Feykir - 14.12.1981, Blaðsíða 12
Verðbólgu þankar
Sonurinn: Verðbólga. Það tala allir um verðbólgu. Hvað er það, pabbi?
Faðirinn: Verðbólga, drengur minn. Ertu að spyrja um verð- bólgu? Það hélt ég að allir vissu, hvað væri verðbólga. Það er ofþensla í þjóðfélaginu, varðhækkanir og spenna. Það er eins og bólguskratti á þjóðarlíkaman-
Sonurinn: Er þá ekki hægt að lækna hana með penesillini, eins og júgurbólguna?
Faðirinn: Nei, sonur sæll. Þótt penesillin sé gott við bólgu, dugir það harla lítið á verðbólguna. Hún er annars eðlis — þar þarf skurðaðgerð að koma til.
Sonurinn: Hvernig er verðbólga, pabbi?
Faðirinn: Hvernig hún er —nú hún er þannig, drengur minn, að allt hækkar og hækkar og þenst út. Kaupið hækkar, varan hækkar og öll þjónusta stórhækkar. Vegna verðbólgunnar verður afnotagjaldið af sjónvarpinu okkar i ár, hærra heldur en sjónvarpið kostaði fyrir nokkrum árum.
Sonurinn: Vá — maður.
Faðirinn: Við getum lika tekið annað dæmi. Fyrir 30 árum keypti hann afi þinn íbúðarhúsið sitt fyrir þrjártiu þúsund krónur. I dag kaupi ég gleraugu fyrir sömu upphæð. Að 30 árum liðnum færð þú kennske saum- nál fyrir sömu upphæð og hann afi þinn galt fyrir íbúðarhúsið sitt. Þannig er verðbólgan, minn kæri sonur.
Sonurinn: Stórkostlegt. Hvað myndi húsið hans afa kosta þá?
Faðirinn: Hundruð milljóna króna, eða milljarða. Hver veit það í dag?
Sonurinn: Við erum ríkir, pabbi, að eiga svona mikið. G.G.
Tækjakynning samvinnufélaganna
Félagsmálanefnd samvinnufélag-
anna í A.-Hún, sem stofnuð var
vorið 1980, en í henni eru 2 fulltrú-
ar frá Sölufélagi A.-Hún., 2
fulltrúar frá Kaupfélagi Húnvetn-
inga og 2 fulltrúar frá starfs-
mannafélagi samvinnufélaganna í
A.-Hún. gengst núna fyrir fyrir-
tækjakynningu samvinnufélag-
anna í A.-Hún. fyrir 8. bekk
grunnskólanna í sýslunni. Nem-
endur grunnskólans á Húnavöllum
samtals 25 unglingum var boðið til
Blönduóss þriðjudaginn 10/11 kl.
10.00 árdegis. Farið var með þau í
Vélsmiðju Húnvetninga, skrifstofu
K.H., kjötvinnslu og stórgripaslát-
urhús S.A.H. o.fl. Voru þeim sýndir
ýmsir starfsþættir áðurnefndra
vinnustaða í fylgd forráðamanna.
Hádegisverður var framreiddur í
BAÐSTOFUNNI af mötuneyti
S.A.H. Að honum loknum fluttu
formenn félaganna, Björn
Magnússon Hólabaki (K.H.),
Kristófer Kristjánsson Köldukinn
(S.A.H.) og Árni S. Jóhannsson
kaupfélagsstjóri stuttar ræður um
aðdragandann að stofnun félag-
anna, og rekstur þeirra fyrr og nú.
Að síðustu lýstu þeir yfir ánægju
sinni yfir komu nemenda og væntu
þess að þeir hefðu af henni nokkurt
gagn og gaman. Eftir myndatökur
var yfirreiðinni haldið áfram þar til
heimsókninni lauk kl. 14.00.
Nemendum grunnskólanna á
Blönduósi og Skagaströnd var
boðið í samskonar heimsókn.
Frá vinstri: Ólafur M. Þorláksson, Þorbjörg I. Jónsdóttir, Ragnheiður R. Ólafs-
dóttir, Sigurjón E. Karlsson, Kristján Frfmannsson, Páll ö. Eggertsson, Guðsteinn
Einarsson skrifstofustjóri, við tölvuna situr Lilja Árnadóttir.
