Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 6
VRSTFIRSKA
6
Fimmtudagur 6. janúar 1994
----- --------- FRÉTTABLAÐIÐ
Guömundur Harðarson,
yngsti flugmaöurinn
hjá Cargolux
- Byrjaði að fljúga 16 ára
og kominn á Júmbóþotu hjá Cargolux 23 ára
Hörður Kristjánsson.
Guðmundur Harðarson flugmaður á vinnustað sínum um borð
í Júmbóþotu Cargolux.
Farkostur Guðmundar á flugvelli í Afríku með fragt fyrir Rauðakrossinn.
Texti
Það var í nóvember 1991
sem Guðmundur Harðarson
flugmaður frá ísafirði hóf
sinn feril hjá Cargolux í
Luxemburg. Nú um ára-
mótin hafði Guðmundur
stutta viðdvöl á æskuslóðun-
um þegar pása gafst frá flug-
inu og taldi hann það sjálf-
sagðan hlut að veita lesend-
um Vestfirska fréttablaðsins
smá innsýn í sín störf.
Sagðist Guðmundur vera
yngsti flugmaður Cargolux um
þessar mundir og að það hefði
verið mikið stökk að fara af
Twin Otter sem er rúm fimm
tonn og yfir á Boeing 747-200
Júmbó þotu sem vegur full-
hlaðin hátt í 400 tonn. „Þetta er
geysilegt stökk á stærð á flug-
vélum, þetta eru fjögurra
hreyfla flugvélar og allt önnur
tæki, þó hitt sé kannski stærsta
málið að læra á allar þessar
nýju „rútur'1 og hinar ýmsu
flugreglur sem eru mismun-
andi í hinum fjölmörgu löndum
sem flogið er til. Fyrir mig var
það stærsta málið að komast
inn í þetta nýja umhverfi.
Hvernig maður á að haga sér á
þessum stóru flugvöllum, þar
sem mikil umferð er og annað.
Þetta var allt saman nýtt fyrir
mér.
Við fljúgum um allan heim.
Það eru austurlönd nær og fjær,
Afríka, Japan, Kanada og
víðar. Cargolux er með áætlun
áeina 14eða 15 staði víðsvegar
um heiminn. Síðan eru uppá-
fallandi leiguflug".
Heilmikið af íslendingum
- Er mikið af Islendingum
hjá Cargolux?
„Já já þarna er heilmikið af
Islendingum, flugmönnum
flugvélstjórum og öðru starfs-
fólki. Eg þori nú ekki að fara
með neinar tölur, en það eru
örugglega yfir tuttugu þrjátíu
manns sem tengjast þessu flugi,
meira eða minna“.
Islenskir flugmenn
Cargolux enn óhultir um
sín störf þrátt fyrir ásókn
Lufthansamanna
- Nú voru blaðafregnir um
það hér á Islandi í haust að
Lufthansaflugmenn vildu fá
stöður ykkar Islendinganna hjá
félaginu í krafti eignaraðildar
Lufthansa á Cargolux.
„Já Lufthansa á orðið stóran
hlut í Cargolux og á þar mann
í stjórn . Þeir hafa sjálfsagt haft
áhuga á að koma sínum mönn-
um að á þessurn nýju vélum
sem við erum að taka í notkun
núna, Boeing 747-400. Ég hef
minnst heyrt um þetta úti, en
aðallega heyrt talað um þetta
hér uppi á Islandi. Annars held
ég að þeir komi ekki til með að
taka vinnu af þeim mönnum
sem þarna eru fyrir“.
Flugskírteinið sjálft
segir ekki allt,
það er reynslan,
tímarnir og áritanirnar
sem segja til um
samkeppnishæfnina
- Er mikið atvinnuleysi
meðal flugmanna í Evrópu ?
„Ég veit nú ekki hversu
mikið atvinnuleysi er, en það er
sjálfsagt mikið til af flug-
mönnum og hefur alltaf verið
út um allan heim sem eru með
skírteini, en hafa ekki vinnu.
Þeir flugmenn sem eru með
réttindi á svona flugvélar, þeir
eru flest allir í vinnu. Það er
aðal málið að vera með réttindi
á einhverjar flugvélar upp á að
geta fengið einhverja vinnu.
Flugskírteinið sjálft segir ekki
allt, það er reynslan og tímamir
og áritanirnar sem segja til um
það hvort þú ert samkeppnisfær
á þessum markaði atvinnulega
séð eða ekki“.
Þjálfun flugmanna
kostar heilmikla peninga
- Er mikil sérhœfing á milli
flugvélategund, er erfitt að
skipta á milli véla?
„Nei það er nú ekkert erfitt
að skipta á milli flugvéla, en
það kostar heilmikla peninga
fyrir flugfélögin að þjálfa menn
á ákveðnar tegundir. Það er eins
og t.d. þjálfunin fyrir mig á
Boeing þotuna. Fyrst var það
bóklegur skóli og síðan var það
flughermir. í mínu tilfelli var ég
skuldbundin til að vinna á
flugvélinni í þrjú ár, en það er
sá tími sem það tekur að borga
upp þjálfunina. Þannig er það
yfirleitt hjá þessum flug-
félögum varðandi stærri flug-
vélarnar, en þetta er að sjálf-
sögðu breytilegt eftir flugvéla-
tegundum".
