Feykir - 14.12.1981, Blaðsíða 11

Feykir - 14.12.1981, Blaðsíða 11
t „Kirkja vors guðs er gamalt hús“ Blaðið sem þú ert að lesa á að vera vettvangur fyrir alla málaflokka. Nú þegar líður að jólum er ekki úr vegi að beina huganum lítið eitt að kristni og kirkjuhaldi. Ekki svo að skilja að sá sem þetta ritar hafi í hyggju að fara að predika; til þess eru aðrir betur fallnir; heldur að vekja athygli á því hvað fólk sýnir það oft í verki að því þykir vænt um kirkjuna sína og vill eitthvað á sig leggja fyrir hana. Er e.t.v. einhver predikun í því? Ég ætla að tilgreina hér tvö dæmi um kirkjur sem nýlega hefur verið unnið ýmislegt fyrir, kirkjúr sem staðið hafa og þjónað sínu hlut- verki „lengur en elstu menn muna“. Kirkjurnar að Felli í Sléttuhlíð og að Hofi á Höfðaströnd. Sunnudaginn 9. ágúst 1981 var hátíðaguðsþjónusta í Fellskirkju í tilefni af 100 ára afmæli þeirrar kirkju. Var þar meira fjölmenni saman komið en kirkjan rúmaði og var því komið fyrir hátalarakerfi svo þeir sem ekki komust inn gætu heyrt það sem fram fór í kirkjunni þó þeir sætu í bílum úti fyrir. Þá- verandi biskup fslands herra Sig- urbjörn Einarsson predikaði og auk hans tóku þátt I athöfninni séra Pétur Sigurgeirsson sem þá var vígslubiskup á Akureyri og þjón- andi prestar og prófastur Skaga- fjarðarprófastsdæmis. Kirkjukór Hofs- og Hofsóskirkna annaðist kirkjusönginn. Organisti var Anna Jónsdóttir Mýrarkoti. Við athöfnina flutti Pétur Jóhannsson frá Glæsibæ yfirgrips- mikla ræðu og rakti sögu kirkjunn- ar. Stefán Gestsson á Arnarstöðum, formaður sóknarnefndar flutti ávarp og lýsti þcim endurbótum sem gerðar höfðu verið á kirkjunni í tilefni þessa afmælis. Fórust hon- um meðal annars orð á þessa leið. „Fyrir rúmu ári var svohljóðandi samþykkt gerð I Fellskirkju: „Al- mennur safnaðarfundur haldinn að Felli 10/6 1980 samþykkir að gera gagngerar endurbætur á kirkjunni 1 tilefni af 100 ára afmæli hennar á næsta ári og verði afmælisins síðan minnst með hátíðamessu." Við at- hugun kom í ljós að kirkjan þurfti mjög verulegra endurbóta við. öll járnklæðning var endurnýjuð og skipt um þar sem fúi var kominn í timbur sem var vonum minna. Nýir gluggar voru settir í kirkjuna og einangrunargler. Um þennan hluta viðgerðarinnar sá Kristján Ámason smiður á Skálá og vann hann það af mikilli kostgæfni og vandvirkni sem hans var von. Hluta þess verks vann hann án endurgjalds, auk þess hefur verið lögð fram mikil sjálfboðavinna af fólki hér í sveit- inni og reyndar utan hennar líka, vil ég þar nefna Jón Jóhannsson frá Mýrum. Raflögn var endurnýjuð að verulegu leyti og sett upp raf- hitun. Kostnaður við rafhitun og raunar meirihluti endurnýjunar á raflögn er gerður fyrir peningagjöf frá hjónunum Jónu og Kristjáni frá Róðhóli og börnum þeirra. Verkið var framkvæmt af Gunnlaugi Jónssyni rafvirkja og var hluti þess verks unninn endurgjaldslaust. Að lokum hefur kirkjan verið máluð innan í hólf og gólf og var það framkvæmt af Herði Jörundssyni málarameistara á Akureyri.