Starf USVH mikið á þessu ári
Starfsemi U.S.V.H. hefur verið
mikil á þessu ári og verður nú getið
þess helsta. Spurningakeppni
U.S.V.H. var háð á liðnum vetri, en
þessar samkomur eru nú orðnar
árlegur viðburður og er aðsókn
mjög góð. Keppendur voru skóla-
nefndir barna- og unglingaskól-
anna í sýslunni. Skólanefnd
Barnaskóla Staðarhrepps sigraði. Á
þessum samkomum voru flutt fjöl-
breytt skemmtiatriði í umsjá ung-
mennafélaganna. Það mun láta
nærri að um 80 manns hafi komið
fram á þessum þremur kvöldum
fyrir utan keppendur.
Héraðsþing var haldið 5. apríl.
Þingið var starfssamt og samþykkti
margar tillögur og ályktanir. Nú-
verandi stjórn er þannig skipuð:
Formaður. Gunnar Sæmundsson.
Gjaldkeri. Þorsteinn Sigurjónsson.
Ritari. Björn Sigurvaldason. Vara-
form. Friðrik Böðvarsson. Með-
stjórnandi. Sigurður P. Björnsson.
U.S.V.H. gefur út ritið Húna og
kom 3. árg. út á árinu. Útgáfu-
Ritsljóri!
Ný!ega var mér boðið i fyrirlestrar-
ferð til Orkneyja i tilefni af litkomu
Ijóðabókar minnar „I Remember
Yon, Vikings", sem þar hefur vakið
mikinn fögrutð. Segir ekki afferðum
minumfyrr en ég hitti að máli munk
einn afgamlan. Kvaðst Itann svo
hrærður eftir fyrirlestur minn, að
sem þakkiœtisvott vildi hann færa
mér að gjöf íslenskt handrit fornt,
sem legið hefði I klaustri eyja-
skeggja frá öndverðu. Ég þáði það
með þökkum og viti menn! Hér var
þá kominn sjálfur Hringsþáttur, —
ómetanleg heimild um þróun ís-
lenskrar skáldskaparlistar. Tel ég
vel við hœfi að birta þáttinn i Feyki
(með nútímastafsetningu minni),
þar eð Skagfirðingar hafa löngum
verið manna hagyrtastir.
Björn hét maður. Hann bjó á
Botnum ásamt móður sinni og
sonum tveim. Hét sé eldri Hringur.
Orti hann með slíkum glæsibrag að
ungur varð hann skáld mest og best
á íslandi.
Hringur var kappi kyngimagn-
aður og fór oft til leika. Þar Hring-
sneri hann hverjum þeim sem við
liann atti kappi og var gjarna stig-
inn Hring-dans honum til heiðurs.
Eitt sinn sem oftar fór Hringur til
leika. Þá bar svo við að hann sat
hjá. þar eð hann skorti keppinaut.
Þá varð Brjáni á Bala að orði: „Það
stendur á stöku". Braust þá Hring-
ur snarlega fram, yggldi sig og
þrumaði: „Þar skjátlast þér Brjánn,
því ei stendur hér á stöku.“ Kastaði
hann síðan fram stöku orðljótri,
sem var argasta níð um Brján og
bræður hans. Var hún lengi í
'nnum höfð. en féndur voru
drengirnir upp frá þessu.
Hringur gerðist snemma mjöð-
glaður mjög og sat gjarna að
drykkju frani á nætur. Amma hans,
Mjöðvör, var lítt hrifin af óreglu
stráksa og reyndi títt að tala um
fyrir honum. Nótt eina kom henni
ekki dúr á auga og staulaðist því til
baðstofu. Lá Hringur þar, hýr að
vanda, en Mjöðvör byrsti sig og
mælti: „Nú er kominn háttatími,
Hringur minn.“ Hringur lét ekki
segja sér þetta tvisvar en orti á
svipstundu kvæðabálk mikinn með
dróttkvæðum hætti og nokkrar
lausavísur með öðrum hætti.
Mjöðvör undi þessu háttalagi illa
og æddi til rekkju, en augu hennar
skutu gneistum stórum.
