Morgunblaðið - 24.07.2015, Side 14

Morgunblaðið - 24.07.2015, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015 Í YFIRRÉTTI [e. HIGH COURT OF JUSTICE] (CHANCERY-DEILD) FYRIRTÆKJADÓMSTÓLL [e. COMPANIES COURT] Nr. 4486/2015 VARÐANDI EXCESS INSURANCE COMPANY LIMITED, HARTFORD FIRE INSURANCE COMPANY, UK BRANCH, AVIVA INSURANCE LIMITED, HARTFORD FINANCIAL PRODUCTS INTERNATIONAL LIMITED OG VARÐANDI BRESK LÖG FRÁ ÁRINU 2000 UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG - MARKAÐI [e. FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT 2000] TILKYNNING HÉRMEÐTILKYNNIST að hinn 30. júní 2015 lögðu Excess Insurance Company Limited („Excess“), Hartford Fire Insurance Company, UK branch, („Hart Re“) og Aviva Insurance Limited („AIL“) (Excess, Hart Re og AIL saman nefnd „framseljendur“) og Hartford Financial Products International Limited („HFPI“ eða „framsalshafi“) fram umsókn („umsóknin“) til yfirréttarins High Court of Justice („dómstóllinn“), í samræmi við 1. mgr. 107. gr. laganna frá árinu 2000 um fjármálaþjónustu og -markaði („lögin“), um úrskurð: (1) um að heimila, skv. 111. gr. laganna, áætlun um framsal tiltekinnar almennrar vátryggingastarfsemi framseljanda, sem greinir hér að neðan, til HFPI („áætlunin“), og (2) sem felur í sér viðbótarákvæði um áætlunina skv. 112. gr. laganna. Áætluninmun leiða til þess að HFPI taki yfir eftirfarandi starfsemi: (a) almenna vátryggingastarfsemi Excess og Hart Re, og (b) starfsemina sem AIL tók yfir frá London & Edinburgh Insurance Company Limited (áður London & Edinburgh General Insurance Company Limited) („L&E“) (nú hluti af AIL), nánar tiltekið: (i) vátryggingar sem L&E hefur veitt með samnýtingarfyrirkomulagi gegnum eftirfarandi vátryggingarumboðsaðila [e. underwriting agents]: (A) B. D. Cooke and Partners milli 1948 og 1968, (B) H.S.Weavers (Underwriting) Agencies Limited milli 1972 og 1976, (C) Tower Underwriting Management (einnig nefnt „Old Tower“) milli 1967 og 1972, (D) Highlands Underwriting Agents (einnig nefnt „Tower X“) milli 1973 og 1978, og (E) Westminster Marine Insurance Managers milli 1960 og 1977, og (ii) vátryggingar sem L&E veitti á London-markaðnum í eigin nafni fyrir 1. janúar 1992, sem varða almennt frumtryggingar í Bandaríkjunum og endurtryggingar sem voru veittar frá 5. áratug 20. aldar fram á 8. áratug 20. aldar. saman nefnt („L&E starfsemin“). Eintök af áætluninni, skýrslu um skilmála áætlunarinnar, sem var samin í samræmi við 109. gr. laganna, („skýrsla óháðs sérfræðings“) og yfirlýsingu sem greinir frá skilmálum áætlunarinnar og hefur að geyma samantekt á skýrslu óháðs sérfræðings má nálgast endurgjaldslaust á vefsíðunni www.downlandsliability.com. Stuðningsgögn og frekari fréttir af áætluninni verða birt á þessari vefsíðu og því kann að vera ráðlegt að athuga hvort uppfærslur hafi verið birtar. Einnig er hægt að óska eftir ókeypis eintaki af þessum gögnummeð því að skrifa eða hringja í Downlands Liability Management Limited („DLM“) með því að nota upplýsingarnar hér að neðan. Umsóknin verður tekin fyrir hinn 13. október 2015 hjá dómara Chancery-deildar yfirréttarins (High Court) í The Rolls Building, Fetter Lane, London, EC4A 1NL, Bretlandi. Samþykki dómstóllinn hana er fyrirhugað að áætlunin taki gildi 15. október 2015. Hverjumþeim sem telur að framkvæmd áætlunarinnarmyndi hafa neikvæð áhrif á sig er heimilt að annað hvort gera grein fyrir því skriflega eða flytjamál sittmunnlega (í eigin persónu eða gegnum lagalegan fyrirsvarsmann) við meðferð umsóknarinnar fyrir dómi hinn 13. október 2015. Hver sá sem hyggst mæta á dómþing réttarins eða flytjamál sitt skriflega verður að tilkynna umandmæli sín eins fljótt og unnt er og helst a.m.k. tveimur virkum dögum fyrir dómþingið þar sem umsóknin verður