Feykir - 14.12.1981, Blaðsíða 10

Feykir - 14.12.1981, Blaðsíða 10
Ég ætla á Melana næsta sumar" segir Pálína á Skarðsá Pálfna tilbúin i hcyskapinn. Hún er ekki bogin f baki þótt hún hafi látið vélarnar lönd og leið, og tekist á við hlutina með Ifkamsaflinu. Blaðamaður Feykis fór við annan mann að heimsækja Pálínu Kon- ráðsdóttur í Skarðsá í Sæmundar- hlíð sunnudaginn 29. nóvember síðastliðinn. Pálína hefur búið ein í Skarðsá í 30 ár, allt frá því að faðir hennar Konráð Konráðsson dó. Hún hefur litið verið á ferðalögum um dagana. fór í fyrsta sinn til Reykjavíkur fyrir fáeinum árum þegar hún gekkst undir aðgerð á mjöðmum og lá lengi á sjúkrahúsi. En hún kom aftur heim í Skarðsá strax og hún varð rólfær, og vill ekki annars staðar vera. Hún geng- ur við eina hækju. stundar sauð- fjár- og hrossabúskap þó komin sé yfir áttrætt. Ekki segist hún eiga eins mörg hross og sumir haldi. „en kynið er Ijúft og hrekklaust.“ Torfbærinn hennar er hlýr þó 10 stiga frost sé úti. Þar er bæði sími og rafmagn, en að öðru leyti er flest eins og það tilheyri öðrum tíma, fyrri öld. Göngin eru þröng og dimm. Það var gaman að koma kaupamaður af næsta bæ í heim- sókn til Pálu i gamla daga. Hún hitaði kakó sem var gott. Kári Jónsson í Valagerði orti eitt sinn vísu um kakóið hennar Pálu: Út um göngin ilminn fann — eftir þekju blærinn líður —- heitir Pála húsfreyjan, heimsins besta kakó sýður. Ung vakti hún yfir vellinum í Skarðsá á vorin, og skiptust þau á um það, hún og Kalli bróðir hennar sem síðar var bóndi í Auðnum í Sæmundarhlíð. Það stóð eitt sinn til að Pálína færi á Kvennaskólann á Blönduósi, en þá var skólinn fullskipaður og hún komst ekki að. Móðir Pálínu veiktist 1928 og var sjúklingur þau 10 ár sem hún átti ólifuð. Mesta breytingin, eftir að þau voru orðin ein, Pálína og Kon- ráð faðir hennar, var þegar hann missti málið. Hann var mállaus í átta ár og máttvana. Hann dó í Skarðsá árið 1951. Var gestagangur mikill i gamla daga? Það komu oft gestir úr Svartárdal og Blöndudal sem versluðu i Króknum. Hefur þú aldrei gengið í kven- félagið? Nei, það hefur ekki verið aðstaða til þess. t t Leiðist þér ekki? „Nei, það er frekar að mér leið- ist margmennið. Þó hef ég oft gaman af að vera innan um fólk.“ Hún fór í réttirnar í haust og ætlar fram á Melana í vor (landsmót hestamanna á Vindheimamelum). Hver veit nema eitthvað af hross- um hennar sjáist þar líka. Nýtur þú ekki fyrirgreiöslu af hálfu hins opinbera? Þarft þú t.d. að borga afnot af útvarpi og sima? „Ég neyrði einhversstaðar að gainalt fólk sem sér um sig sjálft ætti rétt á fríu útvarpi og síma. Ég gleymdi nú að spyrja Svavar Gestsson ráðherra að þessu ísumar þegar hann kom hingað. Svo datt mér í hug að prufa það í haust að borga ekki símann. Honum hefur ekki verið lokað ennþá.“ Við spyrjum hvort Pála hafi aldrei ort neitt. Ekki vildi hún viður- kenna það. En það er skáldskapur og fræðimennska í ættum hennar. Móðir hennar og Stefán G. voru systkinabörn. Og föðurfólkið er í ætt við Gísla Konráðsson fræði- mann og það fólk allt. Sigurbjörg Jónsdóttir amma Pálu orti þessa vísu: Tíminn aldrei tekur stans, talsvert marga blekkir, upphaf bæði og endi hans enginn maður þekkir. Gísli á Bessastöðum í Sæmund- arhlíð föðurbróðir Pálu orti eftir- farandi vísu þar sem hann stillir upp hlið við hlið „lúnum hrauk" og „andans hauki.“ Annar leitar nið- ur, hinn upp. Einn vonar og brýst um fast, annar missir dug, hrífst ekki með þó að gneisti af hinum: Lúnum hrauk það ljær ei dug — leitar hann oní svörðinn — þó andans haukur hefji flug heims um vonarskörðin. Kannski hefur Pála haft þessa vísu í huga þegar hún lá brotin á sjúkrahúsi mánuðum saman, ákveðin í að koma aftur í „Vonar- skarðið" heima. Við sátum lengi dags hjá Pálínu í Skarðsá þennan sunnudag og drukkum kaffi, ekki kakó eins og í gamla daga, og reyktum vindla. Ennþá er kraftur í bóndanum á Skarðsá. Hart hefur eflaust verið barist stundum þó að sú barátta hafi mestöll verið háð í sömu land- areigninni, innan og utan torf- veggjanna í Skarðsá, og við fá vitni. Meft „stórcigar" oc glettni í svip. Hólmfríður Jónasdóttir hefur sent Feyki bréf til birtingar. Hólmfríður hefur búið á Sauðárkróki i meira en hálfa öld. Hún hefur tekið mikinn þátt i félagsstörfum um dagana. var m.a. formaður verkakvennafélagsins Öldunnar í mörgár. Hún hefur setið á Alþýðusambandsþingum og lands- fundum kvenfélaga. verið á kosn- ingaferðalögum með Jóhannesi úr