Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Síða 2
VESTFIRSKA
2
Hrannargötu 2
ísafirði
Pulp Flction eftir
Quentin Taratino er án
nokkurs vafa ein besta
mynd sem kemur á
myndbandaleigur á
þessu ári. í einu orði sagt
meistarverk.
SÍÐASTA FREISTINGIN
Frábær spennu- og
sakamálamynd sem kemur
sífellt á óvart. Þetta er vel
skrifuð og uppfinningasöm
sakamálasaga þar sem
áhorfendum ersífellt komið
á óvart með snarpri fram-
vindu.
THREESOME
Ein stelpa. Tveir strá-
kar. Þrír möguleikar.
Þegar Alex (Boyle) skráði
sig á heimavist skólans
var kyn hennar skráð
rangt inn í tölvuna sem
gerði það að verkum að
henni var úthlutað her-
bergi í þeirri álmu sem
strákarnir áttu einir að
vera.
TOPP TIU
1. The jungie book
2. Trapped in Paradise
3. Airheads
4. Pulp Fiction
5. The Client
6. In the army now
7.1 love trouble
8. It‘s Pat
9. Næturvörðurinn
10. Speed
Miðvikudagur 28. júní 1995
Vatnsveita ísafjarðar:
Jarðagangavatn inn
á kerfið í gær
- þetta er gæðavatn, segir Eyjólfur Bjarnason
í gær var neysluvatni sem
tekið er úr Vestfjarðagöng-
um hleypt inn á dreifikerfi
Vatnsveitu Isafjarðar fyrir í-
búana á Eyrinni og í Hoita-
hverfi í Skutulsfirði.
Isfirðingar hafa þurft að not-
ast eingöngu við skítugt yfir-
borðsvatn hingað til. I leysing-
um og miklum rigningum hefur
vatnið ekki einu sinni verið
hæft til böðunar þrátt fyrir að
nýjum og rándýrum síubúnaði
hafi verið komið fyrir í vatns-
síuhúsi Vatnsveitunnar í Stór-
urð. Hnífsdælingar verða enn í
nokkur ár að notast við yfir-
borðsvatn úr vatnsbóli í Langá,
sem rennur um dalinn.
Eins og menn muna sköpuð-
ust töluverð vandræði og tafir
við borun Vestfjarðaganga
þegar bormenn lentu í stórri
vatnsæð inni í fjalhnu. I fyrstu
var rennslið um 2.000 lítrar á
sekúndu en er nú komið niður
í 300 1/sek. Að sögn Eyjólfs
Bjamasonar, forstöðumanns
tæknideildar Isafjarðar, er
vatnsþörf kaupstaðarins ef
Hnífsdalur er undankilinn um
1501/sek.
„Vatnið er úr „Fossinum"
svokallaða inni í göngunum",
sagði Eyjólfur í viðtali við Vf.
„Við tökum á móti því við
jarðgangamunnann. I gær
tengdum við jarðgangavatnið
inn á aðveituæðar sem hafa
legið í vatnsbólið í Tungudal.
Það vatnsból er nú aflagt. Þetta
er fyrsta flokks vatn, síað í
gegnum mörg hundmð metra
þykkan jarðveg. Það er búið að
leggja í þetta verk um 14 millj-
ónir króna, aðallega á síðasta
ári.“
- Er engin hætta á að lindin í
göngunum tæmist í tímans rás?
I fyrstu var magnið 2.000 1/sek
en nú er það komið niður í 300
1/sek og ennþá stefnir kúrfan
niður á við þó hún sé orðin
nokkuð flöt. Hefði ekki verið
betra að leyfa þessu að renna
nokkur ár áður en lagt var í
kostnað við að virkja vatnið?
„Þessi minnkun vatnsins
hefur sífellt verið að jafna sig.
Það eru iíka einhverjar árstíða-
sveiflur í rennslinu. Nú er
sennilega vatnsminnsta tíma-
bilið. Við höfum orð þeirra sem
sérþekkingu hafa á málunum
að þetta verði allt í lagi.
