Vestfirska fréttablaðið - 25.01.1985, Side 2
vestíirska
FRETTABLADID
t
m
Vestfirska fréttablaðið kemur út á fimmtudögum kl. 17:30. Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Hafnarstræti 14 er opin virka daga kl.
10:00 til 12:00 og 13: til 17:00. Síminn er 4011. Ritstjóri: Árni Sigurðsson. Blaðamaður Yngvi Kjartansson Stórholti 17. Fjármál ogdreifing: Guðrún
Halldórsdóttir. Útgefandi og ábyrgðarmaður: Árni Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100. Prentun: Prentstofan l'srún hf. (safirði. Verð í
lausasölu kr. 25,00. Auglýsingaverð kr. 130,00 dcm. Áskriftarverð er lausasöluverð reiknað hálfsárslega eftirá.
Ritstjórnarg rei n
Góð íþrótt...
í gærkvöld var nokkurskonar
uppskeruhátíð íþróttamanna á
ísafirði. Bæjarstjórn bauð þá for-
ystumönnum íþróttahreyfingar-
innar og þeim íþróttamönnum,
sem skarað höfðu framúr árið
1984 til hófs á hótelinu og þar
voru þeir heiðraðir, sem höfðu
unnið íslandsmeistaratitla, sett
íslandsmet, unnið sér sæti í
iandsliði, eða keppt á Olympíu-
leikum.
Þá var íþróttamaður ísafjarðar
sérstakiega heiðraður, en hann
var kjörinn af bæjarstjórn. Það var
Ingólfur Arnarson, sundkappi,
sem hlaut þetta eftirsótta sæmd-
arheiti.
Þessi kvöldstund með íþrótta-
fólkinu var sérstaklega ánægju-
leg og skipulag til fyrirmyndar.
íþróttafólkið, sem þarna var
heiðrað var nær eingöngu skíða-
fólk og sundfólk. Skíðaíþróttin
stendur á gömlum merg á ísafirði
og hafa ísfirskir skíðamenn löng-
um átt sæti í landsliðum og fært
heim meistaratitla á ári hverju.
Aðstaða til skíðaiðkunar hefur á-
vallt verið betri hér en víðast hvar
annarsstaðar á íslandi og hafa
menn viljað halda því fram, að af-
rek skíðamannanna væru að-
stöðunni að þakka.
Aðstaða til sundiðkunar hlýtur
að teljast í lakara meðallagi hér á
ísafirði. Sundlaugin er aðeins 16V3
metrar á lengd og mjög ásetin,
þannig að erfitt er að fá nægilega
marga heppilega æfingatíma fyrir
þá, sem vilja iðka sund sem
keppnisíþrótt. Það er því þeim
mun meira afrek hjá Sunddeild
Vestra að hafa á aðeins fimm ár-
um unnið íþróttina upp úr þeirri
lægð, sem hún hafði verið í um
langt árabil þar á undan. Þarna
kemur til mikill áhugi, gott skipu-
lag og fórnfúst starf forystu-
manna félagsins ásamt með
hæfileikum, ástundun og dugnaði
sundfólksins sjálfs.
Það er athyglisvert að bera
saman þessar tvær íþróttagreinar
og aðstöðuna, sem þær búa við.
Önnur stendur á gömlum merg og
býr við það besta, sem unnt er að
bjóða hér á landi, en hin býr við
þröngan kost og er tiltölulega ný-
farin af stað eftir að hafa legið niðri
um langt árabil, en báðar rísa þær
hátt nú.
Það bar til tíðinda á fundinum í
gær að forseti bæjarstjórnar steig
í pontu og tilkynnti mönnum hver
framlög ísafjarðarkaupstaðar
verði til íþróttamáia á árinu 1985.
Þótti mörgum forsetinn nokkuð
fljótur á sér með þær upplýsingar,
þar sem bæjarstjórn hefur alls
ekki fjallað um frumvarp, það sem
bæjarráð hefur samið að fjár-
hagsáætlun og enginn getur vitað
hver örlög þess verða í meðförum
bæjarstjórnar, einkanlega þar
sem vitað er að meirihluti bæjar-
stjórnar er langt frá því að vera
sammála um mikilsverð atriði
frumvarpsins.
Kaupfélag ísfirðinga:
Hyggst byggja 1200m2
verslunarhús
— fyrir jól á þessu ári
Kaupfélag ísfirðinga hefur
fengið samþykktar í byggingar-
nefnd ísafjarðar, teikningar af
húsi, sem Kaupfélagið hyggst
byggja á lóð sem er sjávarmegin
við Pensilinn.
