Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 9
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐH)
9
ísbjarnardráp skipverja á Guðnýju ÍS frá Bolungarvík hljóp
fyrir brjóstið á mörgum og kallaði á hörð viðbrögð
dýraverndunarmanna utan úr heimi.
þá hljóp þetta myndverk af skarttanum og árum hans fyrir
Isafirði og kostaði Hjalta Guðröðsson eiganda hússins mikið
dæmisverkfræðingi Vega-
gerðarinnar á Vestfjörðum, þá
miðuðust framkvæmdir við
það að hægt yrði að leggja
bundið slitlag á veginn yfir
heiðina. Þar með yrði komið
bundið slitlag á veginn alla leið
úr Patreksfjarðarbotni og að
Bfldudalsflugvelli.
Gná kaupir
loðnu-
bræðsluna í
Bolungarvík
í ágúst keypti hlutafélagið
Gná hf. sem er í eigu þeirra
bræðra Einars og Elíasar Jóna-
tanssona loðnuverksmiðjuna í
Bolungarvík af Fiskveiðisjóði.
Þeir bræður höfðu þá um vorið
tekið verksmiðjuna á leigu og
voru í ágúst búnir að bræða um
8.500 tonn af loðnu. Kaupverð
verksmiðjunnar var nálægt 55
milljónum króna.
Hótel
Isafjörður
selt
Viðræður fóru í gang í ágúst
við Áslaugu S. Alfreðsdóttur
og Ólaf Örn Ólafsson þá-
verandi hótelstjóra um kaup
þeirra á 75% hlut bæjarsjóðs
Isafjarðar í hótelinu. Tveir
aðrir aðilar höfðu sýnt málinu
áhuga, þar á meðal Hilmar
Sölvason og Hafsteinn Hásler
sem vildu kaupa hótelið með
öllu tilheyrandi. Aðeins voru
þó tvö tilboð tekin til afgreið-
slu, annað frá Áslaugu og
Ólafi, en hitt frá Unni Krist-
jánsdóttir og Sturlu Þórðarsyni
á Blönduósi. Tilboði Hilmars
og Hafsteins var vísað til
stjórnar Hótelsins. Gagnrýndu
þau Unnur og Sturla mjög
framgang niála og framkomu
bæjarstjórnar í málinu, enda
höfðu þau átt hæsta tilboðið,
upp á 9,5 milljónir verðtryggt
og með 1% vöxtum til 12 ára.
Tilboð Áslaugar og Ólafs
hljóðaði hinsvegar upp á 4,8
milljónir sem greiðast skyldu
með 2% vöxtum einnig á 12
árum. Fór svo að lokum að
samið var við Áslaugu og Ólaf
um kaup þeirra á hlut bæjar-
sjóðs.
íþróttahúsið
á Torfnesi
vígt
Þann 18 september var nýja
íþróttahús Isfirðinga á Torfnesi
vígt og var bæjarbúum af því
tilefni boðið til mikillar veislu
í húsinu.
Húsakönnun
á ísafirði
Jóna Símonía Bjarnadóttir
sagnfræðingur og Elísabet
Gunnarsdóttir arkitekt skiluðu
af sér stórmerku heimildarverki
í september. Um var að ræða
könnum sem náði til allra húsa
á eyrinni upp að Túngötu og var
unnin eftir verklýsingu frá
Húsafriðunarnefnd sem hafði
yfirumsjón með verkinu.
Afrakstur þessarar könnunar
var bók í stóru broti upp á einar
176 síður með myndum af
húsunum, bæði gömlum og
nýjum.
Vinna við könnunina hófst
vorið 1992 og lauk eins og áður
sagði síðastliðinn september.
Hraðahindranir
á Hnífsdalsvegi
Hraðahindarnir á Hnífsdals-
vegi vöktu upp ýmsar spurn-
ingar á árinu og oft á tíðum
hörð viðbrögð vegfarenda. Á
vegum Isafjarðarkaupstaðar
voru gerðar ýmsar tilraunir
með hraðahindranir og vildu
sumir meina að tæknideildin
væri þar í stöðugri vinnu við að
finna upp hjólið. í haust var
síðan steypt mikið mannvirki
við Hnífsdal og í Krók. Ekki
hafði þetta mannvirki staðið
lengi þegar starfsmenn bæjar-
ins voru kvaddir til að fjarlægja
hluta þess þar sem það hafði þá
þegar valdið tjóni og skapaði
umtalsverða slysahættu.
Hættuástand er þó enn fyrir
hendi við þessar hindranir og
skömmu fyrir áramót varð
árekstur við aðra hindrunina.
Hafis
Hafís gerði vart við sig við
Vestfirði í september. Borgar-
ísjaka rnátti sjá strandaða á
grunnslóð og jafnvel um 30
mflur norður af Kögri þar sem
gríðarlegur borgarísjaki var
botnfastur.
Sameining
sveitarfélaga
Sameiningarmál sveitarfél-
aga var mjög í brennidepli
þegar líða fór á haustið. Hörð
gagnrýni kom fram á Um-
dæmanefnd og sagt að kynn-
ingu væri mjög ábótavant. Þann
20. nóvember fóru svo fram
kosningar þar sem sameining-
artillögur voru víðast hvar
felldar. Á Vestfjörðum virtist
þó vera opinn möguleiki á
sameiningu fjögurra af fimm
sveitarfélögum á sunnan-
verðum kjálkanum og eins í
sveitarfélögunum sem liggja að
Vestfjarðagöngum. Hófust á
báðum svæðunum viðræður
sem enn eru í gangi
Veiðiþjófnaður
eða ekki
veiðiþjófnaður?
