Feykir - 14.12.1981, Page 8

Feykir - 14.12.1981, Page 8
FeykÍR ÚTGEFANDI: FEYKIR H/F. Rltstjórl og ábyrgðarmaður: BALDUR HAFSTAÐ. Auglýilngar: BJÚRN MAGNÚS BJÖRGVINSSON, Síml 95-5661. Rltstjóm: ARNI RAGNARSSON, HILMIR HÚHANNESSON, HJÁLMAR JÚNSSON, JÚN ASBERGSSON, JÚN FR. HJARTARSON. Rltnetnd á Sigluflrðl: BIRGIR STEINDÚRSSON, SVEINN BJÚRNSSON, GUNNAR RAFN SIGURBJÚRNSSON, KRISTJAN MÖLLER, PALMI VILHJALMSSON. Rltnefnd á Hvammstanga: HÚLMFRlÐUR BJARNADÚTTIR, EGILL GUNN- LAUGSSON, HELGI ÚLAFSSON, ÞÓRVEIG HJART- ARDÚTTIR, HAFSTEINN KARLSSON, MATTHlAS HALLDÚRSSON. Rltnelnd á Blönduósl: MAGNÚS ÓLAFSSON, SIGMAR JÚNSSON, BJÖRN SIGURBJÚRNSSON, ELlN SIGURÐARDÚTTIR, SIGURÐUR EYMUNDSSON. Ritnefnd á Skagaströnd: ELlN NJALSDÚTTIR, SVEINN INGÓLFSSON, JÓN INGIINGVARSSON, MAGNÚS B. JÚNSSON, ÚLAF- UR BERNÓDUSSON. Rltnefnd á Hofsósl: FJÓLMUNDUR KARLSSON, GUÐMUNDUR INGI LEIFSSON, PALMI RÚGNVALDSSON, BJARNI JÚ- HANNSSON, Sr. SIGURPÁLL ÚSKARSSON, RÓSA ÞORSTEINSDÓTTIR, BJÖRN NlELSSON, ÞÚRDlS FRIÐBJÖRNSDÚTTIR. Útllt: REYNIR HJARTARSON. PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR HF. AKUREYR11981 Feykir er hálfsmánaðarblað. Áskrlft 10 kr. á mánuðl. Lausasala 3 kr. Gleðileg jól Varla mun fyrirfinnast sá maður i kristnu landi, sem ekki hugsar til jötunnar í Betlehem á jólanóttina. Jólaguðspjallið er okkur hjartfólgnust allra sagna. Það er frásögn, sem snertir við okkur á sérstakan hátt. Þó er sýnin sem á jólum blasir við innri sjónum ekkert óvenjuleg eða mikil- fengleg. Það fæddist barn. Einstaklingur kom í þennan heim. Það er alltaf að ger- ast. Að sjálfsögðu er það merkilegt en ekki einstætt. En þessi einstaki atburður væri ekki rifjaður upp og jafnvel lifaður upp um hver jól, ef ekki væri nokkuð sér- stakt við hann. Fegurð hans og umhverf- isins hefur ekki haldið honum á lofti. Sé jólasagan litin veraldlegum augum einum er frásögnin ekki mikils virði. Það er nokkuð annað og óvenjulegt sem heldur henni á lofti. Það þættu ekki mikil jól, væri jólaguðspjallið ekki lesið, þrátt fyrir einfaldleik sinn og andstæðu við nútíma- Iff. Það er ekki ytra borð þess sem heldur þvi á lofti heldur eitthvað annað. Eitthvað annað. Eitthvað annað en það venjulcga og hversdagslega, ræður mestu um líf okkar. Það er ekki ytra borð til- verunnar, sem gefur henni merkingu. Það eru ekki dægurmálin, stundleg og léttvæg, sem lífinu ráða. Það er ekki hin ytri um- gerð jólanna sem gefur þeim gildi. Það er ekki jólahaldið heldur Jesús Kristur okk- ar á meðal, sem breytir dimmu í dagsljós og gefur okkur að sjá skýrt það sem e.t.v. er óljóst í annan tíma. Stundum má heyra það í máli manna að þeim finnist, sem þorri fólks hverfi frá heimi raunveruleik- ans um jólaleytið. Þau verði hvíld frá amstri daganna, jafnvel flótti frá þeim verkcfnum sem bíði úrlausnar og allrar athygli. Vandamálunum sé slegið á frest. Má vera að þessi skoðun á jólahaldi gægist fram i atferli sumra fyrir jól og eftir. Sé svo þá fara jólin hjá. Þessi merkasti atburður í allri sögu mannkyns hefur þá ekki náð tilgangi sínum. Þess