Vestfirska fréttablaðið - 07.05.1992, Blaðsíða 6
6
Fimmtudagur 7. maí 1992
s
Olafur Helgi Kjartansson:
/
Meira um veðurathuganir á Isafirði
— og ástæður þess ad lögreglumenn hættu þeim
Hinn 30. apríl sl. birtist í
blaðinu lesendabréf frá Ást-
hildi Cesil Þórðardóttur um
veðurathuganir á Isafirði. Um
mikilvægi veðurathugana á
ísafirði deilir enginn hugsandi
maður, jafnvel þótt einungis
sé um að ræða hitamælingar
tvisvar á dag. Grein Ásthildar
má misskilja á þálund, að fjár-
skortur lögreglunnar á ísafirði
sé meginástæða þess að hiti er
ekki mældur með sama hætti
og fyrr.
Forsaga þessa máls er á
þann veg að settur bæjarstjóri,
Magnús Reynir Guðmunds-
son, fór þess á leit við fyrrver-
andi lögreglustjóra, að lög-
reglumenn myndu taka að sér
hitamælingar og átti frum-
kvæði að því að greitt yrði
fyrir. Bæði fyrrverandi lög-
reglustjóri og lögreglumenn
féllust á þessa tilhögun, sem
gafst vel, og um það eru flestir
sammála. Rétt er að vekja á
því athygli, að þetta starf telst
ekki til skyldustarfa lögreglu-
manna. Jafnframt er rétt að
fram komi, að framboðin
greiðsla rann í Líknar-,
menningar- og starfsmenntun-
arsjóð lögreglumanna. Mæl-
ingar hófust 12. júlí 1991 og
var mælt tvisvar dag hvern kl.
06:00 að morgni og 12:00 á
hádegi. Samið var um að
greiðsla yrði fyrir hálfa
klukkustund á dag samkvæmt
útseldri vinnu lögreglumanna,
nú kr. 557,50.
Fljótlega eftir að mælingar
hófust óskuðu lögreglumenn
eftir því, að fá uppsettan mæli,
sem ávallt væri hægt að lesa af
úti, eða mæli sem hægt væri að
lesa af inni, í stað upptrekkts
mælis sem notaður var og
reyndist mjög óhentugur.
Einu viðbrögð frá bæjarsjóði
voru þau að þjónustan væri
dýr. Með hentugri mæli hefðu
mælingar orðið ódýrari, en
bæjaryfirvöld sinntu ekki ósk-
um þar um.
Bæjarstjórinn á ísafirði
sendi yfirlögregluþjóni bréf
dags. 13. febrúar 1992 og afrit
til lögreglustjóra. Tilkynnt var
að frá og með mánudeginum
17. febrúar 1992 tæki starfs-
maður bæjarins við hitamæl-
ingunum, “verður þá ekki
lengur þörf á þjónustu lögregl-
unnar. Frá og með þeim tíma
verður hitastig aðeins mælt
einu sinni á sólarhring, kl. 12
á hádegi.“ Bæjarstjóri þakk-
aði lögreglunni fyrir gott sam-
starf um mælingarnar.
Svo kann að vera að ekki sé
ástæða til að fjölyrða frekar
um grein Ásthildar. Rétt er
þó að taka fram, að fjármál
lögreglunnar höfðu engin
áhrif á þá staðreynd að lög-
regla hætti hitamælingum
enda rann greiðsla þar fyrir
ekki til
reksturs lögreglu. Ákvörðun-
in var einhliða bæjarstjóra,
Smára Haraldssonar. Ásthild-
ur vekur á því athygli í grein
sinni að verkið taki ekki nema
10-15 mínútur hvert sinn og
spyr svo í lokin hvort ekki
megi greiða fyrir svona þýð-
ingarmikla þjónustu.
Lögreglumenn sinntu þessu
starfi í vinnutíma sínum til
viðbótar við önnur störf og
urðu sjálfir að liðka til þannig
að hitamælingar væru fram-
kvæmdar á réttum tíma. Hvað
býr að baki ákvörðunar bæjar-
stjóra kemur ekki fram, en
ekki er annað hægt, en að vera
sammála greinarhöfundi um
að eðlilegt sé að greiða fyrir
þessa vinnu eins og aðra, og
dregur höfundur þar með
gagnrýni sína að mestu leyti til
baka.
Ekki skal lagt mat á það
hvaða aðili eða aðilar ættu að
greiða kostnaðinn. En sé það
jafn mikilvægt að mæla hita-
stigið og Ásthildur álítur
hljóta þeir sem mestra hags-
muna hafa að gæta að vera
tilbúnir til þess að greiða fyrir
verkið.
