Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 10
VESTFIRSKA
10
Flutn-
inga-
bíll
valt í
Hrúta-
firði
Flutningabíll með aft-
anívagn valt 14. desem-
ber sl. á gatnamótum
Hólmavíkurvegar og
Laxárdalsheiðarvegar
skammt utanvið Borð-
eyri í Hrútafirði. Var
þetta bfll með ísaðan fisk
á leið frá Ólafsvík til
Dalvíkur. Tilkynnt var
um óhappið til Hólma-
víkurlögreglu um fimm-
leytið um morguninn.
Bifreiðastjórinn var
fluttur með sjúkrabifreið
til Hvammstanga og
kvartaði hann um eymsli
í hálsi og baki. Einnig
fékk hann skurð á höf-
uðið. Hafði hann rotast
en jafnaði sig fljótlega
og gat látið vita af sér.
Bflinn skemmdist mikið.
Mikið basl var við að
rétta bflinn og vagninn
við og var því ekki lokið
fyrr en klukkan sex síð-
degis. Voru tvö tæki
notuð við það, payloader
og kranabíll.
-GHj.
Of
margir
far-
þegar
Á fimmta tímanum á
nýjársnótt stöðvaði lög-
reglan á ísafirði bifreið
sem skráð var fyrir þrjá
farþega og voru í henni
sjö manns. Ökumaður-
inn, ungur piltur, hafði
skömmu áður verið far-
þegi í sama bíl og þá
hafði hann einnig verið
stöðvaður með of marga
farþega. Hljóta menn
bágt fyrir þetta brot.
-GHj.
Stútur
nýárs-
nótt
Á fimmta tímanum á
nýársnótt var ökumaður,
grunaður um ölvun við
akstur, tekinn af lögregl-
unni á Eyrinni á Isafirði.
Var hann færður til blóð-
töku og fær málið venju-
lega meðferð.
-GHj.
Fimmtudagur 6. janúar 1994
| fb^ttabLAÐIÐ L
Isafjarðarkaupstaður
Sundhöll
- íþróttahús
Starfsmann vantar ( konu ) í fast starf
Umsóknarfrestur til 20. janúar 1994.
Upplýsingar hjá undirrituðum.
íþróttafulltrúinn
ísfirðingar
- nágrannar
Lausir tímar í íþróttahúsinu á Torfnesi
og íþróttahúsinu við Austurveg tíma-
bilið janúar - maí 1994. Upplýsingar hjá
undirrituðum.
íþ róttafulltrúinn
ísafjörður
Prófkjör
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á ísafirði
hefur ákveðið frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins við bæjarstjórnarkosningum
næsta vor verði valdir í opnu prófkjöri.
Prófkjörið fer fram 29. og 30. janúar 1994.
Prófkjörið er opið öllum fullgildum félögum
sjalfstæðisfélaganna á ísafirði og þeim
stuðningsmönnum flokksins sem eiga
munu kosningarétt í sveitarstjórnarkosn-
ingunum á ísafirði og undirrita stuðnings-
yfirlýsingu samhliða þátttöku í prófkjöri.
Hér með auglýsir kjörnefnd Sjálfstæðis-
flokksins á ísafirði eftir tillögum til fram-
boðs í prófkjöri. Framboðum skal skila til
formanns kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins
Jens Kristmannssonar, Engjavegi 31, ísa-
firði, eigi síðar en 15. janúar 1994 en þann
dag rennur framboðsfrestur út. Nánari
upplýsingar veitir formaður kjörnefndar
hs. 3098 og vs. 3941.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokkksins á ísafirði
Þakkir
Ég þakka öllum þeim sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og skeytum á
áttræðisafmæli mínu á aðfangadag.
Hjörtur stapi Bjarnason
Hlíðarvegi 8, Isafirði
63
Nýjar vestfirskar þjóðsögur
Að fara fyrr af stað
Sigurgeir Jónsson, Geiri í Kaupfélag-
inu, sem lengi starfaði í Kaupfélagi
Strandamann á Norðurfirði á Ströndum
var oft skemmtilegur í tilsvörum. Eitt sinn
þurfti Guðjón Kristinsson á Seljanesi
(Guðjón á Dröngum) að komast í verslun.
Geiri var ekki sérlega hrifinn af að af-
greiða menn eftir lokun en Kaupfélaginu
var ævinlega lokað klukkan sex. Guðjón
kom að Kaupfélaginu rétt eftir sex því
vegur frá Seljanesi inn með Ingólfsfirði er
stórgrýttur og slæmur. Geiri stóð á stétt-
inni og var nýbúinn að loka búðinni.
Guðjón spurði hvort hann gæti ekki
fengið að fara í búðina. „Jú, jú, það er í
lagi“, sagði Geiri og lét Guðjón vita af þvi
að hann hefði komið of seint og þetta
væri ekki kristilegur tími til að fara í búð.