vegna skal það undirstrikað að jólin eru ekki stundargaman. Þau skal ekki undir- búa og halda svo sem mcnnimir væru einir í ráðum. Þau verða ekki keypt fremur en annað það sem dýrmætast er í þessum heirni. Þau koma, —„ég færi yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum,“ sagði sendiboði Guðs á jólanóttina fyrstu. Jólin kom til okkar og færa gleði og fögnuð að því marki sem við veitum þeim viðtöku. Látum raunveruleika þeirra breyta skuggatilveru í Ijóssin ver- öld. I Jesú nafni. Gleðileg jól. Hjálmar Jónsson. Kristin auglýsir Frónkex. „Hvar eru Hólar í Hjaltada',“ heyrði blaðamaður Fcykis spurt á Akureyri á dögunum. „Eru þeir ekki rétt hjá Blönduósi?“ Víst eru þeir Norðlendingar til sem aðeins hafa óljósa hugmynd um þetta fom- fræga menningarsetur. Hinir eru fleiri sem fyllast lotningu þegar á staðinn er minnst eða þeir nálgast hann. Þessir menn gleðjast nú yfir því að enn skuli vera hafið blóm- legt starf á þcssu forna höfuðbóli. Það var fimmtudaginn 3. desem- ber að blaðamaður Feykis lagði land undir fót og hélt heim að Hól- um til að forvitnast um starfið í Bændaskólanum. Eins og kunnugt er tók skólinn til starfa í haust eftir tveggja ára hlé. Nýr skólastjóri var ráðinn, Jón Bjarnason frá Bjarnar- höfn á Snæfellsnesi, cand. agric. frá Búnaðarháskólanum að Asi í Noregi. Kona Jóns er Ingibjörg Kolka, Húnvetningur að ætt, dótt- urdóttir Páls Kolka. Þau hjón eiga fjögurbörn. Mikið undirbúningsstarf hefur verið unnið á Hólum að undan- förnu. Heimavistin ígamlaogstóra skólahúsinu hefur verið endur- bætt, loft- og útveggir verið ein- angraðir, dúkar lagði á gólf og nýr húsbúnaður settur í herbergi. I vistinni er aðstaða til að hita kaffi og sitja á rökstólum. Þá hafa íbúð- arhús skólastjóra og kennara verið lagfærð. Hitaveituvatn er nú kom- ið í hvert hús. Verið er að vinna að endurbótum á kjallara skólahúss- ins þar sem matsalur og eldhús eiga að vera. Skólinn var settur við hátíðlega athöfn þann 8. október. 28 nem- endur eru í skólanum í vetur í tveimur deildum, efri og neðri deild. í efri deild eru nemendur er útskrifast sem búfræðingar eftir eins vetrar nám. Hafa þeir góða undirbúningsmenntun. I neðri deild eru þeir sem taka tveggja ára búnaðarnám. Fyrri veturinn fer nám þeirra fram á Hólastað fram í lok febrúar, en utan hans, á svo- kölluðum verknámsbýlum, " frá marsbyrjun til maíloka. þetta kom fram í viðtali við skólastjórann Jón Bjarnason. Jón sagði að í mörg horn væri að líta í skóiastarfinu. Allt væri nýtt fyrir alla og það reyndi mjög á góða samvinnu kennara og nemenda. Starfið og uppbyggingin væri hóp- Skólastjóri á eftlrlltsferð. Fjórar Hólameyjar, f.v. Margrét, Eiva, Kristin, Erla. nemendafélagsins (skipt er um stjórn á mánaðarfresti) voru eingöngu stúlkur. Félagslíf kvað Jón vera mikið og marga klúbba starfandi, svo sem Ijósmynda- klúbb, íþrótta-, tafl- og bridge- klúbb- og hestamannafélag. Þá hefðu nemendur sótt spilakvöld og samkundur í nágrenninu og þannig kynnst fólki í sveitinni. Af greinum sem kenndar eru nefndi Jón