Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Blaðsíða 1

Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Blaðsíða 1
[ Wflfflffl FRETTABLAÐIÐ IÁralöng reynsla i LIT-LJÓSRITUN Plasthúðun • Áprentun á boli, lyklakippur, músamottur ofl. IMiðvikudagur 28. júní 1995 • 25. tbl. 21. árg. ® 456 4011 • FAX 456 5225 Verð kr. 170 m/vsk. ISPRENTHF. S/lW/ 456 3223 FJARÐARSTRÆTI 16 • ÍSAFIRÐI Póstun oy sími hefur sagt upp samningum við Flugfélagið Erni hf. um póstflutninga: „Þetta mun hvetja okkur til dáða við að leita nýrra markaða og verkefna" segir Hörður Guömundsson aðaleigandi félagsins, í samtali við blaðið Hörður Guömundsson við eina af vélum sínum. Póstur og sími hefur sagt upp samningi um póstflutninga um Vestfirði við flugfélagið Erni hf. á Isafirði. Þessir sam- ingar hafa verið í gildi frá árinu 1971 og var þeim sagt upp frá og með næstu mánaðamótum með 3ja mánaða fyrirvara. Eftir !. september í haust mun flug- félagið því ekki sjá um flutn- inga á pósti og við það missir félagið stóran spón úr aski sín- um varðandi reksturinn. Vest- firska hitti Hörð Guðmunds- son, flugmann og aðaleiganda Emis hf., að máli í gær og spurði hann um þetta mál. „Það er bara staðreynd að það eru að opnast göng undir Breiðadals- og Botnsheiðar“, sagði Hörður. „Þetta hefur þau áhrif að það verður hætt að fljúga á flugvellina á norðan- verðum Vestfjörðum, á Þing- eyri, Suðureyri, Ingjaldssandi og í Holti. Það hefur verið flogið þrisvar í viku á Ingj- aldssand og fimm sinnum í viku á hina flugvellina. Nú er verið að leggja flugvöllinn á Suðureyri niður með tilkomu jarðganganna. Hvað verður með flugvöllinn í Holti er ó- víst. Það hefurþóekki staðið til enn að leggja þann völl niður. Þetta breytir því að stoðum er kippt undan rekstri okkar. alla vega þessu formi sem hann hefur verið í undanfarin 24 ár með póstsamgöngunum. Það stendur til enn að halda uppi póstsamgöngum til sunnan- verðra Vestfjarða, einhverjum ferðum. Það er enn ekkert farið að ræða það. Það er útilokað annað en halda úti a.m.k. fjór- um ferðum í viku til suður- svæðisins, Patreksfjörð eða Bíldudal. Að öðrum kosti er ekki um neina þjónustu að ræða ef ekki næst að halda uppi þeirri lágmarksþjónustu. Við leggjum áherslu á að Póstur og sími og þar með samgöngu- ráðuneytið komi til móts við í- búana á Vestfjörðum því ferðir okkar eru einu reglubundnu samgöngurnar sem haldið er úti milli byggðarlaga allt árið. Því verður að styrkja þessar samgöngur með póstflutning- um eins og verið hefur undan- farin ár. Þetta eru ekki styrktar samgöngur í orðsins fyllstu merkingu, eins og aðrar sam- göngur eru styrktar, t.d. flóa- bátar, heldur er þetta almenn póstdreifing, almennir far- þegaflutningar, fraktflutningar og aðrir flutningar á milli suð- ur- og norðursvæða Vestfjarða. Ef halda á áfram við að byggja Isafjörð upp sem höfuðstað Vestfjarða og miðstöð við- skipta, þá verður þessum sam- göngum ekki kippt undan, það er alveg útilokað. Það eru margir opinberir aðilar fyrir utan Póst og síma sem njóta þessara samgangna, t.d. Orku- búið, sýslumenn, skattstjóra- embættið, skrifstofa Svæðis- stjórnar málefna fatlaðra, Vegagerðin o.fl. Allir þessir aðilar þurfa mikið á þessari þjónustu að halda einmitt á milli þessara svæða og nota hana mikið. Sérstaklega er þjónusta okkar notuð af al- mennum farþegum yfir vetrar- mánuðina.