Vestfirska fréttablaðið - 01.10.1992, Qupperneq 7
VESTFIRSKA
--1 FRÉTTABLAÐIÐ |-
Fimmtudagur 1. október
Rækjustöðin hf. á ísafirði:
„Islandsbanki keyrði okkur
í gjaldþrot66
- segir Halldór Hermannsson stjórnarformaður
í síðustu viku var Rækju-
stöðin hf. á Isafirði lýst gjald-
þrota og allt starfsfólk hennar,
um 30 manns, sent heim. Allir
þekkja þær hremmingar sem
ísfírsku rækjuverksmiðjurnar
Isver og Niðursuðuverksmiðj-
an hf., ein af eistu og merkustu
rækjuvinnslum landsins, hafa
ratað í. Að sögn vmissa aðila
í sjávarútvegi vofír sverð
dauðans víða yfír fískvinnslu-
fvrirtækjum og útgerð, og sér-
staklega rækjuiðnaðinum.
VESTFIRSKA sneri sér til
Halldórs Hermannssonar, for-
manns stjórnar Rækjustöðv-
arinnar á Isafírði, og spurði
hann um orsakir gjaldþrots
fvrirtækisins og ástand og
horfur í greininni. Halldór er
málum kunnugur því hann
hefur stundað rækjuveiðar við
Djúp lengur en fíestir aðrir og
einnig verið verkstjóri vinnsl-
unnar í landi um skeið. Hefur
hann verið hluthafí og formað-
ur stjórnar Rækjustöðvarinn-
ar frá upphafí.
"Ég hef veriö formaður
stjórnarinnar frá stofnun fyrir-
tækisins árið 1970 eða í 22 ár.
Það hefur alltaf gengið á ýmsu
í rækjuiönaðinum, en þessi 20
ár sem við störfuðum í gamla
húsnæðinu í Edinborg höfðum
við vanalegast einhvern
gróða. Við vorum ánægðir
með okkar hlut og starfsfólkið
var ánægt. Síðan þegar við
vorum búnir að vera að byggja
þetta nýja hús á Sundahöfn-
inni. því um annað var ekki að
ræða en að hætta eða byggja
nýtt, því við vorum í svo
gömlu húsi að við höfðum ekki
leyfi til að vinna matvæli þar
lengur, þá kom á okkur 30%
verðfall á rækjunni. Það var
annað hvort að hrökkva eða
stökkva með að endurnýja
verksmiðjuna, en auðvitað
hefðum við verið betur settir
með að hætta þá. Það er alltaf
gott að verða vitur eftir á. i'eg-
ar við tókum þetta nýja og
glæsilega húsnæði í notkun þá
kom verðfallið. Þcgar svo fór
að tapast voru vextir svo gífur-
legir að ekkert réðist við neitt
og þannig valt bara boltinn
áfram eftir hlíðinni. Maður
horfði undrandi á hvað var að
gerast og trúði alltaf að maður
gæti bjargað fyrirtækinu, en
það tókst ekki, því miður",
sttgði Halldór.
- Hvað heldur þú að verði
um áframhaldandi rekstur
þessarar vcrksmiðju eftir
gjaldþrot Rækjustöðvarinnar
hf? Nú er verksmiðjan full-
Halldór Hermannssson.
komin og húsnæðið glæsilegt
og allt tilbúið til að hefja
vinnslu?
„íslandsbanki, sami banki
og hafði Niðursuðuverksmiðj-
una í viðskiptum, keyrði okk-
ur í gjaldþrot", sagði Halldór
Hermannsson. „Mér er sagt
að verksmiðjueignirnar verði
falar, senn er líður, hverjum
sem hafa vill. Hverjir svo sem
þaö eru, ég eða mínir vinir,
cða éinhverjir aðrir, hrista
þetta fé ckkert fram úr erm-
inni. Þeir verða að safna sam-
an umtalsverðu fé til að geta
keypt eignirnar. Þeir fá þetta
ekki gefins, það cr af og frá.
Auðvitað gctur bankinn leigt
reksturinn eins og honum sýn-
ist og haft alla sína hentisemi.
Sjálfsagt leitast bankinn við að
selja eignirnar", sagði
Halldór.