fyrst véla- og verkfæra- fræði, sem hann sagði vera orðið eitt aðalfagið. Kennslan er bæði verkleg og bókleg. Hinar hefðbundnu búgreinar, sauðfjár- og nautgriparækt, eru þungamiðjan í náminu og verða sjálfsagt áfram. En aukin áhersla verður lögð á hliðargreinar. Á Hólum er sérlega góð aðstaða til hrossaræktar og kennslu í þeirri grein vegna hest- hússins þar ög tamningastöðvar- innar. Þá er laxeldisstöðin Hólalax í hlaðvarpanum og gefur mikla Öllum stjórnum er steypt á mánaðar festi Við brugðum okkur nú upp á efstu hæð skólahússins, en þar eru ne- mendur „efri deildar" til húsa, þ.e. fólkið sem lýkur búfræðiprófi á að- eins einu ári. Sumir hafa lokið stú- dentsprófi, aðrir hliðstæðu námi eða verknámi af einhverju tagi. Það kom fram á rabbfundi í einu herbergjanna að þetta væri síðasta árið sem unnt verður að ljúka bú- fræðináminu á einum vetri. f' 'ms- möguleika til kennslu í fiskirækt. Þá stendur til að verknám í loð- dýrarækt hefjist alveg á næstunni. Finnið þið til einangrunar hér inni í djúpum dal, langtfrá þéttbýli? Það fólk sem hingað kemur þarf auðvitað að geta unað sér í dreifbýli. Staðurinn hefur upp á margt að bjóða og hefur mikinn ,,sjarma“. Staður sem er í uppgangi er líka aðlaðandi. Það má búast við aukinni starfsemi hér og auknum mannskap á næstu árum. Hvað getið þið tekið við mörgum nýjum nemendum nœsta haust? Það er ekki hægt að hafa fleiri en 28-30 nemendur í skólanum meðan heimavistin stækkar ekki. Jón sagði að það væri þegar farið að spyrjast fyrir um pláss næsta haust. Umsóknarfrestur rynni lögum samkvæmt ekki út fyrr en 1. ágúst, en ástæða væri þó til að sækja sem fyrst til að tryggja sér rúm. Menn hafa undrast hve fljótt og vel tókstað endurvekja Bœndaskól- ann. Hvernig var þetta mögulegt? Jón kvað breiða fylkingu standa þarna að baki. Fjölmargir Norð- lendingar hefðu stutt þetta mál. Margir bera mjög sterkar taugar til Hóla og vilja að þar verði áfram menntasetur. Fjórðungssamband norðlendinga hefur hvatt eindregið til uppbyggingar Hólastaðar. Þá hefur stuðningur núverandi ríkis- stjórnar verið drjúgur. Endurreisn Hólastaðar hefur verið sérstakt hugðarefni landbúnaðarráðherr- ans, Pálma Jónssonar á Akri. Er þörf fyrir tvo landbúnaðar- skóla? Jón kvað svo vera. Hann sagði að það væri síaukin þörf á menntun í landbúnaði. Hinir tveir skólar mundu þurfa að sérhæfa sig hvor á sínu sviði, þó að frumgreinarnar væru þær sömu á báðum stöðum. Á Hólum yrði eins og fram hefur komið lagt kapp á hrossarækt, fiskirækt ogloðdýrarækt. Að lokum lét Jón þess getið að starfið það sem af er hefði gengið framar vonum. Einvalalið nem- enda væri nú í skóianum og væri slíkt ómetanlegt á fyrsta starfsári. Næsta ár verða 100 ár frá stofnun Bændaskólans á Hólum og verður þess minnst hinn 4. júlí verkefni allra sem að skólanum standa. — Meðal nemenda væri já- kvæður andi. Jafnvægi væri milli kynjanna, stúlkur næstum eins margar og piltar. Hlutfall kvenna kvað Jón varla vera hærra í öðrum búnaðarskólum. í fyrstu stjórn 0 . Feykir Hér iærist fieira en það