Vestfirska fréttablaðið - 23.07.1992, Síða 1
IFIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1992
23. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
IRITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR:
SÍMI 94-4011 • FAX 94-4423
POLLINN
HF. 0 3092
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki
SALA
Þvottavélar
Þurrkarar
Uppþvottavélar
ÞJONUSTA
Viðgerðir raftækja
Viðhald rafmagnslyftara,
stjórnkerfa og rafvéla
Slysagildra
á Gálmaströnd
Margir hafa haft sam-
band við VESTFIRSKA
og bcnt á að mörg umferð-
aróhöpp hafa orðið við
krappa beygju á þjóðvegin-
um þegar ekið er í Stein-
grímsfjörð frá Kollafirði.
Þetta er síðasta beygjan
áður en komið er á beina
veginn um Gálmaströnd,
blindbeyja fyrir klett.
Þarna heitir að fara fyrir
Grind. Að sögn lögreglu á
Hólmavík hafa þarna orðið
tvær útafkeyrslur með
skömmu millibili nú í
sumar, og hafa bifréiðarnar
lent í fjörunni og eyðilagst.
Ekki hafa orðið alvarleg
slys á fólki í þessum óhöpp-
um enn sem komið er.
Strandamenn viija fá þessa
beygju lagfærða sem fyrst
og betur merkta.
Þrjár bílveltur urðu á
þessum stað í fyrra að sögn
Hólmavíkurlögreglu.
Mikið hefur verið um
umferðaróhöpp í Stranda-
sýslu nú í sumar. Á
fimmtudag valt bíll á Enn-
ishálsi og urðu þar ekki slys
á fólki. Á föstudagskvöld
fór bíll útaf við Markhöfða
í Hrútafirði og þar urðu
engin meiðsl. Á laugardag-
inn varð alvariegt slys
skammt frá Hólmavfk, eins
og fram kemur annars stað-
ar í blaðinu. Lögreglan á
Hólmavík vill beina því til
fólks að vera með beltin
spennt eins og lög gera
raunar ráð fyrir.
-GHj.
Vestfirskir verktakar
með stærstu verkin
Það er athyglisvert og ánægjulegt, að fyrirtæki heima-
manna hafa með höndum stærstu verkin í vegagerð á
Vestfjörðum þetta árið, ef jarðgangagerðin er undanskilin.
Þar er um að ræða Strandaveg milli Kaldbaksvíkur og
Kolbeinsvíkur, en verktaki þar er Höttur sf. í Hrútafirði,
Djúpveg í Steingrímsfirði, þar sem verktaki er Fylling á
Hólmavík, og Bíldudalsveg upp frá Seljadalsá, þar sem
verktaki er Stakkafell á Patreksfirði.
Sundlaugin á Krossnesi endurbætt
Axel á Gjögri tekur mikið í nefið. Það er bara sóknarpresturinn,
sr. Jón Isleifsson í Árnesi, sem kemst í hálfkvist við hann í
neftóbaksbrúki, að sögn Axels.
Grásleppuveiðin
í meðallagi
s
— Eg ræ ekki, ég nota vél,
segir Axel Thorarensen
„Grásleppuveiðin hefur
verið í góðu meðallagi miðað
við tíðarfarið. Þú spyrð hvort
ég sé enn að róa. Ég ræ ekki,
ég nota vél. Ég er ekki for-
maður lengur. Jakob sonur
minn er það. Ég er bara háseti
oger alltaf með. Ég er fótfúinn
aumingi og get gert öll verk til
sjós með því að sitja. Við
erum enn í grásleppunni og
ætlum að fara að byrja á skaki.
Það er verst með helvítis
bannið sem er um verslunar-
mannahelgina. Það er 10
dagar. Ágústmánuður er besti
tíminn okkar á skakinu. Það
er mikið líf hér í kringum
okkur, fjörðurinn fullur af
hnísu og fuglager um allt. Hilli
bróðursonur minn var með
300 kg í dag og hann var langt
inni á Reykjarfirði. Ég á átta
eða tíu rollur. Skrúfan er nú
ekki hærri en það. Það er alveg
nóg til að fá oní sig að éta“,
sagði Axel Thorarensen á
Gjögri sem er 85 ára og stund-
ar enn sjóinn af kappi, í sam-
tali við VESTFIRSKA í síð-
ustu viku.
