Vestfirska fréttablaðið - 27.04.1988, Qupperneq 3
■5
vestfirska
TTABIASID
Bræðratunga fær
bfl með lyftu fyrlr
hjólastóla
Stórgjöf frá Styrktarfélagi vangefinna
á Vestfjörðum
„Það má segja að með tilkomu
þessa bíls sé ákveðinn draumur að
rætast", sagði Erlingur Níelsson
forstöðumaður Bræðratungu þeg-
ar hann veitti viðtöku nýjum bíl
sem Styrktarfélag vangefinna á
Vestfjörðum færði stofnuninni að
gjöf. Það var Hildigunnur Lóa
Högnadóttir formaður Styrktar-
félagsins sem afhenti Erlingi lykl-
ana að bifreiðinni á sumardaginn
fyrsta. Bifreiðin er af gerðinni
Renault Trafic og tekur 9 farþega
í sæti.
Hjólastólalyfta gerir kleift að
flytja með góðu móti vistmenn sem
eru bundnir við hjólastól.
Erlingur sagði í stuttu þakkar-
ávarpi sem hann hélt við þetta
tækifæri, að oft væri erfitt að fá
viðurkenningu fjárveitingavalds-
ins fyrir því sem talið væri nauð-
synlegur stofnkostnaður. Því væri
ómetanlegt fyrir Bræðratungu að
eiga Stykrtarfélagið að.
Heimilismenn í Bræðratungu
færðu síðan öllum viðstöddum
stjórnarmönnum í Styrktarfélagi
’vangefinna eina rauða rós sem
þakklætisvott fyrir veittan
stuðning.
Það var svo Jón Örnólfs Jó-
hannsson heimilismaður í Bræðra-
tungu, sem bundinn er við hjóla-
stól, sem tók bílinn formlega í
notkun með því að honum var lyft
um borð með hjólastólalyftunni
góðu.
Skátaskeytanýjung:
Einherjar með
kortaþjónustu
Skátar á ísafirði hafa alla tíð leit-
ast við að veita bæjarbúum sem
allra besta þjónustu við að koma
heilaóskum fólks til fermingar-
barnanna. Þar sem notkun greið-
slukorta er orðin eins víðtæk og
raun ber vitni, er Skátafélagið Ein-
herjar nú að taka upp kortaþjón-
ustu. Þessi greiðslumáti hefur líka
aukin þægindi í för með sér, því að
eftirleiðis nægir að hringja í skát-
ana í síma 3282 ef þjónustu þeirra
er óskað, og gefa síðan upp númer
á greiðslukortinu sínu. Þetta hefur
einnig þann kost, að nú getur fólk
notfært sér þetta hvar svo sem það
er statt á landinu.
MÆLINGAR
Vegagerðin óskar að ráða 2 - 3 aðstoð-
armenn í mælingar á Vestfjörðum í
sumar. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst og verið sem
lengst.
Umsóknum skal skilatil Vegagerðarinn-
ar, Dagverðardal ísafirði fyrir 9. maí
1988, gjarnan á eyðublöðum sem þar
fást.
Vegamálastjóri
NAMSTILBOÐ!
Að loknum grunnskóla.
TÆKNIBRAUT (fyrri hluti)
Markmið námsins er að búa nemendur til náms
í iðnfræði í Tækniskóla íslands og nám við Fisk-
vinnsluskóla íslands.
Námstími er fjórar annir.
NÚPSSKÓLI © 8222 OG 8236.
Gunnlaugur Jónasson:
Um
ísafjarðarkirkju
GÓÐIR ÍSFIRÐINGAR,
og þá einkum þið, sem eruð í
söfnuði ísafjarðarkirkju. Þessar
línur eru ritaðar til að minna á,
að á morgun, fimmtudaginn 28.
apríl kl. 20:30, verður í Kapell-
unni á Sal M.í. aðalsafnaðar-
fundur ísafjarðarsóknar. Þar
verða að venju lagðir fram reikn-
ingar kirkju og kirkjugarða og
flutt skýrsla um starfsemi safnað-
arins á liðnu ári. Þetta er jú ár-
legur viðburður eins og menn
þekkja, nema þessi fundur er öllu
fyrr á árinu en venja er, enda ligg-
ur fleira fyrir honum en skýrsla
og reikningar, og það dagskrár-
atriði sem ekki þola bið. Það eru
þau atriði, sem ég vil sérstaklega
vekja athygli ykkar á.
Eftir brunann í kirkjunni 27.
júlí sl. hefur sóknarnefnd unnið
að því í samræmi við lög og
reglur, og einnig í samræmi við
fyrirmæli aðalsafnaðarfundar sl.
haust, að leysa húsnæðismál safn-
aðarins, fyrst til bráðabirgða en
einnig til framtíðar.
Og nú er komið að því að taka
ákvörðun, sem er stefnumark-
andi fyrir söfnuðinn og bæjarfé-
lagið til langrar framtíðar, á-
kvörðun um það hvar kirkja skuli
rísa og hvernig kirkju eigi að
byggja.
Sóknarnefnd ísafjarðar telur
að reisa eigi nýja kirkju og til-
tekur tvo staði á Eyrinni, en legg-
ur það í hendur aðalsafnaðar-
fundar að ákveða staðinn. Sókn-
arnefnd hefur einnig gert lýsingu
á kirkju ásamt safnaðarheimili
(sem birst hefur í blöðum) og
leggur það fyrir fundinn að ræða
stærð og gerð þeirrar byggingar
og gera athugasemdir ef mönnum
svo sýnist.
