Morgunblaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það máttigreina mik-inn skjálfta í herbúðum breska Verkamannaflokks- ins í gær eftir að ný skoðanakönnun benti til þess að Jeremy Corbyn, þingmaður flokksins í London, ætti mestan stuðning flokksmanna vísan í leiðtogakjöri flokksins, sem lýk- ur 12. september. „Félagi Cor- byn,“ eins og hann hefur verið kallaður, var fyrirfram talinn eiga sístan möguleika á árangri í kjörinu, þar sem stefnumál hans þykja enn róttækari og lengra til vinstri en stefna Eds Mili- band, sem breskir kjósendur höfnuðu með eftirminnilegum hætti fyrr í vor. Corbyn þessi er að mörgu leyti ekki hinn dæmigerði stjórnmálamaður, skartar al- skeggi og er óhræddur við að ganga gegn forystu flokks síns þegar honum mislíkar stefna hans, og má rekja vinsældir hans meðal flokksmanna Verka- mannaflokksins að einhverju leyti til þess hvernig hann ber sig sem fulltrúi alþýðunnar gegn flokksræðinu. Hitt er síðan ann- að mál, að breskir kjósendur hafa ítrekað litið róttæka vinstristefnu hornauga. Kosningarnar 1983 eru lík- lega eitt skýrasta dæmi þess, en þá sendi Verkamannaflokkurinn frá sér stefnuskrá sína, sem hlaut undireins viðurnefnið „lengsta sjálfsvígsbréf í heimi“, og átti ekki síst þátt í því að Margaret Thatcher hlaut frekar náðugt endurkjör, þrátt fyrir storma- samt kjörtímabil. Þessa sögu kann Tony Blair, eftir- maður Thatchers, og eini leiðtogi Verkamanna- flokksins sem hefur náð að vinna þrennar kosningar í röð. Þess vegna ákvað hann að flytja ræðu á miðvikudaginn, þar sem hann varaði sérstaklega við því að flokkurinn færði sig enn lengra til vinstri en þegar væri komið, þar sem slíkur flokkur myndi aldrei fá brautargengi meðal al- mennra Breta, hvað sem stuðn- ingi róttækra vinstri manna liði. Oftar en ekki er þó ekki hlust- að á varnaðarorð sem þessi, og munu flestir kjósendur Verka- mannaflokksins enn vera þeirr- ar skoðunar að þeirra sigursæl- asti leiðtogi sé best geymdur úti í horni. Varnaðarorð Blairs munu því líklega ekki verða Corbyn til mikilla trafala í leið- togakjörinu, og gætu jafnvel orðið til þess að auka á veg hans. Það sem ætti að valda forystu flokksins þó enn meira hugar- angri er sú staðreynd, að sömu kannanir og mæla Corbyn í for- ystu sýna einnig að almennir breskir kjósendur vantreysta öllum formannskandídötunum jafnt, en einungis um fimmt- ungur telur þá hæfa til þess að gegna starfi forsætisráð- herrans. Það verður því verk að vinna fyrir hvern þann sem tek- ur við hinu vonda búi Eds Mili- band. Varnaðarorð Tony Blairs munu falla í grýttan jarðveg} Verkamannaflokkur í vanda Þótt enn séu tæp-ir 16 mánuðir í forsetakosningar í Bandaríkjunum er leikurinn tekinn að æsast. Nokkrir frambjóðendur hafa gefið kost á sér í for- kosningu demó- krata, en Hillary Clinton hefur þó enn stöðu krónprinsessu á þeim bæ. Hún hefur notið mikils stuðn- ings, en síðustu mánuði hefur sax- ast á hann því dregið hefur úr trausti hennar og trúverðugleika. Ástæðurnar eru tvær. Annars vegar óvenjuleg notkun hennar á opinberum tölvupóstum og ákvörðun um að eyða 30 þúsund þeirra, þar sem hún hefði metið þá sem persónulega pósta. Hins vegar er það auðsöfnun Clinton- hjónanna og fjármál sjóða sem reknir eru í þeirra nafni. Stuðn- ingsmenn Hillary treysta því að þessi mál muni falla í skuggann fyrir öðrum á næstu mánuðum. Repúblikanar eru enn fjarri því að ákveða endanlegt forsetaefni sitt. Einir 16 frambjóðendur eru opinberlega á ferðinni. Auðjöf- urinn Donald Trump fer nú mik- inn og minnir á mink í hænsnabúi. Hið fræga „11. boð- orð Ronalds Reag- ans“ – repúblikanar tala ekki illa um aðra repúblikana – er ekki hluti af dagskrá Trumps, sem hjólar meira í þá en and- stæðinginn. Trump er stóryrtur um fleiri svo sem um nágrannann í suðri, Mexíkó, og flóttamenn sem þaðan koma. Flugeldasýning Trumps hefur skotið honum í fremstu röð í könnunum, þótt flestir