- Sérðu ekkcrt Ijós í þessu
myrkri?
„Ég sé það að við verðum
allir að berjast, ef við eigum
að halda lífi hérna fyrir vestan.
Við vcrðum að berjast til
þrautar, til síðasta blóðdropa.
Það ætla ég að reyna að gera
og mínir vinir. En það er
náttúrlega ekkert létt verk að
vera nýbúinn að fara í gjald-
þrot og bera sig mannalega.
Ég sé ekki að annað sé að gera
en berjast. Þetta er ákaflega
erfiður rekstur. Pundið er fall-
ið um 10% og ríkisstjórnin
virðist reyna að halda genginu
föstu áfram og róðurinn verð-
ur óskaplega erfiður. Við
verðum að halda bjartsýninni
uppi samt, þar til kemur betri
tíð með blóm í haga", sagði
Halldór Hermannsson, stjórn-
arformaður Rækjustöðvarinn-
ar hf. í samtali við VEST-
FIRSKA.
-GHj.
46% fjölgun í Revkjanesskóla
Grunnskólinn í Reykjanesi
í Djúpi var settur í gær (mið-
vikudag). Nemendum hefur
fjölgað úr ellefu í fyrravetur
upp í sextán í vetur, og er þar
um 46% fjölgun að ræða.
Starfsmenn við skólann eru
fjórir, skólastjórinn Þorkell
Ingimarsson, Sverrir Kristins-
son kcnnari, Gunnþórunn
Hólmfríður Önundardóttir
stundakennari, og matráðs-
konan Þórunn Jósepsdóttir.
Að sögn Þorkcls skólastjóra
verður skólahaldið með hcfð-
bundnu sniði í vetur. Fjölgun
nemenda sagði hann stafa af
því aö ungt fólk heföi sest að
í Djúpi á undanförnum árum
og hafið búskap.
„Þetta cr annað árið scm
Héraðskólinn er ekki starf-
ræktur og vonast ég til þcss að
skólinn verði opnaður á ný
sem fyrst", sagði Þorkell í
samtali við blaðið.
-GHj.
SMÁ-
auglýsingar
ÍBÚÐ TIL LEIGU
eða sölu, tveggja til þriggja
herbergja, á Eyrinni á ísa-
firði.
Uppl. í síma 95-13206
(Rakel).
ÓSKA EFTIR
að kaupa sjónvarp og
ísskáp, einnig 2ja sæta sófa
eða lítið hornsófasett, sóf-
aborð og hægindastól, sem
má þarfnast klæðningar,
ódýrt eða gefins.
S. 3470.
FÉLAG HJARTA-
SJÚKLINGA
Á VESTFJÖRÐUM
minnir félaga á að Ragnar
Danielsson, sérfræðingur i
hjartaiýfiækningum, verður
á Heilsugæslustöðinni á
ísafirði, 5. og 6. okt. nk.
Tímapantanir í síma 4500.
3JA ÁRA VATNSRÚM
úr furu til sölu, stærð
2,20x1,90. Vatnsdýna, yfir-
dýna, hitari og 2 náttborð, á
aðeins kr. 50 þús. stgr.
S. 4893.
Bj örgunaræfíng
á ísafjarðarflugvelli
A þriðjudaginn var slökkvi- og björgunaræfíng á Isafjarðarflugvelli fyrir starfsmenn Flugmála-
stjórnar við flugvellina á Flateyri, Þingeyri, Suðureyri, Isafírði og Hólmavík. Að sögn Guðbjörns
Charlessonar, tlugumferðarstjóra á Isafírði, var þarna um að ræða sérstakt prógramm fyrir
starfslið fjögurra stærstu flugvalla landsins, á Egilsstöðum, Akureyri, í Vestmannaeyjum og á
Isafírði, og er þetta síðasta æfíngin. Birgir Ólafsson slökkviliðsstjóri á Reykjavíkurflugvelli
stjórnaði æfíngunni og tók Slökkvilið ísafjarðar þátt í henni. Sagði Guðbjörn æfínguna hafa
heppnast mjög vel.
