Morgunblaðið - 24.07.2015, Síða 8

Morgunblaðið - 24.07.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2015 Björn Bjarnason vekur í pistlisínum athygli á grein for- manns Samfylkingar sem virðist telja að hrun Grikklands sanni yfirburði evrunnar! Og Björn bætir við:    Talsmenn ESBhér á landi láta gjarnan eins og aðild að sam- bandinu verði til að losa landbúnað úr opinberum viðjum og ýta undir lágt verð á landbún- aðarafurðum. Hlá- legt er að lesa hug- leiðingar um þetta á sama tíma og Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, hvetur franska bænd- ur til að lama ekki franskt þjóðlíf með kröfum sínum um hækkun á verði nautakjöts og mjólkur.    Franskir bændur efndu til mót-mæla fjórða daginn í röð í dag, fimmtudag, og settu upp vegatálma við Lyon, aðra stærstu borg Frakklands. Með framhaldi mótmælanna hafa bændur í raun hafnað loforði François Hollandes Frakklandsforseta um 600 millj- óna evru aukafjárveitingu til að létta undir með þeim. Bændur leggja sig fram um að skapa vand- ræði á vinsælum ferðamannastöð- um eins og við hið fræga Mont- Saint-Michel við Atlantshafsströnd Frakklands.    Hollande kvartaði undan notk-un á erlendu hráefni í frönskum veitingahúsum og sagð- ist ætla að reyna að selja franska mjólk í ferð til Kína í nóvember.    Hvað ætli ESB-aðildarsinnarsegðu um svona tal íslenskra ráðamanna? Að þeir væru aftur- haldssamir þröngsýnismenn? Allt yrði á annan veg með ESB-aðild?“ Börn Bjarnason Svart er víst hvítt STAKSTEINAR Árni Páll Árnason Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is 9.600 manns komu hingað til lands með skemmtiferðaskipum 30. júní sl. Á þeim degi má gera ráð fyrir að fyrirtæki í ferðaþjónustu hafi sam- anlagt þurft 130-140 rútur ef miðað er við að um 60-70% farþega nýti sér hópferðir á ferðamannastaði. Að sögn Kristínar Sifjar Sigurðar- dóttur, framkvæmdastjóra ferða- skrifstofunnar Atlantik, er hlutfall farþega sem nýtir slíkar ferðir á því bili. Á þessum tiltekna degi komu 5.100 manns til Reykjavíkur, 1.800 manns til Ísafjarðar og 2.700 manns til Seyðisfjarðar. „Á stærstu dögum sumarsins koma fleiri þús- und manns. Það eru allt að 80 far- artæki sem þurfa að vera tiltæk, eingöngu í Reykjavík,“ segir Krist- ín Sif. Hafnirnar samþykkja komur Að sögn hennar eru flestir far- þegar frá Þýskalandi, Bandaríkjun- um og Bretlandi. Alla jafna bóki 80% Þjóðverja á skemmtiferðaskip- um skipulagðar hópferðir á áfanga- staði, 60% Bandaríkjamanna og 60- 70% Breta. „Við gerum ráð fyrir að um 4.000 farþegar fari með rútum frá sumum höfnum á tilteknum dögum og 50 farþegar sem fara með hverri rútu að meðltali,“ segir Kristín. Hún segir mikillar skipu- lagningar þurfi við til að að safna saman rútum af góðum gæðum. „Við erum að glíma við takmarkað framboð. Þótt mikil endurnýjun hafi átt sér stað er enn viðvarandi skortur á stórum dög- um. Ef við í ferða- þjónustunni myndum hafa meira um það að segja hvar skemmti- ferðaskipin eru á ákveðnum dögum, þá væru erfið- leikarnir minni,“ segir Kristín en hafnirnar sjá um að samþykkja komur skipanna. Hún segir að hjá Atlantik séu í boði 50 ólíkar ferðir, sem eru allt frá því að vera tveir tímar innan Reykjavíkur, yfir í að vera dagsferðir um landið. „Þær fara ekki allar af stað á sama tíma. Fyrst fara dagsferðirnar af stað og svo er þetta skipulagt eftir lengd ferðanna,“ segir Kristín. Hún segir aðstöðu fyrir rútur á Skarfabakka í Reykjavík góða og því verði sjaldnast kraðak á bílastæðinu nema þegar fleiri en eitt skip eru í höfn á sama degi. Þannig voru t.a.m. 8.000 farþegar á þremur skipum í Reykjavík 18. júní árið 2012. Mikið álag fylgir komum skemmtiferðaskipa  130-140 rútur þurfa að vera tiltækar um allt land á álagsdögum  Mest komið átta þúsund manns til Reykjavíkur á sama degi  60-70% nýta sér hópferðir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Aidal Luna Skemmtiferðaskipið Aidal Luna kom til Ísafjarðar í júlí. Dæmi eru um að á fimmta þúsund manns hafi komið til bæjarins í einu. Kristín Sif Sigurðardóttir segir hætt við því að innviðir bresti við komu svo margra. Um 2.300 manns komu á Ísafjörð síðastliðinn mánudag á tveimur skipum Búið var að gera ráð fyrir komu 2.500 manna skips sem sigldi hjá þar sem óhagstæð skilyrði voru til að sigla inn í höfnina. Engu að síður var búið að panta rútur þangað til að ferja um 4.700 manns. „Innviðir eiga til að bresta þegar svo margir koma í einu. Erfitt er t.a.m. að koma fólki á veitingastaði. Rútur eru keyrðar þangað frá Reykjavík og Akureyri og kostnaður er gífurlegur við það að keyra tóma leggi aðra leið. Svo var ekkert skip á Ísafirði á þriðjudaginn en á miðvikudag komu 4.300 far- þegar. Á milli þessara daga voru mjög margir í Reykjavík eða 5.500 og 5.000 á Akureyri og það hefur ábyggilega verið skortur á rútum einhvers staðar,“ segir Kristín Sif. Hún segir að farþegi geti upplifað að hann komist ekki í ferðir sökum þess að ekki sé nægt framboð á rútum. „Það gerist oftar en við viljum,“ segir Kristín. Komast ekki í ferðirnar UPP GETUR KOMIÐ RÚTUSKORTUR Kristín Sif Sigurðardóttir Veður víða um heim 23.7., kl. 18.00 Reykjavík 15 skýjað Bolungarvík 9 skýjað Akureyri 9 alskýjað Nuuk 12 léttskýjað Þórshöfn 12 skýjað Ósló 16 skýjað Kaupmannahöfn 18 skýjað Stokkhólmur 18 léttskýjað Helsinki 16 skúrir Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 22 léttskýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 13 skýjað London 21 heiðskírt París 22 heiðskírt Amsterdam 20 heiðskírt Hamborg 18 léttskýjað Berlín 23 léttskýjað Vín 27 skýjað Moskva 18 heiðskírt Algarve 27 heiðskírt Madríd 37 léttskýjað Barcelona 30 heiðskírt Mallorca 31 léttskýjað Róm 28 þrumuveður Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 23 alskýjað Montreal 22 léttskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 28 léttskýjað Orlando 32 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:09 23:00 ÍSAFJÖRÐUR 3:46 23:34 SIGLUFJÖRÐUR 3:27 23:18 DJÚPIVOGUR 3:32 22:37

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.