„Það sprakk hjá mér á leiðinni og það
tafði mig mikið“, sagði Guðjón. „Þegar
svoleiðis kemur fyrir þá þarf að leggja fyrr
af stað“, sagði Geiri.
-GHj.
Uppskrift í Vestfirska
frá Bjarna Hákonarsyni hjá Fiskiöjunni Freyju á Suöureyri
Sælgæti í
sælkerasósu
Eftir allar steikurnar yfir jólin fannst
mér alveg tilvalið að koma með léttan
og fljótlegan fiskrétt.
í þennan rétt er hægt að nota flestar
fisktegundir, allt eftir smekk og hug-
myndaflugi kokksins, en þó mæli ég
sérstaklega með þéttari fisktegundum
s.s. humar, skötusel, hörpudisk eða
steinbít. Rækjur eru síðan til að kóróna
réttinn, (dreift útí sósuna, ekki steiktar
með). Þetta er mjög einfaldur og fljót-
legur réttur, (og sérstaklega gómsætur).
í réttinn nú, hef ég hugsað mér að nota
hörpudisk, ásamt rækjum til uppfylling-
ar. 800 g af fiski er hæfilegt magn fyrir
fjóra til fimm, og miðast uppskriftin við
þann fjölda.
Sósuna gerum við fyrst, og hægt er
að laga hana fyrr um daginn og eiga til-
búna, ef matarboð á að vera að kvöldi,
þá er lítið mál að hita hana upp, steikja
fiskinn (1-3 mín.), skella honum útí og
setja síðan herlegheitin inn í ofn smá-
stund, og þá er sælkeramatur tilbúinn.
í sósuna þarf eftirfarandi:
1 stk blaðlauk sneiddan (meðalstór
an)
2 stk sellerístöngla saxaða
2 stk paprikur (litur eftir smekk)
láta þetta krauma smástund í smjöri/
smjörlíki.
Síðan bætum við útí:
1 dl ananassafi (eða hvítvín)
1/2 tsk svartur pipar
1 tsk salt
1/4 tsk turmeric
1/4 tsk karrý
1 tsk Italian seasoning
1/2 tsk þriðja kryddið
1 stk fiskteningur
1 1/2 til 2 tsk tómatpuré
2 1/2 dl. rjómi
Látið þetta krauma smástund, og
þykkja síðan með 1 msk af hveiti, (sáldra
því varlega útí, sósan má vera vel þykk,
þar sem hún þynnist þegar fiskurinn
kemur útí). Setjum þetta síðan í eldfast
mót. Þá tökum við fiskinn, (ef eitthvað
annað fiskmeti er áætlað, á að skera
hann niður í 2-3 cm bita). Við veltum
honum upp úr blöndu af 3 msk hveiti, 1
tsk salt og 1/2 tsk pipar. Snöggsteikjum
sfðan þar til fiskinum er lokað, (alls ekki
steikja humar og hörpudisk nema í
smástund). Setjum síðan fiskinn vel of-
aní sósuna, ásamt rækjunum, dreifum
ca 150 g af Búraosti yfir. Tökum síðan
góða handfylli af kartöfluflögum, papriku
og/eða salt & pipar og myljum þær yfir,
ekki smátt. Allt sett inn í vel heitan ofn,
best undir grillið, neðarlega í ofninum.
Þegar osturinn er orðinn fallega brúnn,
er rétturinn tilbúinn. Berist fram með
hrísgrjónum og hvftlauksbrauði, ásamt
glasi af vel völdu hvítvíni.
Ég skora á Sturlu Gunnar Eðvarðsson
verslunarstjóra Kaupfélagsins á Hólma-
vík, og annálaðan sælkera.
í \
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
Sími 4011
Fax 4423
Sunnukórinn
ísafiröi 60 ára
Sunnukórinn á ísafirði verð-
ur 60 ára 25. janúar nk., en hann
er elsti starfandi blandaði kór-
inn á landinu. Margt er í deigl-
unni vegna þessara merku
tímamóta í starfsemi kórsins,
svo sem árshátíð nú í janúar
o.fl. Þó má segja að hápunkt-
urinn verði þegar kórinn syngur
með Sinfóníuhljómsveit Is-
lands í júní nk.
Það er ósk kórsins að allir
þeir sem sungið hafa með
kómum og treysta sér til, að
þeir láti sjá sig í röðum kórfé-
laganna, þannig að hægt verði
að mynda einn stærsta kór sem
hefur sést hér á ísafirði.
Að sjálfsögðu eru allir aðrir
söngelskir íbúar á fsafirði og
nágrenni velkomnir. Æfingar
eru á þriðjudögum kl. 20.15 í
Tónlistarskólanum.