“ - Hvaða áhrif hefur það á rekstur félagsins þegar kippt er burtu póstflutningunum? „Það hefur náttúrlega þau á- hrif að einum hlutanum af þrí- fætinum er kippt undan, sem svo mætti kalla, þvf póstsam- göngur innan fjórðungsins hafa verið drjúgur þáttur í starfsemi félagsins. Þegar einni stoðinni er kippt undan, þá veltur hitt, og þetta kemur til með að hafa áhrif á almennar flugsamgöng- ur innan fjórðungsins. Þetta kemur til með að hafa áhrif á getu okkar til að stunda og starfrækja sjúkraflugið með þeim hætti sem verið hefur aldarfjórðung. Einnig skerðir þetta getu okkar til að halda úti almennu flugi og leiguflugi. Um það bil einn fjórði af rekstrartekjum okkar hefur fengist út úr póstflutningum og almennum samgöngum innan Vestfjarða.“ - Áttu von á því að Póstur og sími sjái sig um hönd? „Nei, ég á ekki von á því og hef enga ástæðu til að ætla það. Það eru breyttir tímar. Það eru komin jarðgöng og póstsam- göngur mrð flugvélum f næsta nágrenni við okkur heyra brátt sögunni til. Það er deginum ljósara og það gera sér allir grein fyrir því. Hitt er það, að það má ekki verða til þess að Að sögn lögreglu á ísafirði er enn töluvert um að sauðfé sé á lausagöngu í görðum og blómabeðum Isfirðinga. Blaðið impraði á þessu vandamáli í síðustu viku. Trúlega hafa suðursvæðið fari jafnframt úr sambandi við okkur hér fyrir norðan. Byggðirnar hér á Vest- fjörðum eru það veikar að þær geta engar án annarrar verið. Þótt það sé slæmt í augna- blikinu að missa póstflutning- ana út úr rekstrinum, þá held ég að það verði til þess að hvetja okkur til dáða við að leita nýrra markaða og nýn'a verkefna, sem e.t.v. á eftir að halda flug- félaginu gangandi a.m.k. næstu 25 árin.“ - Er eitthvað frekar um þetta girðingar umhverfis ísafjörð komið illa undan snjófargi vetrarins og liggja af þeim sökum víða niðri. En það er engin afsökun. Hér áður fyrr var til siðs að vaka yfir að segja? „Nei, nei, ekkert sérstakt nema það, að flugfélagið Emir á 25 ára afmæli um þessar mundir, ég er reyndar búinn að vera í 26 ár með flugrekstur hér á Isafirði. Við ætlum að bjóða öllum gestum og gang- andi til kaffidrykkju milli kl. 13 og 18 á sunnudag“, sagði Hörður Guðmundsson í sam- tali við blaðið í gær. túnunum og mættu bæjaryfir- völd íhuga þann möguleika meðan enn er ekki búið að gera girðingar skepnuheldar. Það þarf a.m.k. að reka úr túninu. -GHj. -GHj. Isafjörður: Garðarollur enn Á föstudagskvöldið var dansleikur í Sævangi í Steingrímsfirði á Ströndum. Allt var rólegt á ballinu. Lögreglumenn veittu athygli Skodabifreið sem reyndist hafa sjö manns innanborðs. Fólkið var fært á lögreglu- stöð á Hólmavík og kom þá í Ijós að ökumaðurinn var ölvaður. Fær mál hans venjubundna meðferð. -GHj. Skentmd- arverkí Seyðis- firði Á sunnudagsmorgun var tilkynnt til lögreglunnar á ísafirði að brotist hafi verið inn í sumarbústað í Fjarð- arhorni við Seyðisfjörð (Eiðisfjörð) í Djúpi. Brotnar voru hurðir og gluggar. Ekki virðist neinu hafa verið stolið heldur einungis framin skemmdarverk. Lögreglan þiggur allar upplýsingar vegfarenda um málið ef einhver hefur orðið var við mannaferðir við Fjarðarhorn um helg- ina. -GHj. Óshlíðarhlaup - myndip og texti á bls. 3 Jonsmessu- (erð með Fagranesinu á bls. 4 PÓLLINN HF. S 456 3092 Sala & þjónusta 0 Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki PÓLLINN HF SIEMENS OG ÞÚ GENGUR AÐ GÆÐUNUM VÍSUM! FLUGrÉLA GIO ERNIR P ÍSAFIROI Sími 94-4200 Daglegt áætlunarflug um Vestfirði. Leiguflug innanlands og utan, fimm til nítján farþega vélar. SUMARÁÆTLUN: Brottför frá ísafirði kl. 10 alla virka daaa. Sjúkra- og neyðarflugsvakt allan sólarhringinn

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.