Feykir - 14.12.1981, Blaðsíða 2

Feykir - 14.12.1981, Blaðsíða 2
SÚKKULAÐIVERKSMIÐJAN LINDA H.F. sendir íbúum á Norðurlandi vestra bestu jóla- og nýárskveðjur. Vöruhappdrætti UMSS1981 Vinningar: 1. Vöruúttekt hjá Kaupfélagi Skagf. Nr. 1951 2. Vöruúttekt hjá Kaupfélagi Skagf. Nr. 42 3. Myndataka hjá Ijósmyndastofu St. Pedersen Nr. 2132 4. Vöurúttekt hjá versluninni Spörtu Nr. 621 5. Vöruúttekt hjá Radíó- og sjónvarpsþjón. Nr. 41 6. Vöruúttekt hjá Hátúni húsgagnaversl. Nr. 574 7. Vöruúttekt hjá saumastofunni Vöku Nr. 2539 8. Matur fyrir tvo á Hótel Mælifelli Nr. 452 9. Úttekt á íþróttavörum hjá versluninni Tindastóll Nr. 2298 10. Hársnyrting hjá hárgreiðslustofu Maríu Nr. 1395 11. Vöruúttekt hjá versluninni Rafsjá Nr. 1338 12. Vöruúttekt hjá versluninni Lilja Nr. 899 13.-22. iþróttagallar í lit UMSSS hver á kr. 400 Nr. 1169, 1049, 2714, 187, 1047, 1582, 451, 1396, 490, 2817. Kr. 1.000 1.000 550 500 500 500 500 400 400 300 300 300 4.000 Upplýsingar um vinninga á skrifstofu UMSS sími 5460. Fjöldi miða 3075. Stjórn UMSS þakkar veittan stuðning og sendir öllum bestu jóla- og áramóta- kveðjur. Auglysing Hér með er eindregið skorað á þá gjaldendur í Skagafjarðarsýslu og Sauðárkrókskaupstað, sem enn hafi eigi greitt að fullu þinggjöld sín, að gera skil á gjöldum þessum til skrifstofu embættisins nú þegar. Sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu. Bæjarfógetinn á Sauðárkróki. RAFVEITA SAUÐÁRKRÓKS Þeir sem elda hátíðar- matinn á aðfangadag eru hvattir til að dreifa elduninni á sem lengstan tíma, þennan mikla álagsdag. Með því má koma í veg fyrir straumrof á heimilum, sem orðiö getur þegar öll straumfrekustu heimilistækin eru í notkun samtímis. Hafið einnig vartappa af réttum stærðum höndina. Gleðileg jól. RAFVEITA SAUÐÁRKRÓKS. við Sendum félagsmönnum okkar, íbúum á Norðurlandi vestra, svo og öðrum við- skiptamönnum bestu jóla- og áramóta- óskir. SAUÐÁRKRÓKI - HOFSÖSI - VARMAHLÍÐ - FUÓTUM^ BÍLALEIGA SAUÐÁRKRÓKS SIGURGEIR ÞÓRARINSSON GRUNDARSTÍG 7 SÍMI 95-5320 NAFNNR. 1108-9941 Afgr. BLÁFELLI, sími 95-5168 Bílaleiga Sauðárkróks Leigjum út Lada Sport, Galant og Daihatsu bifr- eiðar, aðeins nýjar bifreiðar íleigunni. BÍLALEIGA SAUÐÁRKRÓKS. BLÁFELL Sauðárkróki auglýsir Bjóðum m.a. SHELL-bensín, SHELL-olíur, SHELL smávörur. Málningu frá HÖRPU H/F í fjölda lita. 10% JÓLA- AFSLÁTfUR.• ,Og auðvitað: Hamborgara, samlokur, pylsur, öl, gosdrykki, sæl- gæti, ís, tóbak. Ath. hagstætt verð á öli og gosi í heilum og hálfum kössum yfir jólin. Komið eða hringið Gleðileg jól! BLÁFELL Baldvin Kristjánsson Skagfirðingabraut 29, Sauðárkróki, sími 5168. Sauðárkróks prestakall Messur um jól og áramót Sauðárkrókskirkja: Aðfangadagur jóla: aftansöngur kl. 18,00. Jóladagur: hátíðamessa kl. 11,00. Annar dagur jóla: skírnarmessa kl. 11,00. Sunnudagur 27. des.: barnamessa kl. 11,00. Gamlársdagur: aftansöngur kl. 18,00. Hvammskirkja: Annar dagur