Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 9

Vestfirska fréttablaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 9
t5 vestfirska TTABLASIO UR YMSUM ATTUM íslenskt þjóðminjafélag undirbúið Stofnfundur verður haldinn 3. maí Á þessu ári eru liðin 125 ár frá stofnun Þjóðminjasafns íslands. Nú hefur safnið loksins fengið allt Þjóðminjasafnshúsið vð Suður- götu til umráða, en Listasafn fs- lands fluttist þaðan um áramótin og í hið nýja húsnæði að Fríkirkju- vegi 7 í Reykjavík. Afmælis Þjóðminjasafnsins hefur verið minnst með ýmsum hætti: Gefinn hefur verið út bæklingur um sögu safnsins, þar sem einnig er fjallað um hlutverk þess í nútíð og framtíð; Menntamálaráðuneytið stóð fyrir hátíðarsamkomu í Há- skólabíói 28. febrúar síðastliðinn; og nú hefur verið ákveðið að stofna félag til að styrkja Þjóð- minjasafnið í starfi og vekja skiln- ing á mikilvægi þess að vel sé búið að því. Nokkur aðdragandi hefur verið að þessari félagsstofnun. Hún er að frumkvæði nefndar sem menntamálaráðherra skipaði sl. haust til að vinna að áætlun um vöxt og viðgang Þjóðminjasafns fs- lands til aldamóta. Haldinn var undirbúningsstofnfundur í febrú- ar, þar sem kosin var undirbún- ingsstjórn til að sjá um formlega stofnun félagsins. f henni eiga sæti Katrín Fjeldsted formaður, Ólafur Ragnarsson, Sverrir Kristinsson, Sigríður Erlendsdóttir og Þór Magnússon, og til vara Sverrir Scheving Thorsteinsson og Guð- jón Friðriksson. Enn hefur félagið ekki hlotið nafn, en það hefur gengið undir nafninu Þjóðminja- félagið. Samin hafa verið lög fyrir félag- ið, en samkvæmt þeim geta allir orðið félagar sem stuðla vilja að því að vekja skilning stjórnvalda og annarra á mikilvægi safnsins í nútímaþjóðfélagi. Félagið vinnur að því að auka og bæta tengsl Þjóðminjasafnsins við alla þætti þjóðlífsins: Stjórnvöld, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga, bæði innanlands og utan. Þá mun félag- ið afla safninu minja og gripa sem réttast þykir að varðveita í safninu eða á vegum þess vegna menning- arsögulegs gildis. Það mun leita fjáröflunarleiða til kaupa á slíkum munum og til kostnaðarsamra við- gerða á gripum í eigu safnsins. Fé- lagið mun einnig afla fjár til sér- stakra rannsóknarverkefna. Það mun efna til fyrirlestra fræði- manna, efna til skoðunarferða og verða Þjóðminjasafninu til aðstoð- ar við útvegun farandsýninga frá öðrum löndum. Stofnfundur félagsins verður haldinn í Þjóðminjasafni íslands við Suðurgötu á krossmessu, þriðjudaginn 3. maí kl. 17:15. Þangað er allt áhugafólk um menn- ingarminjar velkomið, en einnig geta menn haft samband við Þjóðminjasafnið eða einhvern úr undirbúningsstjórn til að láta skrá sig í félagið. Þeir sem skráðir eru fyrir 3. maí teljast stofnfélagar. Rétt er að geta þess, að hafi menn hugmyndir að nafni á félag- ið, þá eru ábendingar vel þegnar, og við þeim er tekið hjá ofan- greindum aðilum. Kaupfélag Dýrfirðinga: Bjarni Grímsson lætur af starfi Staða félagsins erfið, eins og annarra fyrirtækja i fiskvinnslu og dreifbýlisverslun Bjarni Grímsson sem gegnt hef- ur starfi kaupfélagsstjóra Kaupfé- lags Dýrfirðinga á Þingeyri undan- farin fimm ár lætur nú af því og hverfur til starfa á öðrum vett- vangi. Óráðið er í stöðu kaupfé- lagsstjóra á Þingeyri. Bjarni vildi í samtali við Vestfirska fréttablaðið ekki láta uppi að svo stöddu hvar hann væri ráðinn til nýrra starfa. Aðalfundur Kaupfélags Dýr- firðinga verður