Feykir - 25.05.1983, Blaðsíða 2
2 FEYKIR
rEYKIR
CTGEFANDl: FEYKIR HF. RITSTJÓRI: GUÐBRANDUR MAGNÚSSON
AÐSETUR: AÐALGATA 2, SAUÐÁRKRÓKI. SfMI: 95-5757
PÓSTFANG: PÓSTHÓLF 4, 550 SAUÐÁRKRÓKUR.
RITSTJÓRN: ÁRNI RAGNARSSON, HILMIR JÓHANNESSON,
HJÁLMAR JÓNSSON, JÓN ÁSBERGSSON, JÓN F. HJARTARSON.
ÁSKRIFTARVERÐ: 40 KR. Á MÁNUÐI. LAUSASÖLUVERÐ: 20 KR.
ÚTGÁFUTfÐNI:ANNAN HVERN MIÐVIKUDAG.
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SETNING OG UMBROT: GUÐBRANDUR MAGNÚSSON.
Skólarnir skila aröi
Nú eru skólarnir hver á fætur öðrum að gera upp reikninga
vetrarins með skólaslitum. Hér á Norðurlandi vestra hafa oröið
gífurleg umskipti í skólamálum ásíðustu árum. Þarberfyrst að
nefna aö tilkoma Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki gjörbreytti
allri aðstöðu ungs fólks hér um slóöir til framhaldsnáms, en
ekki síöur veitir skólinn fullorðnu fólki tækifæri til náms, sem
þaö annars hefði aldrei fengið.
Á Hólum í Hjaltadal hefur orðið bylting í málefnum
Bændaskólans, sem var aödauða kominn fyrir nokkrum árum,
en hefur nú verið endurreistur og þaö með þeim hætti, að til
mikils sóma er öllum sem þar hafa átt hlut að máli. Nú komast
þar færri að en vilja, en áður var við nemendaleysi að etja.
Stundum heyrast raddir um að skólar séu ekkert frekar af
hinu góða, þar séu innandyra letingjar og amlóöar, sem væri
nær aö drífasig ífisk. En þó svo starf skólannaverðiekki mælt í
metrum eða kílóum þá eru þeir óhemju mikilvægir. Mennt er
máttur sem skilar arði að lokum. Hún eykur mönnum víðsýni
og afhjúpar kreddur og síðast en ekki síst, hún veitir mönnum
lífsfyllingu.
Fjölbrautaskólinn spannar bæði bóknám og verknám, en
um stundarsakir hefur orðið að fórna hagsmunum verknáms-
ins fyrir bóknámið þar sem húsnæði sem byggt var sem
verknámshús er nýtt undir almenna kennslu. Þaðer mikilvægt
að þessi bráðabirgðaráðstöfun festist ekki í sessi, heldur verði
byggt bóknámshús fljótlega, þannig að verknámshúsið nýtist
undir þá starfsemi sem því var ætlað. Miklar vonireru bundnar
viö að verknámið fái aukið vægi, þannig að sambærilegt verði
við svokallað bóknám. Það er sjálfsagt að bera í bakkafullan
lækinn að ræöa um nauðsyn þess að tengja skólanna
atvinnulífinu, en þaö er sérstaklega mikilvægt hér um slóðir
þar sem mikil uppbygging verður að eiga sér stað í iðnaöi á
næstu árum, þannig að fólk hér fái vinnu.
ÚTBOÐ
Hreppsnefnd Hvammstangahrepps óskareftir
tilboðum í 2. hluta 1. áfanga viðbyggingar
Grunnskóla Hvammstanga.
Verkið felur í sér uppsteypu á ca. 3200 m3
húsi ofan botnplötu skv. teikningum og verk-
lýsingu Fjarhitunar h.f., Teiknistofunnar Lauga-
vegi 42 og Rafteikningar h.f.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist 10.
júní n.k. og verði lokið 1. okt. 1983.
Útboðsgögn liggja frammi og verða afhent
gegn 4000 kr. skilatryggingu á skrifstofu
Hvammstangahrepps og Verkfræðistofu Fjar-
hitunar h.f. Borgartúni 17, Reykjavík.
Tilboðum skal skila á sömu staði fyrir kl. 11.00
miðvikudaginn 1. júní n.k. en þá verða tilboð
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
Sveitarstjóri Hvammstangahrepps.
Veiðimenn athugið
Nokkrar lausar stangir í Sæmundará í sumar.
Upplýsingar hjá Sveini Jónssyni, Hjalla-
landi, sími 95/6184 daglega frá kl. 12.30 til
13.30 fram að næstu mánaðarmótum.
f
Þökkum auðsýnda samúð viö andlát og jarðaför móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu,
KRISTÍNAR JAKOBÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR
2. Götu 7 við Rauöavatn
Egill Helgason, Ásta Jónsdóttir,
Guðríður Helgadóttir, Friðrik Brynjólfsson,
Þórólfur Helgason,
Guðmundur Helgason, Erna Ingólfsdóttir,
Kristín Helgadóttir, Magnús Jónsson,
María Helgadóttir, Sigurður Björnsson,
Stefán Helgason, Nanna Sæmundsdóttir,
Valdís Helgadóttir, Kristján Bernhard,
barnabörn og barnabarnabörn.
