Morgunblaðið - 24.07.2015, Page 44
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 205. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. „Íþróttinni til skammar“
2. Pamela Anderson er óþekkjanleg
3. Smitaðar af HIV-veirunni
4. Grunaður um að smita konur
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Listasumar á Akureyri hófst í gær,
en fjöldi listamanna kemur fram á
hátíðinni. Má m.a. nefna finnsku
listakonuna Lauru Miettinen sem
sýnir verk sín. Dagskrá hátíðarinnar
er á www.listasumar.is
Ljósmynd/Ragnhildur Aðalsteins
Listahelgi framundan
á Akureyri
Hljómsveitin
Bárujárn kemur
fram ásamt
Sindra Eldon and
the Ways á Bar 11
í kvöld. Þetta eru
fyrstu tónleikar
sem Bárujárn
heldur í rúm tvö
ár en sveitin tók
sér langt og gott hlé eftir útkomu
breiðskífu sinnar sumarið 2013.
Sindri Eldon and the Ways stíga á
svið um kl. 22.30 og því næst kemur
Bárujárn.
Fyrstu tónleikar
Bárujárns í tvö ár
Í dag klukkan 14.00 heldur Ásdís
Arnardóttir sellóleikari og Jón Sig-
urðsson píanóleikari tónleika í
Hömrum í menningarhúsinu Hofi á
Akureyri en Ásdís og Jón byrjuðu að
spila saman í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík. Á efn-
isskrá eru verk eftir
Beethoven, kven-
tónskáldin
Paradis, Clarke,
Jórunni Viðar og
Björk og argent-
ínskur tangó eft-
ir Piazolla.
Selló- og píanótónar
í Hofi á Akureyri
Á laugardag, sunnudag og mánudag Hæg breytileg átt eða haf-
gola, skýjað með köflum og skúrir, einkum síðdegis. Hiti 6 til 14
stig. Á þriðjudag og miðvikudag Útlit fyrir svipað veður áfram.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Súld
eða lítilsháttar væta eystra, annars skýjað með köflum og líkur á
síðdegisskúrum, einkum syðra. Hiti 7-15 stig, hlýjast suðvestantil.
VEÐUR
Fyrsti hringur Íslandsmóts-
ins í höggleik fór fram á
Garðavelli á Akranesi í gær.
Þórður Rafn Gissurarson
hefur tveggja högga forskot
í karlaflokki en hann fékk
sjö fugla og er alls fimm
höggum undir pari. Í
kvennaflokki eru þær Sunna
Víðisdóttir og Signý Arnórs-
dóttir efstar og jafnar á
einu höggi undir pari og
hafa tvo tvöfalda Íslands-
meistara á hælunum. »1,4
Þórður var höggi
frá vallarmetinu
Þátttöku íslensku liðanna á Evr-
ópumótunum í knattspyrnu er lokið
þetta árið. FH og KR féllu bæði úr
leik í Evrópudeild UEFA í gærkvöld.
KR-ingar steinlágu í Þrándheimi fyr-
ir öflugu liði Rosenborgar og FH-
ingar féllu úr leik eftir 2:2 jafntefli
við Inter Bakú í Aserbaídsjan þar
sem úrslitin réðust í vítaspyrnu-
keppni. »2-3
KR og FH féllu úr leik
í Evrópudeildinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Söngleikurinn Billy Elliot hefur
kveikt í mörgum og nú stendur yfir
annað af þremur söngleikjanám-
skeiðum Borgarleikhússins fyrir
börn og unglinga, þar sem þátttak-
endur læra grunnspor í ballett,
steppi og nútímadansi auk þess sem
þeir læra dansspor úr sýningunni og
fá leiklistar- og söngkennslu.
Hlynur Páll Pálsson, fræðslu-
stjóri Borgarleikhússins, segir að
þessi nýbreytni leikhússins hafi
mælst vel fyrir. Námskeiðin séu
hugsuð fyrir 8 til 14 ára krakka og
strákarnir, sem fara með hlutverk
Billy Elliot í söngleiknum, taki þátt í
þeim og hvetji jafnaldra sína til
dáða.
Þegar auglýst var eftir krökkum
til að taka þátt í söngleiknum Billy
Elliot buðu hátt í 2.000 ungmenni
fram krafta sína. Tveir hópar
skiptast á að taka þátt í sýningunum
og fara samtals 34 krakkar með
hlutverk. Söngleikurinn sló í gegn
hérlendis í vor. Boðið var upp á 61
sýningu og var uppselt á þær allar,
en sýningar hefjast aftur í sept-
ember.
Steppdansinn slær í gegn
Chantelle Carey, aðstoðardans-
höfundur söngleiksins, og Guð-
mundur Elías Knudsen, sem þjálfa
Billy-strákana, sjá um danskennsl-
una á námskeiðunum, Guðlaug
Dröfn Ólafsdóttir, raddþjálfari
Billy-strákanna, sér um söngkennsl-
una og Björn Stefánsson, sem leikur
í sýningunni, er leiklistarkennarinn.
Hlynur Páll segir að eftir frum-
sýninguna í mars hafi stjórnendur
leikhússins gert sér grein fyrir því
að þeir væru með ákveðna þekkingu
í höndunum sem æskilegt væri að
miðla áfram. Því hafi verið haldið
vornámskeið með áherslu á dans og
í kjölfarið hafi söngleikjanámskeiðin
orðið að veruleika. „Þetta hefur
gengið mjög vel og sérstaklega hef-
ur verið áhugavert að fylgjast með
áhuganum á steppdansi,“ segir
hann. Bætir við að Chantelle Carey
hafi haldið sérstök námskeið í stepp-
dansi og þau hafi verið vel sótt.
Billy Elliot hefur ekki aðeins hrif-
ið börn og unglinga. „Það hefur ver-
ið gaman að sjá hvaða áhrif söng-
leikurinn hefur haft og ekki síst á
stráka, en fullorðnir hafa líka spurt
hvort ekki verði boðið upp á svona
námskeið fyrir þá,“ segir Hlynur
Páll. Hann bætir við að til standi að
halda námskeið í haust á svipuðum
nótum og námskeiðið var í vor með
áherslu á dans. „Við viljum miðla af
reynslunni með því að bjóða upp á
frekari og fjölbreyttari námskeið
fyrir börn og fullorðna,“ segir hann.
Í fótspor og anda Billy Elliot
Söngleikjanámskeið haldin fyrir börn og unglinga í Borgarleikhúsinu
Í umræðunni að bjóða upp á sambærileg námskeið fyrir fullorðna
Morgunblaðið/Golli
Ánægja Krakkarnir á söngleikjanámskeiðinu í Borgarleikhúsinu léku við hvern sinn fingur á vel heppnaðri og skemmtilegri æfingu sem fór fram í gær.
Birgir Leifur Hafþórsson fór ágæt-
lega af stað á móti í Frakklandi í gær
sem er hluti af Áskorendamótaröð-
inni. Birgir Leifur kaus að sleppa Ís-
landmótinu í höggleik sem hófst á
Garðavelli á Akranesi í gær en þar
átti hann titil að verja. »1
Ágæt byrjun hjá
Birgi í Frakklandi