Vestfirska fréttablaðið - 05.12.1985, Page 14
OPIÐ í DESEMBER:
Laugardagur 7. des.
Laugardagur 14. des.
Laugardagur 21. des.
Mánudagur 23. des. . .
Aðfangadagur 24. des.
kl. 13.00— 16.00
kl. 13.00— 18.00
kl. 10.00 — 22.00
kl. 9.00 — 23.00
kl. 9.00 — 12.00
vestfirska
FRETTABLASIS
l|S|S|Q|Q|@|S|H|S|Q| DDDDDDDD
|Q|QQQgdQ|Q|Q|Q| QOOODOOO
|m m -m m m n' Bn m I II I ITT
JON F. EINARSSON
BQLUNGAVIK
SIMI7353 OG 7351
Laugardaginn 29. nóvember
síðastliðinn fór fram uppboð á
lausafé á lögreglustöðinni á
ísafirði. Buðu þar fulltrúar bæj-
arfógetaembættisins upp hina
ólíklegustu muni sem teknir
hafa verið upp í skuldir. Virtust
það helst vera myndbandstæki
notuð og ný sem freistuðu
uppboðsgesta en þeir voru fjöl-
margir. Einnig voru seldar
nokkrar bifreiðir í misjöfnu á-
sigkomulagi.
*
Isafjörður:
Kaupfélagið
stækkar við sig
vestfirska I
hefur
heyrt
Að þeir sem óku framhjá
heimavist menntaskólans á
laugardaginn hafi séð á
tröppum skólans, bíl sem var
lagt yfir þær þverar. Eigandi
bílsins er kennari við skólann,
og munu það hafa verið nem-
endur sem báru bílinn upp í
tröppuna þegar þeir héldu 1.
des. hátíðlegan.
Að þingmenn Vestfjarða hafi
verið á ferð á ísafirði, og
meðal annars setið á bæjar-
stjórnarfundi. Þar voru til um-
ræðu m.a. snjóflóðavarnir í
kaupstaðnum. Kom þá Ólafur
Þ. Þórðarson þingmaður
Framsóknarflokksins með þá
hugmynd að barrtrjám yrði
plantað í landi kaupstaðarins
til snjóflóðavarna. Geta má
þess að barrtré yrðu orðin
nægilega stór til að gera eitt-
hvað gagn eftir um það bil
fimmtíu ár, og hætt er við að
ýmsir yrðu orðnir óþolinmóðir
að bíða til þess tíma.
Að þegar smfði stjórnsýslu-
hússins hófst hafi Útvegs-
bankinn samkvæmt samningi
tekið að sér að greiða reikn-
inga fyrir bygginguna og að
sjálfsögðu gert ráð fyrir því að
sameignaraðiiar greiddu
strax inn til bankans það sem
þeim bæri. Á þessu mun hafa
orðið verulegur misbrestur og
mun skuld sameignaraðil-
anna við bankann hafa numið
tæpum 5 milljónum um síð-
ustu mánaðamót.
Að heilbrigðis og trygginga-
ráðherra hyggist fara fram á
það við dómsmálaráðherra
að lögleidd verði notkun ör-
yggishjálma við hjólreiðar.
Mun flestum hugsandi mönn-
um þykja umhyggja ríkisins
fyrir þegnum sínum vera orð-
in full mikil. ( framhaldi af
þessu má væntanlega búast
við löggjöf um öryggisbelti á
klósettsetum.
Að Póllinn á ísafirði hyggist
senda starfsmenn sína til
starfa erlendis. Þannig mun
maður frá Pólnum vera á leið
til að minnsta kosti tveggja
ára dvalar í Noregi. Mun hann
að hluta til starfa fyrir Pólinn
og að hluta til fyrir umboðs-
aðilann ytra. Starfið mun vera
fólgiö í viðhaidi og uppsetn-
ingu vogakerfa.
Á mánudaginn opnaði Kaupfélag
Isfirðinga aðalbúð sína i breyttri
mynd. Búið er að stækka búðina
sem nemur því húsnæði sem áður
hýsti búsáhöld og vefnaðarvörur.
Við þetta eykst sölurými verslunar-
innar um meira en helming, og er nú
verslað á um það bii 350 fermetrum.
Fyrirhugaðar eru fleiri breytingar í
tengslum við þetta og eru þær aðal-
lega fólgnar f því að kjötborðið
verður stækkað og boðið verður upp
á meira úrval.
Fyrirhugað er að breyta því hús-
næði sem nú hýsir kjötborðið í
pökkun, vörumóttöku og skrifstofu
verslunarstjóra. Allar þessar breyt-
ingar miða að því að veita betri
þjónustu og að Kaupfélagið verði
betur í stakk búið til þess að stand-
ast samkeppnina. Jens Ólafsson
kaupfélagsstjóri sagði í stuttu
spjalli við Vf að samkeppni milli
matvöruverslana á Isafirði hefði
ekki verið mikil en mætti vera
meiri. Hann sagði að þessar breyt-
ingar væru aðeins byrjunin, stefnan
væri sú að gera allar þær breytingar
sem nauðsynlegar væru til þess að
veita mætti góða þjónustu í versl-
unum Kaupfélagsins.
