Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 2
VESTFIRSKA
Vestfjaröa-
þingmenn
styðja allir
ferjubryggjur
við Djúp
- tel eðlilegt að málið fari í gegn
á þessu ári, segir Matthías
Bjarnason
Bílaferjan Fagranes.
Skömmu fyrir jól komu þingmenn Vestfjarða saman
til þess að ræða málefni Djúpferjunnar Fagraness.
Blaðið hafði samband við 1. þingmann kjördæmisins
og spurði hann frétta af byggingu ferjubryggja á ísa-
firði og í Djúpi. „Þingmenn kjördæmisins hafa tekið þá
afstöðu að styðja við byggingu ferjubryggja", sagði
Vestfjarðagoðinn. „Við höfum allir sameinast í þessu
máli. Málið er í höndum samgönguráðherra og
Vegagerðarinnar. Það var sett inn heimildargrein um
20 milljón króna fjárveiting í fjárlög þessa árs. Við
lögðum áherslu á að halda þessu þar inni svo ekki yrði
sagt að fjárveitingin hefði fallið niður. Svo verður
framkvæmdavaldið að taka endanlega ákvörðun um
að byggja bryggjur. Ef langur dráttur verður á þessum
framkvæmdum er hægt hjá okkur Vestfjarðaþing-
mönnum að taka þetta mál upp á Alþingi. Sighvatur
var ekki á fundinum vegna anna sem ráðherra en
hann hefur lýst því yfir við mig að hann sé fylgjandi
þessu máli. Við munum fylgja þessu máli eftir. Margt
hefur skeð í þessu ferjumáli sem okkur hefur ekki
verið nein sérstök ánægja að, eins og t.d. gagnrýni
sumra manna fyrir vestan á ferjureksturinn. Eins var
með skilyrðin sem Nauteyarhreppur setti í upphafi
þegar óskað var eftir bryggjustæði á Nauteyri. Það
tafði málið og spillti mikið fyrir því. Þetta var afar
slæmt.“
- Ertu bjartsýnn á að þetta gangi í gegn á þessu
ári?
„Ég veit það ekki. Á maður ekki alltaf að vera bjart-
sýnn? Mér finnst bara eðlilegt að það eigi að ganga í
gegn“, sagði Vestfjarðagoðinn, járnkarlinn Matthías
Bjarnason í samtali við blaðið í gær.
-GHj.
Áramótadans-
leikur í nýju
félagsheimili
á Hólmavík
Áramótadansleikur var haldinn í nýju félagsheimili
á Hólmavík á Ströndum og var það jafnframt fyrsti al-
menni dansleikurinn í húsinu. Að sögn Höskuldar Er-
lingssonar lögreglumanns var fullt út úr dyrum og
skemmtu Strandamenn sér mjög vel. Stóð dansleik-
urinn frá miðnætti til fjögur á nýársnótt. Allt fór vel og
friðsamlega fram. Draumalandið úr Borgarnesi lék fyrir
dansinum.
-GHj.
Fimmtudagur 6. janúar 1994
--- -------- --------------------1 ttp ÉTTAJBLA TtTr> |
Mál fv. launafulltrúa ísafjarð-
arkaupstaðar hjá BSRB
- að beiðni FosVest
í októberbyrjun hætti Sól-
veig Kristjánsdóttir, fv. launa-
fulltrúi Isafjarðarkaupstaðar,
störfum eftir að hafa verið gert
að rýma skrifstofu sína og
vinna frammi í svokölluðum
„almenningi". Gekk Sólveig út
eftir deilur við bæjarstjóra
vegna þessara breytinga.
Tvennum sögum fer af máli
þessu og er önnur sú að bæjar-
stjóri hafi rekið Sólveigu úr
starfi en hin að Sólveig hafi
sjálf gengið út. Það liggur hins
vegar fyrir að bæjarstjóri út-
vegaði starfsaðstöðu fyrir tvo
starfsmenn, óviðkomandi
rekstri bæjarins, á bæjarskrif-
stofunum, starfsmanni Nor-
ræna félagins og starfsmanni
atvinnuátaks kvenna á Vest-
fjörðum. Fékk starfsmaður at-
vinnuátaksins sérstaka skrif-
stofu og einnig starfsmaður
húsnæðisnefndar kaupstaðarins
en launafulltrúa gert að vinna
frammi á gangi. Vestfirska
greindi frá þessum málum á
sínum tíma.
Að sögn Þorbjörns Sveins-
sonar, formanns Félags opin-
berra starfsmanna á Vestfjörð-
um, sendi Sólveig félaginu sín
gögn um málið um áramótin og
óskaði eftir því við félagið að
það gerði eitthvað í málinu.
Smári Haraldsson.
„Við samþykktum á stjórnar-
fundi milli jóla og nýárs að
senda þetta mál til lögfræðings
BSRB", sagði Þorbjörn.
- Er rétt að allt logi á bæjar-
skrifstofunum út af því að bæj-
arstjóri og fjármálastjóri séu að
hræra í launamálum starfs-
fólksins?
„Ég get ekki tjáð mig um það
í dag. Það er ekkert komið á
hreint með eitt eða neitt. Það er
eitthvað nýtt skipulag í gangi
þarna. Síðan ég kom hingað
1986 hefur alltaf verið titringur
þarna á bæjarskrifstofunum."
-Er ekki meiri titringur
Sólveig Kristjánsdóttir.
núna?
„Eitthvað er alla vega í gangi
en það hefur ekki komið til fé-
lagsins ennþá", sagði Þorbjöm.
