Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 1
Eigum á lager:
Flestar gerðir og stærðir af
smíðaefni úr stáli, áli ryðfríu
efni og járni.
¥
Vélvirkinn sf.
Bolungarvík
Sími7348
Fax 7347
I fréttablaðiðJ(
Fimmtudagur 6. janúar 1994 • 1. tbl. 20. árg.
S 94-4011 • FAX 94-4423
VERÐ KR. 170 m/vsk.
Viðtal við
yngsta
flugmann
Cargolux
- sjá opnu
Hvað var
helst í
fréttum
liðins árs
- Sjá
samantekt á
bls. 7, 8 og 9
Aflabrögð
í árslok
- bls 4 og 5
Ennaf
málum
launa-
fulltrúa
ísafjarðar-
kaupstaðar
- bls. 2
Plastpoka-
regn af
öskuhaug-
unum yfir
á flug-
brautina
- sjá baksíðu
Seladrápið í Skjaldabjarnarvík:
Aðeins tvö
selshræ fund-
ust á vettvangi
- menn að bretta upp ermarnar á Keldum til
að bera 80 selskjálka við hausana
- hugsanlegt að DNA rannsókn verði gerð
I lok október í haust fundu
selveiðimenn frá Dröngum á
Ströndum hátt á fjórða tug
dauðra útselskópa í Skjalda-
bjamarvfk á Ströndum. Neðri
kjálkana vantaði á alla selina,
en þeir eru notaðir sem sönn-
unargögn þegar hringorma-
nefnd greiðir fyrir selina.
Sögðu Drangamenn að aðkom-
an hefði verið heldur sóðaleg
og var málið kært til lögreglu
og því haldið fram að þarna
væri um veiðiþjófnað að ræða.
A þessum tíma voru þeir Finn-
bogi Jónasson og Þráinn Arth-
úrsson, báðir frá ísafirði, við
útselskópaveiðar í Bolungavík
á Hornströndum, sem er litlu
norðar en Skjaldabjarnarvík.
Voru þeir yfirheyrðir hjá lög-
reglu á ísafirði vegna þessa
máls og teknir af þeim yfir 80
kjálkar af útselskópum. I viðtali
við Vestfirska í byrjun nóvem-
ber sagðist Finnbogi aldrei í
Skjaldabjarnarvík hafa komið
og væri þessi veiðiþjófnaður
trúlega sviðsettur af þeim
Drangamönnum til þess að
koma höggi á þá félaga. Haft
var eftir selabændum á Strönd-
um í fjölmiðlum að Samtök
selabænda myndu kosta DNA
rannsókn á kjálkununum til
samanburðar við hræin sem
fundust til þess að upplýsa
meintan veiðiþjófnað í
Skjaldabjarnavík. Lítið hefur
heyrst af þessu máli undanfarið
og sló blaðið á þráðinn til Rík-
harðs Mássonar, sýslumanns í
Strandasýslu, og spurði hann
um þetta mál. „Sigurður Right-
er hjá rannsóknarstofunni á
Keldum ætlar að drffa sig í að
bera kjálkana saman við hausa
sem sóttir voru í Drangavfk
hálfum mánuði eftir að atburð-
urinn átti sér stað“, sagði Rík-
harður. „Það verður ekki DNA
rannsókn til þess að byrja með
ef hægt verður að leysa þetta á
ódýrari hátt. Það fundust ein-
ungis tvö selshræ í Skjaldar-
Finnbogi Jónasson og Þráinn Artúrsson meintir sakamenn
seladrápsmálinu.
bjarnarvík þegar menn sem ég
sendi norður konru á vettvang.
Þeir komu því með tvo hausa til
byggða og aðra tvo hausa frá
Dröngum sem sagðir voru úr
Skjaldabjarnarvík. Það á að
vera búið að taka skýrslur af
öllum málsaðilum. Framhald
málsins ræðst af því hvað
kemur út úr þessari rannsókn",
sagði Ríkharður Másson.
„Okkur Sigurði Sigurðarsyni
dýralækni var falin þessi rann-
sókn og við erum að bretta upp
ermamar", sagði Karl Skírnis-
son hjá Tilraunastöð Háskól-
ans á Keldum í samtali við
blaðið. „Nú er þetta að bresta
á. Eg veit ekkert um hvort gerð
verður DNA rannsókn. Mér
finnst sennilegt að það verði
gert og ákvörðun um það
verður tekin á faglegum for-
sendum. Það er búið að nefna
við nranneskju hér innan lands
að gera DNA rannsókn ef með
þarf. Þú fréttir af þessu þegar
þaraðkemur.“ -GHj.