hvað rolian á að éta Við brugðum okkur sem snöggv- ast „íneðra". Þar komum við auga á þá Bjarna Ragnarsson og Hauk Sigur- björnsson sem voru að glugga í stærðfræði inni á herbergi. Þeir voru brattir, sögðu að alltaf væri nóg að gera, hvort sem það væri vélfræði (Þar er m.a. traktor rifinn sundur og settur saman á ný), logsuða, rafsuða, jarðfræði félags- fræði eða íþróttir. Haukur er Mý- vetningur, Bjarni sunnanmaður. Hvers vegna þessi búnaðarskóli? Bjarni sagði að sig hefði alltaf langað út á landsbyggðina, og ný- greinarnar hér á Hólum hefðu smitað (fiskirækt, loðýrarækt). Bjarni sem er 27 ára sagði að sitt fyrra nám hefði verið stundað í gagnfræðaskóla og skóla lífsins og nú hefði sig langað að vita hvort ekki væri til annar sniðugur skóli, og sér litist mjög vel á þennan. Báðir sögðu þeir félagar að þeir teldu það bráðnauðsynlegt að leggja stund á búfræðinám ef mað- ur ætlaði að starfa að landbúnaði, jafnvel þó að maður þekkti vel til sveitastarfa. Þar lærist fleira en það semrollanáað éta. Þaðerspannað stórt svið í mannlegum sam- skiptum og samskiptum við skepnurog vélar.?“ Leiðist fólkinu aldrei, t.d. Reykjavíkurfólki sem allt í einu er komið í afskekktan norðlenskan dal? Það geta alltaf komið slík tíma- bil. En ef maður er nógu jákvæður Sveinn Orri t.v. og Þorvarður að tafli. Gyða, Magnús og Bjami taka lagið á kvöldvöku. Meiri persónuleg tengsl Við ræddum stuttlega við tvo kennara, Þau Álfhildi Ólafsdóttur og Þorvald Óskarsson á Sleitustöð- um. Álfhildur kennir jarðfræði, eðlis- fræði, verkfærafræði o.fl. Hún hefur lokið kandidatsprófi frá bún- aðarskólanum á Hvanneyri og hef- ur samanburðinn við þann skóla. Hún kvað sömu námsskrá vera í báðum skólum og námið sambæri- legt. Munurinn lægi í valgreinun- um. Meðal valgrcina á Hólum nú væri trésmíði, málmsmíði og bók- band. Margir tækju mcira en þeir þyrftu af valgreinum og væri því álagið mikið. Smæð skólans kvað Álfhildur gefa niöguleika á meiri persónulegum tengslum en t.d. á Hvanneyri. „Maður kynnist fleiri hliðum á skólanum en kennslunni.“ Þctta væri tímafrckt en gæfi manni meira. Þorvaldur verkstæðisformaður á Sleitustöðum og formaður karla- kórsins Heimis kennir vélfræði á Hólum tvo daga í viku. Þorvaldur sagði að heimamenn gleddust mjög yfir endurreisn Hólastaðar, og fylgdust af áhuga með gangi mála þar. Sagði Þorvaldur að ncmendur væru mjög áhugasamir, og að stúlkurnar gæfu piltunum ekkert eftirívélfræðinni. Ölvaður af hrifningu ók blaða- maður úr hlaði á Hólum. Það starfslið og námsfólk sem þar dvel- ur lofar góðu um að nýtt blóma- skeið í sögu Hólastaðar sé nú að renna upp. Bjami t.h. segir Hauki til. skrá bændaskólanna hefur verið breytt, og héðan í frá mun námið takatvovetur. Efri deildin kom til starfa nokkr- um vikum á undan neðri deild og það lenti því á henni að skipu- leggja félagsstarfið. Ekki sölsaði þó efri deildin undir sig öll embætti nemednafélagsins nema til bráðabirgða, því að stjórnum er steypt á mánaðarfresti og nýjar kosnar. Hvað tekur við þegar þessu námi lýkur? Er