöntunum og upplýsingar veittar varðandi þessi tilboð í síma 4006 milli kl. 12:00 og 13:00 Stærri innkaup milliliðalaust beint frá framleiðanda HN — Kjötvinnsla kr./kg. 1/2 grís, tilbúinn í frysti 159,00 1/2 ungnaut, tilbúið í frysti 179,00 Ungnaut, afturpartur, tilbúinn í frysti 219,00 Ungnaut, frampartur, tilbúinn í frysti 158,00 Dl skrokkur, sagaður í poka 128,90 Dll skrokkur, sagaður í poka 123,30 Sérpakkatilboð: Fjórði partur nauts á kr. 2.400 Tilbúinn í frysti Athugið að einungis á þessum tíma er hægt að taka við pöntunum og veita upplýsingar varðandi ofangreind tilboð Sendum um allt land í póstkröfu Okkar Venjul. verð smás.v. Kindahakk, 5 kg. eða meira 141,75 175,50 Nautahakk, 5 kg eða meira 207,90 257,40 Kjúklingar, 1 kassi 157,50 207,00 Franskar, 1800 gr., 1 kassi 118,12 155,25 Parísar, 750 gr., 1 kassi 44,22 57,96 Kjötvinnsla SUNDSTRÆTl 36 » 4006 21 fets segl- skúta er til sölu. Er með Volvo-Penta vél CB og VHF talstöð, dýptar- mæli, útvarpi og fl. Skipti á bíl koma til greina. Upplýsingar í síma 4247. Atli Magnús J. Magnússon leikstjóri, annar höfundur leiksins. hugasemdum á sama hátt og aðrir leikarar. Og þau eru mjög þakklát." — Ertu kröfuharður við þau? „Ég hef stefnt að því að gera til þeirra kröfur og þau standa alveg undir þeim. Markmiðið er að fá áhorfandann til að gleyma að leikaramir séu vangefnir. Ég vil að þau séu metin sem leik- arar. Þess vegna varð leikritið að vera álíka flókið og önnur leikrit. Þau eru 13 sem leika 40 hlutverk í Lífmyndum, þannig að sýningin væri flókin þó leik- aramir væru allir heilbrigðir." í TENGSLUM VIÐ OPNUN BRÆÐRATUNGU „Við komum vestur í tengsl- um við opnun Bræðratungu til að sýna að vangefnir geta staðið að listtúlkun. Við erum að reyna að breyta viðhorfum fólks til vangefinna. Þeir standa undir meiru en fólk gerir sér grein fyrir. Boðskapur sýningarinnar er sá að vangefnir hafa tilfinning- ar og þarfir eins og aðrir og eiga rétt á að hafa skoðanir og að tekið sé tillit til þeirra. Þau geta líka tengst tilfinningaböndum. Þetta fólk hefur verið einangrað og almenningur ekki gert sér grein fyrir að það hefur þörf fyrir að umgangast aðra. Við viljum líka vekja athygli á því að þetta er ekki bara fólk sem situr og gerir ekki neitt. Það hefur þörf fyrir svipaða menningarneyslu og heilbrigt fólk.“ — Hvað hefur það gefið þér að vinna með hinum vangefnu? „Þau gefa ríkulega og eru mjög þakklát. Maður fær mjög sterk viðbrögð frá þeim. Þetta kennir manni að umgangast þau og þá sem eiga við erfið- leika að stríða eins og venjulegt fólk.“ Að endingu bað Magnús fyrir þakkir fyrir móttökumar og óskaði Vestfirðingum til ham- ingju með Bræðratungu. FASTEIGNA- VIÐSKIPTI ÍSAFJÖRÐUR: Hrannargata 10, 3ja herb. íbúö á efri hæö laus. Stórholt 9, 4ra herb. íbúð á 1. hæö. Sundstræti 29, 2ja herb. íbúö á 2. næð. íbúðin er laus. Strandgata 5 a, lítið ein- býlishús. Laust 1. júní. Seljalandsvegur 85, lítið einbýlishús. Strandgata 5, ca. 120 ferm. íbúð á neðri hæð í tvibýlis- húsi. Laus fljótlega. Túngata 3, 5 herb. íbúð í suðurenda. Allt sér. Mjallargata 9, einbýlishús úr timbri. Stór eignarlóð. Laust 1. maí. Fitjateigur 6, ca. 130 ferm. einbýlishús. Getur losnað fljótlega. Lyngholt 11, fokhelt einbýl- ishús ásamt bilskúr. Silfurgata 12, lítið einbýlis- hús. Laust fljótlega. Gouholt 5, rúmlega fokhelt 135 ferm. einbýlishús ásamt bílskúr. Stekkjargata 4, lítið einbýl- ishús. Selst með góðum kjörum, ef samið er strax. BOLUNGARVÍK: Stigahlíð 2, 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Þjóðólfsvegur 14,3ja herb. íbúð á 2. hæð. Holtabrun 16, 4ra herb. íbúð á 1. hæð. Heiðarbrún 4, 138 ferm. einbýlishús ásamt bílskúr. Arnar Geir Hinriksson hdl. Silfurtorgi 1, ísafirði sími 4144 AÐUR EN ALLTFER STEIK íí Viljum við ráða mann tii auglýsingamóttöku, aðstoðar við fréttaöflun og fleira. V2 eða 1/i starf. Einnig er starf blaða- manns, fullt starf, laust frá 1. sept. n.k. Hafið samband við Árna í Prentstofunni, sími 3223 — ísafirði vestfirska FRETTABLADIS Vestfirðingar! Nú er suðurleiðin opin. Við minnum ykkur á að hjá okkur er alltaf opið, hvort sem er að nóttu eða degi. SÖLUSKÁLI — GISTING Bær, Reykhólasveit sími 93-4757

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.