Vatnsbólið í Dagverðardal er
ennþá í notkun. I haust hættum
við að nota það vatn og þá
verða öll vatnsvandamál þeirra
sem búa á Eyrinni og í Firðin-
um úr sögunni. Þá verður búið
að leggja nýja æð niður
Tungudal, frá göngunum og
niður fyrir Bræðratungu, og þar
verður hún tengd inn á Holta-
hverfisæðina og þá verður auk-
ið vatnið á Eyrina líka. Þegar
því er lokið höfum við gæða-
vatn á kerfinu. Samhliða verður
lögð lögn út í Hnífsdal sem í
framtíðinni mun liggja um
Eyrarhlíð og þegar því verki
lýkur verða Hnífsdælingar með
sama vatnið og aðrir íbúar
kaupstaðarins. Það eru einhver
ár í verklokin en það hefur ekki
endanlega verið tímasett.
V atnsþörf Hnífsdal s er 471/sek.
Jarðgangavatnið fer ósíað inn
á kerfið en vatnið úr Dagverð-
ardal fer í gegnum síurnar í
Stórurð. Við getum haldið því
vatni aðskildu frá jarðganga-
vatninu“, sagði Eyjólfur.
-GHj.
Þjónustubók útgerðar
og fiskvinnslu
Út er komin önnur útgáfa
af Þjónustubók útgerðar og
fiskvinnslu, en fyrsta útgáfa
kom út í nóvember 1993
undir nafninu Þjónustubók
fiskvinnslunnar.
Bókinni hefur allri verið
breytt, bæði hvað varðar útlit
og efnistök og er nú um tvöfalt
stærri en fyrsta útgáfa. Bókin er
hugsuð sem handbók allra sem
tengjast útgerð og fisk-
vinnslu; heimild sem menn
geta nýtt sér daglega til að
nálgast upplýsingar um stjórn-
un, reglugerðir og markaðsmál
og til að finna þjónustufyrir-
tæki.
I bókinni er fjallað ítarlega
um gæðastjómun. Þar er m.a.
að finna upplýsingar um
HAACP-eftirlitskerfið, ISO-
o.fi. Þar eru einnig upplýs-
ingar um útflutning og banka-
þjónustu ásamt skrám yfir hin
ýmsu eyðublöð sem fiskút-
flytjendur þurfa að nota.
Fiskistofa dreifir bókinni til
handhafa fiskvinnsluleyfa, en
aðrir geta nálgast hana hjá út-
gefanda, sem er G.L.-útgáfan,
Klapparstíg 25-27, Reykjavfk.
Atvinnuráðgjafi Vestfjarða:
Elsa Guðmundsdottir
hagfræðingup ráðin
Elsa Guðmundsdóttir hag-
fræðingur hefur verið ráðin í
starf atvinnuráðgjafa Vest-
fjarða. Fjórðungssamband
Vestfirðinga gekk frá ráðn-
ingunni í síðustu viku. Elsa er
Vestfirðingum að góðu kunn
vegna starfa sinna sem verk-
efnisstjóri átaksverkefnis í
atvinnumálum kvenna, sem
gengið hefur undir nafninu
Snerpa.
Elsa er menntuð í Banda-
ríkjunum og starfaði þar við
tölvu- og rekstrarráðgjöf áður
en hún fluttist aftur til Islands
árið 1991. Heima tók hún við
Elsa Guðmundsdóttir.
framkvæmdastjórastarfi
Kramhússins og gegndi því þar
hún var ráðin verkefnisstjóri
á Vestfjörðum. Elsa mun taka
við sínu nýja starfi um miðjan
júlí og verður aðstaða hennar í
húsnæði Fjórðungssambands-
ins í Stjórnsýsluhúsinu á Isa-
firði.
