Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 1

Vestfirska fréttablaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 1
Bílddælingar vilja fá hitaveitu OV hefur komið í veg fyrir það hingað til Bílddælingar eru nýbúnir að skrifa Orkubúi Vestfjarða bréf og biðja það um að taka nú af skarið varðandi hitaveitu til Bíldudals. Árið 1976 og aftur 1982 voru gerð- ar frumathuganir varðandi hita- veitu fyrir þorpið, og niðurstaðan varð sú í bæði skiptin að hér yrði um hagkvæma framkvæmd að ræða. Pað var hins vegar pólitísk ákvörðun OV á sínum tíma að leggja samt ekki í þetta verk, þar sem það vildi fremur stýra fjár- magni í arðbærari framkvæmdir. Bílddælingar sóttu þetta mál allfast, og jafnframt var leitað eftir því að einkaleyfi OV til orkusölu yrði aflétt í þessu tilviki, svo að Bílddælingar gætu sjálfir unnið að málinu. Pví var líka hafnað, þar sem slíkt myndi veikja Orkubúið og gera það vanhæfara til að sinna lögboðnu hlutverki sínu um allan fjórðunginn. Nú hafa Bílddælingar vakið þetta mál enn á ný, og kveðast nú ekki munu una því að fá ekki hita- veitu ef ljóst er að hún muni skila hagnaði fyrir bæjarfélagið og létta stórlega þá byrði sem húshitun á Bíldudal er. Nú er eingöngu raf- magnskynding á Bíldudal. Til skamms tíma var þar olíukynding um allt, en stjórnvöld fengu menn til þess að skipta yfir. Til dæmis um kyndingarkostnað má taka Fé- lagsheimilið. Pað er ekki mikið notað, þó svo að leikifimikennslan fari þar fram, en kynding þess kostar um 50 þúsund á mánuði. Pað er frá Dufansdal, sem er um 15 km frá kauptúninu, sem Bíld- dælingar vilja leggja hitaveituna. Par mun fást 80-90 stiga heitt vatn. Bílddælingum þykir merkilegt (og kannski svolítið hart) að lesa og heyra um það í fréttum, þegar nokkrir búandkarlar á Skeiðunum taka sig saman um að leggja á eigin kostnað hitaveitu tólf kílómetra leið fyrir sjö bændabýli, á meðan 400 manna kauptúni er bannað að gera slíkt. Þess má geta, að iðnaðarráð- herra getur heimilað sveitarfélagi að gera þessa hluti, þrátt fyrir um- ræddan einkarétt OV. Stjórn Orkubúsins fjallar í þess- ari viku um érindi Bílddælinga, og munum við greina frá afgreiðslu þess í næsta blaði. Verkfallið á ísafirði: Ákveðni og kurteisi einkenna störf verkfallsvarða Verkfallsvakt Verslunar- annafélags ísafjarðar hefur að- setur í Alþýðuhúsinu, og þar fer fram skipulag eftirlits og aðgerða undir stjórn Salmars Jóhannsson- ar formanns félagsins (hann er á einni myndinni við skrifborð sitt, og virðist ánægður með gang mála). í gær (þriðjudag) fylgdust tíðindamenn Vestfirska með öfl- ugum hópi verkfallsvarða á ferð um kaupstaðinn. í hópnum voru eingöngu konur, og segir það kannski nokkra sögu um það hversu miðað hefur í jafnréttis- málum hér um slóðir. Yfirmenn (verslunarstjórar og því um líkt) eru í flestum tilvikum karlar, og mega vinna (þó að stundum sé það nú umdeilt), á meðan undir- mennirnir (í flestum tilvikum konur) eru að berjast í verkfall- inu. Við vorum samferða verkfalls- vörðum í allmörg fyrirtæki, þar sem grunur lék á því að ekki væri farið að settum reglum. Fram- koma varðanna einkenndist hvarvetna af ákveðni og festu, en þó fyllstu kurteisi, enda hefur allt farið vel og friðsamlega fram. Ein myndanna var tekin þegar vasklegur hópur verkfallsvarða var á leið út úr Alþýðuhúsinu áleiðis til eftirlits. Önnur mynd er úr Vöruvali, þar sem mann- skapurinn er að ræða við Bene- dikt Kristjánsson kaupmann. Þar varð samkomulag um að kjötiðn- aðarmenn hættu að vinna við af- greiðslu á kjötvörum. Og loks er mynd af því þegar verkfallsverðir eru á leið inn á skrifstofu Tryggva Guðmundssonar innheimtulög- fræðings ísafjarðarkaupstaðar, en rætt var um að hann hefði látið vinna þar á hverjum degi í trássi við verkfallið. Skilyrðin sem fiskvinnslan má búa við af hálfu stjórnvalda: SVARTNÆTTI! Lokun frystihúsa víða um Vestfirði blasir við „Flestir fundarmanna voru sam- vinnurekendur í lengstu lög vegna að þegar Þjóðhagsstofnun reiknar mála um að þeir hefðu sjaldan eða þess að slíkt getur hæglega valdið út tap á fiskvinnslunni, þá eru aldrei seð hann svartari“ sagði fólksflótta og enn meira tapi en þættir á borð við saltfis.kvinnslu Bjarni Grímsson kaupfélagsstjóri orðiðer. Víðast á Vestfjörðum sér teknir með í dæmið. Hér á Vest- á Þingeyri um fund Félags fisk- fiskvinnslan langflestum íbúanna fjörðum er hiutfall saltfiskvinnslu vinnslustöðva á Vestfjörðum sem fyrir ltfsviðurværi. Það gerir það lægra en víðast hvar annars staðar haldinn var á ísafirði á mánudag- enginn að gamni sínu að loka eina og því er ástandið hér trúlega mun inn. Fundurinn samþykkti ályktun fyrirtækinu á staðnum. verra en útreikningar Þjóðhags- þar sem skorað er á stjórnvöld að Einnig er rétt að hafa það í huga stofnunar gefa til kynna. gefa verðmyndun á gjaldeyri : frjálsa sem lið í því að lagfæra þau mjög erfiðu ytri skilyrði sem fisk- vinnslan býr við um þessar mundir. „Við höfum mátt þola verðfall á mörkuðum okkar, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum" sagði Bjarni Grímsson. „Eg þekki enga sið- menntaða þjóð sem ekki bregst við slíkum aðstæðum með því að leið- rétta gengið." Bjami sagði að fastgengisstefna stjórnvalda hefði löngu gengið sér til húðar, og löngu væri tímabært að ríkisstjórnin endurskoðaði stefnu sína í ljósi breyttra að- stæðna. Fiskvinnslan er nú rekin með allt að 15-18% halla að dómi fundarmanna. „Það er í hæsta máta óeðlilegt að við þurfum að skríða fyrir stjórnvöldum eins og beininga- menn til þess að fá rétt verð fyrir það sem við erum að framleiða“, sagði Bjarni. Einhverjir fundarmanna höfðu við orð að ekkert blasti við annað en lokun frystihúsa víða á Vest- fjörðum ef ekki yrði að gert. Slíkar aðgerðir forðast vestfirskir at- Óskum starfsfólki okkar á sjó og landi, svo og viðskiptavinum öllum, gleðilegs sumars. Sinar ffidéjinnsson k. Reglubundnar ferðír frá Reykjavík 6-7 sinnum í mánuði til Vestfjarða RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.