Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Blaðsíða 6

Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Blaðsíða 6
VESTFIRSKA 6 Patreksfjöröur: Löggan á felgunni Aðfaranótt sunnudagsins var loftinu hleypt úr öllum dekkjum annara tveggja lögreglubifreiða hjá lögregl- unni á Patreksfirði. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki. Að sögn lögreglunnar hefði þetta tiltæki getað komið sér afar illa ef eitthvað sérstakt hefði komið uppá í nágrenninu því þetta var jeppabifreið lögreglunnar. Töluverður erill var hjá lögreglunni á Patreksirði um helgina vegna ölvunar. -GHj. Altarisganga í Holtskirkju Helgistund með altarisgöngu verður í Holtskirkju í Önundarfirði á sunnudaginn, 2. júlí, kl. 14.00. Sr. Gunnar Björnsson predikar og þjónar fyirr altari. íbúð til sölu Til sölu er íbúð á 1. hæð að Aðalstræti 17, ísafirði. íbúðin er 86,5 fm, þriggja herbergja ásamt geymslum í kjallara og á háalofti og hlutdeild í sameign. Upplýsingar gefur Guðmundur í síma 456 4231 á kvöldin. Til sölu Ferðamálablaðið Flóki er til sölu, ef viðunandi tilboð fæst. Upplýsingar í síma 456 4684. Pétur Bjarnason. 5 stk. stálhillurekkar hillustærð 70x90, hæð 2,50 m. Hjólsög, Jack Midhage. Einnig vinnuborð og borð með hillum (fínt íbílskúrinn) ÍSPRENTHF. Fjarðarstrceti 16, ísafirði, s. 4563223 dr 456 4411 Miðvikudagur 28. júní 1995 \ FBFTTABLAÐIÐ Engin grenjavinnsla verður í landi ísafjarðarkaupstaðar - hvorki í heimalandinu né á Ströndinni, Jökulfjörðum og Austur-Ströndum - mikill urgur í bændum og ráðamönnum nágrannasveitarfélaganna vegna þessa háttarlags í framhaldi af frétt í síðasta blaði um að Isafjarðarkaup- staður hafi hafnað þeim Kleifabræðrum, Haraldi og Ó- lafi Guðmundssonum, til grenjavinnslu á Snæfjalla- strönd hafa margir haft sam- band við blaðið og bent á að ef Isafjarðarkaupstaður sjái ekki um grenjaleit í landi sínu sé verið að brjóta landsiög. Er mikill urgur í mönnum vegna þessa. Eftir að Grunnavíkurhreppur sameinaðist Snæfjaliahrepp árið 1964 var aðeins um eitt sveitarfélag að ræða, Snætjallahrepp. Hreppurinn náði því frá Kaldalóni að tjall- inu Lás, milli Hesteyrartjarðar og Veiðleysufjarðar í Jökul- fjörðum. Undanfarna áratugi hefur Ragnar Jakobsson í Reykjafirði séð um grenja- vinnslu á svæðinu frá Hom- bjargi að Geirólfsgnúpi, þ.e.a.s. Húnaflóamegin á svæðinu. Sigurjón Hallgrímsson frá Dynjanda hefur séð um vinnsl- una Jökulfjarðamegin, frá Lás að Bjarnarnúpi. Síðan hafa Kleifabræður séð um refa- vinnslu á Ströndinni frá Núp að Kaldalóni undanfarin sex ár. Nú hefur allt þetta land allt verið sameinað Isafjarðarkaup- stað og er eitt sveitarfélag og fer bæjarstjórn Isatjarðar með völdin alla leið norður að Hornbjargi og þykir ýmsum nóg um. Blaðið hafði samband við Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóra á Isafirði og spurði hann hvort Ragnar og Sigurjón hefðu verið ráðnir til grenjavinnslu á þeim svæðum sem þeir hafa haft í sinni umsjá. „Ragnar hefur ekkert samband haf't við mig“, sagði bæjarstjóri. „Sig- urjón hefur hins vegar verið í viðræðum við mig um þetta mál. Ég á ekki von á að Ragnar og Sigurjón verði ráðnir. Það væri óeðlilegt eftir að hinum var hafnað og ég tel að það sama eigi að gilda um alla þessa menn og þeir eigi allir að fá sömu afgreiðslu hjá okkur.