Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Qupperneq 5
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
J^^^^^^^^^^^^^^^Miðvikudagu^^únn995
Hagur ísafjarðarkaupstaðar
batnar með hverju árinu
- meðan hagur íslenskra sveitarfélaga fer almennt versnandi ár frá ári
í Vestfirska fréttablaðinu í
síðustu viku var greint ítar-
lega frá batnandi afkomu
bæjarsjóðs ísafjarðar milli
ára.
Til frekari fróðleiks má
geta um samantekt í Morg-
unblaðinu í síðustu viku
undir fyrirsögninni „Sveitar-
félög rifa seglin“. í undirfyrir-
sögn segir: „Staða sveitar-
félaga versnaði á síðasta ári
og rekstrarkostnaður þeirra
þrengir æ meir svigrúm til
greiðslu skulda." Kópavogs, Seltjarnarness ur farið stöðugt versnandi á allt síðasta kjörtímabil. stöðu ofangreindra fimm
í blaðinu er gerður sam- og ísafjarðar. Þar kemur undanförnum árum hefur Við leyfum okkur að birta kaupstaða á árunum
anburður á fjárhagsstöðu fram, að á meðan hagur staða bæjarsjóðs ísafjarðar hér mynd af súluritum Morg- 1990-94.
Akureyrar, Garðabæjar, fjögurra hinna fyrsttöldu hef- farið batnandi jafnt og þétt unblaðsins yfir fjárhags-
Fjárhagsstaða
Akureyrar
1990-94
1990 1991 1992 1993 1994
Fjárhagsstaða
Garðabæjar
1990-94
1990 1991 1992 1993 1994
í mtlljónum Kr. á
verðiagi í árslok 1994
Fjárhagsstaða
ísafjarðar
1990-94
1990 1991 1992 1993 1994
í milljómim kr. á
verðlagi i árslok 1994
Fjárhagsstaða
Kópavogs
1990-94
1990 1991 1992 1993 1994
Fjárhagsstaða
Seltjarnarness
1990-94
1990 1991 1992 1993 1994
(miUjónum kr. á
verðtagi í árslok 1994
Oddur brotínn?
Eftir að fiskveiðifrumvarp Þorsteins Pálssonar hafði
náð lendingu á Alþingi í vor þar sem nánast var valtað
yfir þingmenn Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum,
einkanlega Einar Odd Kristjánsson, sem gefið hafði
stórar yfirlýsingar en studdi síðan frumvarpið, orti
Sighvatur Björgvinsson:
Einar braut af sér oddinn,
umbun hlaut ekki neina.
Kaldur þykir þeim koddinn,
sem kúra til fóta hjá Steina.
-GHj.
Fjórðungssamband Vestfirðinga:
Lög og reglur í
endurskoðun
Skipuð hefur verið nefnd til þess að endurskoða
lög og reglur Fjórðungssambands Vestfirðinga. í
henni eiga sæti Kristinn Jón Jónsson, ísafirði, for-
maður, Drífa Hrólfsdóttir, Ytra-Ósi í Steingrímsfirði,
Björn Birkisson, Botni í Súgandafirði, Jón Guð-
mundsson, Bíldudal, og Stefán Magnússon, Reyk-
hólum. Varamenn eru Gunnar Grímsson, Hólmavík,
Árni Brynjólfsson, Vöðlum í Önundarfirði, Björgvin
Sigurjónsson, Tálknafirði, og Bjarni P. Magnússon,
Reykhólum.
VESTFIRÐINGAR!
Y'feksij' íínirtgtirstsiðitr
/ fj öýii r)/> ct rg^/ rt n i
ÍHJARTA REYKJAVÍKUR
NÝTT SÍMANÚMER
5 11 11 55
Fagranesið:
Ovissa og neikvæð umræða
hafa skaðað okkur mikið
- segir Reynir Ingason, framkvæmdastjóri Hf.
Djúpbátsins
Fjölmiðlaumræðan, og
reyndar almenn umræða und-
anfarin misseri, uni óvissa
framtíð Djúpbátsins Fagraness
á Isafirði, hefur skaðað rekstur
skipsins mikið, að sögn Reynis
Ingasonar, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins.