-GHj.
Heiðar opnar hljóm-
tækjaverslun á morgun
Heiðar Sigurðsson, verslun-
armaður á ísafirði, opnar nýja
hljómtækjaverslun í húsnæði
Ljónsins á Skeiði á ísafirði.
Verður verslunin opnuð kl. 13
föstudaginn 24. júlí nk.
„Verslunin heitir Hljómar
og er beint á móti Húsgagna-
loftinu á milli Leggs og skeljar
og Krismu. Þarna verðum við
með geisladiska í miklu úrvali.
Við byrjum með 1000 titla af
öllum gerðum af tónlist.
Einnig verðum við með hljóm-
flutningstæki, útvarps- og
sjónvarpstæki, myndbands-
tæki o.þ.h. Síðan ætlum við að
selja myndbönd með íslensku
efni og góðum kvikmyndum.
Verslunarstjóri Hljóma verð-
ur Einar Pétur Heiðarsson
sonur minn“, sagði Heiðar
Sigurðsson, verslunarmaður
á ísafirði, í samtali við Vf.
-Ghj.
Sundlaugin á Krossnesi á
Ströndum hefur verið stórlega
lagfærð. Sturtuklefarnir og
búningsklefarnir hafa verið
teknir í gegn og húsið klætt að
utan. „Snyrtingar og sturtur
hafa verið endurbættar og
þetta er orðið mjög myndar-
legt. Ungmennafélagið Leifur
heppni á sundlaugina og verk-
ið er unnið fyrir forgöngu
þeirra sem eru í stjórn þess.
Úlfar Eyjólfsson á Krossnesi
er formaður og hefur hann
stjórnað verkinu. Þetta var
mjög nauðsynleg framkvæmd
því sundlaugin er mikið
notuð, bæði af heimafólki og
ferðamönnum. Nú er þetta
komið í býsna gott lag“, sagði
Gunnsteinn Gíslason, kaup-
félagsstjóri og oddviti í
Norðurfirði, í samtali við
VESTFIRSKA.
Aðspurður um umgengni
ferðamanna í sundlauginni
sem stendur afskekkt, sagði
Gunnsteinn: „Það er allt í
góðu lagi. Fólk fær að fara í
laugina og húsið er aldrei læst.
Þar er baukur sem fólk getur
borgað gjaldið sitt í og það
virðist gera það, því töluvert
af peningum kemur inn. Þarna
hefur fólk ekki brugðist þeim
trúnaði sem því er sýndur."
-GHj.
Sundlaugin á Krossnesi á Ströndum.
Ljóðatónleikar í Bolungar-
vík og á ísafirði
Hjónakornin Sólrún Bragadóttir óperusöngkona og Þór-
arinn Stefánsson píanóleikari flytja íslenska og skandi-
navíska Ijóðatóniist í Skálavík í Bolungarvík mánudaginn
27. júlí og í Frímúrarasalnum á fsafirði daginn eftir, þriðj-
udaginn 28. júlí. Tónleikarnir hefjast bæði kvöldin ki.
20.30.
Þau Sólrún og Þórarinn eru búsett í Hannover í Þýska-
landi, þar sem Sólrún er fastráðin við óperuna, auk þess
sem hún syngur sem gestasöngvari m.a. í Múnchen,
Dússeldorf og Mannheim. Hún kemur einnig reglulega
fram á tónleikum víðsvegar um Evrópu og hér heima, m.a.
með Sinfóníuhljómsveit íslands.
Þórarinn hóf píanónám á Akureyri en lauk einleikara-
prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu
Halldórs Haraldssonar. Hann stundaði síðan framhalds-
nám í Hannover hjá prófessor Eriku Haase. Þórarinn kem-
ur reglulega fram á tónleikum, bæði á fslandi og erlendis,
ýmist í samspili eða sem einleikari.
Á efnisskrá tónleikanna má finna ýmsar af fegurstu perl-
um norrænnar Ijóðatónlistar.
Hjónakornin Þórarinn og Sólrún.