Vestfirska fréttablaðið - 10.09.1987, Síða 8
8
■5
vestíirska
TTABLASIS
Skynreynsla
— hvað er nú það?
Skynreynsla, magnskilningur,
hlutfirrðarstig og táknferli.
Þessi og mörg fleiri framand-
leg orð eru útskýrð í ritinu
„Greind og greindarfötlun“ eftir
sænska sálfræðinginn Gunnar
Kylén sem landssamtökin
Þroskahjálp hafa gefið út í ís-
lenskri þýðingu Þorsteins Sig-
urðssonar skólastjóra.
í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir að rit þetta hafi vakið
mikla athygli á Norðurlöndunum
fyrir skýra og aðgengilega fram-
setningu.
Fullyrt er að ritið komi að gagni
öllum þeim sem vilja kynna sér eðli
og þróun greindar og afleiðingar
þess ef greind þróast ekki með
eðlilegum hætti.
Ritið sem er alls 44 bls. að stærð
verður til sölu í bókaverslunum og
á skrifstofu Þroskahjálpar og kostar
þar kr. 250.
ísafjörður:
Bassaleikarí
heldur
tónleika
fyrstu eínleikstónleikar á kontrabassa
her a
Hávarður Tryggvason kontra-
bassaleikari og Brynja Guttorms-
dóttir píanóleikari halda tónleika í
Sal frímúrara þriðjudaginn 15.
september kl. 20.30. Á efnisskránni
verða einleiksverk fyrir kontra-
bassa.
Hávarður Tryggvason erfæddurí
Reykjavík 17. júní 1961. Hann
spilaði á rafbassa í fyrstu en hóf
síðan nám á kontrabassa árið 1980
við tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar. Hann hélt út til fram-
haldsnáms árið 1983 og frá haust-
inu 1984 hefur hann stundað nám
við Tónlistarháskólann í París og
leikið í hljómsveitum á vegum
skólans.
landi
Brynja Guttormsdóttir er fædd í
Reykjavík 10. júlí 1947. Hún hóf
nám í píanóleik í einkatímum og
stundaði síðan nám við Tónlistar-
skólann í Reykjavík og lauk þaðan
píanókennaraprófi vorið 1969. Ár-
ið eftir hélt hún til Svíþjóðar og var
þrjú ár við Tónlistarháskólann í
Stokkhólmi og lauk þaðan prófi
1973. Hún sótti síðan einkatima þar
í landi á árunum 1976 — 78. Brynja
hefur stundað kennslu um árabil,
lengst af hjá Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar. Hún hefur haldið
tónleika á íslandi og í Svíþjóð.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
haldnir eru einleikstónleikar á
kontrabassa hér á landi.
Súðavík:
Alit
vestfirskra
kúa
Eins og allir vita eru kýr afskaplega gáfaðar skepnur og hugsun þeirra
heimspekileg og yfírbragð þeirra aiit með stóískri ró.
Mitt í allri umræðunni um mjólkurkvóta fullvirðisrétt og umframframleiðslu
spurðum við eina kú sem við rákumst á á fömum vegi (eða förau túni), hvað
væri álti vestfirskra kúa á landbúnaðarstefnu ríkisstjórnarinnar.
Svar kýrinnar var eins og myndin bar með sér skýrt og afdráttarlaust.
S
Isafjörður:
Litli leikklúbburinn
vaknar af
sumardvalanum
Nýr
sveitarstjóri
— Sehð tekur stakkaskiptum
Guðmundur Birgir Heiðarsson
hefur verið ráðlnn sveltarstjóri í
Súðavík. Hann tekur við starflnu
af Steini Kjartanssyni sem iét af
því fyrr í sumar.
Guðmundur er 21 árs gamall og
mun því vera yngstur sveitarstjóra
á landinu. Hann hefur stundað
nám við Samvinnuskólann á Bif-
röst.
Guðmundur er ekki með öllu ó-
kunnugur í Súðavík þar sem faðir
hans er Heiðar Guðbrandsson sem
lengi hefur verið búsettur í Súðavík
og er enn.
Litli leikklúbburinn á ísafirði
hefur nú hafið starfsemi sína.
Stefnt er að því að setja á svið
nokkurs konar kabarett sýningu
í haust og vinnur nú þriggja
manna nefnd að samningu og
ritstjórn handrits. Það eru þau
Hlynur Þór Magnússon, Pétur
Bjarnason og Vigdís Jakobs-
dóttir sem hafa tekist það
vandasama verk á hendur.
En leikklúbbsmeðlimir sitja ekki
auðum höndum. Um síðustu helgi
vann fríður hópur að því að mála
Selið í Hnífsdal að utan. Selið sem
er húsnæði leikfélagsins og notað
undir æfingar og sem leikmuna- og
búningageymsla hefur nú fengið
nýtt andlit og helst þessi fram-
kvæmd í hendur við gagngerar
breytingar sem gerðar hafa verið á
því innanhúss.
Á myndinni má þekkja Höllu
Sigurðardóttur formann LL, Sig-
urð Karlsson, Sóley Veturliðadótt-
ur, Báru Snæfeld og Gísla Gunn-
arasson. Á þakinu eru listmálar-
amir Guðjón Ólafsson og Svein-
bjöm Bjömsson.
S
4011
allan
sólarhrínginn
I vestfirska I
FRETTABLADID
s
4011
allan
sólarhringinn