Verslunarhúsnæði matvörubúðar K.í. stækkar um helming.
Öldungadeild M.Í.:
Fyrstu stúdentamir
Sunnudaginn 15. desember
n.k. verða fyrstu stúdentar af
öldungadeild Menntaskóians á
Isafirði útskrifaðir.
Það verða sjö nemendur sem
ljúka námi núna, en tveir munu
útskrifast í vor. Af þessum níu
er aðeins einn karlmaður sem
lýkur námi, nú í vor.
Þegar þessir nemendur verða
útskrifaðir eru eftir á öidunga-
deild tíu nemendur sem eru nú
á öðru ári.
Þingeyri:
Vélln í Framnesi
ÍS ónýt
— Gæti svartolíubrennsla
átt stóran þátt í því?
Fyrirhugað er að Framnesið ís
frá Þingeyri fari f 12 ára klössun á
næstunni. f viðtali við blaðið Fiski-
fréttir, segir Bjarni Grimsson
kaupfélagsstjóri að hann telji víst
að notkun svartoliu hafi eyðilagt vél
skipsins.
Komið hefur í ljós að vél Fram-
nessins er það illa farin að ekki
þykir taka því að gera við hana.
Bjarni segir ennfremur að þetta sé
kannski ekki eingöngu svartolíunni
að kenna, en þann tíma sem hún
hafi verið notuð hafi verið mun
meira um bilanir og erfiðleika í
vélarrúmi en eðlilegt megi telja. Til
samanburðar má geta þess að syst-
Loðnuvinnsla er enn í fuil-
um gangi í Bolungarvík, og
hafa þar verið unnin 23000
tonn af loðnu frá 10 sept-
ember að fyrsti aflinn barst aö
landi.
BESSI landaði 40 tonnum á
mánudag, þar af 14 tonn f
gáma.
GUÐBJARTUR kom inn á
mánudag með 90 tonn, setti í
tvo gáma.
PÁLL PÁLSSON landaði á
mánudaginn 100 tonnum, af
því fóru rúm 50 tonn í gáma.
TÁLKNFIRÐINGUR kom inn á
síðasta föstudag með 116
tonn, þar af voru um 80 tonn
af þorski.
SIGUREY kom inn á mánu-
daginn vegna brælu með smá
slatta, er á veiðum.
GUÐBJÖRG landaði á mánu-
daginn 118 tonnum til fshús-
urskip Framness og jafngamalt,
Guðbjartur fs fór í samskonar
skoðun og fékk þann dóm að að-
eins þyrfti að framkvæma viðgerðir
á vél hans, enda hafði hann aldrei
brennt svartolíu.
Bjarni vildi einnig taka fram að
vélin í Framnesinu væri af Wich-
mann gerð sem væru mjög traustar
vélar en hefðu ekki verið gerðar
fyrir svartolíubrennslu, heldur
hefði henni verið breytt til svart-
olíubrennslu.
Sem kunnugt er hættu flestir
togarar að nota svartolíu í fyrra-
vetur þegar verðmunurinn á svart-
olíu og gasolíu var orðinn lítill eða
enginn.
félagsins og 70 — 80 tonnum
í gáma.
GYLLIR landaði 50 tonnum á
Bíldudal, 36 tonnum í gáma
og 16 tonnum á Flateyri alls
102 tonn.
ELfN ÞORBJARNARDÓTTIR
landaði 150 tonnum í Vest-
mannaeyjum áföstudaginn.
SLÉTTANES er á veiðum.
DAGRUN kom inn á föstudag
vegna Iftillegrar bilunar, land-
aði þá 20 tonnum. Kom aftur
inn á þriðjudaginn með 30
tonn.
HEIÐRUN kom inn á laugar-
dag vegna veðurs. Var með
36 — 38 tonn, af því fóru 15
tonn í gáma.
ÞRYMUR landaði 34 tonnum í
síðustu viku.
JÓNfNA fékk 16 tonn í síðustu
viku.
BYR komst aðeins einn róður
í síðustu viku og fékk þá 3,5
tonn.
FLOSI fékk þetta upp í 9,5
tonn í róðri í síðustu viku.
ORRI, afli Orra hefur farið
batnandi, og er farinn að fara
upp í 10 tonn á dag, en veður
hefur hamlað veiðum nokkuð.
SÓLRÚN landaði á þriðju-
daginn 20 tonnum.
HUGRÚN kom inn á síðasta
föstudag með 11 tonn (Hugr-
ún er á úthafsrækju).
BÍLALEIGA
Nesvegi 5 - Súðavík S 94-4972 - 4932
Vatnsmýrarvegi 34 - V/Miklatorg S 91-25433
Afgreiðsla á Isafjarðarflugvelli S 94-4772
Sendum bílinn
Opið allan sólarhringinn