Stórt stökk úr Twin Otter
yfir á Júmbóþotu
- En er þetta ekki mikið mál
að taka svona stórt stökk af
Twin Otter yfir á Júmbóþotu?
„ Það er það nú kannski, en
samt eru nú mörg dæmi þess
einmitt hjá Islendingum, að
þeir hafa farið þessa leið, af
þessum minni vélum yfir á
þessar stóru. Varðandi mig er
þetta ekkert einsdæmi hvað það
varðar. Það þykir kannski óve-
njulegt hvað ég var ungur. Ég
byrjaði bara það snemma að
fljúga og var 16 ára þegar ég
tók fyrsta flugtímann minn.
Sem atvinnuflugmaður byrjaði
ég árið 1988 og var kominn á
Boeing þotu 23 ára gamall árið
1991".
A leið í vinnu
- Hvað tekur nú við?
„Nú er ég á leiðinni út aftur
um helgina, fer trúlega suður í
dag og á að hefja vinnu þann
tíunda".
Allt að 12 til 40 daga
tarnir, en góð frí á milli
- Flýgur þú eitthvað hér
lieima ífríunumþínu?
„Nei það er ekkert fyrir mig
að gera hér, svo maður tekur
bara sitt frí í rólegheitum. Ég á
nú kost á að koma oft hingað
heim. Við vinnum svona þrjár
vikur stanslaust og þá fær
maður frí í átta daga samfellt á
eftir. Vinnumánuðurinn hjá
okkur er 28 dagar, en þeir geta
sett okkur í yfir 40 daga törn, en
þá er líka 16 daga frí á eftir.
Yfirleitt er farið út frá Luxem-
burg í túra sem eru oft í kring-
um viku til tólf daga. Maður fer
kannski í tvo svoleiðis túra í
mánuðinum. Það er farið frá
Luxemburg í austurtúr til
Dubai í Sameinuðu arabísku
furastadæmunum. Þaðan er
farið til Hong Kong. Síðan er
kannski farið frá Hong Kong,
áfram til Fukuoka í Japan og til
Bangkok í Thailandi. Þá er
síðan aftur farið frá Bangkok til
Dubai og frá Dubai til Luxem-
burg. Svona túr tekur frá viku
til tólf daga“.
Þrír í áhöfn
- Eru margir í áhöfn á þes-
sum vélum?
„Það eru þrír, flugstjóri,
flugmaður og flugvélstjóri".
„Öllum flugfreyjum
sagt upp og sennilega
kem ég að tómum
kofanum hvað
það varðar“
- Það eru náttúrulega engar
flugfreyjur ífragtfluginu?
„Jú, við höfum líka verið að
taka farþega. það eru farþega-
sæti á efri hæðinni og Cargolux
hefur haft leyfi til að fljúga
með farþega inn á þó nokkuð
af þeim stöðum sem við
fljúgum til. Núna á hinsvegar
að fara að breyta til. Það var
öllum flugfreyjum sagt upp
fyrir áramót og áttu þær upp-
sagnir að taka gildi um ára-
mótin. Þannig að trúlega kem
ég að tómum kofanum þarna
úti núna hvað það varðar, ég
veit ekki annað. Ég veit hins-
vegar ekki hvort einhverjum
samningum við flugfreyjur
hafi verið framlengt. Astæðan
fyrir þessu er sú að flugfélagið
telur að þessir farþegaflutning-
ar hafi ekki borgað sig. Það eru
of fáir farþegar til að flytja með
allri þessari þjónustu svo lang-
ar leiðir. Þettaeru 14 til 16 sæti
þarna á efri hæðinni og þetta er
dýr útgerð, enda þjónustan eins
og á Saga-class. Það á kannski
ekki heldur alltaf saman að
fljúga bæði með fragt og far-
þega og flækir oft málið. Það
er til dæmis oft mikið af varn-
ingi sem ekki má fljúga með í
farþegaflugi, eins og málning-
arvörur, blek og jafnvel eld-
fimum efnum, þá má ekki taka
farþega með“.
Flogið með gerfihnetti og
bílaverksmiðjur
- Eru engir vopnaflutning-
ar?
G. BEN.
PRENTSTOFA HF.
6kðilcgt Ár
og Þclkomin til öaglcgs Atnsturs, þar scm
tölnupappir skipar ucglcgan scss.
Umboðsaðili á Vestfjörðum: ísprent hf., ísafirði.
RANARGOTU4A
Slmf 91-18650
ISAFJARÐARLEIÐ
VÖRUFLUTNINGAR
Aðalstræti 7 • ísafirði
S 94-4107
S 985-31830
® 985-25342
Júmbóþoturnar eru engin smásmíöi. Þarna sést inneftir fragtrými í einni af nýju Boeing
747-400 þotu Cargolux.