“ Þá færði Stefán þakkir þeim fjölmörgu sem unnið höfðu að þessum störfum og fært kirkjunni gjafir sem hann taldi upp og voru margar og miklar. Þakkaði hann einnig húsráðendum~í Felli fyrir margvíslega fyrirgreiðslu og að- stoð, einnig Gísla Felixsyni rekstr- arstjóra Vegagerðar ríkisins fyrir hve fljótt og vel hann brást við með litlum fyrirvara að lagfæra veg og umhverfi kirkjunnar. X Kirkjan á Hofi á Höfðaströnd var byggð um 1870. Að sjálfsögðu hefur oft þurft að endurbæta hana og laga eins og önnur mannanna verk en hér eru ekki tök á að rekja þá sögu. Frá því um 1950 hefur litið verið unnið að viðhaldi kirkjunnar þar til nú fyrir fáum árum. Var þá orðið sýnilegt að kirkjan lá undir stórskemmdum og þörf var skjótra viðbragða til bjargar. Ljóst var að fúi var kominn í fótstykki í grind hússins, leki var á þaki, turninn orðinn óþéttur og skemmdur af veðri og vindum og málning tekin að flagna og molna af bæði utan húss og innan. Var nú tekin ákvörðun um að hefjast handa við gagngerar endurbætur á kirkjunni. Þessi ákvörðun virtist naumast vera byggð á neinni skynsemi, því það sem gera þurfti hlaut að kosta stórfé en kirkjan að heita mátti félaus. Nei, ákvörðunin var byggð á bjartsýni og trú á að guð og góðir menn myndu leggja málinu það lið er til þyrfti. Og mönnum varð að trú sinni. Fyrst var hafist handa við að skipta um hluta af fótstykki hússins og lagfæra og endurbæta ýmislegt í gólfi og veggjum sem í ljós kom að þurfti í þeim hluta kirkjunnar sem tekinn var fyrir í þessum áfanga en það var sá hluti sem sýnilega var verst farinn. Kirkjan stóð undir efniskostnaði við þetta verk og eins við viðgerð á turninum sem var næsta viðfangs- efni, en verkið var allt unnið 1 sjálfboðavinnu. Næsta skref var að skipta um þak á kirkjunni. Efni í þakið gáfu börn þeirra hjónanna Jófríðar Björnsdóttur og Jóns Konráðssonar fyrrum hreppstjóra í Bæ, en verkið við að setja þakið á og við allan frágang þess önnuðust synir hjónanna Ingibjargar Jóns- dóttur og Þorsteins Helgasonar frá Vatni. Var það hluti af gjöf þeirra systkina til kirkjunnar í minningu foreldra sinna. Þegar hér \ar komið lá fyrir að mála kirkjuna og enn kom í ljós að bjartsýnin sem í upphafi virtust engin takmörk sett hafði átt rétt á sér. Pálmi Jóns^on frá Hofi („Pálmi í Hagkaup") tilkynnti sóknar- nefndinni að hann vildi gefa máln- ingu á kirkjuna utan og innan og greiða kostnað við verkið. Var svo hafist handa við að mála kirkjuna utan og var öll sú vinna við undir- búning og málníngu unnin af sóknarbörnum í sjálfboðavinnu, en þegar til þess kom að mála kirkjuna innan dyra voru ekki tök á öðru en leita verktaka utan sóknar. Til að annast þetta verk var ráð- inn Hafþór R. Þórhallsson hand- og myndmenntakennari við grunnskólann á Hofsósi. Er því verki nú lokið og þykir hafa vel tekist. Oft er það svo þegar farið er að gera við gömul hús að ýmislegt kemur í ljós sem þarfnast aðgerða en dulist hefur. Svo var hér. Mönnum varð ljóst að kirkjan var tekin að hreyfast til í stórviðrum og var því hætta á að hún kynni