Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Síða 7

Vestfirska fréttablaðið - 28.06.1995, Síða 7
YESTFffiSKA FRÉTTABLAÐIÐ L Miðvikudagur 28. júní 1995 Umdæmisþing rótarýmanna haldið á ísafirði - í fyrsta sinn í sögu rótarýhreyfingarinnar á íslandi - Egill á Hnjóti sæmdur heiðursverðlaunum íslenskra rótarýmanna Umdæmisþing íslensku rótarýhreyfingarinnar (Rotary International á Islandi) var haldið á ísafírði fyrir og um síðustu helgi. Þetta var í fyrsta sinn í liðlega 60 ára sögu rótarýstarfs hérlendis sem árs- þingið er haldið á Vestfjörðum. Á þinginu lét Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður af starfi umdæmisstjóra Rótarý á Islandi, en hann hefur gegnt embættinu síðastliðið starfsár. Hátt á annað hundrað gestir komu til Isafjarðar í tilefni af umdæmisþinginu. Fundir voru haldnir í sal Framhaldsskóla Vestfjarða en kvöldverður var snæddur í Félagsheimilinu í Hnífsdal á föstudags- og laug- ardagskvöld og þar var lokafagnaður haldinn á laugar- dagskvöldið og dansað t'ram á rauða nótt. Á landinu eru starfandi 25 rótarýklúbbar. Elstur er Rótarýklúbbur Reykjavíkur, stofnaður árið 1934, en Rótarýklúbbur ísafjarðar er næstelstur, stofnaður árið 1937. Einu sinni áður hafa ísfirðingar átt umdæmisstjóra íslenska rótarýumdæmisins, en það var Kjartan Jóhannsson héraðs- læknir. Árlega veita íslenskir rót- arýfélagar sérstaka viðurkenn- ingu úr starfsgreinasjóði sínum. Að þessu sinni varð Egill Ó- lafsson á Hnjóti í Örlygshöfn þessa heiðurs aðnjótandi, fyrir ómetanlegt starf áratugum saman við söfnun og varðveislu íslenskra menningarverðmæta. í ár eru 90 ár liðin frá stofnun Rotary International og hefur afmælisins verið minnst um allan heim. Fyrsti fundurinn var haldinn í Chicago í febrúar- mánuði árið 1905 að frum- kvæði manns að nafni Paul Harris. Umdæmisstjóraskipti fara fram í lok umdæmisþings ár hvert. Hér hagræðir sá fráfarandi, Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á ísafirði, umdæmisstjórakeðjunni um hálsinn á arftaka sínum, Ásgeiri Jóhannessyni forstjóra í Kópavogi. Til vinstri á myndinni eru eiginkonur þeirra, þær Sæunn Sveinsdóttir og Þórdís Jónsdóttir. Frá umdæmisþingi rótarýmanna í sal Framhaldsskóla Vestfjarða. í ræöustól er Jón Páll Halldórsson framkvæmdastjóri, en hann flutti erindi um ísafjarðarbæ og sögu hans og um Rótarýklúbb ísafjarðar. vantar gömul föt Vegna 50 ára afmælishátíðar ísftrðingafélagsins, sem haldin verður á ísafirði helgina 21.-23. júlí, vantar Litla leikklúbbinn gömul föt, bæði vinnuföt og betri föt, t.d. buxur, pils, skyrtur, peysur, stíg- vél og skó. Því eldri og slitnari, því betra. Hafið samband við Höllu. s. 456 438B, Þórdísi, s. 456 3193, eða Björgu, s. 456 5121, sem fyrst. Á föstudagskvöldið heimsóttu rótarýgestir Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á ísafiröi. Hér má sjá þá Ólaf Helga Kjartansson, fráfarandi umdæmisstjóra á íslandi. og Roy J.A. Whitby, fulltrúa alheimsforseta Rotary International, leiða eiginkonu hins síðarnefnda á milli sín út eftir járnbrautarsporinu framan við Turnhúsið. Egill Ólafsson á Hnjóti (til vinstri) veitir viðtöku heiðursverðlaunum úr starfsgreinasjóði íslenska rótarýumdæmisins úr hendi Ólafs Helga Kjartanssonar umdæmisstjóra. Á milli þeirra er Georg Tryggvason lögfræðingur, formaður sjóðsstjórnar. Grunnskólarnir á Vestfjöröum: Góður og mjög batn- andi árangur í sam- ræmdum prófum Misjafnt gengi grunnskóla- nemenda á Vestfjörðum í sam- ræmdum prófum hefur mikið verið til umræðu á undanförn- um árum. Utkoman úr sam- ræmdu prófunum var þó öllu betri fyrir Vestfirði núna í ár en síðastliðið ár. Til dæmis var meðaltalseinkunn á Vestfjörð- um í sfærðfræði nokkuð svipuð og í öðrum fræðsluumdæmum á landsbyggðinni. Útkoman í Bolungarvfk var mjög góð, skólinn þar var vel yfir landsmeðaltali, allt að hálfum í ensku, sem kom best út. Þá hefur það heyrst að ein- kunnir ú samræmdu prófunum í vor hafi komið enn betur út á Flateyri heldur en í Víkinni og heyrst hefur einnig um gott gengi f Súðavík. Ýmsir skólamenn hafa lýst þeirri skoðun sinni við blaðið að óverðskuldað sé að þakka fræðsluskrifstofunni einni þennan bætta árangur. Hann sé að þakka samstilltu átaki kenn- ara og nemenda í viðkomandi skólum. Eftir slæmt umtal í tjölmiðlum og annars staðar hafi skólafólki þótt nóg komið af því góða. Hins vegar segja skólamenn að ekki megi gera lítið úr því átaki sem fræðsluskrifstofan hóf síðastliðinn vetur. Árangur af því átaki muni bara taka lengri tíma til þess að skila sér. -GHj.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.