“ - Verður engin grenjavinnsla í heimalandi kaupstaðarins? Nú er töluvert fuglavarp við flug- völlinn sem erfitt hefur verið að verja fyrir tófu... „Svo er sagt, já. Það hefur enginn verið ráðinn hér í heimalandið heldur“, sagði Kristján Þór Júlíusson. Blaðið hefur fregnað að mikil óánægja ríki með þessa ákvörðun bæjarstjórnar Isa- fjarðar hjá ráðamönnum ná- grannasveitarfélaganna. Telja þeir að Isfirðingar ali upp varg í sparnaðarskyni og kostnaður við útrýmingu hans lendi svo í auknum mæli á nágrönnum þeirra því þegar refurinn er ekki drepinn og fær að komast upp óáreittur þá fjölgi honum svo að hann streymi yfir í aðrar byggðir. Bóndi í Isafjarðardjúpi hafði samband við blaðið og benti á að þegar Snæfjallahreppur sameinaðist Isafirði hefðu bæjaryfirvöld lofað í samn- ingaviðræðum að séð yrði um eyðingu refs og villiminks eins og lög gera ráð fyrir. Sagði viðmælandinn mikinn urg vera í bændum á svæðinu. Einnig hefur blaðið áreiðan- legar heimildir fyrir því að oddvitar sveitarfélaga í ná- grenni Isafjarðar hyggist kæra bæjarstjórn Isafjarðar fyrir að brjóta lög um útrýmingu refs og villiminks. Telja þeir hinir sömu að háttarlag yfirvalda á Isafirði sé síst til þess að auka líkur á frekari sameiningu sveitarfélaga. -GHj. Árneshreppur: Köttui1 dnepun mink Brandur, heimilsköttur Úlf- ars Eyjólfssonar á Krossnesi á Ströndum, gerði það heldur gott um daginn og drap mink og færði húsbónda sínum. „Já, hann Brandur minn er á við bestu ntinkahunda", sagði Últ'- ar í samtali við blaðið. „Brand- ur hefur farið á minkagreni hérna rétt innan við bæinn og drepið minkahvolp og svo fór hann með hvolpinn í votheys- gryfjuna. Brandur er mikið veiðidýr og vanur að koma með mýs sem hann drepur heim í gryfju. Það eru eitthvað um 900 krónur fyrir minkaskottið. Ég er að spekúlera að nota Brand við minkaveiðar í framtíðinni. Ég þarf að fara með hann á grenið og láta hann sækja hvolpana sem eftir eru í því. Grenið er í stórurð sem ekkert er hægt að hreyfa við. Ég get sjálfur skotið læðuna. Ætli maður hafi ekki Brand með í minkaleitir í framtíðinni", sagði Úlfur. -GHj. Skálavík í eyöi - allt Djúpið að fara sömu leið? Strandamaðurinn Kristján Garðarsson er nú um þessar mundir að flytja frá Skálavík við Mjóafjörð í Djúpi eftir 4ra ára búskap þar. Kristján er að flytja ásamt fjölskyldu sinni að Efri-Múla í Saurbæ í Dölum, þar sem hann ætlar að búa með kýr. Skálavík er til sölu án kvóta og þá hugsanlega sem sumarbústaðaland. „Sá grunur læðist að manni að Djúpið sé allt að fara í eyði hægt og sígandi", sagði Krist- ján í samtali við blaðið. „Byggðin þolir ekki þessar endalausu kvótaskerðingu í landbúnaðinum. Þetta bitnar á svona strjálbýlum sveitum. Ég seldi fjárkvótann en ekki mjólkurkvótann og ætla að búa með kýr í Saurbænum. Það á enn eftir að skerða kvótann og maður hefur heyrt ógnvænlegar tölur um skerðinguna sem á að verða í haust. Hún verður á bilinu 10 til 15%.“ - GHj. ísafjörður: Einn í gpjotið Einn sat í steininum á ísafirði aðfaranótt sunnudagsins vegna ölvunar og óláta. Mun sú gisting vera með dýrasta móti í saman- burði við verð á hótel- herbergjum og þægind- in ekki að sama skapi. -GHj.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.