Vestfirska fréttablaðið - 10.09.1992, Qupperneq 9
YESTFIRSKA
Fimmtudagur 10. september 1992
Gaf Grunnskólanum í Súðavík skeljasafn
Grunnskóli Súðavíkur
var settur á miðvikudaginn
í síðustu viku. Við það
tækifæri gaf Bjarni Vetur-
liðason frá Hesteyri, nú
búsettur í Reykjavík,
skólanum skeljasafn sitt,
en í því eru á milli 140 og
150 tegundir skelja og
sæsnigla með skel. Enn-
fremur sagðist Bjarni vera
búinn að ákveða að koma
seinna með eggjasafn sitt tU
skólans.
„Við erum alveg í skýj-
unum, það er sannkallaður
lottóvinningur að fá þetta
safn, því þetta er nátengt
okkar umhverfi. Sumar
skeljarnar koma beint úr
fjörunni fyrir utan skólann
og við höfum kannski ekki
gert okkur grein fyrir
hverslags gersemar þetta
eru, fyrr en maður sér þetta
inni í skáp. Þetta er alveg
stórkostlegt og ég á ekki til
lýsingarorð yfir það að eiga
von á að fá eggjasafnið
hans Bjarna líka“, sagði
Helga Guðjónsdóttir
skólastjóri í Súðavík í sam-
tali við blaðið.
Bjarni Veturliðason er
fæddur á Hesteyri 1931,
sonur hjónanna Veturliða
Guðmundssonar frá Hest-
eyri og Oddnýjar Þorbergs-
dóttur frá Miðvík. Hann
fluttist 15 ára gamall til
Bolungarvíkur og stundaði
sjóinn þar fram yfirtvítugt.
Sex sumur var Bjarni á
hvalbátum Hvals hf. Hann
var síðan á togurum, flutn-
ingaskipum og ýmsum
öðrum skipum. Lengi vel
var Bjarni fararstjóri í
Hornstrandaferðum. Má
Helga Guðjónsdóttir tekor við gjöfínni frá Bjama Veturliðasyni
við skólasetninguna í Súðavík.
segja að hann hafi verið
**£$%£+***
fntí1*1
ún1
rotí1
Einnig kynning á:
PHILIPS MATChIIIlINE sjónvörpum
Ný kynslóð af 100 Mz tækjum með ótal tækninýjungum
Hágæða tæki sem skara frammúr
fJjShenvood surround magnarar fyrir þá sem vilja
„bíóhljómgæðin “ heim í stofu!
Komdu og kynntu þér málið!
©
PÓLLINN HF.
POLLINN HF,
Verslun ® 3092
brautryðjandi í þeim ferð-
um og var undirritaður
lærisveinn hans er hann
byrjaði á þeirri iðju sinni.
Fyrir 13 árum veiktist
Bjarni og lamaðist alveg
vinstra megin. Hann hefur
þó ekki lagt árar í bát og er
nú gangavörður við
íþróttahús Langholtsskóla
í Reykjavík. Bjarni segist
vera búinn að safna skelj-
unum í 35 ár eða meir.
„Ég hygg að á vordögum
komi ég með eggjasafnið
mitt vestur í Súðavík líka.
Ég efa ekki að skeljasafnið
muni nýtast skólanum vel
og glæða áhuga barnanna
fyrir náttúru íslands. Ég vil
þakka Dagbjörtu Hjalta-
dóttur kennara í Súðavík
alveg sérstaklega fyrir að
aðstoða mig við uppsetn-
ingu safnsins í skólanum í
sumar“, sagði Bjarni í sam-
tali við VESTFIRSKA.
Skeljasafni Bjarna hefur
verið komið fyrir í tveimur
skápum í anddyri Grunn-
skólans í Súðavík og er
spjald við hverja skel sem
sýnir tegund og fundarstað,
ásamt dagsetningu fundar-
ins.
-GHj.
SMA
400 LÍTRA
mjóikurtankur til sölu, selst
mjög ódýrt.
Uppl. hjá Þórði í síma 1423 á
kvöldin.
BYSSUR
Til sölu Winchester pumpa,
2%, 5 skota, verð 30 þús.
Einnig Remington riffill, 7
mm Magnum m/Bushnell
sjónauka, skothylkjum,
púðri, kúlum og hleðslu-
tækjum.
Sími 7383.
YMISLEGT!
Til sölu Victor PC tölva m.
30 mb. hörðum diski, 60 og
120 lítra fiskabúr ásamt
fylgihlutum, og Toyota
prjónavél. Á sama stað
vantar nýlega ritvél og
hnakk.
Uppl. í síma 7361.
ísfirðingar, Hnífsdælingar, Bolvíkingar, Súðvíkingar!
Sláturmarkaðurinn
hefst í dag, fimmtudaginn 10. september, í húsi HN-búðarinnar, Sundstræti 36, sunnanmegin
Opið kl. 14.00-18.00 alla virka daga, sími 3765.
V/SA
Samkort