„Þessi neikvæða umræða
sem hefur verið um framtíð
Fagranessins hefur greinilega
skemmt mikið fyrir okkur í
sumar“, sagði Reynir í samtali
við blaðið. „Fólk sem hefur
hringt hingað á skrifstofuna og
spurst fyrir um ferðirnar í sum-
ar, bæði erlendis frá og svo Is-
lendingar, hefur staðið í þeirri
trú að búið væri að selja hið
nýja og stóra Fagranes úr bæn-
um og það væri ekki lengur til
taks hér. Þarna hefur verið um
erlendar ferðaskrifstofur að
ræða og einnig einstaklinga."
- Hvernig hafa Homstranda-
ferðir skipsins komið út það
sem af er sumrinu og hvernig
útlitið með þær framundan?
„Þetta hefur verið mjög lé-
legt hingað til. En það virðist
þokast uppávið. Þetta er nei-
kvæðri umræðu að kenna og
hún hefur skaðað okkur mikið.
Þess vegna hefur verið minna
um pantanir en undanfarin ár.
Auðvitað spilar þarna með
þessi harði vetur sem var í vetur
og sumir standa í þeirri trú að
við vöðum snjóinn í klof hérna
fyrir vestan ennþá. Fólk heldur
því fram að sumarið sé ekki
komið hér fyrir vestan. Þetta er
bara vitleysa því hér er komið
sumar. Snjórinn hefur runnið
niður undanfarnar vikur. Ég var
að tala við Sjöfn Guðmunds-
dóttur, húsfreyju í Reykjafirði,
og sagði hún ekki mikinn snjó
þar miðað við venjulegt árferði
og hefði snjórinn horfið nú á
stuttum tíma.“
- Hefur þú nokkrar fréttir af
ferjubryggjum fyrir skipið í
Djúpinu og hér á Isafirði?
„Nei, það er ekkert nýtt í
þeim efnum. Við bíðum bara
spenntir eftir því að þingmenn
Vestfjarða, sem lofuðu miklu
um þessa hluti fyrir kosningar,
beiti sér fyrir því að koma upp
aðstöðu fyrir skipið þannig að
það getir rækt hlutverk sitt og
hafið bflaflutninga um Djúp af
fullum krafti'*, sagði Reynir
Ingason.
-GHj.
Nýr leikskóli í Súðavík:
Fyrsta skóflu-
stungan tekin
- rausnarlegar gjafir Færeyinga
Lionsmanna
Fyrsta skóflustungan að
nýjum leikskóla í Súðavík, en
þar er um að ræða viðbygg-
ingu við Grunnskóla Súða-
víkur, var tekin sl. laugardag.
Það gerði Albert Kemp, fjöl-
umdæmisstjóri Lionshreyf-
ingarinnar á íslandi, og jafn-
framt afhenti hann
höfðinglega gjöf Lionsmanna
á Norðurlöndum til byggingar
leikskólans eða liðlega 8
milljónir króná.
Stærsta framlagið til leik-
skólans kemur þó frá Færey-
ingum, eins og kunnugt er, eða
25 milljónir króna. Ekki var
neinn frá Færeyjum við at-
höfnina á laugardag, en börn í
Súðavík tóku þátt í henni fyrir
hönd Færeyinga, að höfðu
samráði við Paul Mohr, ræðis-
mann Islands í Færeyjum.
Við athöfnina flutti sr.
og norrænna
Magnús Erlingsson blessun-
arorð.
Leikskólabyggingin nýja
mun kosta liðlega 50 milljónir
króna og vantar lítið á að sú
upphæð sé til staðar. Auk
þeirra framlaga sem að ofan
greinir fást um 12 milljónir
króna úr tryggingum vegna
gamla leikskólans sem varð
fyrir snjóflóðinu.
5
TRIAL BY JURY
THE LAST
SEDUCTION
Videohöllin er eins
og lífið - hún kemnr
sífellt á óvart
Videohöllin
S. 456 4853
Númer sem má syngja
Gaui alltaffyrstur
með myndirnar
TIL SÖLU
TIL LEIGU
THE CROW
PASSENGER 57
JURASSICPARK
THE PROGRAM
THEDARKHALF
MYLIFE
HARD TARGET
MASK
ACE VENTURA
PELICAN BRIEF
MAVERICK
og margar margar
fleiri
MlKltí ÚRVAL
AFBARNA-
MYNDUM
m/íslensku tali
TIL SÖLU