Fjorir varðstjorar
settir í embætti
Dómsmálaráðuneytið hefur
sett Odd Árnason aðalvarð-
stjóra í lögregluliði ísafjarðar
frá 1. janúar sl. til eins árs í stað
Önundar Jóns^0Mi;userrt skip,-r
aður var yfirlögreg'luþjónn í lok
síðasta árs. Einnig hefur ráðu-
---------------L : '• 2 ; 1
neytið sett Grím Grímsson og
Guðmund Fylkisson varðstjóra
til sama tíma. Guðmundur Páll
Jónsson var settur varðstjóri til
30. septemþer á þesu ári frá og
með I. janúar.
PÓLLINN
HF. S 3092
j
Salá & þjónusta
Rafþjónusta Raftækjasala
Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
©
PÓLLINN HF
STORUTSALA HEIMILISTÆKJA HF.
í fullu gildi hjá okkur og allt á sama verði
- komið og gerið góð kaup
Nauteyrarhreppur
hefur ekki skilaö
ársreikningum
í þrjú ár
- félagsmálaráðuneytið hyggst
beita hreppinn dagsektum
Hreppsnefnd og oddviti Nauteyrarhrepps í Djúpi hefur ekki
skilað ársreikningum hreppsins til Félagsmálaráðuneytisins um
þriggja ára skeið. Er um að ræða ársreikninga áranna 1990,
1991 og 1992. Sveitarstjórnum er skylt að skila reikningum í
ráðuneytið í síðasta lagi á miðju ári árið eftir reikningsárið,
þannig að fyrir mitt þetta ár verður að vera búið að skila inn
reikningum síðasta árs, eða ársins 1993. Að sögn Húnboga
Þorsteinssonar, ráðuneytisstjóra í Félagsmálaráðuneytinu,
hefur Nauteyrarhreppur vanrækt að skila inn ársreikningum og
hefur fyrir löngu verið lokað fyrir framlög til hreppsins úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga vegna þessarar vanrækslu. „Seint á
síðasta ári var hreppsnefndinni gefin lokafrestur til áramóta
með að skila reikningum“, sagði Húnbogi. „Þau ráð sem við
eigum eftir við þá er að beita hreppinn dagsektum. Öllum
hreppsnefndarmönnum var skrifað bréf þar sem þeim er gerð
grein fyrir málinu og tilkynnt um beitingu dagsekta. Þeir hafa
verið í sambandi við okkur núna og lofað að skila reikningunum
þessa dagana."
Reynir Stefánsson, hreppsnefndarmaður og bóndi í Hafnar-
dal, sagði í viðtali við blaðið að reikningarnir væru á ábyrgð
oddvita og vísaði á hann. Vildi hann ekki tjá sig frekar um málið.
Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfönn, sem sæti á í hreppsnefnd,
vildi heldur ekki tjá sig um þetta mál á þessu stigi.
Blaðið hafði samband við Ástþór Ágústson, oddvita Naut-
eyrarhrepps, en hann vildi ekki tjá sig um þetta mál.
Blaðið hefur hins vegar fengið staðfest hjá hreppsnefndar-
manni að oddviti verði settur af á næsta fundi hreppsnefndar-
innar og annar kosinn í hans stað.
Nauteyrarhreppur hefur sett leiguíbúð sem hreppurinn á I
Hlíf, íbúðum aldraðra á ísafirði, í sölu og var íbúðin auglýst til
sölu sl. haust. Er það gert til vegna slæmrar fjárhagsstöðu
sveitarsjóðs. Aldraðir íbúar Naueyrarhrepps hafa haft forgang
á þeirri íbúð þegar hún hefur verið laus.
-GHj.
Svæðisstjóra
skíðasvæðis
á Seljalands-
dal sagt upp
Rekstur skíðasvæðisins á Seljalandsdal hefur verið færður
undir Áhaldahús ísafjarðarkaupstaðar og tók sú skipan mála
gildi um áramótin. Svæðisstjóranum, Hafsteini Ingólfssyni,
hefur verið sagt upp störfum en mun hann þó verða starfsmaður
skíðasvæðisins, undir Áhaldahúsinu, til vors. Að sögn Smára
Haraldssonar bæjarstjóra á ísafirði mun rekstur skíðasvæðisins
verða fært undir annan tveggja verkstjóra bæjarins, Kristinn
Lyngmó, en hann mun stjórna snjótroðara á Dalnum í vetur.
Aðspurður sagði Smári Hafstein vera fyrirmyndar starfsmann
en uppsögn hans byggðist einungis á skipulagsbreytingunum.
„Það er búið að senda Hafsteini uppsagnarbréfið", sagði bæj-
arstjórinn.
-GHj.
H
r
FLUGFÉLAGIO
ERNIR
ÍSAFIROI
Sími 94-4200
Daglegt áætlunar-
flug um Vestfirði.
Leiguflug innan-
lands og utan,
fimm til nítján far-
þega vélar.
Sjúkra- og
neyðarflugsvakt
allan sólarhringinn