Að lokum skal það ítrekað
að bæjaryfirvöld áttu frum-
kvæði að hitamælingum lög-
reglu og þaðan kom ákvörð-
unin um að hætta við hitamæl-
ingar lögreglu. Reyndar er
tæpast vafi á því, að ef vilji
hefði verið fyrir hendi af hálfu
bæjaryfirvalda hefði mátt
tryggja hitamælingar tvisvar á
dag með aðstoð lögreglu.
Olafur Helgi Kjartansson er
bœjarfógeti og lögreglustjóri á
Isafirði. Fyrirsögnin er
blaðsins.
Flavian Ensemble
(Hrólfur Vagnsson og
félagar) heldur tónleika
í Félagsheimili Bolung-
arvíkur á þriðjudaginn
Hljóðfæraskipan Flavian
Ensemble má telja nokkuð
óvenjulega. Tvær harmónik-
ur, þverflauta og selló. Það
eru þau Elsbeth Moser og
Hrólfur Vagnsson harmóniku-
leikarar, Alexander Stein
þverflautuleikari og Christoph
Marks sellóleikari sem standa
fyrir þrennum tónleikum í
ferð sinni til Islands á næstu
dögum. Þar á meðal eru tón-
leikar í Félagsheimili Bolung-
arvíkur á þriðjudagskvöld, 12.
maí kl. 20.30.
I þessari skipan hafa þau
leikið saman undanfarin tvö ár
og haldið fjölda tónleika í
Þýskalandi, Frakklandi og
Austurríki. Þau starfa öll í
Hannover í Þýskalandi. Els-
beth Moser er prófessor við
Tónlistarháskólann þar í borg,
Hrólfur rekur eigið hljóðver,
Alexander Stein er sólóflautu-
leikari óperunnar í Hannover,
og Christoph Marks er sóló-
sellóleikari norðurþýska út-
varpsins (NDR).
Hrólfur Vagnsson.
Á efnisskránni er m.a. að
finna verk sem V. Subitzky,
A. Stein og L. Kupkovic hafa
skrifað fyrir Flavian En-
semble. Einnig leika þau verk
eftir Bach, Yun, Debussy og
Lundquist.
Helgarskák-
mót á Flateyri
22.-24. maí
— a.m.k. fimm stór-
meistarar og nokkrir
alþjódlegir meistarar
hafa þegar
tilkynnt þátttöku
Helgarskákmót verður haldið
á Flateyri helgina 22.-24. maí
nk. Þegar hafa fimm stórmeist-
arar tilkynnt þátttöku sína, auk
nokkurra alþjóðlegra meistara,
og mun þetta verða sterkasta
mót sem haldið hefur verið hér
á landi með einungis innlendum
skákmeisturum.
Búast má við töluverðum
fjölda þátttakenda úr ná-
grannabyggðum auk heima-
manna á Flateyri, enda er þetta
kærkomið tækifæri fyrir vest-
firska skákmenn að reyna sig við
fremstu skákmenn þjóðarinnar.
Helgarskákmót hefur áður
verið haldið á Flateyri (sumarið
1989) og þótti lukkast mjög vel.
Það er nú sem fyrr Sigurður
Hafberg sem hefur veg og vanda
af undirbúningi mótsins fyrit
hönd mótshaldara, sem. eru
Tímaritið Skák og Flateyrar-
hreppur. Þeir sem hafa hug á
þátttöku eru hvattir til að snúa
sér Sigurðar í síma 7762 eða
skrifstofu Flateyrarhrepps í
síma 7765.
-gs-
Norræna upplýsingaskrif-
stofan opnuð á Isafírði
Á hinni nýju skrifstofu á laugardaginn: Kristjana Sigurðardóttir,
formaður Norræna félagsins á Ísafírði, gjaldkeri í Norræna fé-
laginu á Islandi og forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifsto-
funnar; Haraldur Olafsson, formaður Norræna félagsins á Isl-
andi; Gylfi Þ. Gíslason, varaformaður; Hjörtur Pálsson, með-
stjórnandi; Stefán Olafsson, varamaður; Hreinn Pálsson, með-
stjórnandi; og Sigurður R. Símonarson, framkvæmdastjóri. Á
myndina vantar tvo stjórnarmenn Norræna félagsins, þau Siv
Friðleifsdóttur, ritara, og Heimi Þór Gíslason, meðstjórnanda.
