Vestfirska fréttablaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 4
4
íí
vestfírska
TTABLADIS
ÓKEYPIS
smá-
auglýsingar
STURTUBOTN
Óska eftir að kaupa sturtu-
botn.
Upplýsingar í síma 94-7423.
TIL SÖLU
Skódi 130 L árgerð 1986, ek-
inn 25 þús km. Mjög vel með
farinn bíll.
Upplýsingar í síma 94-4960.
TIL SÖLU
Lada Station 1500, árgerð
1987, ekin 13. þús km.
Nánari upplýsingar í síma
1565.
ÓKEYPIS
Smaauglýsingar í Vestfirska
fréttablaðinu eru okeypis!
BRONCO
Bronco til sölu, árg. 1973. Á
sama stað Tíví-bassamagn-
ari.
Upplýsingar í síma 94-4356.
MINNINGARKORT
Styrktarfélags vangefinn á
Vestfjörðum fást í Penslinum
á ísafirði og hjá Níelsínu Þor-
valdsdóttur í Bolungarvík.
HESTUR
Góður barnahestur til sölu á
góðu verði ef samið er strax.
Upplýsingar í síma 3633.
1. MAI
DANS-
LEIKUR
verður
í Félagsheimili
Súgfirðinga
30. apríl frá
kl. 11 til 3.
Hljómsveitin
SÍGILD
leikur
fyrir dansi.
FJÖLMENNIÐ!
Aumingja Bílddælingar, nú geta
þeir ekki einu sinni skrúfaö frá
krana án þess aö Orkubúið skipti
sér af.
Á Andrésar Andar leikum
ísfirðingar fjölmenntu um síðustu helgi til Akureyrar, á leikana sem kenndir eru við Andrés Önd.
Keppendur frá ísafirði voru 53, en fararstjórar 12, þannig að hér var um 65 manna hóp að ræða. Á
meðal fararstjóranna var Guðmundur Ágústsson. Hann tók mikið afgóðum myndum sem hann leyfði
okkur að moða úr, og fylgja hér nokkrar þeirra.
Á verðlaunapalli fyrir 2 km göngu 11 ára drengja: Nr. 1 varð Hlynur
Guðmundsson (Ágústssonar), ísafirði, nr. 2 Pétur Sigurðsson (Gunn-
arssonar, Péturssonar), ísafirði, og nr. 3 Bjarni Jóhannesson, Siglufirði.
Sigríður Flosadóttir (Kristjáns-
sonar) hlaut 3. sæti í svigi 9 ára
stúlkna.
Það vakti athygli bæði keppenda og fararstjóra frá öðrum stöðum á
landinu, að ísfirsku fararstjórarnir lögðu mikla vinnu í að smyrja brauð
sem mannskapurinn tók með sér upp i fjall. Hér eru Eggert Jónsson,
Sigga Maja, Gylfi Guðmundsson, Guðmundur Rafn, Páll Sturlaugsson
og Arnór Jónatansson á fullu að smyrja.
Sponsid og Vinnuskólinn á ísafirði:
Sviptingar
í ráðningarmálum
Bæjarstjórn Isafjarðar samþykkti
á síðasta fundi sínum að Sigríður
M. Gunnarsdóttir skyldi ráðin for-
stöðumaður félagsmiðstöðvarinnar
Sponsins og Vinnuskólans á ísafirði
í stað Dagnýjar Bjarkar Pjeturs-
dóttur.
Meirihluti íþrótta- og æskulýðs-
ráðs hafði mælt með því að Ingólfur
Arnarson leiðbeinandi við Grunn-
skólann á ísafirði yrði ráðinn til
starfans. Hann hefur unnið mikið
starf með ísfirskum unglingum, og
Dagný Björk óskaði eindregið eftir
því að hann tæki við starfinu.
Bæjarstjórn ísafjarðar var hins
vegar á annarri skoðun. Þegar málið
kom til afgreiðslu innan bæjar-
stjórnar var ákveðið að Sigríður
skyldi ráðin.
Síðan gerðist það, að Sigga Maja
dró umsókn sína til baka, og þar við
situr nú.
Um helgina varð hastarlegur árekstur á gatnamótum Hafnarstrætis og
Sólgötu á ísafirði, rétt við kirkjuna. Vegfarendur töluðu um að þarna
hefðu tveir bílar verið að „spyrna", líkt og vinsælt er á Hverfisgötunni
í Reykjavík. Annar þeirra hafi síðan ekið á bíl sem í vegi hans varð, en
hinn hafi ekið óskaddaður á brott. Sá bíll hefur þá trúlega tapað í
spyrnunni.
Þegar við spurðum lögregluna um áreksturinn, virtust menn hins vegar
við sem minnst vilja kannast í sambandi við þetta mál.
Vetur og sumar
frususamaná Vestfjörðum
Það fór ekki á milli mála að vetur og sumar frusu saman á Vestfjörðum.
Slikt boðar gott og hlýtt sumar samkvæmt þjóðtrúnni. Flestum þótti fátt
minna á sumarið þegar fyrsti dagur þess rann upp. Sumarið heilsaði
hestaeigendum í Hnífsdal með snjóflóði sem kom úr gili beint ofan við
hesthúsin utanvert í Hnífsdal. Þó að snjóflóðið færi kannski ekki langt,
þá var það býsna stórt eins og myndin ber með sér.