framhaldsnám í út- löndum nœsta skrefið? Ekki vildu þau veðja á fram- haldsnám. Búskapur virðist vera næsta mál á dagskrá, þ.e. ef jörð er föl. Sumir hinna jarðlausu er sagðir íarnir að líta í kringum sig og útlitið taliðsæmilegt! Er námið erfitt? Haldið þið að þiðfallið fyrir jól eins og nemendur Gunnars forðum (Nemendur féllu fyrirjól, enfénaðurá þorra)? Prófin eru ekki fyrr en eftir jól hjá okkur. Það er samt nóg að gera; því auk námsinls, sem er nokkuð stíft, er mikið um að vera ífélagslífinu. Árshátíðin er 12. des- ember með heimatilbúnu skemmti- efni, og skólablað er í mótun. Leita nemendur mikið út fyrir staðinn? Nei. Það er kannski skroppið við og við í bíó og á böll og í verslunar- ferðir (fjórir bílar eru í eigu nem- enda, þar af einn í viðgerð). En nemendur eru sjálfum sér nógir að mestu um félagslíf. Þeir komast ekki í helgarfrí, því að kennt er á laugardögum. Þessi einangrun þjappar hópnum saman. Er áfengi haft um hönd? Nei. Nemendur settu sér sjálfir reglur í haust. Öllum bar saman um að áfengi væri vágestur á heimavist og óæskilegur förunautur í ferðum sem farnar væru á vegum skólans. Áfengi er einfaldlega þurrkað út af dagskránni. Hópurinn fór á ball á Króknum um helgina og skemmti sérvel, ódrukkinn. Þorvaldur Óskarsson á Sleitustöðum. sjálfur þá er umhverfið jákvætt. Borgin heillar okkur ekki svo mjög. Kvöldvökur eru um helgar með leikþáttum, uppákomum og söng. Allt starfsfólk og börn eru með. Eru vistarreglur strangar? Nei. Það er t.d. ekki verið að fyl- gjast með hvenær farið er að sofa. Reykingar eru leyfðar í setustof- um, en ekki í herbergjum. Áfengis- bannið er alveg ófrávíkjanlegt. Þó að einhverjir kunni að malda í mó- inn í svip viðurkenna flestir að það er gott að læra að skemmta sér ófullur. Þetta eru bestu strákar, en dálítið klaufskir við vélar Frammi á gangi efri deildar er n.k. setustofa. Þar sátu fjórar stúlkur sem blaðamaður tók tali. Að hvaða leyti er jxssi skóli ólík- uröðrum skólum sem þið þekkið? Smæð skólans gerir það að allir fá að njóta sín. Það má segja að kennarar og nemendur séru eins og ein fjölskylda. Kennarar taka þátt í því sem gerist utan kennslu- stunda. I stóru menntaskólunum er kennarinn eins og dómari uppi á pallinum. Og margir nemendur hverfa, verða útundan. Er rígurmilli deilda? Nei. Neðri deildin kom að vísu nokkrum vikum á eftir okkur og efrideilarfólk þá búðið að kynnast innbyrðis. En þetta blandast allt í klúbbunum og félagsstarfinu. Láta strákarnir vel að stjórn? .Þetta eru bestu strákar, en dá- lítið klaufskir við vélarnar. Á leiðinni niður rákumst við sem snöggvast inn á herbergi neðri deildarmanns. Tveir menn sátu þar að tafli með klukku, og ekki þótti vert að tefja tíma þeirra. Þeir tefldu báðir af miklu öryggi eftir því sem næst varð komist. Þorvarður náði rýmra tafli á drottn- ingarvæng, en Sveinn Orri gaf sig hvergi og beitti Hólamannavörn. Staðan var tvísýn þegar blaðamað- ur yfirgaf skákmennina. Ljósmyndastofa Hólamanna. Feykir . 9

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.