Reyndur var nýr slökkvibíll af gerðinni IJnipower Dodge W 350 4 x 4 árgerð 1991, sem
Flugmálastjórn fékk á ísafjarðarflugvöll fyrir nokkru. Á bílnum er vatnsbyssa sem fjarstýrð er
úr sæti ökumanns og ber hann 1.200 I af vatni, auk 120 I af léttvatni. Bfllinn er mjög fullkominn
og reyndist hann hið besta við æfínguna. Á myndinni er vatnsbyssan þanin.
-GHj.
7
Kreppan í vestfirskum
sjávarútvegi:
„Menn horfðu
á mig
með samúðarsvip“
- segir Pétur Sigurðsson
forseti ASY
„Fyrir þremur, fjórum samtali við VESTFIR-
árum voru haldnir þrír SKA, þegar hann var
fundir á ísafirði um sjávar- spurður um þá kreppu sem
útvegsmál. kvótamál og vestfirskur sjávarútvegur
fiskveiðistefnu. Fundirnir á nú í.
voru á vegum Fjórðungs-
sambandsins, ASV, út- „ÞJÓÐAREIGNIN ER
vegsmanna, Skipstjóra- og EKKI EIGN
stýrimannafélagsins Bylgj- ALMENNINGS,
unnar og fleiri sjómanna- HELDUR ÚTGERÐAR-
og verkalýðsfélaga. Einn AÐALSINS"
fundurinn var haldinn í Al-
þýðuhúsinu og tveir í „Nú er komið í Ijós að ef
Stjórnsýsluhúsinu. Á sið- við hefðum keypt kvóta á
asta fundinum sem haldinn þessum tíma á tiltölulega
var í Stjórnsýsluhúsinu skikkanlegu verði sem þá
mætti HalldórÁsgrímsson, var á honum", sagði Pétur
þáverandi sjávarútvegsráð- enn fremur. „þá stæðum
herra, með fríðu föruneyti við betur að vígi nú, Það er
til að verja sjávarútvegs- augljóst að það er ekki til
stefnuna. kvótakerfið og meirihluti fyrir því í land-
sína stefnu. Ég endurtók á inu og enginn sem vill
þeim fundi þá skoðun koma til móts við þá
mína, að ég teldi að það skoðun okkar Vestfirð-
sem lægi fyrir okkur Vest- inga, að hagkvæmnin eigi
firðingum, ef við ætluðum að liggja í nálægð okkar við
að halda velli í atvinnulegu fiskimiðin. Þá komum við
tilliti, væri að við þyrftum að þeim óskapnaði sem
að ná í allt handbært fésem kvótakerfið er. Það hefur
við kæmum höndum yfir og komið betur og betur i Ijós
kaupa fyrir það kvóta og að þjóðareignin, fiskurinn
skip. Menn brostu þá t í sjónum, er ekki eign al-
kampinn og horföu á mig mennings heldur útgerðar-
með samúðarsvip vegna ' aðalsins.
þess að þeir töldu þetta svo -CHi
fráleitt", sagði Pétur Sig- '
urðsson, forseti ASV í
Ferðamanna-
tímanum lokið
- mikil umferð á vegum í
Barðastrandarsýslum í sumar
PATREKSFJÖRÐUR „Ferðamannatíminn er
l.ögreglan á Patreksfirði búinn. - Og þó, ég sá klyfj-
ségir umferð f Barða-
strandarsýslum hafa veriö
mikfa í sumar, og þá sér-
staklega út í Víkur og á
Látrabjarg. Hafi umfcrð
um sýslurnar verið mun
meiri en sl. sumar. Utn-
feröin á þessum slóðum
gekk áfallalaust fyrir sig og
urðu ekki nein mciriháttar
óhöpp.
um hlaðtnn hjólretðamann
á Kleifaheiði um helgina og
undrast að hjólreiðamenn
skuli vera að ferðast á Vest-
fjörðum eftir að þessi árs-
tími er kominn". sagði
Skúli Berg. lögregiuþjónn
á Patreksfirði. í samtali við
blaðið.
Starf skraftur óskast
Starfskraftur óskast.
Upplýsingar gefur verslunarstjóri.
Vöruval, símt 4211.