tekin fyrir hinn 13. október 2015, til neðangreindra lögmanna eða til DLMmeð því að nota upplýsingarnar hér að neðan. Samþykki dómstóllinn áætlunina leiðir það til framsals til HFPI á öllum samningum, fasteignum, eignum og skuldum sem varða almenna vátryggingastarfsemi Excess og Hart Re og sem varða L&E starfsemina (eins og hún er skilgreind hér að ofan), jafnvel þótt aðila væri annars heimilt að fella úr gildi, breyta, eignast eða gera tilkall til hagsmuna eða réttinda eða farameð hagsmuni eða réttindi eins og þau hafi verið felld úr gildi eða þeim breytt í þessu sambandi. Aðeins verður unnt að framfylgja slíkum rétti að því marki sem úrskurður dómstólsins kveður á um það. Dags.: 24. júlí 2015 Freshfields Bruckhaus Deringer LLP 65 Fleet Street London EC4Y 1HS Bretlandi Tilv.: 138865-0034/GHFS/NAG/LEH Lögmenn framseljenda og framsalshafa Downlands Liability Management Limited DLM House Downlands Business Park LyonsWay Worthing West Sussex BN14 9RX Bretlandi Tilv.: Roland Jackson Netfang: HartfordPartVII@downlandsliability.com Sími: +44 (0) 1903 836822 VIÐTAL Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Leikkonur verða aldrei of gamlar, er það,“ spurði Kristín G. Magnús leikkona og leikskáld kankvíslega þegar Morgunblaðið ræddi við hana í tilefni af margvíslegu tímamótum í lífi hennar á þessu ári. Kristín kvaðst taka undir þau sannindi að maður sé ekki deginum eldri en manni finnst maður vera! Kristín á að baki merkilegan feril og hún hefur verið frumkvöðull á sínu sviði í leiklistinni. Þar er helst að nefna Ferðaleikhúsið og Light Nights – leiksýningarnar á ensku fyrir ferðamenn. Dreymdi um að verða leikkona Kristín lærði ung ballett í List- dansskóla Þjóðleikhússins hjá Erik Bidsted og hélt áfram dansnámi í Ballet Rambert í London. Henni gekk mjög vel í ballett en í henni blundaði alltaf draumurinn um að verða leikkona. Kristín fékk inn- göngu í The Royal Academy of Dramatic Art í London (RADA). „Ég var ofboðslega heppin að komast inn í RADA, það var ekki al- veg vandalaust að komast þar inn,“ sagði Kristín. „Þeim leist það vel á mig að eftir að ég var byrjuð á öðru ári fékk ég stóran styrk, Gerald Lawrence Shakespeare-styrkinn, og ég þurfti ekki að borga krónu það sem eftir var af náminu. Ég fékk líka einkakennslu í enskum framburði. Það varð mér veganesti fyrir lífið og ég hef lifað á því síðan.“ Kristín útskrifaðist frá RADA árið 1960, fyrir réttum 55 árum. Hún lék eftir það á sviði á Englandi og eins í sjónvarpsleikritum hjá BBC og ITV áður en hún sneri aftur heim. Hún lék í Þjóðleikhúsinu og með Grímu auk þess sem hún kenndi í Leiklist- arskóla Þjóðleikhússins og eins hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Kristín giftist Halldóri Snorrasyni árið 1965, fyrir 50 árum, og þau eiga soninn Magnús Snorra, sem nú stendur á fimmtugu. Magnús hefur búið í Bandaríkjunum í 30 ár og starfar þar sem vísindamaður og uppfinningamaður á sviði tölvu- tækni. Magnús fékk á sínum tíma inngöngu bæði í Harvard College og MIT. Hann nam rafmagnsverkfræði í Harvard og útskrifaðist 1988. Hall- dór lést árið 2007, 82 ára að aldri. Ferðaleikhúsið í 50 ár Ferðaleikhúsið var stofnað á gaml- ársdag 1965. Stofnendur voru hjónin Kristín og Halldór ásamt þeim Æv- ari Kvaran leikara, Molly Kennedy, leikmyndahönnuði og þýðanda, og fleirum. „Stofnun Ferðaleikhússins var okkar áramótaheit 1965 og ég held að við höfum efnt það nokkuð vel,“ sagði Kristín. „Meðan ég lék í Þjóð- leikhúsinu var ég í 15-20 rullum. Einnig samdi ég barnaleikritið Kraftaverkið sem var sett upp í Þjóð- leikhúsinu. Mig langaði að gera meira en að vera bara í Þjóðleikhús- inu. Ég átti frí yfir sumarið og ákvað að fara með Róbert Arnfinnssyni og fleiri leikurum hringinn í kringum Ísland,“ sagði Kristín. Fyrsta verk- efni