Hringur var kvennaljómi skær
og sagt var um stúlkur þær er við
hann eltust að þær „Hring-sner-
ust.“ Kvöld eitt var Hringur í
konuleit og er hann kom heim að
Botnum, illa til reika, mætti hann
Mjöðvöru í bæjardyrunum. „Henti
þig nokkuð, Hringur minn?“,
spurði hún forviða. Þá mælti bróðir
Hrings, fjögurra vetra: „Amma
góð, vel veistu að Hring henda
margir hlutir.“ Setningu þessa
greip Hringur á lofti, hnyklaði
brýrnar og orti fyrstu Hring-hendu
sem ort var á íslandi. Var efni
hennar slíkt að eigi verður hún í
letur færð, en á henni mátti skilja
að konur hafði Hringur fundið, eigi
færri en þrjár.
Þá er Hringur var sautján vetra
varð faðir hans sjúkur ákaflega.
Þegar hann átti skammt eftir ólifað
lét hann kalla garpinn Hring fyrir
sig. Hringur kom að vörmu spori.
Stundi þá Björn bóndi: „Viltu
Botna að mér látnum, Hringur,
kæri son? Hringur varð kvumsa og
mælti: „Eigi vil eg svo lengi með
botninn bíða, faðir sæll, en hafirðu
fyrripart vil ég botna strax.“
Eins og gefur að skilja botnaði
Björn ekkert í þessu bráðlæti son-
arins og sló því botn í samtalið. Gaf
hann upp andann skömmu síðar.
En ekki var þó andleysinu fyrir að
fara á Botnum eftir þetta, því
Hringur tók við búi og var mikill
andans maður. Hann stuðlaði að
vísu að breyttum háttum á búi sínu
en aldrei ruglaðist hann í ríminu
þótt langlífur yrði. Lýkur hér
Hringsþætti.
Isafirði, 3. des. 1981,
Vaka Lækdal, Ijóðskáld.
■m
Feykir
starfsemi þessi hófst árið 1976, en
þá var gefið út Ársrit U.S.V.H. í
tilefni 45 ára afmælis sambandsins.
Þessu hefur verið haldið áfram og
héfur ritið komið út annað hvert ár,
en nú verður þessi útgáfa árlega.
Húni hefur að geyma fjölbreytt
efni, sögur, sagnir og kveðlinga.
íþróttastarf sambandsins var
með miklum blóma í sumar.
Framkvæmdastjóri og þjálfari var
Flemming Jessen. Það hefur verið
ómetanlegt að fá hann til starfa og
á hann miklar þakkir fyrir sitt starf.
Fjölmörg mót hafa verið haldin
m.a., Vormót, unglingamót og
Héraðsmót i frjálsum íþró.ttum,
sundmót og knattspyrnumót. Þá
stóð sambandið fyrir keppni -
frjálsum íþróttum milli U.S.V.H.,
H.S.S. og U.D.N. og sigraði
U.S.V.H. Keppendur frá sam-
bandinu hafa tekið þátt í mörgum
mótum utan héraðs og fóru kepp-
endur m.a. á Landsmót U.M.F.Í. á
Akureyri. Árangur í sumar hefur í
mörgum greinum verið all góður,
þó hefur frábær árangur Bjarka
Haraldssonar vakið mesta athygli,
en hann hefur sett hvert fslands-
metið á fætur öðru í sínum
aldursflokki.
Þann 28. júní var U.S.V.H.
stofnað og varð því sambandið 50
ára á liðnu sumri. Nú hefur verið
ákveðið að minnast þessara tíma-
móta með hófi í félagsheimilinu
Víðihlíð, laugardaginn 12. des. og
hefst það kl. 21. Öllum ungmenna-
félögum og velunnurum sam-
bandsins er boðið.
Nóv. 1981,
Gunnar Sœmundsson.
Jólasíld
1-2 síldar úr edikslegi.
50 g mayonnaise.
I dl sýrður rjómi.
Salt - pipar - sinnep.
I dl rauðrófur í bitum.
1 harðsoðið egg saxað.
1 epli í bitum.
1 msk. saxaður laukur.
Látið síga vel af flökunum, skerið í
ca 2 cm breiða bita og leggið á fat.
Hrærið saman mayonnaise og
rjóma og bragðbætið með salti,
pipar og sinnepi eftir smekk.
Bætið rauðrófum, eplum, eggi og
lauk í og blandið vel saman, setjið
sósuma sitt hvoru megin við síldina
á fatinu.
Berið rúgbrauð, gróft brauð og
egg með.
Verði ykkur að góðu.
Gleðileg jól,
Anna Rósa.