Finnbogi Jónasson og Þráinn
Artúrsson voru í lok október
sakaðir um veiðiþjófnað og
seladráp í Skjaldabjarnarvík á
Ströndum og yfirheyrðir af
lögreglu. I viðtali við Vf. þann
4. október bera þeir félagar af
sér sakargiftir og telja veiði-
þjófnaðinn sviðsetningu
Drangamanna sem vilji klekkja
á þeim vegna fyrri ágreinings-
mála.
Launafulltrúi
ísafjarðar-
kaupstaðar
lætur af
störfum
Mikið hitamál kom upp í
bæjarstjórn um mánaðarmótin
október/nóvember í kjölfar
þess að launafulltrúinn, Sólveig
Kristjánsdóttir hætti vegna
Rétt eins og ísbjarnardrápið,
brjóst siðprúðra bæjarbúa á Í
af málningu.
ósamkomulags urn starfsað-
stöðu á skrifstofu. Harðar um-
ræður urðu um málið í bæjar-
stjórn fimmtudaginn 28. októ-
ber.
Tönn dregin
úr Óla
komma
Viðar Konráðsson tann-
læknir á Isafirði fór í all sér-
stæða læknisvitjun í nóvember.
Fór hann með björgunarbátn-
um Daníel Sigmundssyni alla
leið norður á Hornbjargsvita,
þar sem hann gerði sér lítið
fyrir og dró tönn úr sjálfum Ola
komma í flæðarmálinu í Látra-
vík.
Besta kjötið
á markaðnum
Bændur við Patreksfjörð
fengu góð meðmæli með sínu
kjöti frá kaupmönnum í Reykj-
avfk á árinu. I nóvember var
forsíðufrétt í Vf. sem greindi
frá því mati sunnlennskra kjöt-
vinnslumanna að fyrir vestan
væri að finna besta kjötið á
markaðnum. Fyrir jól bárust
síðan fréttir frá Sláturfélaginu
Napa á Patreksfirði um það að
þeir hefðu ekki undan að fram-
leiða hangikjöt vegna gríðar-
legrar eftirspurnar og hygðust
auka afkastagetuna um áramót.
Vandræði á
Þingeyri
Vandræði voru á árinu í út-
gerð og rekstri Þingeyrar-
togaranna Framness og Slétta-
ness. íshúsfélag Isfirðinga sem
var helmingseigandi í togar-
anum Framnesi keypti þá hlut
Þingeyringa í togaranum og er
það annar togari sömu gerðar
sem hlutafélög í eigu Ishús-
félagsins eignast á árinu.
Hátíð í
Bolungarvík
Mikil hátíð var í Bolungar-
vík fimmtudaginn 18. nóvem-
ber. Þá var formlega tekinn í
notkun mikið hafnarmannvirki
sem leysir gamla brimbrjótinn
að miklu leyti frá hlutverki
sínu, en nú er hann hinn bæri-
legasti viðlegukanntur í góðu
skjóli af nýrri og mikilli brim-
vörn.
Önundur
skipaður
yfirlögreglu-
þjónn
Önundur Jónsson var skip-
aður yfirlögregluþjónn á ísa-
firði 1. desember, en forveri
hans Jónmundur Kjartansson
hafði þá mánuði áður tekið við
stöðu ^firlögregluþjóns á Sel-
fossi. I sama blaði og greint var
frá ráðningu Önundar, má sjá
á baksíðu að farir hans hafa
ekki alveg verið sléttar, því
laugardeginum áður hafði
slagsmálahundur skallað hann
illilega í andlitið svo Önundur
var heldur ófrýnilegur á eftir.
Leikur að
eldi
Betur fór en á horfðist þann
3. desember er Slökkvilið Isa-
fjarðar setti upp æfingu á
Norðurveginum. Hugðust
slökkviliðsmenn æfa sig á
Templarahöllinni svokölluðu,
er allt fór í bál og brand. Lengi
vel réð slökkviliðið ekki við
neitt vegna tækjabilunar, en
tókst þó um síðir að koma í veg
fyrir að næsta hús við hliðina
yrði eldinum að bráð, þó það
sviðnaði aðeins. Rúður brotn-
uðu þó í öðrum nærliggjandi
húsum.
Gullauga
flutt
Verslunin og gullsmíða-
verkstæðið Gullauga flutti sig
um set í desember. Nú er fyrir-
tækið komið í glæsilegt hús-
næði að Hafnarstræti 4, en það
varð 10 ára í október.
Meira að
segja stóru
togaraarnir
flúðu undan
veðrinu
Rysjótt tíð var til sjósóknar
síðari hluta ársins. 14. desem-
ber gerði mikið rok svo ekki
var vært á miðum út af Vest-
fjörðum fyrir nokkurt skip.
Þannig leituðu meira að segja
stóru togararnir vars og var
mikill fjöldi báta og togara inni
á Patreksfirði þennan dag.
Látum við hér staðar numið
í uppritjun á atburðum liðins
árs, þó eflaust mætti tína til
ýmsa fleiri þætti og suma
spaugilega.
Nýtt íþróttahús ísfirðinga á Torfnesi var vígt með pompi og
pragt í haust.
Þarna má sjá húsið á horni Norðurvegar og Fjarðarstrætis á
ísafirði, sem lengi gekk undir nafninu Templarahöll. Votmúli
var líka nafn sem á tímabili var tengt þessu húsi.
Laugardaginn 3. desember kveikti Slökkvilið ísafjarðar í
húsinu sem brann til kaldra kola og litlu mátti muna að illa
færi fyrir nærliggjandi húsi.