að fjúka. Auk þess virtist þurfa að styrkja austurstafninn á einhvern hátt. Voru því settar festingar á tveimur stöðum á hvora hlið kirkjunnar og eru þær traustlega steyptar niður og á austurstafninn var boltaður stór kross úr járni sem er steyptur niður og er því bæði Úr Hofskirkju. styrktarbiti fyrir stafninn og festing fyrir húsið. Eins og fyrr segir hafa kirkjunni verið gefnar ýmsar gjafir. Ekki hafa þær verið allar taldar hér enda munu gefendur ekki ætlast til að svo sér gert. Er þar bæði um að ræða gjafavinnu og peningagjafir. Þó ýmsir hafi unnið meira og minna að því verki sem hér hefur verið lýst hefur þó framkvæmdin fyrst og fremst hvílt á herðum sóknarnefndarformannsins Jóns Þorsteinssonar í Mýrakoti. Hefur hann lagt meiri tíma og vinnu í þetta verk en gera má ráð fyrir að ókunnugir geti rennt grun 1. Verður framlag hans til þess verks ekki metið til fjár enda mundi honum vart þægð í því. Af hnýtingum Hnýtinganámskeið hafa víða verið haldin síðustu misserin og verið vinsæl. Nýlega barst Feyki atómljóð ort í tilefni af slíku námskeiði. Þykir Feyki ástæða til að birta kvæðið, því að ekki er ósennilegt að þetta sé fyrsta, og kannski síðasta atómljóð sem ort er vegna hnýtinganámskeiðs. Ljóðið heitir: SÁLARFLÆKJA Ég lærði að hnýta á haustnámskeiði í fyrra og þótti skrýtið að hnútarnir skyldu vefjast fyrir mér. Þessi undrun olli mér sálarflækju sem var illleysanleg. >á rann upp.fyrir mér ljós, þetta var ekkert skrýtið: Ég hafði margra ára andlega æfingu að baki. 1 40 ár hef ég hnýtt, vetur sUmar, vor, og haust. Ekki blómahengi og bakkaborða, því það kunni ég ekki. í 40 ár hef ég verið að hnýta i hann bróður minn. Skyldi því engan undra þótt ég yrði fljótt öllum hnútum kunnug. Bjarni A. Jóhannsson. Hafþór Þórhallsson og Jón Þorsteinsson. Nokkrar spurningar og vanga- veltur um samgöngumál í Skagafirði —en minna um svör. — Hvað eru það margir aðilar sem sjá um einhverskonar flutninga um og til Skagafjarðar? — Hefur ferðum farið fjölgandi og þjónustan batnandi? — Hverjar eru óskir almennings varðandi samgöngur? Eru þær í samræmi við óskir þeirra sem samgöngunum ráða? — Er áhugi fyrir auknum ferðum almenningsfarartækja og áætl- unarbifreiða eða vill fólk bara einkabíla? — Gæti hugsast að vöruflutningaþjónustuna mætti reka af meiri hagkvæmni? — Væri ástæða til að bæta samgöngur á milli þéttbýlisstaða á Norðurlandi? — Hvernig stendur á því að 3 flugfélög hafa fastar áætlunarferðir á suma staði á Norðurlandi en ferðir fátíðar á aðra? — Hvað er hægt að gera til að gera flugsamgöngur og ferðir sem tengjast þeim virkari? — Er hugsanlegt að samræma meira vöruflutninga og fólksflutn- inga með bifreiðum? — Má nýta póstferðir til annarra hluta en að flytja póst? — Hafa íbúar í Skagafirði áhuga fyrir auknum áætlunarferðum innan héraðs t.d. „hringferð“ um Skagafjörð? — Hverjir eiga að sjá um framkvæmd samgangna og rekstur? Einstaklingar, félög eða ríki og sveitarfélög? Guðm. Ingi. Feykir . 11

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.