haldinn í næsta mánuði. Eitt helsta mál fundarins verður slæm staða Kaupfélagsins, en það hefur flogið fyrir að tap á rekstri þess hafi á síðasta ári verið um 40 milljónir. Bjarni Grímsson vildi ekki staðfesta þá tölu enda sagði hann að ársreikningar lægju ekki fyrir enn. Hann dró hinsvegar enga dul á að staða Kaupfélagsins væri mjög slæm, enda áraði nú afar illa bæði fyrir fiskvinnslu og dreif- býlisverslun. Kaupfélagið hefur lagt í nokkrar fjárfestingar og endurbætur á undanförnum fimm árum og sagði Bjarni að fjár- magnskostnaður samfara erfiðum ytri skilyrðum væri félaginu mjög þungur í skauti. 9 Stórvirki í tilefni fertugsafmælis Tónlistarskóla ísafjarðar: Barnaóperan „Eldmærin“ færð upp Nær hundrað manns leggja hönd Á laugardaginn verður enska barnaóperan „Eldmærin“ frum- sýnd á Isafirði. Það er Tónlistar- skólinn á ísafirði sem ræðst í þessa uppfærslu í tilefni af 40 ára afmæli sínu á þessu ári. Það er barnakór Tónlistarskólans undir stjórn Beötu Joó sem ber hitann og þung- ann af flutningi verksins ásamt 7 manna hljómsveit. Rúnar Guð- brandsson annast leikstjórn. „Eldmærin" er byggð á rúss- nesku ævintýri sem gerist í Úral- fjöilum. Tónlistin er eftir Róbert Long en textar eftir Dorothy Gulli- ver. Þýðing er eftir Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur, en undir hennar stjórn var óperan flutt í fyrsta skipti á íslandi. Vestfirska fréttablaðið leit inn á æfingu síðdegis í gær og þar voru myndirnar teknar sem fylgja grein- inni. Það var ys og þys og mikið brambolt eins og vera ber þegar um 40 krakkar á aldrinum frá 7-13 ára eru samankomnir. Flestir eru 9-10 ára. í rabbi við aðstandendur sýningarinnar kom fram að um 50 manns taka virkan þátt í sýning- unni, en sennilega eru þeir nær 100 sem lagt hafa hönd á plóginn á einn eða annan hátt. „Þetta er geysiskemmtileg hópvinna og það leggjast allir á eitt um að gera góða sýningu", sagði Rúnar Guð- brandsson í samtali við blaða- mann. að verkinu Að endingu er rétt að grípa niður í formála leikskrárinnar, en þar segir í ávarpi Sigríðar Ragnars- dóttur skólastjóra Tónlistarskól- ans: „Nútímamaðurinn er því miður alltof oft óvirkur neytandi þess sem samfélagið býður honum, og á þetta ekki síst við um þá tónlist og hávaða, sem dynur í eyrum all- an sólarhringinn og mengar um- hverfið meira en orð fá lýst. Þess vegna ríður mjög á að hvetja ungt fólk til þátttöku í skapandi starfi og er tónlistariðkun þar afar þung á metunum. Fjöldi ísfirskra ung- menna tekur virkan þátt í starfi Tónlistarskólans - ekki síst kór- starfinu - og er óskandi að þessi iðja þeirra geti orðið þeim gleði- gjafi í lífsbaráttunni á ókomnum árum. Það er nefnilega ekki hægt annað en að komast í gott skap þegar maður fer að syngja!" Það er klukkan 16 á laugardag- inn sem barnaóperan „Eldmærin" verður frumsýnd í sal Grunnskól- ans á ísafirði. Það er ekki að efa að það er hverjum manni hollt að bregða undir sig betri fætinum og hlýða á skemmtilega tónlist og sjá ungmenni flytja afrakstur erfiðis síns af heilum hug. Það gæti verið góður undirbúningur fyrir Eur- ovision-útsendingu sjónvarpsins um kvöldið. NAMSTILBOÐ! Að loknum grunnskóla. VIÐSKIPTABRAUT Markmið námsins er að búa nemendur undir almenn verslunar- og skrifstofustörf. Veitir rétt til verslu narleyfis að öðrum skilyrðum fullnægð- um. Námstími er fjórar annir. NÚPSSKÓLI S 8222 OG 8236.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.