telji að sú blaðra muni springa. Nýlega hót- aði Trump að bjóða sig fram sem óháður yrði hann ekki forsetaefni Repúblikana. Hótunin minnir þann flokk óþægilega á framboð annars auðkýfings, Ross Perot, árið 1992. Perot hlaut betri út- komu en nokkur annar óháður frambjóðandi hefur fengið eða 19 milljónir atkvæða á meðan George W.H. Bush hlaut 39 millj- ónir og Bill Clinton 45 milljónir. Ekki er óyggjandi að Perot hafi orðið til þess að forsetinn tapaði. En Perot hefur oftast nær stutt repúblikana í forsetakosningum, Bush yngri árið 2000 og Romney árið 2012. Ekki hefur óvissan vegna næstu for- setakosninga í Bandaríkjunm minnkað} Fjörug lota í löngum slag S amkvæmt orðabók Menningarsjóðs þýðir orðið drusla m.a. tuska, lélegur bíll og sóðalegur eða lítilsigldur kvenmaður. Viðurnefnið drusla var líka lengi vel, og er enn, notað um konur sem er nauðgað eða beittar kynferðislegu ofbeldi, þær hafi kallað það yfir sig með því að haga sér á druslulegan hátt (hvað sem það nú þýðir). „Mér hefur verið sagt að ég ætti ekki að segja þetta. En til að komast hjá árásum ættu konur að forðast að klæða sig eins og druslur.“ Líklega óraði kanadíska lögregluþjóninn Michael San- guinetti ekki fyrir því að þessi orð, sem hann lét falla á fundi í Toronto í Kanada í janúar 2011 þar sem rætt var um nauðganir á háskólasvæðum, yrðu örlagaríkasta setningin sem hann hefur lát- ið út úr sér á lífsleiðinni. Hvað þá að hann myndi hljóta alheimsfrægð og að þessi ummæli yrðu þess valdandi að upp hófst rökræða víða um heim um hvað drusla væri og hvort konum væri ekki fullkomlega frjálst að vera druslu- legar ef þeim sýndist svo. Sanguinetti var ekki fyrstur til að segja að konur sem verða fyrir kynferðisofbeldi geti sjálfum sér um kennt. Heldur ekki sá síðasti. En þessi ummæli hans höfðu þau áhrif að skömmu síðar var fyrsta Druslugangan gengin í Toronto. Sama ár var sú fyrsta hér á landi og á morgun verður hún gengin hér í fimmta skiptið. Það sem hefur skilið kynferðisglæpi frá öðrum tegundum glæpa í gegnum tíðina er sú tilhneiging að sá sem glæpurinn beinist gegn hljóti að hafa stuðlað að honum á einhvern hátt. Klæðaburður eða fas þolenda er tíundað sem ástæður fyrir því að verða fyrir of- beldi og þannig hefur þolandinn verið gerður ábyrgur fyrir glæpnum að hluta til eða alfarið. Ekki drekka áfengi. Ekki vera í flegnum eða stuttum fötum. Ekki vera alein á ferð. Ekki vera svona, ekki hinsegin, ekki vera þarna og alls ekki hér. Ekki, ekki, ekki... Golda Meir var forsætisráðherra Ísraels 1969-1973. Í valdatíð hennar kom upp sú tillaga í þinginu að setja konum útgöngubann eftir myrkur til að fækka nauðgunum. Meir lagði til að nær væri að útgöngubann yrði sett á karla, það væru jú þeir sem nauðguðu. Ekkert varð af útgöngubanni, hvorki karla né kvenna. Lausnin er nefnilega ekki að loka konur inni. Hún er heldur ekki sú að læsa alla karla inni vegna þess að lítill hluti þeirra nauðgar og heldur ekki að skerða frelsi kvenna með því að setja þeim skorður um hvernig þær eiga að klæða sig. Klæðnaður, hegðun eða fas fólks má aldrei vera viðurkennt sem sem möguleg afsökun fyrir glæpamenn. Aldrei. Í tilefni af Druslugöngunni hefur undanfarna daga mátt sjá plaköt og myndir á samfélagsmiðlum af allskonar fólki með áletruninni: Ég er drusla. Það er ekki nóg að vera bara drusla í druslugöngunni, heldur þurfum við að vera druslur alla daga ef við viljum hafna því að þolendur kynferðisof- beldis hafi á einhvern hátt kallað það yfir sig. Alla 365 dag- ana. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Druslur 365 daga á ári STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Fornleifauppgreftrinum álóð Íslandsbanka viðLækjargötu lýkur í þar-næstu viku. Að sögn Adolfs Friðrikssonar, forstöðu- manns Fornleifastofnunar Íslands, sem annast rannsóknina er það mat Minjastofnunar Íslands að ekki sé ástæða til að varðveita á staðnum rústir fornbæjarins sem óvænt komu í ljós. Minjastofnun er opinber stjórnsýslustofnun á sviði minja- verndar, en Fornleifastofnun er einkarekin rannsóknar- og fræði- stofnun. Adolf kveðst nálgast rúst- irnar í Lækjargötu sem vísinda- maður. Það sé annarra að taka afstöðu til þess hvort „frysta eigi þær í tíma“. Fram hefur komið að forráðamenn Íslandshótela, sem ætla að byggja gistihús á lóðinni, hafa látið í ljós áhuga á að fimm metra langt eldstæði í rústunum fái að standa og verði hluti af kjallara fyrirhugaðrar byggingar. Adolf segir að þó að rústirnar í Lækjargötu verði ekki varðveittar á staðnum skili vitneskjan, sem upp- gröfturinn leiddi í ljós, sér. Hann orðar það svo að með því að grafa eftir fornleifum á lóðinni sé verið að umbreyta staðnum í vísindalega þekkingu. Fornleifafræðingum þyki það vissulega gaman ef hægt sé að varðveista rústir þar sem þær finn- ast, en það sé engan veginn einfalt eða ódýrt að varðveita svo gamlar fornleifar sem þarna eru og ekki endilega besta leiðin til að nýta þær. „Þegar búið er að fjarlægja yfirborðslögin á svona rústum er um leið búið að hleypa andrúmsloftinu að og það hefur áhrif á mannvistar- leifarnar. Þær byrja að brotna hrað- ar niður og ekki öruggt að varð- veislan heppnist,“ segir Adolf. Gólfin í Lækjargötuskálanum séu lífræn, troðin moldargólf með kol og ösku og fleiri leifum, og þau byrji að rotna um leið og yfirborðslögum sé svipt af þeim og farið að taka þau upp til að skoða sýni eins og nauðsynlegt sé að gera. Adolf ber saman rústirnar í Lækjargötu og þær sem eru í forn- leifakjallaranum á Landnámssýn- ingunni í Aðalstræti. Hann segir að að hinar síðarnefndu séu mun betur fallnar til varðveislu. Þar fundust fyrir hreina tilviljun heillegar veggjahleðslur og heppnast hafi að sprauta efnum í torfið til að varð- veita það. Það hafi verið dýr aðgerð sem borgaryfirvöld kostuðu. Það gerist sjaldan nú á dögum í borgum að svo heillegar rústir finnist ofan í jörðinni. Yfirleitt hafi lagnir og framkvæmdir eyðilagt slíkar minjar. Í Lækjargötu hafi aðeins hluti forn- bæjarins varðveist, annar helmingur skálans hafi lent undir steinsteyptu húsi við Skólastræti. Lítið sé eftir af vegghleðslum, þeim hluta rústa af þessu tagi sem almenningur eigi auðveldast með að átta sig á. „Ef við hefðum á einhverjum tíma staðið frammi fyrir því að velja á milli varð- veislu þessara tveggja rústa hefði Aðalstræti orðið fyrir valinu,“ segir Adolf. Ekki er komið á hreint frá hvaða tíma rústirnar í Lækjargötu eru nákvæmlega. Adolf telur að þær séu frá fyrstu tveimur öldum Ís- landsbyggðar. Í sagnfræðinni er venjan er að telja land- námsöld frá ca. 870 til 930. Skálinn gæti verið frá þeim tíma, en hann gæti líka verið talsvert yngri, jafnvel frá 11. öld. Frekari aldurs- greiningarnar á sýn- um úr jarðveginum og forngripum eiga eftir að leiða það í ljós. Þekkingin varðveitist þótt rústum sé lokað Morgunblaðið/Golli Rannsókn Fornleifafræðingar að störfum á lóð Íslandsbanka við Lækj- argötu. Þar hafa fundist rústir íveruhúss frá fyrstu öldum byggðar. Lísabet Guðmundsdóttir forn- leifafræðingur, sem stjórnar rannsókninni í Lækjargötu, segir að nokkrir mánuðir muni líða þar til nákvæmari aldurs- greining á rústunum liggi fyrir. Valin lífræn sýni verði send til rannsóknar utanlands. Gripir verði skoðaðir hér heima og greindir með tilliti til form- gerðar. Hún segir að engir forngripir hafi fundist sem komi verulega á óvart. Meðal þess sem fundist hafi séu snældusnúðar og perlur, dæmi- gerðir hlutir frá víkingaöld. At- hyglisvert hafi þó verið að finna í skálanum hlaðinn pott eða trog sem greinilega hafi ver- ið notað til að hita mat. Slík trog hafi þó áður fundist á Stöng í Þjórsárdal og víðar og séu skemmtilegar og fallegar minjar. Aldursgrein- ing tímafrek FORNLEIFAR Uppgröftur Ýmsir forngripir hafa fundist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.