Hér er reyndar aðeins um
fyrri hluta hússins að ræða þar
sem gert er ráð fyrir að síðar rísi
þriggja hæða viðbótarbygging
þar sem Pensillinn, rakarastof-
an og blómabúðin eru, að ó-
gleymdri verslun Jónasar
TIL SÖLU
Mossberg riffill, 243 caliber,
verð kr. 20.000,-.
OG
Leopold kíkir, 24xaðdráttur,
einstakur gripur, verð kr.
15.000,-.
Upplýsingar gefur Hjálmar
Björnsson í síma 3178 eftir kl.
19:00.
TIL SÖLU
Yamaha orgel, 2 borða, borð-
stofuborð og 6 stólar og
barnakerra.
Upplýsingar í síma 7335.
TIL LEIGU
3 herbergja íbúð til leigu, með
húsgögnum.
Upplýsingar í sfma 3415 eftir kl.
18:00.
L,-_________________________
Magnússonar.
Sverrir Bergmann, kaupfé-
lagsstjóri, sagði í samtali við Vf
að til þess að af þessari bygg-
ingu gæti orðið þyrfti Kaupfé-
lagið að selja það hús sem það
er í nú, með verslanir og skrif-
stofur, og sagðist hann vonast til
að SÍS myndi kaupa það eða
dótturfyrirtæki þess. Ef áætlan-
ir kaupfélagsstjóra ganga upp
mun verða hafist handa við
TIL SÖLU
Kástle skíði 185, ársgömul
með Tyrolia bindingum, Ell-
esse skíðabuxur og púða-
peysa.
Upplýsingar í síma 4684.
TIL SÖLU
Mercedes Benz 250, árgerð
1970, sjálfskiptur, með vökva-
stýri. Fallegur bíll. Skipti
koma til greina.
Upplýsingar f síma 4951.
TILSÖLU
er bifreiðin í 1945 sem er Suz-
uki Alto, árgerð 1983, ekinn
11.500 km.
Upplýsingar gefur Siguröur Ás-
geirsson í síma 3666.
II
grunn hússins í vor og sagðist
hann vonast til að geta opnað
þarna verslanir fyrir jól á þessu
ári. Sá áfangi hússins sem hér
um ræðir verður um 1200 ferm.
á einni hæð og þar af verður
gólfrými sjálfra verslananna um
900 ferm. Þarna er áætlað að
verði þær sérverslanir sem nú
eru í húsi kaupfélagsins á
gatnamótum Austurvegar og
Hafnarstrætis.
TYROLIA
Skíðafólk!
Hafið þið heyrt
að það er nauð-
synlegt að hafa
skíðin í lagi?
Tökum að okkur að lag-
færa skíði, m. a. kant-
slípun, bræða í rispur,
slípa niður sóla o. fl.
Upplýsingar eftir
kl. 19:00 í síma 4058
eða 4095.
Hemmi og Láki.
Smáauglýsingar
Frá fundi
með Svavari
Síðastliðinn laugardag hélt
Alþýðubandalagið almennan
stjórnmálafund á Hótel ísafirði
undir kjörorðunum „Verða
kosningar í vor?“ Frummælend-
ur voru Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins og
Vilborg Harðardóttir varafor-
maður Alþýðubandalagsins.
Fundinn sóttu eitthvað á
milli 50 og 60 manns og stóð
hann í u.þ.b. 3 tíma. Eftir að
framsöguerindum lauk svöruðu
frummælendur fyrirspurnum
utan úr sal.
r--------------------------i
Flugfélagiö Ernir:
Býður bílaleigu-
! bíla í Reykjavík j
Bílaleiga flugfélagsins Ernis
hefur í tæpt ár boðið Vestfirð-
ingum á ferð í Reykjavík upp á
bílaleigubíl með hagstæðum
kjörum.
Þessu er þannig háttað að
þeir sem vilja notfæra sér
þessa þjónustu geta tekið lykil
að bílnum sem þeir leigja hér á
ísafjarðarflugvelli og tekið svo
bílinn á Reykjavíkurflugvelli
og skilið hann aftur eftir þar. J
Lykilinn hafa þeir svo með sér |
vestur og greiða fyrir bílinn í I
afgreiðslu Emis á ísafirði.
Flugfélagið Ernir er einnig j
að velta því fyrir sér að fara að I
bjóða Vestfirðingum upp á J
nokkurs konar helgarferðir til |
ísafjarðar, þar sem innifalið *
væri hótelgisting, ferðir, e.t.v. J
bílaleigubíll og einhver af-1
þreying.