Blaðið hafði samband við
Smára Haraldsson bæjarstjóra
og spurði hann um mál launa-
fulltrúans. „Sólveig fékk bara
gerð upp sfn laun og enginn
samningur var gerður við hana
um starfslok. Ég hef ekkert af
því heyrt að þetta sé komið til
BSRB. Ég man ekki til þess að
þetta mál hafi verið tekið upp
á meirihlutafundi."
- Er rétt að meirihluti bæjar-
stjórnar hafi metið pólitíska
stöðu sína meir í þessu máli en
rétt Sólveigar sem launþega,
þ.e.a.s. ef farið væri ofan í það?
„Hvaða rétt á þessi einstak-
lingur? Hefur eitthvað verið
brotinn réttur á Sólveigu? Ég
hef ekki heyrt það. Annars veit
ég ekkert um þetta mál annað
en það að hún er hætt störfum.
Það urðu heilmikil læti í
kringum þetta mál þótt ég vissi
aldrei hvað væri verið að fjalla
um nema það að manneskjan
hætti. Það stóð ekki til að brjóta
á Sólveigu neina samninga.
Mér vitanlega er þetta mál
hvergi til umræðu núna“, sagði
bæjarstjórinn í samtali við
blaðið.
Því er við þetta að bæta að
Sólveig Kristjánsdóttir er flutt
burtu úr bænum. Hefur hún
undir höndum vottorð vinnu-
veitanda, undirritað af bæjar-
stjóra, þar sem fram kemur að
henni var sagt upp vegna sam-
dráttar og skipulagsbreytinga
á skrifstofu. Einnig gaf bæjar-
stjóri henni skrifleg meðmæli.
í byrjun nóvember birti Vest-
firska myndir bæði af vottorð-
inu og meðmælunum.
-GHj.
Dýrheimar á ísafirði
Litli leikklúbburinn er í þann
veginn að byrja æfingar á leik-
ritinu Dýrheimar, sem verður
sýnt er líða tekur á vorið. Leik-
ritið er leikgerð á sögum eftir
Rudyard Kipling um úlfa-
drenginn Mowgli og ævintýri
hans.
Liekstjóri Dýrheima verður
Kolbrún Halldórsdóttir, en hún
hefur nýverið unnið mikinn
leikstjómarsigur er hún leik-
stýrði Skilaboðaskjóðunni í
Þjóðleikhúsinu. Þar að auki er
Kolbrún þekkt fyrir önnur leik-
rit sem hún hefur stýrt og eru
My Fair Lady á Akureyri og
Jesus Christ Superstar með
Freyvangsleikhúsinu einna
þekktust. Það er hvalreki á
íjörur leikhúsmanna á Isafirði
að fá að starfa með konu á borð
við Kolbrúnu.
Auk Kolbrúnar stendur ein-
valalið að uppfærslunni. Þýð-
ing verksins var í höndum
Guðjóns Olafssonar fram-
haldsskólakennara og ljóða-
þýðingar voru í höndum Þórar-
ins Eldjárns. Tónlistarstjórn
1. Fundurinn leggur áherslu
á að nytjastofnar á Islandsmið-
um eru sameign þjóðarinnar
eins og fram kemur í I. grein
laga um stjórnun fiskveiða og
leggur áherslu á að starfa beri
samkvæmt því.
2. Fundurinn telur að kvóta-
mun verða í höndum Jónasar
Tómassonar auk þess sem El-
ísabet Gunnarsdóttir arkitekt
hannar leikmynd sýningarinnar
og síðast en ekki síst mun Árný
Aurangasri Hinriksson veita
ráðgjöf varðandi búninga svo
að allt verði nú sem best úr
garði gert.
Ráðgert er að fyrsti lestur á
kerfið í núverandi mynd hafi
engum árangri skilað og þurfi
að endurskoða það frá grunni.
3. Fundurinn telur að setja
þurfi lög er komi í veg fyrir að
sjómenn séu látnir taka þátt í
kaupum á kvóta eða veiði-
heimildum í hvað mynd sem
leikritinu fari fram á föstu-
dagskvöld, 7. janúar kl. 20.00 í
húsakynnum Framhaldsskóla
Vestfjarða og eru allir félagar
LL hvattirtil aðkomaogeinnig
aðrir þeir sem hafa áhuga á að
starfa að sýningunni. Þess má
geta að hlutverk eru fjöldamörg
og að allir fá að taka þátt sem
vilja.
er.
4. Fundurinn telur að setja
beri allan afla á markað eða
markaðstengja fiskverð, til að
tryggja sjómönnum rétt gang-
verð fyrir aflann.
Flensan
í rénun
Að sögn Einars Ax-
elssonar, yfirlæknis á
Heilsugæslustöðinni á
ísafirði, er flensufarald-
urinn heldur í rénun. „í
byrjun desember voru
tvær vægar um-
gangspestir í gangi“,
sagði Einar í samtali bið
blaðið í gær. „Einnig
fékk fólk væga flensu t'
byrjun desember. Um
miðjan mánuðinn fór að
bera á erfiðari tilfellum
hjá eldra fólki og hjá
yngstu kynslóðinni.
Núna virðist flensan vera
í rénun og fólk vera að ná
sér eftir hana. Mun tærri
veiktust núna heldur en
í fyrra. Þrtta er nánast að
verða gengið yfir. Mér
virðist fólk bara vera
hraust þessa dagana."
Einar vildi koma þvf
að að Sigurður Júlíus-
sön, háls-, nef-, og
eyrnaiæknir kæmi aftur
vestur í janúar til þess að
gera aðgerðir á fólki.
-GHj.
Við byggjum
tónlistarbús
Ályktun aðalfundar Vél-
stjórafélags ísafjarðar
26. desember 1993