Ferðaleikhússins var leikritið Tónaspil og hjónaspil eftir Peter Shaffer í leikstjórn Kristínar. Þau sýndu á 40 stöðum á 40 dögum. Af- raksturinn varð ekki mikill pen- ingalega, að sögn Kristínar, en ánægjan því meiri. Starfsemi Ferða- leikhússins lá síðan í dvala um tíma. „Svo settum við upp stórt barna- leikrit, Týnda konungssoninn, í Glaumbæ, þar sem nú er Listasafn Íslands,“ sagði Kristín. „Sigurbjörn Eiríksson, veitingamaður í Glaumbæ, bauð okkur að vera þar frítt þegar ekki voru dansleikir. Við stóðumst ekki boðið. Þetta var of- boðslega gaman, stór sýning með lif- andi hljómsveit. Ég held að það hafi um 15 manns tekið þátt.“ Kristín skrifaði leikritið Týndi konungssonurinn upp úr leikriti sem Ragnheiður Jónsdóttir hafði skrifað. Leikritið varð mjög vinsælt og var tekið upp fyrir sjónvarp og sýnt í tveimur hlutum. Sjónvarpið endur- sýndi Týnda konungssoninn tvisvar. Ferðaleikhúsið var frumkvöðull íslenskra leikhópa í að að setja upp sýningar á Edinborgarhátíðinni í Skotlandi og fyrst íslenskra leikhópa með sýningu í West End-leikhús- hverfinu í London. Sýningar fyrir ferðamenn Einu sinni kom Molly Kennedy að máli við Kristínu og nefndi að lítið væri í boði fyrir erlenda ferðamennn í Reykjavík annað en að slæpast um göturnar. „Hún sagði við mig: Þú talar jafnt ensku og íslensku. Af hverju prófum við ekki eitthvað? Molly var mjög góður þýðandi og bauðst til að þýða. Ég ákvað að slá til og prófa þetta eitt sumar,“ sagði Kristín. Sýningarnar hófust sumarið 1970 og voru upphaflega í Glaumbæ undir heitinu Kvöldvaka. Síðar var ákveðið að taka upp enska heitið Light Nights (Bjartar nætur) sem höfðaði betur til erlendra ferða- manna. Efni sýningarinnar var sótt í Þjóð- sögur Jóns Árnasonar og Íslend- ingasögurnar. Ævar Kvaran var með Kristínu í þessum sýningum sem nutu strax mikilla vinsælda. Þær voru fastur liður í menningarlífi Reykjavíkur áratugum saman. Eftir Glaumbæ fóru Light Nights á Hótel Loftleiðir, þaðan á Fríkirkjuveg 11 og svo í Tjarnarbíó. Einnig voru sýn- ingarnar í Iðnó, Hlaðvarpanum og heima hjá Kristínu á Baldursgötu. Ferðaleikhúsið fór með Light Nights í sýningarferðir um Banda- ríkin, m.a. til New York, Chicago, Boston, Minneapolis, Davenport í Iowa, Madison í Wisconsin og víðar. Brjálæðiskennd vinna Kristín sagði að efni sýninganna hefði verið uppfært og breytt á hverju sumri enda úr nógu að moða í þjóðsögunum og Íslendingasög- unum. „Ein saga hefur þó verið fast- ur liður, en í ýmsum útfærslum, hvort sem það eru fáir eða margir leikendur. Það er sagan af djákn- anum á Myrká. Hann hefur elt mig öll þessi ár,“ sagði Kristín. Hún sagði að sér þætti ekki erfitt að sýna en allt umstang og markaðssetning hefði vaxið mjög mikið og útheimti mikla vinnu. „Áður var nóg að útbúa bækl- inga og veggspjöld en það nægir ekki lengur. Þeir sem ráða ferðamálum í Reykjavík skipta sér afskaplega lítið af einkaframtakinu á sviði afþrey- ingar fyrir ferðamenn, það verður að segja það. Við einkaaðilarnir erum ekkert mikið hafðir með þegar verið er að kynna framboðið á afþrey- ingu.“ Kristín sagði framtíð Light Nights óvissa. „Ég sé engan sem ætlar að taka við af mér. Það kemur ekki allt- af maður í manns stað. Það er auðvit- að brjálæðiskennd vinna að standa í þessu.