Sérstök verkefnisstjórn hef-
ur verið skipuð vegna atvinnu-
ráðgjafans og er hún skipuð
forstöðumanni Byggðastofn-
unar á Isafirði og stjórnarfor-
manni og framkvæmdastjóra
Fjórðungssambands Vestfirð-
inga.
J FRÉTTABLAÐIÐ
Sóttkví í Engidal
w SOTTKVI
Öll ówídkomandi
umferd er strang-
lega bönnud
Þetta stóra skilti er á dyrum eins húsanna í Engidal í
Skutulsfirði sem hýstu loðdýr hér áður. Þrátt fyrir
eftirgrenslan tókst blaðinu ekki að komast að því
hvað þarna væri á ferðinni. Blaðamaður kíkti inn um
glugga en sá ekkert annað en tóm loðdýrabúr innan
dyra. -GHj.
Fjórðungssamband Vestfirðinga:
Stjórnarfundur
á Ströndum
- sumarið notað til að fara um
Vestfirði og hitta fóik
Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga hefur á-
kveðið að halda næsta fund sinn á Ströndum í byrjun
júlí. Leitast verður við að nota sumarmánuðina til
þess að fara um kjördæmið í þeim tilgangi að færa
stjórn sambandsins og framkvæmdastjóra nær
sveitarstjórnum á Vestfjörðum.
Einnig er vonast til þess að heimamenn nýti sér
þessa fundi til þess að setja forystu sambandsins
betur inn í þau verkefni sem unnið er að á hverjum
stað og þá einkum þau mál sem sambandið getur
liðsinnt við.
Haukar unnu sann-
gjarnan sigur á BÍ
Haukar úr Hafnarfirði voru betri aðilinn á móti
BÍ á föstudagskvöldið á Torfnesvelli á ísafirðj.
Lokatölur urðu 0- 2 og má eiginlega segja að BÍ-
menn hafi aldrei komist fyllilega inn í leikinn.
Það voru þeir Þór Hinriksson og gamla kempan
Magni Blöndal Pétursson sem skoruðu mörkin.
Magni gerði sitt mark úr aukaspyrnu af um 30 metra
færi. Hann hitti boltann mjög vel og hamraði hann í
netið, óverjandi fyrir Pál Ólafsson markvörð BÍ.
Þessi leikur er að baki og nú er að einbeita sér að
næsta leik. Þess má geta að Jón S. Guðmundsson
og Björn Ingimarsson þjálfari og leikmaður BÍ voru
báðir í leikbanni og munar um minna.
Aðstæður á „grasvellinum“ ömurlegar
Spilað var á grasvellinum á Torfnesi, og er óhætt
að segja að hann sé í hrikalegu ástandi. Viðgerðir
sem framkvæmdar voru í fyrra, t.d. á markteig nær
íþróttahúsinu, hafa ekki borið árangur. Torfið hefur
ekki náð að festa sig og það var á stundum grát-
broslegt að sjá markverði beggja liða veltast um laust
torfið. Eitt er víst: Laga verður völlinn þannig að leyft
verði að spila á honum í framtíðinni!
Gaui Þ.
„Rekaviðar-
verkefnið Bolur"
- Fjóröungssamband Vestfiröinga
athugar möguieika á nýtingu rekaviðar
Jóhann T. Bjarnason, fyrrv. framkvæmdastjóri Fjórð-
ungssambands Vestfirðinga, vinnur nú að skýrslu fyrir
sambandið um verkefni sem gengið hefur undir heitinu
„Rekaviðarverkefnið Bolur“. Jóhann T. og núverandi fram-
kvæmdastjóri FV, Eiríkur Finnur Greipsson, fara á Strandir
nú í byrjun júlímánaðar í þeim tilgangi að ræða við áhuga-
menn á svæðinu um möguleika á samstarfi við nýtingu
rekaviðar.
Þeir Brynjólfur Sæmundsson á Hólmavík og Guðmundur
B. Magnússon á Drangsnesi munu verða tengiliðir við
heimamenn.