Ég leyfi mér að fullyrða, fyrir
mína hönd og minna samstarfs-
manna í sóknarnefnd, að við
höfum lagt okkur fram á tíðum
fundum að undirbúa þessi mál
vandlega og eftir okkar bestu
samvisku, þó ávallt megi deila
um árangur. Ætla heldur ekki að
kvarta undan þeim tíma sem það
hefur tekið, en finnst hins vegar
sanngjarnt að ætlast til þess af
sóknarbörnum að þau hlýði kalli
og komi til fundar til að styðja
eða gagnrýna framkomnar til-
lögur og taka þátt í mörkun
stefnu. Gagnrýni eftir ákvarð-
anatöku er lítils virði.
Vil að lokum láta koma fram,
að ég vona, eins og þið öll vænt-
anlega, að okkur takist sameigin-
lega á fundinum á morgun að
taka ákvörðun, sem verði söfnu-
ðinum til gleði og sóma í lengd
og bráð.
Gunnlaugur Jónasson.
Fermingarbörn
á ísafirði
Næstkomandi sunnudag, 1. maí, mun
sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson sóknar-
prestur á ísafirði ferma eftirtalin börn
í ísafjarðarkapellu
Berglind Kristjánsdóttir Lyngmó, Brunngötu 20
Bragi Már Valgeirsson, Miðtúni 35
Bylgja Hrönn Karlsdóttir, Hafraholti 4
Gísli Einar Ámason, Árholti 9
Guðbjörg Rós Sigurðardóttir, Kjarrholti 3
íris Georgsdóttir, Seljalandsvegi 10
Jóhanna Ólöf Rúnarsdóttir, Miðtúni 25
Jón Oddur Guðmundsson, Sundstræti 24
Jónína Edda Skúladóttir, Smiðjugötu 4
María Sonja Thorarensen, Hlíðarvegi 12
Rósamunda Jóna Baldursdóttir, Hnífsdalvegi 8
Samúel Jón Samúelsson, Urðarvegi 20
Sigurlaug María Bjarnadóttir, Hlíðarvegi 38
Þórdís Jónsdóttir, Seljalandsvegi 36
r-...........
! FASTEIGNA-
i VIÐSKIPTI
ÍSAFJÖRÐUR:
Hafraholt 28. Raðhús. I húsinu
eru m.a. 4 svefnherb. Getur losn-
að fljótlega.
Túngata 7. Einbýlishús ásamt
bílskúr. Getur losnað fljótlega.
Fjarðarstræti 19. 120 fm efri
hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílg-
eymslu.
Túngata 13. 2ja herb. kjallara-
íbúð.
Sundstræti 29. 2ja herb. íbúð á
2. hæð í fjórbýlishúsi.
Hafraholt 36. Glæsilegt tvílyft
einbýlishús úr timbri ca 180 fm
ásamt bílskúr. Laust eftir sam-
komulagi.
Sólgata 8, 4ra herb. íbúðarhæð
ásamt tveim herbergjum í kjall-
ara.
Smiðjugata 10, 4ra herb. íbúð.
Stórholt 13, 4ra herb. íbúð á 3ju
hæð ásamt bílskúr.
Sundstræti 27, 3ja herb. íbúð á
1. hæð. Laus.
Sundstræti 35b. Lítið einbýlis-
hús. Selst ódýrt. Laust fljótlega.
Tangagata 26. Fallegt einbýlis-
hús í góðu standi. Eignarlóð. Get-
ur losnað fljótlega.
Aðalstræti 26A. 3-4 herbergja
íbúð.
Litlabýli við Seljalandsveg, lítið
einbýlishús. Laust 1. júní.
Mjallargata 6, norðurendi, 4.
herb. íbúð ásamt stórum bílskúr.
Laus fljótlega.
Engjavegur 33, 2ja herb. íbúö á
n.h. Laus fljótlega.
Góuholt 6,140 ferm. einbýlishús
ásamt bílskúr. Laust fljótlega.
Túngata 13. 3ja herb. íbúð á 1.
hæð. Laus.
Hrannargata 9. Falleg 3 herb.
íbúð.
Stórholt 11, 4ra herb. íbúð á 2.
hæð ásamt bílgeymslu. Getur
losnað fljótlega.
Seljalandsvegur 30, 175 ferm.
einbýlishús með innbyggðum
bílskúr. 4 svefnherbergi. Húsið er
í góðu ástandi. Veðbanda laust.
Stórholt 13,3ja herbergja íbúð á
1. hæð. Laus eftir samkomulagi.
Mjallargata 6, 4ra herb. ibúð á
efri hæð í suðurenda.
Sólgata 5, 3 herb. íbúð. Laus
fljótlega.
Sundstræti 24, 2ja herb. íbúð á
1. hæð.
BOLUNGARVÍK:
Stigahiíð 4, 2ja herb. íbúð á
jarðhæð.
Heiðarbrún 1. Einbýlishús á
tveim hæðum. Um 200 ferm.
Hjallastræti 20. Rúmlega 100
ferm. einbýlishús ásamt bílskúr.
Hjallastræti 18, 120 fm einbýlis-
hús ásamt bílskúr.
Stigahiíð 4, 3 herb. endaíbúð á
3. hæð.
Hafnargata 110. Tæplega 100
ferm. álklætt einbýlishús.
Skólastígur 20, 5 herb. íbúð á
tveimur hæðum í parhúsi.
sumarbUstaður
75 ferm. sumarbústaður í
Heydal Mjóafirði.
ARNAR GEIR
HINRIKSSON.hdl.
Silfurtorgi 1,
ísafirði, sími 4144
I vestíirska I
FRETTABLAÐIÐ
S
4011