Morgunblaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Framkvæmdir eru hafnar við stækkun Hótels Öldu á Laugavegi 66-68 í miðborg Reykjavíkur. Athygli vekur að aðeins er rúmt ár síðan Hótel Alda byrjaði að taka á móti gestum 15. júní 2014. Hótelið er nú með 64 herbergjum en verður eftir stækkun með 88-90 herbergi, alls um 4.100 fermetrar. Áformað er að taka nýju herberg- in í notkun í desember 2015. Húsið Laugavegur 70 hækkað Stækkunin felur í sér að húsið á Laugavegi 70 er hækkað um einn og hálfan metra og húsið allt endur- byggt til að það henti undir verslun og hótelrekstur. Laugavegur 70 snýr að Laugaveginum og verður húsið eftir hækkun tvær hæðir og ris. Jafnframt verður húsið stækkað inn á baklóð. Þar er nú fyrir húsið Laugavegur 70b sem líka verður endurbyggt og tengt við Laugaveg 66-70. Skv. fasteignaskrá var húsið Laugavegur 70 byggt 1902. Gunnar Gunnarsson lögmaður er talsmaður félagsins sem byggir upp reitinn. Hann segir tengigang verða byggðan milli Laugavegar 66-68 og 70b. Innangengt verður úr Hótel Öldu og inn í húsin tvö, sem nú eru númer 70 og 70b, og verður garður á baklóðinni. Tólf hótelherbergi verða í hvoru húsi fyrir sig, samtals 24 her- bergi, auk verslunar. Tvær svítur verða í húsunum og segir Gunnar stefnt að því að þetta verði „glæsi- legustu svítur í Reykjavík“. Gunnar segir framkvæmdirnar munu fela í sér fegrun áberandi byggingarreits á Laugaveginum. „Þetta er viðkvæmt svæði og verk- taki mun leggja sig fram um að fyrir- tæki og íbúar á svæðinu finni sem minnst fyrir framkvæmdunum og það er tekið fullt tillit til umhverf- isins,“ segir Gunnar. Minna umfang en að var stefnt Að sögn Gunnars eykst bygging- armagnið á reitnum um 700-800 fer- metra með stækkuninni. Það sé mun minni aukning en fyrirhuguð var á sínum tíma fyrir Laugaveg 66-70 þegar til stóð að byggja verslunarhæð á reitnum sem næði frá Laugavegi og suður að lóð- um við Grettisgötu. Gunnar segir rekstur Hótel Öldu hafa gengið afar vel og að hótelið hafi eina hæstu einkunn höfuðborgar- hótela á Norðurlöndum ef litið er til samanlagðrar einkunnar á vefsíðun- um Booking.com og tripadvisor.com. Hann segir Laugaveg 70 munu verða borgarprýði eftir breytingarn- ar. „Þetta verða falleg herbergi í gömlu og glæsilegu húsi. Hvergi verður til sparað til þess að svo megi verða. Húsið er friðað og við gætum okkur á að vanda til verka,“ segir Gunnar Gunnarsson. Hótel stækkað ári frá opnun  Herbergjum á Hótel Öldu á Laugavegi verður fjölgað um 24  Útbúnar verða glæsilegar svítur  Tveimur gömlum húsum breytt og þau sameinuð Hótel Öldu Teikning/Adamsson ehf arkitektar/Birt með leyfi Gamalt hús hækkað Hægra megin á myndinni má sjá útlínur Hótel Öldu. Laugavegur 70 er til vinstri við hótelið. Það hús verður hækkað og endurbyggt. Morgunblaðið/Eggert Framkvæmdir Hér má sjá hluta af gamla húsinu. Hótel Alda er til hægri. Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Vinnumarkaðsrannsókn Hagstof- unnar leiðir í ljós að atvinnuþátttaka hefur aukist og atvinnuleysi minnk- að. Hefur atvinnuþátttaka ekki verið meiri síðan í júní 2008. Atvinnuleysi mældist 2,9% en samanborið við árið í fyrra er það 1,7% stigi lægra þegar atvinnuleysi var 4,6%. Sé atvinnu- leysi leiðrétt fyrir árstíðabundnar sveiflur telst það vera 3,2%. Hlutfall atvinnulausra hefur því minnkað um 1,2% milli mánaða en í maí var at- vinnuleysi 4,4% þegar búið er að taka tillit til árstíðaleiðréttingar. Atvinnuþátttaka mældist nú 86,6% og er það aukning um 1,3% en í árið 2014 var atvinnuþátttaka 85,3% en eins og áður sagði hefur þátttakan ekki verið hærri frá því í júní 2008. Á vef Hagstofunnar kemur fram að leitni vinnuaflstalna sýni að at- vinnuleysi hefur lækkað um 0,2 pró- sentustig sé horft til síðustu sex mánaða og um 0,8 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aukist um 0,6 pró- sentustig og um 1,2 stig síðustu tólf mánuði. Atvinnuleysi hjá körlum er 3,6% og konum 2,1%. Hins vegar eru tölu- vert fleiri konur en karlar utan vinnumarkaðar en þær eru 19.400 á móti 11.900 körlum. Þetta þýðir að af þeim sem standa utan vinnumark- aðar eru tæp 62% konur. Atvinnu- leysi minnkar  Atvinnuþátttaka ekki meiri frá 2008 Morgunblaðið/Ómar Vinnumálastofnun Atvinnuleysi minnkar samkvæmt nýjum tölum. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, telur að fólk hafi skilning á nauðsyn þess og hagræði af því, að koma höfuðstöðvum Lands- bankans undir eitt þak. Hann segir að nægur tími sé til stefnu, til þess að breyta ákvörðuninni um nýjar höfuðstöðv- ar, velji 98% eig- enda bankans, ríkið, að gera það. „Það er í fyrsta lagi eftir eitt og hálft ár, eða svo, sem framkvæmdir við nýjar höfuðstöðvar hefjast,“ sagði Steinþór í samtali við Morgunblaðið í gær. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, gagnrýndi áform bankans í fréttum RÚV í fyrrakvöld og reifaði hugmynd um að höfuð- stöðvum bankans yrði komið fyrir í Tollhúsinu við Tryggvagötu. Það hafði Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, áður gert, í sam- tali við Morgunblaðið. Þá gagnrýndi Kári Stefánsson Landsbankann og sérstaklega Stein- þór Pálsson, bankastjóra, harkalega í grein hér í Morgunblaðinu í gær. Steinþór var spurður hvað hann segði um harkalega og aukna gagn- rýni á áform bankans um að reisa 8 milljarða króna höfuðstöðvar við Austurhöfnina í miðborg Reykjavík- ur og hvort einhverjar líkur væru á að bankinn endurskoðaði áform sín: Tilbúin að skoða málin „Orð eru til alls fyrst. Við erum alltaf tilbúin til þess að skoða málin,“ sagði Steinþór. „Við erum búin að horfa upp á það vandamál í bank- anum í töluverðan tíma, að það er of mikill kostnaður í bankanum og það er ákveðin sóun í gangi.“ Steinþór segir að stjórnendur bankans hafi séð tækifæri til þess að taka til hendinni í húsnæðismálum höfuðstöðvanna, með því að koma þeim undir eitt þak. „Mér heyrist að menn hafi skilning á því að það geti verið skynsamlegt og mikið hagræði í því. Það er lóðin og staðsetningin, sem virðist fara mest fyrir brjóstið á fólki,“ sagði Steinþór. Steinþór sagði að áður en bankinn keypti lóðina af ríkinu og Reykjavík- urborg, hefði hann skrifað Fast- eignasýslu ríkisins, með fyrirspurn um hvort Landsbankinn gæti keypt Tollhúsið við Tryggvagötu. Hægt að byggja við Tollhúsið „Tollhúsið er að vísu ekki alveg nægjanlega stórt fyrir okkur, en við vorum að horfa til þess, ef við fengj- um húsið, að byggja við það. Það er alveg nægt pláss að byggja nýja skrifstofuálmu nær hafnarbakk- anum. Ég fékk þau svör frá ríkinu að húsið yrði áfram notað fyrir Toll- stjóraembættið og fleira og þannig lauk þeirri umræðu,“ sagði Stein- þór. Hann kveðst ekki vita til þess að nýjar ákvarðanir hafi verið teknar um nýtingu Tollhússins, en ef svo væri, þá teldi hann sjálfsagt að skoða málið á nýjan leik. Steinþór segir stjórnendur bank- ans hafa séð ákveðinn ávinning af því að hafa nýjar höfuðstöðvar stað- settar miðsvæðis, eins og þær verða, rísi þær við Austurhöfnina. „Fjár- málaviðskiptum er stýrt héðan úr Kvosinni, aðeins upp í Holtin, úr Borgartúni og Kirkjusandi. Meirihluti tekna Landsbankans kemur af miðlægri starfsemi, ekki í gegnum útibúin. Það eru mikil við- skipti í gangi og við töldum mikil- vægt fyrir okkur að vera nálægt keppinautunum, en ekki langt í burtu,“ sagði Steinþór. Hann segir að fljótt hafi komið á daginn þegar lóðir á svæðinu voru skoðaðar, að erfitt gæti verið að leysa bílastæðavandamál, nema þá að byggja ofan í jörðina, sem væri geysi- lega kostnaðarsamt. „Það hleypur á hundruðum milljóna króna, sem við munum spara okkur með því að fara í Austurhöfnina, þar sem verður hægt að samnýta bílakjallara.“ Steinþór var spurður hvort hann teldi, í ljósi þeirrar gagnrýni sem er fyrir hendi í þjóðfélaginu á bygging- aráform bankans, að ástæða væri til þess að kallaður yrði saman hluthafa- fundur þar sem áformin yrðu hugs- anlega endurskoðuð: „Ég held að það sé engin ástæða til þess að gera það í einhverju stressi augnabliksins. Það eru engar framkvæmdir að fara í gang. Það er í fyrsta lagi eftir eitt og hálft ár, eða svo, sem framkvæmdir við nýjar höfuðstöðvar hefjast. Þann- ig að það verður nægur tími til þess að skoða málið og ígrunda vel, án gíf- uryrða,“ sagði Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Segir að nægur tími sé til stefnu  Framkvæmdir við nýjar höfuðstöðv- ar hefjist í fyrsta lagi eftir 18 mánuði Morgunblaðið/Kristinn Landsbankinn Höfuðstöðvar Landsbankans í Austurstræti. Bankastjórinn segir að stjórnendurnir séu alltaf til í að skoða málin. Orð séu til alls fyrst. Steinþór Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.