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1983
Skólaslit Grunnskólans á Húnavöllum
Allir náðu framhaldseinkunn
Grunnskólanum á Húnavöllum
var sagt upp föstudaginn 13.
maí að viðstöddu fjölmenni.
Guðrún Bjarnadóttir hafði
orð fyrir hönd kennara, Signý
Gunnlaugsdóttir fyrir hönd braut-
skráðra nemenda, og Björg
Bjarnadóttir fyrir hönd foreldra.
I máli skólastjóra kom fram,
að 171 nemandi stundaði nám
við skólann í vetur, og allir
nemendur 9. bekkjar luku grunn-
skólaprófl með rétti til fram-
haldsnáms.
Víðs vegar í sýslunni eru
starfrækt skólasel, þar sem sjö,
átta og níu ára börnum er kennt
saman. I vetur bættust sex ára
börn við, ýmist einn eða tvo
daga í viku. Þetta fyrirkomulag
hefur reynst vel, og hafa börnin
komið vel undirbúin í 4. bekk
skólans á Húnavöllum. Þar var
einnig starfrækt skólasel, með
töluverðri nýbreytni, þar sem
beitt var opnara og frjálsara
kennslufyrirkomulagi.
Félagslíf skólans var með
ágætum í vetur, og var bryddað
upp á ýmiss konar nýjungum
þar að lútandi.
Tveir kennarar kvöddu skól-
anna að þessu sinni, þeir Oddur
Friðriksson, sem starfað hefur
sem íþróttakennari í vetur, og
Trausti Steinsson, sem kennt
hefur við skólann s.l. tvo vetur.
Voru þeim færðar góðar þakkir
fyrir vel unnin störf.
Formaður skólanefndar, Stef-
án Á. Jónsson þakkaði nem-
endum fyrir ágæta umgengni
um skólann. Yfirkennari skól-
ans er Hannes Sveinbjörnsson,
skólastjóri Eggert J. Levy, en
auk þeirra hefur skólinn á að
skipa ágætis kennurum og starfs-
Iiði.
Að loknum skólaslitum þáðu
gestir og nemendur veitingar og
skoðuðu sýningu á handavinnu
nemenda. E.S.
Leiðrétting
Jóhannes Torfason hefur sent
blaðinu smá tilskrif þar sem
leiðréttir, það sem eftir honum
var haft í síðast blaðqí frásögn
um aðalfund SAH. I blaðinu
stóð: „Okkar menn hafa verið of
uppteknir af bóta og styrkja-
kerfinu og þess vegna náð litlum
árangri í kjarabaráttunni.” Þetta
er ekki rétt eftir Jóhannesi haft,
en hann sagði: „Okkar menn
hafa verið of uppteknir af kvóta
og stjórnunarkerfinu...” Eins og
lesendur sjá hefur þetta allt aðra
merkingu og er Jóhannes beð-
inn afsökunar. Ritstjóri.
Þessi mynd var tekin á árshátíö Húnavallaskóla i vetur.
SUNDLAUG HVAMMSTANGA
SÍMI 1532
Sund - sauna - Ijós
OPNUNARTÍMI: Sund: Þriðjudaga - föstudaga laugardaga sunnudaga .kl. 7-10 og 15-21 . .kl. 9-12 og 13-16 kl. 9-12
Sauna: Karlar: miðvikudaga Karlar: föstudaga Konur: fimmtudaga Konur: laugardaga kl. 16-21 kl. 16-21 kl. 16-21 kl. 9.30-12
Ljósabekkurinn er opinn á opnunartíma sund- laugarinnar - munið að panta tíma.
VH) VILJUM
VEKJA ATHYGLI Á NÝRRI
SJARFSEMI Á EYRINNI
Hressingarhúsið
- Fyrsta flokks skyndibitastaður
Og á sama stað er líka...
BÍLASALA
BALDURS OG GYLFA
Vegna mikillar sölu vantar allar gerðir bíla á söluskrá.
VERIÐ VELKOMIN - REYNIÐ VIÐSKIPTIN
HÖFUM OPNAÐ BÍLAVERKSTÆÐI
í NÝJU OG RÚMGÓÐU HÚSNÆÐI
AÐ BÚLANDI 1 HVAMMSTANGA.
Getum tekið inn bíla og vélar af öllum stærðum.
Lofthæð 4,20 m. í húsnæði okkar er smurstöð með
fullkomnum tækjum - smurt er á gryfju.
í sama húsnæði höfum við einnig opnað hjólbarða-
verkstæði þar sem unnt er að taka bíla inn tii
hjólbarðaskipta. Seljum hjólbarða og slöngur fyrir
fólksbíla, jeppa og vörubíla.
Seljum allar algengar síur í bíla og vélar.
Eigum til varahluti á lager.
Komið og skoðið nýja húsnæðið og reynið viðskiptin.
IÐSTÚÐIN HF HVAMMSTANGA
Sími á skrifstofu 1622 - á verkstæði 1593.