Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 3

Vestfirska fréttablaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 3
VESTFISKA FRÉTTABLAÐIÐ 3 Vaxandi atvinnu- leysi á ísafirði Samkvæmt upplýs- ingum sem fengust hjá Ölmu Rósmundsdóttur á bæjarskrifstofunum á ísafirði voru 29 Isfirð- ingar skráðir atvinnu- lausir á þriðjudag, 21 karl og 8 konur. Elsti at- vinnuleysinginn er fæddur 1932 og sá yngsti 1976. Sagði Alrna að alltaf væri nú að bætast á skrána og vissi hún ekki hvort um tíma- bundið atvinnuleysi væri að ræða eða langvarandi. Þetta eru hæstu tölur um atvinnuleysi á Isafirði sem blaðið hefur fengið uppgefnar á síðustu árunt. -GHj. „Kiddi er enginn dóni“ Kristinn H. Gunnarsson með hattinn. í tilefni af frétt í Vestfirska í byrjun desember, þar sem birt var mynd af Kristni H. Gunnarssyni alþingismanni, og sagt frá því að hann hefði fengið sér hatt og frakka og væri býsna líkur Jóni Baldvin í þeirri múnderingu, orti Sighvatur Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra: Kiddi brosir í kampinn glaður, Kiddi er enginn dóni, Kiddi, hann er heldri maður, með hatt og frakka af Jóni. -GHj. 80 fengu verðlaun í jólagetraun Fyrir jólin fór fram á veg- um lögreglunnar á Isafirði og umferðarráðs umferðaget- raun í 1. til 7. bekk grunn- skólanna á Vestfjörðum. Dregið var úr hundruðum lausna á Þorláksmessu og hlutu um 80 börn verðlaun. A aðfangadag óku lögreglu- menn verðlaunum, sem voru bækur, til barnanna. Verð- launin voru keypt fyrir fé sem ýmis fyrirtæki á Isafirði gáfu. Lögreglan vill þakka þeim fyrirtækjum sem studdu þetta verkefni og einnig börnunum sem tóku þátt í keppninni. -GHj. Jólagjafir í óskilum Á lögreglustöðinni er tveir jólapakkar í óskilum. Þetta eru tveir mjúkir pakkar sem fund- ust í Mánagötu, gengt Hjálp- ræðishershúsinu. Annar pakk- inn er merktur „drengur 9 ára“ og hinn „drengur sex ára“. Eigandi þessara síðbúnu jóla- gjafa hefur eflaust saknað þeirra og getur vitjað þeirra til lögreglunnar. -GHj. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og sonar, Kristins Guðmundssonar, Hafnargötu 7, Bolungarvík. Minning hans er Ijós í lífi okkar. Sigríður Þórarinsdóttir Kristinn Þór Kristinsson Bára Guðmundsdóttir Jóhann Kristinsson Arnar Már Kristinsson Áslaug Sigurðardóttir Athugið! Sundnámskeið sundfélagsins Vestra hefjast mánudaginn 10. janúar 1994 Ungbarnasund: 12 tíma námskeið fyrir börn 3-12 mánaða ásamt foreldrum. 12 tíma framhaldsnámskeið fyrir börn og foreldra af fyrri námskeið- um. 12 tímar 4.000 kr. Aðlögun og leikir 1-2: Námskeið fyrir byrjendur á aldinum 3-6 ára, aðlögun í vatni, leikur í vatni, grunnkennsla í hreyfingum handa og fóta, lega og fleira. Köfun, leikir og fleira. Tvisvar í viku í sex vikur 3.500 kr. Sundæfingar fyrir byrjendur: Grunnþjálfun barna á aldrinum 6-12 ára, tveir aðskildir hópar. Kennsla allra sundaðferða, grunnþolþjálfun, tæknivinna á öllum að- ferðum. Undirbúningur fyrir keppnisþjálfun og grunnkennsla. Tvisvar í viku í átta vikur 3.000 kr. Þrisvar í viku f átta vikur 3.600 kr. Innritun og allar frekari upplýsingar veittar í síma 5269 (Óli Þór). Sundféiagið Vestri * 6 MILLJONIR ÓSKIPTAR Á EINNMIÐA 12. JANÚAR UMBOÐ A VESTFJORÐU Hæsti vinningurinn í hverjum mánuði leggst við pann hæsta í næsta mánuði efhann gengur ekki lít. Þannig hleðst spennan upp koll afkolli par til sá heppni hreppir pann stóra... þú? jæk- ■UTI Tnjggðu þér möguleika ... fyrir lífið sjálft KRÓKSFJARÐARNES: Halldór D. Gunnarsson, sími 93-47759 PATREKSFJÖRÐUR: Gestur I. Jóhannesson, Þórsgötu 4, sími 94-1356 TÁLKNAFJÖRÐUR: Jónína Haraldsdóttir, Esso-Nesti, sími 94-2599 BÍLDUDALUR: Bryndís Björnsdóttir, Brekkustíg 3, sími 94-2123 PINGEYRI: Guðrún Bjarnadóttir, Vallargötu 12, sími 94-8393 FLATEYRI: Ágústa Guðmundsdóttir, Bókaverslun Jóns Eyjólfssonar, Hafnarstræti 3, sími 94-7697 SUÐUREYRI: Söluskáli Esso, Rómarstíg 10, sími 94-6262 BOLUNGARVÍK: Gunnhildur Halldórsdóttir, Holtabrún 15, sími 94-7160 ÍSAFJÖRÐUR: Myndás, Aðalstræti 33, sími 94-4561 SÚÐAVÍK: Salbjörg Olga Þorbergsdóttir, Aðalgötu 56, sími 94-4929 SNÆFJALLASTRÖND: Engilbert Ingvarsson, Tyrðilsmýri, sími 95-13213 ÁRNESHREPPUR: Pálína Þórólfsdóttir, Finnbogastöðum, sími 95-14038 DRANGSNES: Guðmundur B. Magnússon, Kviabala 3, sími 95-13220 HÓLMAVÍK: Jóhann Björn Arngrímsson Höfðagötu 1, sími 95-13185 BITRUFJÖRÐUR: Agla Ögmundsdóttir, Bræðra-Brekku, sími 95-13354 BORÐEYRI: Pálmi Sæmundsson, || sími 95-11123 EIN A STORHAPPDRÆTTIÐ I SEM HÆSTI VIN NIN G U RI GENGUR ÖRUGGLEGA ÚT. Verð miða er aðeins 600 kr. Utmlúsinvar um næsta umhnðsmann í síma 91-22150 nv 25150

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.