Kötlum. stundað barnakcnnslu og unnið i fiski og öðru því sem til hefur fallið. Fyrir þremur árum gaf Hólm- friður út Ijóðabókina Undir herum liimni sem prentuð var hjá Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Hólm- friður er dóttir Hofdala-Jónasar og á því ekki langt að sækja skáldgáfuna. Þessa visu orti hún í fyrra: Kvöldið dregur dauðahljótt dökkan væng á gluggann, jörðin þokar okkur ótt inn í næturskuggann. Ingimar Bogason kom með þennan fyrripart á kven'félagsfundi einn ný- ársdag fyrir allmörgum árum: Hvað er það sem konur þrá en karlmenn ekki skilja? Hólmfríður svaraði: Að vera mcira en beinin blá og brot af þeirra vilja. Hér fer á eftir bréf Hólmfríðar. 10 .., Feykir ,, Hvers vegna kvennaframboð Ég get ekki stillt mig um að fara nokkrum orðum um hin svoköll- uðu kvennaframboð, sem nú eru hér á döfinni og mikilli umræðu hafa valdið víða um land og þó sérstaklega í Reykjavík og Akur- eyri. Þó ber ekki að efa, að konur hafi verið linar til opinberra starfa, ekki sízt í þjóðmálum, svo sem innan veggja alþingis og sveitar- stjórna allt fram að þessu, og mættu þær gjarnan hafa meiri áhrif á þeim sviðum. Ekki skulu menn ætla, að hér sé spjótum beint til þeirra kvenna, sem í dag sitja á þingi kjörnar af listum stjórnmálaflokk- anna, síður en svo. Þær skipa án efa sæti sín með prýði og fylgja málum fram af festu og fullri djörfung. Hið sama er víst að segja um konur í sveitarstjórnum. Þá vaknar ósjálfrátt spurningin: En hvers vegna eru stjórnmála- flokkarnir svo tregir til þess að setja konur í örugg sæti á framboðslist- um til alþingis og sveitarstjórna? Er það vegna þess, að karlar líti enn á konuna sem tæki til þess að stjórna heimilunum, ala upp börn o.þ.h. Eða eru þeir hræddir um að missa þau fríðindi, sem þeir hafa tileink- að sér um langan aldur með því að geyma hana innan heimilisveggja? Sú var tíð, að konan var ekki frjáls að hafa aðrar skoðanir í stjórnmálum en eiginmaðurinn, talið var sjálfsagt að hún kysi að hans frumkvæði, að hans vilji væri einnig hennar. Fram í hugann kemur lítil saga, sem gerðist fyrir um það bil 50 ár- um, og sýnir hún glöggt þetta gamla viðhorf. Sagan er hvorki löng né merkileg, og gerðist á þeim tíma þegar framsóknarmenn hófu hér undirskriftaáróður fyrir að skipta Skagafjarðarkjördæmi í tvö. Mektarbóndi austan vatna kom á heimili ungra hjóna, sýndi þeim skjalið og reifaði málið. Hjónin létu sér fátt um finnast, einkum konan, og segir þá kosningasmalinn þessi víðfræguorð við bónda: Hvemiger það, ertu ekki húsbóndi á þínu heimili. Hjónin skiluðu auðu. í dag eru tímarnir breyttir, og er það vel. Konur hafa yfirleitt sömu skilyrði til náms á svo til öllum sviðum og karlar, enda búnar þeim hæfileikum, sem sízt eru þeim fjöt- ur um fót. En margra aldaundirok- un er ekki auðvelt að brjóta af sér á nokkrum áratugum. Til þess dygði ekki skemmri tími en heil öld, og mætti gott kaila ef marki yrði þá náð. Enn í dag gerast konur næsta tregar til þess að taka verulegan þátt í stjónun lands og þjóðar. Við megum ekki skella skuldinni að öllu leyti á feður og syni. Og þá er komið að spurningu dagsins, sem er yfirskrift þessa greinarkorns, og viðhorf mitt til hennar. Ég tel að kvennaframboð út af fyrir sig leysi ekki þann vanda, sem glímt er við í dag, svo yfirgripsmikil er flokkapólitík á íslandi og í heiminum, að óháð framboð kvenna komi ekki til með að lægja öldumar í þeim átökum. Fjöldi þeirra kvenna, sem að framboðinu standa, telja sig ekki bundnar neinum stjórnmálaflokki, en alþjóð veit að svo er ekki, enda naumast leggjandi eyru við slíkum yfirlýsingum. Hafa þær í hyggju að stofna nýj- an flokk í næstu alþingiskosning- um, eða vinna hverju sinni með þessum eða hinum flokki að mál- um, sem hugur þeirra stefnir til? Því litla sem maður hefur heyrt eða séð frá samtökunum, virðast for- ustumenn þeirra eiga naumast svör við. Undirrituð er hjartanlega sam- mála konunum, að nauðsyn beri til að fjölga — og hvetja sem flestar konur til starfa á opinberum vett- vangi, en gera skuli það með öðrum ráðum en þeim, sem hér hefur ver- ið drepið á. Er ekki farsælast að vinna að því fram að sveitarstjómarkosningum í vor að knýja á forustumenn flokk- anna að úthluta konum örugg sæti á framboðslistum. Það skyldi þó aldrei verða sú raunin, að ekki reyndist auðhlaup- ið verk að finna konur, sem væru tiltækar að takast á við vandann. Hólmfríður Jónasdóttir.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.