Norræna upplýsingaskrif-
stofan á Islandi var opnuð sl.
laugardag hér á ísafirði, að
viðstöddum fjölmörgum
gestum. Haraldur Ólafsson
formaður Norræna félagsins
bauð gesti velkomna og síðan
undirrituðu þeir Sigurður R.
Símonarson frkvstj. Norræna
félagsins og Smári Haraldsson
bæjarstjóri samning um starfs-
aðstöðu fyrir hina nýju skrif-
stofu á 2. hæðinni í Stjórn-
sýsluhúsinu, þar sem bæjar-
skrifstofur ísafjarðar eru. Hin
nýja skrifstofa verður á Isa-
firði a. m. k. næstu fj ögur árin.
Haraldur ávarpaði gesti og
þakkaði bæjarstjórn og bæjar-
stjóra fyrir þeirra framlag, en
síðan afhenti Smári bæjar-
stjóri Kristjönu Sigurðardótt-
ur lykil að húsnæðinu, en hún
mun veita Norrænu upplýs-
ingaskrifstofunni forstöðu.
í ræðu Kristjönu kom fram,
að nú væri orðinn að veruleika
draumur þeirra sem stofnuðu
deild Norræna félagsins hér í
bæ árið 1939, að geta með
öllum ráðum kynnt ísafjörð
fyrir öðrum þjóðum, komið á
samskiptum milli ísafj arðar og
annarra Norðurlandabúa og
greitt götu þeirra sem þurfa á
upplýsingum að halda í
norrænu samstarfi. Kristjana
kvaðst myndu reyna eftir
fremsta megni að rækja þetta
hlutverk.
Norræna upplýsingaskrif-
stofan á Isafirði verður opin
eftir hádegi alla daga á 2. hæð
Stjórnsýsluhússins á ísafirði.
Síminn er 3722 eða 3393.
Onnu Ingvarsdóttur
Fyrir hartnær 50 árum stofnaði Sunnukórinn á ísafirði sjóð til stuðnings
söng- og tónlistarstarfsemi í kaupstaðnum.
Sjóðurinn yar stofnaður í minningu Önnu Ingvarsdóttur, eiginkonu
Jónasar Tómassonar þáverandi organista og söngstjóra Sunnukórsins.
Anna hafði unnið mikið að söng- og tónlistarstarfi bæjarins, ekki síst við
kirkjuna, meðan líf og heilsa entist. Hún lést árið 1943, 43 ára að aldri.
Tilgangur sjóðsins er samkvœmt stofnskrá hans:
1) Að styðja til söng- og tónlistarnáms, með styrkveitingum eða lánum,
efnilega nemendur í þeim greinum.
2) Að styrkja til starfs í bænum þá, er starfa að söng eða tónlist, bœjar-
búum til uppbyggingar.
Reikningar sjóðsins voru lagðir fram á aðalfundi hans nú nýlega og
kemur þar fram að sjóðseign þann 31. desember 1991 er kr. 685.843, oo.
Tekjur sjóðsins hafa frá upphafi, auk vaxta, helst verið minningargjafir
velunnara og sala minningarkorta, sem lengi hafa verið afgreidd í Bók-
hlöðunni.
Pó ekki sé sjóðurinn digur, hefur honum auðnast að veita þó nokkrum
ísfirskum tónlistarnemendum lán eða styrki, sem vonandi hafa komið að
einhverju gagni. Upphœðir hafa ekki verið stórar, en kjörin kannski þeim
mun betri.
Frekar hefur verið hljótt um Minningarsjóðinn nú síðustu árin, enda
fækkar óðum þeim hér, sem afeigin reynslu muna störf Önnu Ingvarsdótt-
ur. En Minningarsjóður Önnu lngvarsdóttur mun starfa áfram og vonandi
eflast, svo að hann geti af meira afli gegnt sínu ágœta hlutverki.
Stjórn sjóðsins vill vekja athygli á honum, bœði vegna þeirra, sem hafa
áhuga á að styðja starf hans á einhvern hátt, en ekki síður vegna þeirra
ísfirskra tónlistarnema í framhaldsnámi, sem hugsanlega gætu sóttþangað
styrk.
Stjórn Minningarsjóðs Önnu Ingvarsdóttur skipa nú: Gunnlaugur Jón-
asson, Hafnarstræti 2, formaður; Einar Ingvarsson, Fagraholti 14, gjald-
keri; Jónas Tómasson, Túngötul, ritari; og Bjarney Ólafsdóttir, Engjavegi
24, og Sigríður J. Ragnar, Smiðjugötu 5, meðstjórnendur.