jóla: hátíðamessa kl. 14,00. Ketukirkja: Annar dagur jóla: hátíðamessa kl. 17,00. Verið velkomin. Sr. Hjálmar Jónsson. .. % e ' k i i ¥ n % n M n % ★ 2 : ir Aðventukvöld á Hofsósi Sá siður hefur rutt sér nokkuð til rúms síðustu ár að halda aðventu- kvöld í kirkjum landsins á jólaföst- unni. Hefur fólki á þann hátt gefist tækifæri til að staldra við í kirkju sinni frá önnum og jólaamstri og eiga kyrra og helga stund til að undirbúa hug sinn komu jólanna. Líta má á slikar aðventusamver- ur sem mótvægi við það brambolt sem fylgir jólahaldi í þjóðfélagi okkar og mörgum finnst vera farið að vængstífa eða jafnvel kæfa þann boðskap sem jólin flytja. Nokkur undanfarin ár hefur það verið fastur liður að halda að- ventukvöld i Hofsóskirkju og mun svo einnig verða á þessari jólaföstu. Verður aðventukvöldið að þessu sinni þriðjudaginn 15. desember og verður að venju reynt að vanda til dagskrár. Ræðumaður kvöldsins verður sr. Hjálmar Jónsson, Sauð- árkróki, Söngfélagið Harpan mun syngja aðventu og jólasálma undir stjórn Jiri Hlavacek og félagar úr Æskulýðsfélagi Hofsóskirkju sýna heigileik. Guðm Jnp Smælki Og enn um kvennaárið. Hjónin töluðu um kvennaárið og al- mennt stöðu kvenna. — Þú átt nú að viðurkenna að Guð skapaði karlinn fyrst, sagði eiginmað- urinn. Alveg rétt, sagði konan. Þegar ég skrifa bréf, þá geri ég fyrst uppkast. Leiðrétting í næstsíðasta blaði var grein á for- síðu um byggingaframkvæmdir á Sauðárkróki. Þar var sagt að byrjað hefði verið á tveimur íbúðarhúsum á þessu ári. Sauðkrækingum þótti þetta einkennileg frétt. Þetta var prentvilla. Húsin sem byrjað var á í bænum eru 15 (fimmtán). Leið- réttist þetta hér með. Siglfirskir punktar Félagsstarf í blóma Vetrarstarf hinna ýmsu klúbba og félaga er hafið fyrir alllöngu síðan og stendur með miklum blóma. Lions-, Kiwanis- og Rotaryklúbbar hafa samtals um 120 félagsmenn. Funda þeir reglulega, snæða kvöldverð og ræða margt. Klúbbarnir gang- ast fyrir fjáröflunum og deila hagnaðinum til ýmissa góðra verka. f síðasta blaði var getið um liðveislu þeirra við innrétt- ingu safnaðarheimilis á kirkju- loftinu. Kvenfólkið á líka sín félög og íþróttafélagið eiga bæði kynin saman. Dansleikir eru haldnir í hverri viku, og fastur liður einu sinni í mánuði eru dansleikir hjóna- og para- klúbbsins, sem eru geysivinsælir enda fjörið þar mikið. Mikil aðsókn að íþróttahúsinu Vetrarstarf íþróttahússins hófst í byrjun nóvember. Skólafólkið er í húsinu alla daga frá hádegi og fram til kl. 6 á daginn, og þar á eftir koma félagar íþrótta- félaganna til íþróttaiðkana. Mest er þátttaka almennings í badminton og eru iðkendur þess á öllum aldri. Knatt- spyrnumenn æfa mikið í öllum flokkum undir tilsögn þjálfara. Blak er mikið stundað af „eldra fólkinu“, þ.e.a.s. þeim sem komnir eru um eða yfir þrjátíu árin. Blakfélagar taka þátt í ís- landsmótinu.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.