“ Hlé hefur orðið á Light Nights-sýningunum í sumar. Í fyrra- sumar hætti Kristín að hafa sýningar fyrir áhorfendur sem komu af göt- unni en bauð áfram upp á sýningar fyrir hópa. Hún hefur ekki auglýst sýningarnar í sumar. Kristín sagði að það þyrfti alltaf að gæta að fjárhagshliðinni og því að hún gengi upp. „Ég hef aldrei velt mikið fyrir mér peningamálunum, hef hugsað meira um að gera góða sýningu. Svo allt í einu rekst maður á harðan vegg og áttar sig á því að maður þarf líka að hugsa um peningamálin. Mennta- málaráðuneytið hefur oft hjálpað mér og sett í mig kjark að fara af stað. Það hafa aldrei verið háar upp- hæðir en nóg til þess að ég hef þorað að leggja í hann,“ sagði Kristín. Hún sagðist geta haldið Light Nights- sýningum áfram með skömmum fyr- irvara. „Ég treysti mér vel til að halda áfram að leika. En til að ég byrji aft- ur með Light Nights þarf ég að hafa meiri stuðning frá þeim sem ráða ríkjum um ferðamál í Reykjavík- urborg,“ sagði Kristín. „Efnið er okkar arfleifð og hefur fylgt okkur frá upphafi. Við eigum ákaflega skrautlegar þjóðsögur líkt og marg- ar aðrar þjóðir. Okkar þjóðsögur eru sérstæðar. Ég hef oft fundið að fólk ber saman þjóðsögurnar okkar við sínar eigin þjóðsögur. Það er kannski einhver skyldleiki en ekki sama útfærsla. Ég er aldrei með sömu útgáfuna á sýn- ingunum. Ég nenni ekki að vera allt- af eins. Sýningarnar taka líka mið af því hvort maður er með fáa eða marga leikendur. Það breytir því hvernig þetta er sett upp.“ Er enn á fjölunum Kristín sagðist hafa ákaflega gam- an af að ferðast og hafa komið til fjögurra heimsálfa. Enn eru þó næg- ir áfangastaðir eftir. Hún sagði ferðaáhugann samlagast vel vinnunni þegar henni er boðið til út- landa að leika, að geta samlagað ferðaáhugann og vinnuna. „Ég er enn á fjölunum. Hinn 31. maí síðastliðinn var ég með góðgerð- arsýningu í Scandinavian Living Center, Nordic Hall, í Newton í Boston. Hún var til styrktar Vildar- börnum, ferðasjóði Icelandair fyrir langveik börn á Íslandi,“ sagði Krist- ín. „Mér leið mjög vel með þetta. Ég held að maður eigi að reyna að láta gott af sér leiða í lífinu.“ Djákninn á Myrká gengur aftur í einleiknum Hringferðinni, eftir Kristínu, sem hún ætlar sýna á Suð- ureyri við Súgandafjörð 6. ágúst næstkomandi á listahátíðinni Act Alone. Það verður í fyrsta sinn sem Kristín segir sögu djáknans á ís- lensku á leiksviði. Hún er nú að rifja upp Shakespeare og Tjekov frá því þegar hún var að hefja nám sitt í RADA í London og mun sýna sam- eiginlegt þema í sögunum. „Mér finnst það allt í einu svolítið mikill handleggur að segja allt á ís- lensku. Ég hef ekki leikið á íslensku síðan ég var í Þjóðleikhúsinu. Það er orðið langt síðan. En ég var búin að taka þetta að mér og get ekki svikið það. Auk þess hef ég ekki farið út á land í tugi ára. Ég var alltaf upptekin á sumrin í Light Nights,“ sagði Kristín. Þá hefur henni verið boðið að koma með sýningu á ensku til Seattle í Bandaríkjunum í haust og jafnvel einnig til Newport. Kristín kvaðst vera að hugleiða hvort tveggja. „Leikkonur verða aldrei of gamlar“  Kristín G. Magnús leikkona var einn af stofnendum Ferðaleikhússins fyrir 50 árum  Kristín hefur leikið í Light Nights-leiksýningunum frá því þær hófust 1970  Leikur á íslensku í fyrsta sinn í mörg ár Morgunblaðið/Þorkell Light Nights Kristín G. Magnús leikkona hefur lengi verið með leiksýningar fyrir ferðamenn á ensku. „Einu sinni kom nokkuð fullorð- inn maður, prófessor frá Bandaríkjunum, á sýningu á Light Nights á Fríkirkjuvegi 11. Hann spurði hvort við ættum lopapeysu því hann hafði gleymt að taka með sér hlýja flík. Við létum hann hafa fína og góða peysu,“ sagði Kristín G. Magnús, leikkona. Um þetta leyti stóð til að sonur hennar, Magnús Snorri Halldórsson sem nú er rafmagnsverkfræð- ingur, færi í inntökupróf í Har- vard College í Bandaríkjunum. „Þessi maður varð milli- göngumaður með að útvega mér húsnæði í Bandaríkjunum þegar sonur minn var að byrja í námi. Það var hjá auðugri konu sem átti tvö hús. Við urðum svo miklar vinkonur og ég dvaldi hjá henni í tvo mánuði. Eftir það kom ég alltaf árlega til hennar á meðan hún átti þessi hús. Mér fannst eins og þessi maður hefði verið sendur til mín.“ Góð sending á sýninguna LEIKHÚSGESTI VAR KALT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.